Ísafold - 12.03.1890, Blaðsíða 3
fyrirtækja, sera ekki gátu borið þeim bráðan
arð.
Jeg hef leiðzt til þessara athugasemda vegna
þess, að hjer er nýdáinn bóndi, sem var
glöggt dæmi þess, að rnenn geta hjer á landi
grætt talsvert fje inntektalaust, að eins á
handafla sínum og forsjá, og sýnt þó jafnframt
höfðingsskap og hjálpsemi.
Bóndinn var B j ö r n J d n s s o n í Sleð-
brjótsseli í Jökulsárhlíð.
Hann fæddist í Sleðbrjótsseli 11. maí 1823
og var þar allan sinn aldur nema eitt ár hálft,
sem hann var Ijeður í burtu. Foreldrar hans
voru fátækir. Faðir hans Jón bjó í Sleðbrjótsseli
og var sonur Bjarna bónda á Straumi í Tungu,
Eiríkssonar á Geirastöðum, Björnssonar, en
móðir hans var Sigríður dóttir Sigfúsar prests
Guðmundssonar á Asi og síðari konu hans
Guðríðar Hermannsdóttur bónda í Fagradal
í Breiðdal, Einarssonar, 6lafssonar, Guð-
mundssonar, Hermannssonar, auðugs bónda í
Eyjum ]' Breiðdal, er þar var drengur 4 vetra,
er Tyrkir ræntu þar 1627. Faðir Björns
varð úti 1826, en móðir hans giptist aptur
og átti þórð son Jóns prests Hallgrímssonar í
þingmúla og bjuggu þau í Sleðbrjótsseli til
dauðadags; hún dó 1839, en hann 1848.
Björn hjelt þá áfram búi fóstra síns með
hálfsystkinum sínum 4 og ráðskonu hans til
1852. f>á giptist hann 7. ág. 1852 Helgu
Sigurðardóttur frá Straumi, bræðrungu sinni,
og reisti bú með henni í Sleðbrjotsseli 1853
um vorið. þórður stjúpi hans var allvel
fjáður bóndi; en ekki veit jeg, hvernig hefir
farið um arf eptir móður hans; en það sagði
Björn mjer í haust, að þegar hann byrjaði
búskap, hefði hann ekki sjálfur átt nema
1 á og 1 tryppi, en keypti í skuld á uppboði
eptir fóstra sinn fyrir 700 kr., og með þess-
um eignum og skuldum byrjaði hann búskap-
inn. f>au Helga áttu 4 börn, en ekki komst
nema einn þeirra upp. Hann átti eina al-
systur og giptist hún fátækum manni og
voru þau lengstum í vinnumennsku hjá hon-
um og áttu hjá honum 8 börn, sem flest
stálpuðust nokkuð, jafnvel tii 8 ára, en eigi
varð nema 1 þeirra fullorðið. Auk þess tók
hann 2 börn til fullkomins fósturs. Kona,
hans dó 22. okt. 1874. Bjó hann þá með!
ráðskonu f 5 ár, þangað til hann giptist apt-
ur 17. okt. 1879 hinni eptirlifandi ekkju sinni
Katrínu Einarsdóttur, er þá var ekkja. f>au
áttu 1 barn og ólu upp annað vandalaust.
Auk þess tóku þau annað barn til fósturs,
er ekki lifði lengi hjá þeim, en hin lifa
hann. Opt hafði hann þar að auki vinnuhjú
með börnum, sem flestum þykir lakara að
halda en slypp hjú, en Björn sagði í haust
um það þessi einkennilegu orð við mig: »Jeg
hef opt haft vinnuhjú með börnum og aldrei
gengið betur en þá. f>að er gott að hafa
það svo. Aumingja börnin eru bara til bless-
unar. Jeg hef gaman af þeim, og svo geng-
ur allt vel«. Honum gekk allt af vel, enda
var það honum mikil hamingja, að báðar
konur hans voru hinar vænstu konur og ráð-
deildarsamar. Heimili hans hafði líka ætíð
hið heiðarlegasta orð á sjer. Auk þess veg-
lyndis, sem þegar er talið, var hann greiða-
maður mikill og hjálpsamur við bágstadda
og framúrskarandi gestrisinn við hvern sem
var, án manngreinarálits, svo að það er mjög
sjaldgæft, að hitta jafn-einlæglega gestrisinn
mann; enda kom margur maður til hans, þó
að hann væri ekki í þjóðbraut.
Hann hafði ekki verið settur til annara
mennta á yngri árum, en að læra kverið sitt
og kynnast biflfunni. Biflían var honum líka
alla æfi mjög kær, enda var hann mjög guð-
hræddur maður. Hann hafði því eigi að
fagna þeim hagsmunum, sem menntumn get-
ur veitt. |>ó kunni hann að skrifa og hið
nauðsynlegasta í reikningi. þ>ó að hann gæti
ekki komið fram sem menntaður maður,
kom hann þó fram sem kurteis maður, og
dagfarið var mjög hógvært og látlaust. En
nokkuð kom hann einkennilega fyrir; hann
hann var svo blíður á manninn, að mörgum
þótti um of, og hugðu í fyrstu að hann hlyti
að vera fullur með fláraeði og hræsni. En
þess háttar átti sjer þó alls ekki stað hjá
honum, heldur var hann einlægur og hrein-
skilinn og óvanalega vandaður í orðum; eink-
um var hann hinn umtalsbezti maður. Hann
var alla stund mjög jafnlyndur og glaðlyndur.
Hann hafði verið fjörmaður framan af, en
þó var hann aldrei neinn ákafamaður í fram-
kvæmdum, en furðanlega áræðinn, ýtinn og
drjúgur, og aldrei óstarfandi, nema þegar
hann var hjá gestum sínum. Hann var mjög
hygginn maður og forsjáll; þó fundu menn
að sumu í biiskaparháttum hans, sjerstak-
lega að því, að hann hafði ætíð langtum
meiri nautpening en öðrum þótti hæfilegt í
samanburði við töðufall jarðarinnar, en hann
græddi það 4 því, að tún hans var meira en
helmingi stærra og betra þegar hann fjell
frá, en þegar hann byrjaði.
Hann byggði upp allan bæ sinn sterklega
og laglega. Öll úthýsi hafði hann og byggt,
aukið bæði húsum og hlöðum, og var allt
myndarlegt, sem hann Ijet vinna. Hann gekk
sjálfur stöðugt að vinnu með hjúum sínum og
sagði um það : »f>að er hollast að hafa það
svo, og meðan jeg dugði sjálfur að vinna,
gekk allt vel, þó að liðið væri ekki æfinlega
sem duglegast; en síðan jeg fór að verða ó-
nýtur sjálíur, þá hefir allt gengið einhvern
veginn tregara , enda þótt jeg hafi verið
með».
þetta var nú hans reynsla, og því miður
hin sorglega reynsla bænda vorra yfir höfuð,
og sýnir um leið aðalorsökina til þess, að em-
hættismönnum vorum gengur yfir hfuð að
tiltölu lakara búskapur en bændunum.
Framan af óx bú hans stórum árlega; en
hin síðari ár gekk það tregara, og hin
síðustu harðinda-ár kvað hann gengið hafa af
sjer, enda varð hann þá fyrir miklum áföll-
um, eins og margir aðrir. |>ó hafði hann
lengi verið bezti bóndi í Jökulsárhlíð, og hin
öflugasta stoð sveitar sinnar. Um tíma var’
hann hreppstjóri. Síðustu ár galt hann til
sveitar nærri því helmingi meira en sá, sem
næstur honum var að gjöldum.
þannig komst hann áfram, og það þó hann
byggi ekki á neinni afbragðs-jörð. Sleðbrjóts-
kot er að eins 6 hndr. gömul (11,53 hndr.
ný) og er erfið jörð að mörgu leyti og liggur
í harðindasveit og í hinni mestu veðrahættu-
sveit. En með hans forsjá gekk allt furðu
vel. Hann keypti þá jörð og fleiri og hafði
eignazt um 50 hndr. (ný) í jörðum, þegar
hann dó Dálítinn arf hafði hann fengið við
lát hálfsystkina sinna, en ekki til muna; og
nokkurt fje fjekk hann með hinni síðair
konu sinni. Hann hafði gefið meira en 7,000
kr. út fyrir jarðir sínar, og áttí allc af gott
bú. Bú hans er enn ekki virt, en sje tekið
tillit til þess, sem hann gaf fyrir jarðir sín-
ar og hvað Sleðbrjótssel hefir batnað undir
hans hendi, og lauslega áætlað um verð á búi
hans dauðu og lifandi, hygg jeg hann hafi
grætt á þessurn 36 árum, sem hann hefir
búið hjer um bil 11—12,000 krónur, einkum
ef litið er dalítið til kostnaðar hans við
byggingar. Útgjöld hvfldu þó mikil á honum
einkum hin síðustu ár, og voru þá sveitar-
gjöld hans orðin yfir 100 kr. árlega. Ef
gróði hans væri talinn 11,000 kr., þá hefði
hann grætt að meðaltali í 36 ár um 300 kr.
árlega.
þetta getur inntektalaus bóndi grætt á ís-
landi, og það á litlu koti í hinum hörðustu
sveitum þess, hvað þá í hinum beztu sveit-
um, ef jöfn væri forsjá, hamingja og dugnað-
ur. En þeir verða eigi að síður fáir, sem
enda æfi sína með jafn miklum árangri eins
og Björn sál. og hafa þó staðið jafn heiðar-
lega í stöðu sinni eins og hann gjörði sem
maður og fjelagsmaður. — Hann dó 4. des.
f. á. úr lungnabólgu, 66 ára gamall.
Kirkjubæ 2. jan. 1890. B. J.
2000-ára-afmælis-sjóður íslands.
Húíu 8. (). m lögóu 5 menn hjer í Rvik i Söfn-
unarsjóflinn 4 kr. í peningum, með þeim kjörum,
að vextir og höfuöstóll skyldi útborgast árið 2874,
á 2000-ára-almæli íslands.
Standi þessar 4 kr. á vöxtum þessi 984 ár með
að eins 1 °/0, þá verður upphæðin orðin samt með
vöxtum 89,730 kr.
Sjeu vextirnir liafðir 2°/0, verður uppbæðin orðin
1160 miljónir, en það verða rúmar 16.500 kr. í hlut
handa hverju mannsbarni á íslandi, með þeirri
fólkstölu. er uú er, 70 þúsundum.
Sjeu vextirnir hafðir 3°/0, verður afmælissjóður-
inn 17 biljónir 240 þús. miljónir. það verða 246
miþ. handa hverju mannsbarni á Islandi; þá gæti
hver maður á landinu haft i árstekjur 4900 kr., þó
hann Ijeti sinn hlut standa á vöxtum með að eins
2°/0.
Húskofi til að geyma i þessar 17 biljónir 240 þús.
milj. í gulli í tómum 20-króna-peningum þarf að
vera 400 áln. á lengd, 300 áln. á breidd og 20 áln.
á hæð.
Póstskipið Laura ber 700 smálestir, og ætti hún
að flytja upphæðina í gulli frá Reykjavík til Eng-
lands, og t. a. m. færi 30 ferðir á ári, þyrfti hún
til þess rúm 411 ár.
En stæðu nú þessar 4 kr. á vöxtum allan tím-
ann með 4°/0, þá verður upphæðin orðin á 2000-
ára-afmæli íslands 288 þústmd og eitt hunrlrað
biljónir. Sú tala lítur svona út:
288,100,000,000,000,000.
Með þessu fje mætti hylja allt ísland og alla
firði í kring um það með 20-króna-gullpeningum,
röðuðum hverjum við annan, og yrði þó nokkuð
afgangs.
þó að landsbúar á íslandi væru þá orðnir 1
miljón, á 2000-ára-afmæli landsins, gæti hvert
mannsbarn á landinu samt fengið i hátíðargjöf a£
sjóði þessum 288,100 milj. kr. En það er svo
mikið fje, þetta sem hver fengi í sinu hlut., að
meðal-mannsæfi entist eigi til að telja 20. partinn
af því, þó að það væri í eintómum 20-króna gull-
peningum, og maðurinn teldi 720,000 kr. á dag,.
60,000 á klukkustundinm.
Væri áminnztum afmæliss]oði skipt upp á milli
allra jarðarbúa, og sje ætlað á, að þeir verði
orðnir 2000 miljónir árið 2874, þá fengi hver i hlut
144 milj. kr., og gengju 9 mánuðir til að telja
hvern hlut í 20-króna-peningum, með því áfram-
haldi, er fyr segir.
Gufuskipafjelagið danska á 100 gufuskip, eins
og frá var skýrt nýlega í ísafold. Væri sá floti
allur fenginn til að flytja afmælissjóðinn til Eng-
lands, og færi 30 ferðir á ári, yrði þeim flutningi
samt ekki lokið á skemmri tíma en 100,000 árum.
Sjóðstofnun þessi er, eins og gefur að skilja,
gerð fremur i gamni en alvöru. Hvorki sjóðstofn-
endurnir nje aðrir munu láta sjer til hugar koma,
að sjóðurinn verði orðinn 288,100 biljónir kr. á
200-ára-afmæli íslands,—ekki vegna þess, að fram-
angreindur reikningur muni eigi vera fyllilega
rjettur, og þvi þurfi eigi annað en að frumstofn-
inn, 4 krónurnar, sje reglulega ávaxtaðar, með að
eins 4°/0, ásamt rentum og renturentum, — heldur
af því, að það sem fyrir getur komið á jafnlöngu
tímabili til tálmunar þrifum og viðgangi sjóðsins,
er svo ótal-margt og mikið, að sje nokkur hlutur
vonar-gripur, þá er það vonin í þessum feikna-
mikla sjóði eptir 994 ár.
£n glöggt og áþreifanlegt dæmi er þetta því til
skýringar, hve leykilega fje getur aukizt á löng-
um tíma með einföldum vöxtum og vaxtavöxt-
um.
Menntunarfjelag verzlunarmanna
í Reykjavík. Svo uefnist nýtt fjelag, er
stofnað var í gærkveldi, á fjölmennuui fundi
í »hótel Reykjavíkn, með þeirri fyrirætlun