Ísafold - 14.05.1890, Blaðsíða 2
154
þótt ekki gæti hann heitið neinn þing-
skörungur. Við lækningar fekkst hann
talsvert í Dalasýslu, með yfirvalds leyfi og
eptir nokkurs konar próf hjá landlækni
(J. Hjaltalín), til að bæta úr læknisleysinu
þar, enda hafði hann mikla hjálpfýsi og
góðvild til að bera. Verðlaun fekk hann
einu sinni úr styrktarsjóði Christians kon-
ungs níunda fyrir búnaðarframfarir og
jarðabætur. — Hann lætur eptir sig konu
og mörg börn, upp komin.
Bókmeimtafjelagsfuiidur var haldinn
hjer í Reykjavíkurdeildinni í fyrra dag.
J>ar var lagður fram endurskoðaður reikn-
ingur deildarinnar fyrir árið 1889. Reikn-
ingur frá Hafnardeildinni ókominn enn.
Með því að þannig vantaði skýrslur um
fjárhagsástand fjelagsins — en upp frá
þessu á deildin hjer að taka við öllum
fjelagstekjum innanlands —, og með því
sömuleiðis var ókunnugt um, hvað Hafn-
ardeiidin ætlar fyrir sjer með bókaútgáfur
þ. á., þá var frestað að ákveða um
bókaútgáfur þessarar deildar í ár til árs-
fundarins 8. júlí, — um fram hinar venju-
legu ársbækur,- Tímarit, Frjettir frá ís-
landi, Skírni, sem er prentaður fyrir
nokkru, og Skýrslur og reikninga.
Fjeiagsdeildin hafði fengið senda rúss-
neska bók, þýðingu á Eiríks sögu hins
rauða, með vinsamlegu brjefi frá höf.,
Serge N. Syromiatnikow í Pjetursborg,
rituðu á dönsku, þar sem^hann kveðst í
inngangi ritsins hafa skýrt fyrir sínum
rússnesku lesendum, hvaðan hin forn-
norræna bókvísi stafaði og hversu mikils-
verð hún væri. Segist vona, að fjelaginu
muni ánægja að sjá, að jafnvel austur á
Rússlandi sjeu til menn, sem kunni að
meta afreksverk forfeðra vorra og hafi
yndi af að kynna sjer hinar merkilegu
bókmenntir vorar.
Ofþreugsli af færeyskum f'iskimönn-
Uiil. í síðustu Stjórnartíð. er svar frá
landshöfðingja til amtmannsins norðan og
austan, út af fyrirspurn um rjettan skiln-
ing á ráðgjafabrjefi 27. júní 1888 um
staðfesting á fiskiveiðasamþykktum. Skýrir
amtmaður frá, að leitað hafi verið fyrir
skemmstu staðfestingar sinnar á fiski-
veiðasamþykkt nokkurri (af Austfjörðum?),
„sem fer fram á útilokun aðkomandi fiski-
manna, - með því að verstöð sú, sem
ætlazt til að samþykktin gildi fyrir, hafi
síðustu 4 ár verið ofsett af fiskimönnum,
þannig, að alls 483 bátar, er Færeyingar
áttu þriðjunginn af, með 868,600 önglum
á línu, hafi á síðustu 4 árum gengið til
fiskjar á svæði, sem er talið um hálfa
ferh.-mílu á stærð.
I áminnztu ráðgjafabrjefi stóð, að eigi
bæri að staðfesta neina samþykkt, er
innihjeldi útilokun aðkomandi fiskimanna,
nema amtmanni sje með áreiðanlegum
skýrslum sannað, að ekki sje á annan
hátt hægt að vernda fiskiveiðar þarsveit-
armanna. Kveðst amtmaður nú, sem
vonlegt er, ekki geta hugsað sjer annan
veg til að vernda fiskiveiðar manna, þar
sem veiðistöðin fyllist svo um of af aðsókn
aðkomandi fiskimanna, að „þarsveitar-
menn“ geta ekki stundað atvinnu sína
eins og þeir vilja heldur, en þann einn,
að útiloka hina aðkomandi fiskitnenn.
Eptir skoðun landshöfðingja eiga um-
mælin í ráðgjafabrjefinu ekki við neina sjer-
staka verndunaraðferð, er átt geti við á
öllum veiðistöðvum, heldur sje með þeim
að eins gefið til kynna, að svo framar-
lega sem einhver önnur aðferð yrði álitin
nægilega verndandi á vissum veiðistöðum,
þá beri heldur að nota hana heldur en
að grípa til útilokunarinnar, sem þyki
örþrifsráð, og verði amtmaðurinn í hverju
einstöku tilfelli að athuga ástand og til-
háttan alla, og dæma um, hvort það er
nægilega upplýst um hvern einstakan
stað, er farið er fram áútilokun fyrir, að sá
vegur sje nauðsynlegur til að veita þar-
sveitarmönnum nauðsynlega vernd.
Sig'ling. Hingað kom 21. apríl Val-
kyrien (161 smál., skipstj. Nielsen) frá
Khöfn til Fischers verzlunar; 26. s. m.
Anna (71, Rasmussen) frá Khöfn til Eyþórs;
29. s. m. Keflavík (61, Albertsen) frá
Keflavík (og Khöfn) til Fischers verzlun-
ar; 3. maí Familiens Haab (114, Brandt)
frá Khöfn til Thomsens; 6. Sömanden
(99, Olsen) frá Khöfn til Bryde; 6. Dag-
mar (100, Nielsen) frá Mandal með við til
lausakaupa; 13. Nancy (115, Heintzelmann)
frá Khöfn til Fischers verzlunar.
filskipaafli. Flákarlaveiðaskip þeirra
Geirs kaupmanns Zoega & Co. hafa feng-
ið þetta á vetrarvertíðinni: Geir (skipstj.
Sig. Símonarson) 254 tunnur lifrar, Gylfi
(Markús Bjarnason) 291 tn., Matthildur
(Jóhannes T. Zoega) 211 tn. f>orskveiði
stunduðu: Haraldur, eign hinna sömu,
skipstj. Finnur Finnsson, fjekk 7 þús.;
Margrjet, eign hinna sömu, skipstj, Guð-
mundur Kristjánsson, fjekk g’/2 þúsund;
To Venner, eign hinna sömu og Jóns
Olafssonar, skipstj. Jón J>órðarson, fjekk
12 þús.; Einingin, eign Fyþórs Felixson-
ar, skipstj. Páll flafliðason, fjekk 8'/2
þús.; Njáll, skipstj. og eigandi Jón Jóns-
son, fjekk 12 þús.; Klarína, eigendur Eri.
Guðmundsson og Pjetur Sigurðsson, skip-
stj. Runólfur Oiafsson, fjelck 10 þús.
Biskups-vísitazíil stendur til að fram
fari í Dalasýslu um miðjan júnímánuð.
Ætlar biskupinn, herra Hallgr. Sveinsson,
með strandferðaskipinu „Thyra“ vestur í
Stykkishólm 13. júní, þaðan inn í Dali
og síðan suður hingað aptur með „I.aura“
þegar hún kemur norðan um land og
vestan seint í júní.
Prestakðll. Um Bægisá hefir enginn
sótt nema Theodór Jónsson prestaskóla-
kandídat (frá Auðkúlu).
Síra Jónas Guðmundsson á Staðarhrauni
hefir sótt um lausn frá prestskap, vegna
sjóndepru.
Um Rangárvallasýslu sækja að sögn
þeir Sigurður sýslumaður Olafsson á
Kirkjubæ, yfirrjettamálfærslumaður Páll
Briem og cand. juris Björn Bjarnarson.
„Sigurði sýslumanni hafa Vestur-Skapt-
fellingar almennt sent áskorun um að
apturkalla bónarbrjef sitt“ — er skrifað
þaðan 2. þ. m.— „J>ykir þeim hin mesta
eptirsjá í því, ef hann fengi aðra sýslu
eða færi burtu“.
Póstskipið Laura (Christiansen) lagði
af stað í nótt áleiðis til Khafnar, með
fáeina farþega.
Aiutmaður E. Tli. Jónassen og frú
hans sigldu með þessari ferð póstskipsins,
til Danmerkur og |>ýzkalands. Eru vænt-
anleg aptur heim í ágústmánuði.
Settur amtmaður yfir suður- og vestur-
amtinu í fjarveru amtmanns E. Th. Jón-
assen er yfirdómari 'Jón Jensson.
Barðastr.sýslu (vestanv.) i2.april: Tíðar-
faríð hefur síðan síðasta brjef var ritað
19/s verið gott, að sönnu all-stormasamt og
með nokkurri úrkomu, helzt kafaldi,
lengst af, en nær ávallt meiri og minni
hiti; 26. f. m. og síðara hluta 1. þ. m. var
aftakarok, fyrri daginn á norðan, en
seinni daginn austan. Um pálmasunnudag-
inn var lygnt og fagurt veður. Og þessa
daga síðan 9. þ. m. hefur verið blíðasta
veður, lítill andvari austan fyrri dagana,
en stillilogn í gær og í dag, og í gær og
dag allt að 9 stiga hiti um hádaginn.
Annan páskadag var lygnt og bjart veður.
í byggð er orðið al-autt að kalla, neaui í
giljum og djúpum dældum, en allmikill
snjór á fjöllum. J>ilskip þau, sem hjeðau
eru gjörð út til fiskveiða, eru nýlögð út.
Skip komið til Flateyjar fyrir skömmu
rneo vörur og von á öðru þá og þá
(getur verið komið nú). Verð sagt þann-
ig: grjón 25 kr., rúgur 17 kr., kaffi 1 kr.
25 a.— 1 kr. 35, kandis 0.40.
Kvef hefur gengið hjer nú um nokkurn
tlma.
2!>. apríl'. Veðrátt góð, reyndar nokkuð
stormasöm enn og óstöðug, en alltaf þurr-
viðri, með litlu frosti um nætur, þangað
til um síðast liðna helgi, að rigning
töluverða gjörði. í dag aptur lygnt og
þurrt veður. Veruleg hlýindi eru nú
fyrst komin, 7—io° hiti í gær R. 20. þ.
m. var og hlýtt, 5—110 R. Norðaustan-
rok á síðasta vetrardag.
Farið að brjótast í jörðu, og sjást grænt
á túnum.
Fje og hestar komið víðast af gjöf-
Hinn 17. þ. m. rak hval í Kollsvíkur
landi, 30 álnir milli sporðs höfuðs, en um
50 áln. alls. Áf honum fengust um 140
vættir (10 fj. v.) ai' spiki. J>vestið varnær
því ónýtt sögum ýldu.
Eigi hefur hjer enn orðið vart við fisk.
hrognkelsi eigi heldur fengizt, en sagt
er eptir þilskipum, að nógur fiskur sje
djúpt, bæðiþorskur, steinbítur og heilag-
fiski. Sjö Fcereymgar eru nú komnirtil Pat-
reksfjarðar til róðra 14. þ. m.
ísafirðl 4- tnaí: Tíð einmuna góð það
sem af er sumri. Atlabrögð mjög treg
slðan á páskum og misjöfn, enda hrogn-
kelsaveiði svo sem engin til beitu. En hjer
er fiskurinn svo vaninn tálbeitu að vetr-
inum, nefnil, smokkfiskinum á útmiðum.