Ísafold - 07.02.1891, Side 4
44
Jónassen, fyrrum verzlunarstjóra hjer í
hænum, sem andaðist í Reykjavik 22. nóv. f.
á., að lýsa kröfum sínum og sanna pær
fyrir skiptaráðanda hjer i kaupstaðnum
áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu
(3.) birtingu auglýsingar pessarar.
Bæjarfógetinn í Reykiavik, 6, febrúar 1891.
Halldór Daníelsson.
Samkvæmt leyfi hins háttvirta landshöfð-
ingja verður haldin
Stór Tombóla og Bazar
á Hótel Reykjavik hjer i bænum
Föstud., laugard. og sunnudaginn
13. 14- og 15. þ- m-
til hagnaðar fyrir »styrktar- og sjúkrasjóð*
verzlunarmanna í Rvík.
Nú með »Laura« komu ýmsir vel valdir
munir frá Kböfn fyrir fleiri hundruð krónur,
auk þeirra sem áður voru komnir frá Hamborg.
Á meðan á Tombólunni stendur syngur út-
valinn söngfloklcur ýtnis falleg lög undir forustu
Herra kaupm. Steingríms Johnsens
og þar að auki mun heyrast hin dillandi og
fjöruga hornamusik
undir forustu herra kaupm. Helga Helgasonar.
Tombóian stendur hvern daginn kl. ð. e.
m. til 7 og frá 8 e. m. til 10.
Inngangurinn kostar allan föstud. og laugard.
ð—7 2ð a.; úr því og allan sunnud. lð a.
Drátturinn 2ö a. Mjög lítið af núllum.
Rvík 27. febr. 1891.
Forstöðunefndin-
Bæjargjaldkerasýslanin
í Keykjavíkur kaupstað er laus frá 1. apríl
næstkomandi, og eru þeir setn vilja sækja um
hana beðnir að senda bónarbrjef sín, stýluð
til bæjarstjórnarinnar, hingað fyrír 1. marz
næstkomandi. Launin eru 800 kr. á ári.
Til tryggingar peningaábyrgð, sem á gjaldker-
anum hvílir, er áskilið 4000 kr. veð. Aðrar
upplýsingar um gjaldkerastarfið verða veittar
hjer á skrifstofunni.
Bæjarfógetiim í Reykjavik 6. febrúar 1891.
Halldór Daníelsson-
A mánud kveldið 9. febrúar 1891
1 kl. 8V2 á Hermes
heldur ungur menntamaður, Bjarni Jónsson,
frá Möðruvallaskóla,
fyrirlestur
um
Eggert Ólafsson,
skáldið, náttúrufrœðinginn og föðurlandsvininn.
það er óskandi, að menn sæki þessa fróð-
legu skemmtun vel, því bæði er efnið þess
vert; einnig er sá maður, er fyrirlesturinn
heldur, fróður maður og skáldmæltur vel
og ann öllum góðum framförum hjá þjóð
vorri.
Bílætin fást í búð undirskrifaðs allan
mánud. og við innganginn og kosta 0,50-
Rvík 6. febr. 1891.
l>orl. O. Johnson-
JBeint frá Hamborg
hefi jeg nú með Lauru fengið allskonar vasa-
Úr karla og kvenna mjög falleg og vönduð.
Ennfremur talmí- nickel- og silEurrín-úrkeðj-
ur allar þessar keðjur halda sínum fagra lit
víð hvað sem þær eru brúkaðar og eru ótrú-
lega ódýrar.
Saumavjelarnar góðu
hefi jeg enn og panta jeg þær nú aptur með
Lauru. Engar saumavjelar ávinna sjer eins
álit þjóðarinnar sem þessar énda keppast
allir eptir þeim. Verðið á þeim er 35—40
45—50 kr.
Úrverzlun Reykjavíkur.
Teitur Th. Íngimundarson.
í desemberm. f. á. hvarf hjer úr heimahögum hryssa
7 vetra gömul, sótrauð að lit, með stjörnu í enni.
Mark: heilrifað bæði eyru. Hver sem finnur er beð-
inn að gjöra mjer aðvart um það.
Melum i Hrútafirði 15/, 1891.
Jón Jónsson.
það eð jeg hefi ásett mjer að neyta eigi
áfengra drykkja framvegis, bið jeg menn að
bjóða mjer eigi, lána nje selja neitt þess
háttar.
Reykjavik 7. febrúar 1891.
Sigmundur Guðmundsson.
Járn gamalt
Zink gamalt
Kopar gamlan
Ær gamlan
Tuskur (klude)
Segldúk gamlan
Kaðal gamlan
Netaslaungur brúkaðar
Bein og horn
kaupir
Helgi Jónsson
3. Aðalstræti 3.
Skrifstofa fyrir almenning
10 Kirkjustræti 10
opin hvern rúmhelgan dag kl 4—5 e. h.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. 1—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl, 12-2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12— 2
útlán md„ mvd. og ld. lcl, 2-8
Málþráðarstöðvar opnar í Rvík og Hafnarf. hvern
rúmhelgan dag kl. 8—9, io—2 og 3—5.
Söfnunarsjóðurinn opinn t. mánud. í
hverjum mánuði kl. ö~6
Veðurathuganir í Reykjavik, eptir Dr. J. Jónassen,
jan. febr. Hiti (á Celsius) Loptþyngdar- : mælir(millimet.)l Veðurátt.
ánóttu|um hád. fm. | em. | fm. em.
Mvd. 4 Fd. 5 Fsd. 6 Ld. 7 0 —7— 1 4- 1 4- 5 0 + 4 + 1 754-4 , 75M Svh d 744.2 741.7 Sv hv d 746.8 744.2 |Sv hv d 744.2 j |Sv hv d Sv hv d Sv hv d Sv hv d
Hinn 4. var hjer útsynningur raeð jeljum og þá
hvass með brimróti: daginn eptir (5) bráðhvass á
sunnan-landsunnan með húðarrigningu og koldimm-
ur í lopti, undir kvöld með jeljum og hefir síðau
vorið útsynningur með svörtum jeljum og miklu
hafróti.
Ritstjóri Björr Jónason, cand, pkil.
Prentsmiðja ísafoldar.
34
(1795); rjeðst hann þá í eyna með Guðrúnu konu sína;
hyggjum vjer að þau hafi þá allskammt saman verið; hefir
sagt verið, að hún væri kona mjög stríðlynd, svo þyngra fjelli
honum það en áður stórlyndi Margrjetar fyrri konu sinnar,
svo mælt er hann gjörðist þungsinna, er hann eldist, var
hann þó maður glaðlátur af eðli, skáld liðugt og hvatfær í
hvívetna, og um það líkur Jónatan bróður sínum; var hann og
sagður kennimaður góður, og vel var hann látinn í sóknum
sínum jafnan.
XIII. kap. Frá Sigurði Magnússyni.
Maður hjet Sigurður og var Magnússon, Eyfirðingur, er
sagt er að færi með Bóasi presti til Grímseyjar. Sigurður
var bjargmaður hinn djarffærnasti og afar-fimur við gaman-
leika; náliga var eigi hans jafnoki að því.
það var einhverju sinni, er Sigurður var í fjöru niðri, að
hann sá skrímsli fara að sjer fjórfætt, og voru styttri hinir
fremri fæturnir; það gekk sem upprjett og hringlaði í; leizt
Sigurði eigi að bíða þess og klifraði upp gjá eina, því klettar
voru umhverfis að sæ ofan; sótti það upp gjána eptir hon-
um, og fór mjög óðfluga; en fyrir því að Sigurður var hinn
hvatfærasti, fekk hann undan dregið upp á brúnina; grýtti
hann þá ofan að því, en eugu að síður sótti það upp á móti
grjótkastinu, og er það var komið nær upp undir brún, leit-
aði Sigurður undan, og þó að allskammt væri til bæjar, var
það sem nauðulegast, að hann komst í bæinn og fekk
skellt aptar bæjarhurðinni, því svo var það hraðfara, að kom-
35
ið var það á hæla honum; skildi það með því og honum, að
það rjeðst eigi að brjóta hurðina.
En síðar var það, að Sigurður hrapaði í Grímsey sex
faðma hátt, og skaðaðist svo á höfði, að gat kom á hjarn-
skálina; var hann þá fluttur á land, og sýslaði Grímur »græð-
ari«, er kallaður var, um að græða hann, faðir Gríms prests
á Barði í Fljótum, svo hann varð heill að kalla. Magnús
hjet bróðir Sigurðar, er drukknaði á Grímseyjar-sundi með
þeim Indriða og Jóni Björnssyni (1817) og þeirra skipverjum
af skipinu »Straumönd«.
XIV. kap. Frá drukknan Bóasar prests.
Jón hjet maður, Björnsson, og bjó í Krossanesi í Krækl-
ingahlíð, var hann formaður, og hafði opt farið til Grímseyj-
ar; var það nú snemma á einmánuði (1803), að Jón bjóst að
fara skreiðarför til eyjarinnar, var hann á byrðarskipi miklu,
er Kauður hjet og átt hafði Möðruvallaklaustur, rjeðust marg-
ir til farar með honum úr Kræklingahlíð, eru þessir nefndir:
Sigurður bóndi Gunnarson frá Miðsamtúni, faðir Ingiríðar fyrri
konu þorsteins hreppstjóra á Stokkahlöðum Gíslasonar; 2.,
Björn Björnsson frá Efriá; 3, Jón Jónsson frá Mýrarlóni;
fjórði og fimmti Jón ívarsson og Arni Benidiktsson, báðir frá
Kollugerði; Jón var bróðir Kolbeins Ivarssonar, föður Guð-
mundar á Marbæli í Óslandshlíð, Jóns Kolbeinssonar, er
víða var og seinast vestanlands, og Stóru-Helgu, er síðast
var á vist með Lárusi Thorarensen sýslumanni á Enni á
Höfðarstund, Sjötti hjet Hallgrímur Hallgrímsson; eru eigi
aðrir nefndir, en alls voru átta á; gaf þeim vel til eyjarinnar.