Ísafold


Ísafold - 07.03.1891, Qupperneq 3

Ísafold - 07.03.1891, Qupperneq 3
75 Ahranesi 2. marz : »Sfðustu viku í hinum næsbliðna mánuði átti sýslunefndin í Borgarfjarðarsýslu fund með sjer á Skagan- um. Sýslumaður hafði ákveðið fundinn hinn 24., en gat þá sjálfur ekki mætt sökum veikinda, ; þótti mörgum hreppsbúa það slæmt, að sýslumaður ekki gat komið, sem höfðu ýmisleg mál fyrir hann fram að bera. Sýslunefndin gat að vísu nokkurn veginn gengið frá þeim málum, er fyrir fundinum lágu, þó henni yrði það nokkuð ógreiðara sökum þess, að oddvita vantaði, sem að sjálfsögðu er málunum kunnugastur og getur gefið allar nauðsynlegar upplýsingar og jafnframt svarað ýmsum spurningum fund- armanna. Samt gekk fundurinn vel fram undir röggsamlegri formennsku pró- fastsins, síra Guðmundar í Reykholti. f>au mál, er fundurinn hafði til umræðu og úrslita, voru þessi vanalegu : hreppa- reikningar, vegamál, um búnaðarstyrkinn og fleira smávegis. Nýmæli mætti telja til- lögur um betra eptirlit á fjenaðarsölu á mörkuðum og fjárrekstrum um hjeraðið. þetta var líka uauðsynjamál og vildi fund- urinn vanda tillögur sínar um það, enda munu sumar af þeim reynast hagfeldar; einnig um sölu og auglýsingar á nskilafje. Amtsráðið mun eiga að vinsa úr þessum tillögum sýslunefndanna, sem munu koma úr fleirum hjeruðum, og gjöra eina ályktun úr þeim öllurn, og verður það þörf rjettar- bót. þá hreifði nefndin því líka, að koma áleiðis til næsta alþingis málinu um brúar- gjörð yfir Hvítá á Kláffossi og þar af leiðandi ráðagerð um veginn að henni. Einn fundarmanna kom með þá tillögu, að nauðsyn mundi að ræða um ástand búnaðarskólans og búnaðarins á Hvanneyri; en hún var felld frá umræðu með miklurn atkvæðamun, af þeirri, ástæðu að nefndinni kæmi ekki það mál við. Sýslunefndin hefði þó líldega gjört þarft verk, að drepa niður því ámæli, er hann hefir orðið fyrir. Sýslufundurinn stóð yfir í 3 daga og end- aði ágreiningslaust. Að loknum sýslufundinum, hinn 28. f. mán., hjelt prófasturinn aukahjeraðsfund í Borgarfjarðarprófastsdæmi 'njer á Skaganum, sökum þess að aðalhjeraðsfundurinn, sem ákveðinn var í haust er leið, fórst fyrir. A þessum aukafundi mættu 9 af 14 prest- um og safnaðarfulltrúum hjeraðsins, og á honum var helzt til umræðu um.sókn Arna hreppstjóra þorvaldssonar á Innrahólmi um að mega byggja kirkju á Innrahólmi, eign- arjörð hans; og jafnframt því sem hann vildi skammta stærð sóknar þeirrar, er þangað skyldi sækja, lagði hann fram brjef með undirskriptum nokkurra manna, sem kváðust fremur vilja eiga sókn að Innra- hólmi en Görðum, og það voru sumir þeirra, þó ótrúlegt sje, sem eiga heima á næstu bæjum við Garða, en eiga ekki svo stutta leið að Innrahólmi og héldur ekki um góðan veg. Eitt brjef var lesið upp á fundinum frá einum sóknarmanni, dags. 26. febr. sem var eptirtakanlegt, hvernig hann mótmælti Garðakirkju ; það líklega kemur þeim til sýnis, er eiga að staðfesta þessa sóknaskipun. f>au urðu málalok, fyrir fylgi prófasts, að Innrahólmssókn var ákveðin eptir vilja hreppstjóra Arna, þrátt fyrir það, þó að meiri hluti sóknarnefnd- arinnar legði greinilega til, að önnur sóknatakmörk yrði höfð, nefnilega mitt á milli Garða og Innrahólms. Hin nýja sókn á að innihalda 260 sálir af 1070, sem alls eru í Garðasókn eptir síðasta mann- tali, og hin nýja Innrahólmskirkja,! sem á að messa í 3. eða 4. hvern helgan dag, á að fá i af sjóði Garðakirkju, sem um næsta nýár mun verða nálægt 3000 krónum. þessi úrslit málsins munu hafa verið hagfelld fyrir báða parta, og báðar sókn- irnar mega una vel við sinn hlut, og þó að sumum mönnum sje tamt að láta sjer ekki geðjast að slíkum breytingum, voru þær nauðsynlegar eins og hjer stóð á, og munu hafa góðar afleiðingar. f>ví var hreift hjer fyrir nokkrum árum, að fiytja kirkjuna frá Görðum í Skagann, þar sem lang-þjettbýlast er, 600 manns á litlum bletti ; en með því nokkur mót- spyrna kom frá sumum sóknarmönnum, sem áttu þá hóti lengra í Skagann en að Görðum, og með því ekki voru nærri nóg efni í sjóði til þess, var þeirri hreifingu hætt — jafnvel þó nokkrir spámenn hafi sagt, að kirkjan ætti að komast í Skagann. Við uppkomu Innrahólmskirkju kemur nú skarð í sjóð Garðakirkju og töluverð tekju- þverrun framvegis, svo líkindi eru til, að menn leggi ekki upp að reisa nýja kirkju í Skaganum, svo dýra og veglega sem samboðið er kröfum tímans, meðan Garða- kirkja er nokkurn veginn messufær og sjóðurinn er að draga saman í skarðið. Ekki hjeldu hjeraðsprestar fyrirlestra eða samræður um kristindóm eða kirkju- mál fyrir eða eptir fund, svo almenningur heyrði, eins og þeir í Húnavatnssýslu, og var þó góður staður og tími til þess í Garðakirkju, þar sem messað var daginn eptir fundinn og nokkrir þeirra voru þar við kirkju, og enginn prestanna gat, hvort sem var, náð heim til sín til að messa þann dag. H. J.« Leiðarvisir ísafoldar. 680. Ef jeg á hálfa jörð, og hinn eigandinn hýr ekki á jörðinni, nú vil jeg selja minn helm- ing, og májeg það ekki hverjum sem er, án þess að bjóöa hinum eigandanum fyrst kaup á mín- um parti? Sv.: Jú, nema öðruvísi hafi verið beinlinis um samið, er samneignin hófst eða síðar. 681. Er maður sem býr við kaupstað, en hef- ir ekki ábúð á jörðu, skyldur til að borga 10 krónur al hund, þegar hann á yfir 20 kindur, og á að gjöra lögskil af fjalli ? Sv.: Já, alveg eins fyrir því. Skilyrði fyrir minna gjaldinu er ábúð á jörðu (meiru en 1 hndr.) utan kaupstaðar, sjá lög 22. mai 1890. 682. Getur ekki sá, sem eignast jörð að erfð- um, breytt byggingarskilmálum jarðarinnar, þó að leiguliði segi að nann hafi lífstiðarábúð, en hefir engin skirteini, er sanni þaö ? Sv„ Nei. Leiguliði hefir sitt fram, nema 68 stundum með -sjer spýtur og tálguhníf og telgdi til ýmsa hluti, svo sem kláfstuðla, hrífuhöfuð o. s. frv., meðan haun var yfir fjenu. Nú liðu dagar og ár, og þá var það einn vetur, að bónda dreymir, að hann sje fram á dal með sauði sína, og þá er minnst varir, verður honum litið upp, og sjer hann, að ein- hver skepna kemur hlaupandi ofan dalinn og stefnir þangað sem hann er staddur. Jpegar þetta færist nær, sýnist honum það vera hestur, svartur á lit eða brúnn. En þegar honum þykir hesturinn vera korninn fast að sjer, hrekkur hann upp, og segir konu sinni drauminn. Henni lízt illa á og biður hann að fara ekki inn á dal- inn. En hann fer samt sem áður, kemur heim aptur að kveldi og verður einskis var; og gengur svo nokkra hríð. þá er það eina nótt, að hann lætur mjög illa í svefni, en vaknar um síðir og segir draum sinn. Hefir hann þá dreymt, að hann væri fram á dal, og hin sama skepna, sem áður hafði fyrir hann borið, kom og rjeð á hann og barði hann, þangað til að báðir armleggir hans voru brotnir. Nú fór sem fyr, að eigi tjáði að letja hann. Veður var gott og fylgdi hann fje sínu á haga þann dag inn á dalinn; en nú kom hann eigi heim um kveldið. Daginn eptir fóru menn af næstu bæjum og leituðu bónda, og fundu hann dauðan við læk einn, handleggs- brotinn á báðum handleggjum og fötin slitin ofan um hann. þeir röktu þaðan einhver spor, undarlega löguð, 65 finna Odd lækni, er þá bjó á Hrauni í Helgafellssveit. Oddur vildi fá Pál með sjer inn til Hrappseyjar, og áttu þeir að reyna við beinátu í kjálka á konu þar, Ragnheiði Bogadótt- ur, konu Björns Gottskálkssonar. Páll gisti nótt í Stykkis- hólmi, hjá Arna kaupmanni Thorlacius, og ætlaði daginn eptir inn til Hrappseyjar með Oddi. f>eir rjeðu sjer far með Ivari nokkrum Helgasyni, frá Arnarbæli á Fellsströnd. Hann var á fimm-manna-fari litlu, og var mikið á og nokkuð af því viður. f>eir gengu niður á bryggju, þrír saman, Arni Thorlacius og læknarnir báðir. Páll ætlaði út í bátinn. f>á segir Oddur : »Farðu ekki út í þennan a............., Páll; þeir drepa sig«. Oddur snýr við það aptur, en Páll fór. Eigi er ann- ars getið en að veður væri alfært, enda var þetta um hásum- ar, 9. júlí. En er báturinn kom inn undir Hvanney, vestustu ey í Hrappseyjarlöndum, fórst hann í straumröst þeirri, er þar liggur inn með eynni, og drukknuðu menn allir, er á voru. Oddur reið heim aptur samdægurs. En daginn eptir kom maður að Hrauni og sagði skipskaðann. |>á greip Oddur fram í, er hann ætlaði að fara að segja frjettirnar, og mælti : »Jeg veit, að hann Ivar hefir drepið læknirinn okkar; hann var lengi bölvaður pamfílk. — Einhverju sinni kom Oddur læknir innan úr Hrappsey og lenti í Stykkishólmi; þá var þar staddur Eiríkur bóndi í Bíldsey, sem kallaður var faðir Sigurðar Breiðfjörðs skálds og síra Sæmundur Hólm hafði ort um Iskaríots-

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.