Ísafold - 21.03.1891, Blaðsíða 3
91
of stórt og illa lagað til þess, að hann geti
fullnægt þörfum manna með lækishjálp undir
Jökli. Sjerstaklega er það óhentugt fyrir-
komulag, að umdæmi hans skuli einnig ná
yfir Eyjahrepp á Breiðafirði og Kolbeinsstaða-
hrepp, því komi svo fyrir, að hans sje vitj-
að undan Jökli og hann sje staddur á öðr-
um hvorum þessum stað, þá er gjörsamlega
ógjörningur að ná til hans. En þó nú aldrei
nema að þessir hreppar báðir væru teknir
af umdæmi hans, er varla mun verða, þá
er (þó hann yrði jafnan hittur eigi langt frá
heimili sínu) svo langt alstaðar undan Jökli,
að ná til hans, að fátæklingar—og það eru
nær allir þar—geta alls eigi borið þann kostn-
að, er slikar ferðir hafa í för með sjer.
Vegalengdin ein, að ná lækni undan Jökli
úr Stykkishólmi, ætti að vera meir en nóg
ástæða til þess, að aukalæknir fengist þar,
þótt eigi bættist þar við getuleysi manna,
bæði hestaleysi, og efnaleysi að borga slíkar
ferðir.
Sem dæmi upp á vegalengdina skal eg
taka það fram, að utan af Ondverðarnesi,
Böruvík, Saxahóli og þeim bæjum verður eigi
náð lækni úr Stykkishólmi á skemmri tíma
um hásumarið eti allt að 2 sólarhringum, með
því móti að engin viðdvöl verði neinstaðar,
og sá, sem vitjar læknisins, hafi 3 duglega
hesta til reiðar ; en telja má það reyndar
víst, að eigi sje neinstaðar á þessu svæði
til t.aks svo duglegir hestar, er ríða mætti,
að þetta yrði framkvæmt á þessum tíma.
Jpessi ferð má reikna að kostaði þetta :
læknirinn með 2 hesta í fjóra daga 32 kr.,
maðurinn, sem vitjaði læknisins, með 3 hesta
í 2 daga 18 kr. og maðurinn, sem fylgdi
lækninum til baka með 1 hest í 3 daga, eða
samtals kostnaður í minnsta lagi við að vitja
læknis undan Jökli í Stykkishólmi 6ð kr.
Beyndar mun þessi kostnaður allt of lágt
reikuaður, t. a m. þar sem lækninum eru eigi
ætlaðir nema 4 dagar í ferðina, er mun vera
of lítið; en þótt hann væri nú sennilega reikn-
aður, þá get eg af eigin eptirgrennslun full-
yrt, að enginn maður á þessu svæði og það
inn á Sand, er svo efnum búinn, nema í
mesta lagi 2 menn, að borið geti þennan
kostnað. En fleiri geta þó þurft læknis við.
í Ólafsvík mætti ná lækni á þessu svæði á
6—8 kl.st., og mundi sú læknisvitjun eigi
kosta öllu meira en 8—10 kr. Erá Lóni,
Malarrifi, Hellnum og Stapa mun mega ná
lækni í Stykkishólmi um áhsumarið á 3 dægr-
um á 3 hestum duglegum með tafarlausu á-
framhaldi, og mun sú læknisvitjun eigi kosta
mikið undir 60 kr. Ur Breiðuvík (fyrir inn-
an Stapa), ytri hluta Staðarsveitar, Ólafsvík
og enda Sandi, mun mega ná lækni í Stykk-
ishólmi um hásumarið með góðu áframhaldi
og duglegum hesturn á sólarhring, og mun
sú læknisvitjun kosta nær 50 kr. En optar
þarf læknis að vitja en um hásumarið, og
er jafnvel ómögulegt getum á að grípa, hve
latigan tíma þarf til að ná lækni af þessu
svæði á vetrum, en tíðast er það frágangs-
sök, ef ófærðir eru. Aptur á móti mætti ná
Iækni í Olafsvík frá Lóni og Malarrifi á 10
klst.; frá Hellnum og Stapa á 6—8 klst.; úr
Breiðuvík og ytri hluta Staðarsveitar á 4—6
klst., og af Sandi á 2—3 klst.
f>egar þannig er athuguð hin mikla óhægð
á því, að ná lækni af þessu svæði úr Stykkis-
hólmi hjá því að ná lækni í Ólafsvík, og
maður einnig kynnir sjer efnahag og ástæð-
manna almennt á þessu svæði, getur manni
eigi dulizt það, að óvíða mun vera jafnbrýn
þörf á lækni og hjer. það mun og engu
síður mæla með þessu máli í augum þeirra,
er sanngjarnlega vilja á það líta, að hjer er
að mörgu Ieyti öllu meiri þörf en annarstað-
ar á eptirlitum læknis með hýbýlaþrifnaði,
matvælameðferð o. fl.
Eg skal því eigi fara fleiri orðum
um nauðsyn á aukalækni á þessu svæði, þó
fleira mætti um það segja, og allir,sem vilja
líta á kringumstæðurnar, hljóti að játa
það, en einungis fara nokkrum orðum um
aðsetursstað hans (aukalæknisins) og um-
dæmistakmörk, í von um að alþingi á kom-
anda sumri viðurkenni þessa nauðsyn og
veiti fje til að launa honum, og skal eg einn-
ig stinga upp á upphæð þeirri.
Aðsetursstaður aukalæknisins undir Jökli
virðist mjer sjálfsagt að væri í Ólafsvík,
bæði af því að Ólafsvík er næst miðbikium-
dæmis þess, er eg skal síðar nefna — nema
að hann sæti á Sandi —, og hinu, að hún er
fólksflesta þorpið kringum Jökulinn. Beynd-
ar verður að ganga að því vísu, að ef auka-
lækninum er gert að skyldu að sitja í Ólafs-
vík, þá verður að launa hann ofurlítið
ríflegar en ef hann sæti annarstaðar, því
þar getur hann engan styrk haft af land-
búnaði.
Umdæmi aukalæknisins yrði að vera þann-
ig ákveðið, að það geti orðið sem hagan-
legast fyrir umdæmis(sýslu-)búa,ogað það jafn-
framt geti legið sem eðlilegast saman við aðal-
læknisumdæmið. Eg get því eigi stungið
upp á haganlegri afmörkun þess en svo, að
pað nái frá Búlandshöfða að norðanverðu
og innst í miðja Staðarsveit að sunnanverðu,
t. a. m. að Görðum. Eyrsveitingum mun
vera öllu hægra að vitja læknis í Stykkishólm
en í Olafsvík, því þá þurfa þeir eigi að fara
yfir Búlandshöfða. Einnig er Staðsveiting-
um hægra að vitja lækuis í Stykkishólm en
Olafsvík, úr því kemur inn fyrir Garða. Yæri
umdæmið þannig ákveðið, samanstæði það af
Neshreppum báðum (ytri og innri), Breiðu-
víkurhreppi og ytri hluta Staðarsveitar, og
yrði það að víðáttunni til alls eigi svo lítið;
en við það yrði aðallæknisumdæmið, eins og
eðlilegt er, til mikilla inuna minna; en sjer-
staklega yrði það í mikið betri afstöðu til
þess að jafnan yrði auðvelt að ná til læknis
í Stykkishólmi, þótt það geti aldrei virzt
nema óhaganlegt og óeðlilegt, að það einnig
nái yfir Eyjahrepp á Breiðaf., eins og áður
er á vikið; því títt getur svo fyrir komið, eins
og reynslan hefir sýnt, þegar læknis er vitj-
að sunnan úr hreppum, að hann sje þá vest-
ur í eyjum, og er þá gjörsamlega ómögulegt
að ná til hans, ef hlutaðeigandi hefir eigi
efni á að kaupa skip og menn, sem jafnan
er mjög dýrt, til að sækja hann þangað.
Fengist nú aukalæknirog umdæmi hans yrði
líkt ákveðið og jeg hefi drepið á, samanstæði
aðallæknisumdæmið af Eyjahr. á Breiðaf.,
Eyrarsveit, Helgafellssv., Skógarströnd, Kol-
beinsstaðahr., Eyjarhr., Miklaholtshr., og
syðri hluti Staðarsveitar, og má það virðast
allsendis nógu stórt fyrir einn lækni.
jpegar tekið er tillit til stærðarinnar á auka-
læknisumdæminu, og hins, að honum væri
gjört að skyldu að sitja í Olafsvík, virðist
mjög nær sanni farið, að laun hans væru
1000 kr.; því hvorugt er hugsandi, að auka-
læknirinn gæti eigi lifað sómasamlega á þess-
um launum, eða að alþingi mundi nema fjár-
veitingu þessa meira en svo víð nögl. En
jafnframt sýndist mjer það eigi óhyggilegur
búhnykkur, þó alþitigi um leið ályktaði, að
laun aðallæknisins yrðu eptir næstu lækna-
skipti eigi nema 1500 kr. þ>að mundi mjög
sanngjarnt.samfara umdæmisminnkuninni, og
honum eigi vorkunn að lifa á þvi.
Mál þetta mun einnig verða til meðferðar
á næsta sýslufundi, auk þess sem það verð-
ur rætt á þórnesfundi í vor, og skal jeg því
eigi fara fleiri orðum um það að svo komnu,
í von um að það fái góðan árangur á næsta
þingi, og Jöklarar þar af leiðandi þurfi eigi
framvegis, eins og undanfarið, að vera án
þess að ná í læknishjálp af óviðráðanlegri
vegalengd og óbærilegum kostnaði.
Einar porkelsson.
Póstskipið Laura (Christiansen) lagði
af stað í nótt áleiðis til Khafnar. Með
því fór sýslumaður Aagaard, er kom hing-
að snöggva ferð um daginn, heim til sín
aptur til Vestmannaeyja; til Færeyja kon-
súl Paterson og ætlar þaðan til Austfjarða
með »Thyra«, en til Englands kaupm. jþorl.
O. Johnson, með 2 börnum sínum, og 1
vesturfari til Chicago; og til Khafnar Mark-
ús skipstjóri Bjarnason, kennari við stýri-
maunaskólann.
Verzlunarfrjettir frá Khöfn 28. febr.
Yorull selzt illa. Liggur mikið óselt á
Englandi ; verðið þar 8-| til 8f d. I
Khöfn síðast gefnir 66 a. fyrir norðlenzka
og vestfirzka haustull, 48 fyrir mislita og
48 fyrir (aðra) haustull.
Fyrir saltfisk stóran gefnar í Khöfn
50—55 kr. skpd., smáfisk 35—38, og ýsu
27—30 kr. Frá Norvegi frjettist. að þar
sje lítið um afla enn, vegna storma og
vestanvinda.
Fyrir gufubrætt hákarlslj'si gefnar 35—
36 kr. tunnuna, og pottbrætt 34—34£,
dökkt 28 kr. og sellýsi 34£ kr.
Sauðakjöt í 56 kr. tunnan.
Sauðagærur 5f til 5-| kr. vöndullinn (2
gærur).
Sundmagar 30—35 a. pundið.
Æðardúnn 11 kr.
Búgur er mikið að hækka í verði, nú
í 6 kr. 100 pd. Búgmjöl 6,30—6,40 a.
Bankabygg 8,30 til 8,60; lakara 7,70 til
8,00. Kaffi 72 a., betra 75—77 a. Kandís
17—18 a. Hvítasykur 16f a. Púður-
sykur (farin) 13 til 13J a. Hrísgrjón 8f
til 10 a.
Aflabrögð- Bóið hefir verið hjer al-
mennt þessa daga og aflazt sæmilega, af
vænni ýsu, og þorskvart.
Mannslát. Hinn 17. þ. m. audaðist í
Hafnarfirði einn með elztu og merkustu
borgurum þess kauptúns, Árni smiður Hildi-
brandsson, fæddur að Asi við Hafnarfjörð
1814, sonur Hildibrands bónda Gíslasonar,
er þar bjó og var skipasmiður. Arni heitinn
var góður smiður bæði á trje og járn, at-
orku og ráðdeildarmaður mikill, enda fjáður
allvel; vel látinn og vel metinn. Hann
var tvígiptur og orðinn ekkjumaður í annað
sinn. jprjú börn hans lifa eptir fyrra hjóna-
bandið, einn sonur og tvær dætur; er önn-
ur þeirra kona Jóns kaupmanns Bjarna-
sonar í Hafnarfirði.
Jarðarför Arna heitins á fram að fara
miðvikudag 25. þ. m. á Bessastöðum kl. 2.
Leiðarvísir ísafoldar.
B94. í N.hreppi kom fyrir í fyrra vetur pen-
ingaþjófnaöur, sem viö rjettarrannsókn ekkert
varð uppvíst um, en oddviti hreppsins ljet á sjer
heyra að hann vissi, hvar peningar þeir væru
niður komnir, og seinni part vetrarins, sagði
hann, „að peningarnir væru komnir langt i
burtu“ án þess þó að nafngreina nokkurn til
þess, en maður nokkur sem var á bæ þeim, sem
haldið var að þjófnaðurinn helði verið framinn,
feröaðist langt þaðan seinnipart vetraríns, og
þótti þvi líkast, að oddviti beindi þvi helzt að
honum, uð hafa komið peningunum undan.
(letur nú ekki sá, er grunaður er um, að hafa
lcomið peningunum undan eptir þessum líkum,
krafizt þess, að oddviti sje skyldaður til að sanna
þetta framangreinda, og þarf að leggja þetta mál
fyrst fyrir sáttanefnd ?
Sv.: Tilgreind ummæli oddvita eru svo óá-
kveðin, að hann verður naurnast dæmdur fyrir
þau. Sje mál höfðað, verður það að leggjast
fjTrir sáttanefnd ; það er einkamál.
695. Hjer er þjettbýlt og hagar svo til, að
þrjár jarðir eiga aðal-beitilönd sin saman, nefnil.
óskipt, en á einni af jörðum þessum liggja eng-