Ísafold - 01.04.1891, Síða 2
102
mynda ætti brúarsjóði, þá kemur mjer ekki
til hugar, að stjórnendur landssjóðs ættu að
vera afskiptalausir af brúargjörðarmálum.
Landssjóður ætti að vera aðalhjálparhellan
til þess að sem flestar hrýr komist sem
fyrst á, ekki með því að gefa, heldur með
því að lána fje með sanngjarni leigu og
langri afborgun. Hann hefir meira láns-
traust en nokkur annar, og á honum hvílir
skylda til þess, að styrkja öll þau fyrirtæki,
sem miða landinu til framfara og fje þarf
til, enda á hann hægra með að leggja fje
fram, þegar það á að endurgjaldast, en ef
það ætti að hverfa að fullu.
Jeg vona, að mönnum skiljist nú fyr eða
síðar, að þeir, sem fara yfir brýrnar, eru
hinir rjettu gjaldendur, en ekki þeir, sem
aldrei fara yfir þær, og að landssjóður á
miklu hægra að styrkja brúargjörð yfir
hættulegar ár, án þess að ný gjöld sjeu lögð
á landsmenn, ef það fje, sem hann leggur
til brúnna, er lán, en ekki gjöf.
Jeg vona líka að lærðum og leikum skilj-
ist, að það er fullkomlega eins áríðandi að
við halda vegum og brúm, og hlífa þeim
fyrir illri meðferð, eins og að gjöra það hvort-
tveggja af nýju í upphafi, og að kostnaður-
inn við brúargæzluna verður að tiltölu marg-
falt minni með föstum brúarverði, en sá
skaði yrði, sje brúin gæzlulaus.
Eitað í febrúarm. 1891.
111 verkun á fiski.
í 23. tbl. Isafoldar 21. marz hefir komið
út ritgjörð eptir sjera 0. V. Gíslason, sem
hefur inni að halda auk brjefs til lands-
höfðingja frá utanríkisráðgjafanum danska
með fleiru, átölur til manna fyrir vanrækt
og hirðuleysi á fiskverkun hjer við Faxa-
flóa.
Tilgangur þessarar ritgjörðar er auðvitað
sá, að fá ráðna bót á þessu, og á höf.
mikinn heiður fyrir það eins og önnur störf
sín, sem snerta umbætur á sjávarútveg.
Sem við má búast, vilja allir vera því
undanskildir að hafa sýnt hirðuleysi og
vanrækt, svo að svik megi kalla í þessu efni,
og ætlum við slíkt vera raunar undantekn-
ingar hjer í þessu plássi, sjálfri Eeykjavík.
Hjer erog að jafnaði ekki mikið fiskimagn;
en þaðjer segin saga, að þar sem það er mest,
þar er og vanhirðingin mest optast nær.
Geta því miður einnig verið nokkur brögð
að henni hjá hinum, og ekki er þeirra
málsstaður hetri fyrir það.
Að allrar þeirrar varúðar, sem síra O. V.
G. telur, þurfi að gæta við fiskverkun,
blandast víst engum hugur um. það eru
og algengar reglur, og vafalaust vel ræktar
af meiri hluta þeirra, sem fisk verka að
minnsta kosti. Tvær af þeim mun naumast
eiga sjer stað að nokkur maður vanræki :
að blóðga fiskinn þegar hann kemur inn í
skipið, og að verja hann mari — það er að
segja: allan fisk nema netfisk, sem deyr og
morknar í netunum ; hann er auðvitað ekki
hægt að blóðga, enda eru nóg dæmi þess,
að slíkur fiskur hefir spillt heilum förmum
af öðrum betra fiski og vel verkuðum, er
honum hefir verið blandað saman við.
En hvaðan keraur þá þessi mikla óverkun
á fiski í þetta sinn fremur venju?
Erá fiskimönnum, munu menn segja, og
skuluin við eigi rengja það, en leyfum
okkur að eins að taka það fram, að það
eru að eins einstaklingar þeirra á meðal
sem hneyxlinu valda, menn, sem af eigin-
girni og smásálarskap láta lítilfjörlegan
eða ímyndaðan stundarhag sitja í fyrirrúmi
fyrir frambúðarhagsmunum þess hluta þjóð-
arinnar, sem fiskiveiðar stunda.
það er rjett, sem síra Oddur segir, að
það er báðum að kenna, sjómanninum og
kaupmanninum, þessi glæsilegi orðstír, er
fiskurinn hefir íengið í þetta sinn, eða hitt
þó heldur. það er því ekki til að bera af
okkur blak eða vorum stjettarbræðrum^
þeim sem það eiga, er við viljum leyfa
okkur að fara- nokkrum orðum um, hvern
hlut hinn flokkurinn, kaupmenn, eiga hjer
að raáli. Síra Oddur segir þá seka, eins
og hina; en hann gjörir mjög litla grein
fyrir, í hverju ávirðing þeirra er helzt fólgin.
það finnst okkur þörf á að gera miklu
ýtarlega, ekki til að svala okkur á þeim í
minnsta máta, heldur til þess, að almenn-
ingur sjái sem glöggvast, hverjir brestirnir
eru og rati því betur rjetta leið til að bæta
þá.
Sök kaupmanna er sú fyrst, að þó að
þeir ekki verki eða láti verka fiskinn sjálfir
('þeirgjöra það raunar að nokkru Ieyti sumir),
þá eru það þeir, sem taka á móti fiskin-
um, en eru þá helzt til hirðulitlir, skeyta
lítið um gæði fiskjarins, bara að hann sje
nógu mikill, enda sýnir það sig bezt þegar
þessir fyrnefndu óvandvirku menn koma
með sinn mikla og slæma fisk, að þá taka
kaupmenn hann því fremur umtalslaust,
sem þeir borga þessum mönnum nokkrum
krónum meira fyrir hvert skpd., að sagt er,
fram yfir gangverðið ; þeir launa þessum
mönnum fyrir það, að þeir koma með vonda
vöru en meira vörumagn en aðrir, þeir
borga þeim það með peningum í vasann og
ala svo upp í þeim strákinn. Kaupmönn-
um er ekki hægt að bera á móti þessu.
þeir segja frá því sjálfir, sem þessara gæða
njóta, og hælast um, ekki af því að hafa
fengið þessar krónur, heldur af hinu, að
þeir hafa getað vafið kaupmanni um fingur
sjer. Og gjalda þeim svo vanhyggju með
ódrenglyndi. Svo er þessum vonda fiski
dembt saman við hinn góða.
Sfðan er farið að aðskilja fiskinn og flytja
á skip. þá er honum hvolft af metunum
og það stundum hátt fa.Il, og má nærri
geta, hvort margur fiskur fær ekki í sig
sprungu á því að lenda þanm'g marg-
faldur undir miklum þunga. En ekki er
allt þar með búið. þá taka fiskinn bæði
kvennmenn og unglingar ásamt fleirum úr
dyngjunni, fleygja honum af handa-hófi á
börur; síðan öllu hrúgað út í bátana, án
þess að nokkurri reglu verði á komið með
að leggja fiskinn í knippi eða flatan, eins
og á að vera, og 'sjá allir, að þessi með-
ferð spillir fiski til muna. Svo er enn
bætt gráu ofan á svart með því að flytja
fiskinn út í stormi, hviku og þykku lopti
(að við ekki segjum í rigningu) ; gefur þá
opt talsvert á bátana, einkum við skips-
síðuna; blotnar þá margur fiskur, er þó er
fleygt hiklaust samau viðhinn, sem þurr er-
og góður. Allir, sem með saltfisk hafa farið,
vita, að hann þarf minna með til að verða
sleginn. Svo á skipið að fara með hann
þennan langa veg, sem ávallt tekur langan
tfma.
Svo þegar til sölustaðarins er komið, á
fiskurinn eptir að geymast í vöruhúsum
lengur eða skemur.
Eru nú ekki líkur til, að þessi meðferð
(nema verri sje) valdi stórkostlegum
skemmdum á fiski, þótt hann hafi verið
góður frá fyrstu hendi?
Vörumatsmennirnir (»ragarar» eru þeir kall-
aðir á kaupstaðamáli) eru þeir menn, sem
einna þyngst skylda hvílir á, þegar svo langt
er komið sögunni, að fara eigi að senda fisk-
inn til markaðar þar sem hann á að seljast.
þeir eiga að bera ábyrgð á því, að engum
fiski sje skipað út, sem ekki sje áreiðanlega
góður, af þeim fiski sem fara á til Spánar;
og þótt kaupmenn væru svo óhlutvandir, að
vilja láta slæðast með eitthvað af því lak-
ara, þá eiga þeir, vörumatsmennirnir, að vera
svo sjálfstæðir, að láta ekki slíkt viðgangast.
þeir eiga líka að sjá um, að vandað sje veð-
ur til útskipunar og önnur meðferð á fiskiuum.
En þess er naumast að vænta, þar sem ekki
eru nema tveir vörumatsmenn hjer í stærsta
kauptúni landsins, og annar þeirra uppgefið
gamalmenni; má því nærri geta, hvernig ætl-
unarverk þeirra er af hendí leyst, þegar
þeim er ætlað, auk annars, sem á þeim hvílir,
að kanna og flokka 3—600 skpd. á dag; nema
þeir væru þvf líkir, sem segir í þjóðsögum
vorum um Straumfjarðar-Höllu og Sæmund
fróða, þegar þau voru að hirða heyið.
Auðvitað kanna þessir menn ekki allan
fisk frá Eaxaflóa; en eigi sjer stað í öðrum
kauptúnum þessu líkt eða verra, þá er ekkv
von að vel fari.
það er síður en svo, að nokkrum manni
geti dulizt það, að þessi 2 atriði liggja til
grundvallar fyrir því, hvað fiskur hefir reynzt
illa á Spáni í þetta siun : að fiskurinn hefir
verið illa kannaður, og að veður til útskip-
unar og önnur meðferð illa vönduð.
Auðvitað eru margar heiðarlegar undan-
tekningar hvað kaupmenn snertir. En væri
þeir allir samtaka um að taka ekki nema
góðan fisk, og vanda alla meðferð á honum
sjálfir, þá kæmi ekki fram vanhöldin.
Mörgum hefir víst dottið í hug hjerna um
daginn það, sem í kverinu okkar stendur, að
ekki verður hjáþví komizt, að hneyksli komi.
Einmitt utn sama leyti og þessi kvittur kom
upp hjer um útreið Spánarfisksins í fyrra,
sendu sumir kaupmenn hjeðan úr bænum
hálfþurran eða ekki hálfþurran saltfisk (þetta
var þilskipafiskur, sem ekki varð þurkaður
í sumar er leið) til útlanda. Viðkvæðiðer:
»hann fer til Hafnar (eða Englands); það
hefir engin áhrif á Spánarmarkað*. En ætli
þessi háttsemi bæti málstað vorn í Höfn
gagnvart brjefi danska konsúlsins frá Bilbao,
þegar fyrsti útfluttur fiskur á árinu er svona
útlits? Vjer ímyndum oss, að þeir (Danir)
viti, að það sjeu leifar frá f fyrra, sem og er.
Er nú þetta og annað eins að gera hreint
fyrir sfnum dyrum af kaupmanna hálfu ?
Að endingu skulum við leyfa okkur að