Ísafold - 11.04.1891, Blaðsíða 1

Ísafold - 11.04.1891, Blaðsíða 1
KLemur út á miðvikudögum og. laugardögum. Verð árg. (um 100 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr JBorgist fyrir iniðjan júlímánuð. ISAFOLD. Uppsögn(skrifieg) bundin v.ð áramót, ógild nema komin sje til íitgefanda fyrir l.okt. Af- greiðslust. i Austumtrœti 8. XVIII 29 Reykjavík, laugardaginn 11. apríl. 1891. Sveitarþyngslin, undirrót þeirra og ráð gegn þeim Bptir alþm. Sighvat Arnason. „Grisir g.jalda, en gömul svín valda“. III. (Siðasti kafli). Aðaltilgangur minn með línum þessum er sá, að vekja athygli á þessu þjóðmeini voru, í þeirri von og í því trausti, að landsmenn vilji nú fara að gefa þessu máli gaum, með þvl aö ræða og rita um það til undirbúnings undir alvarlegri fyrirtekt þess. Jeg er sann- færður um það, að svo framarlega sem þingið og þjóðin leggst á eitt til að ráða bót á þessu meini, þá vinnst það með ýmsum góðum ráð- um, að uppræta þá aðalrót, sem sveitar- þyngslin eru að mestu leyti sprottin af; þá verður að 20 til 30 árum liðnum orðið allt annað horf á búnaðinum í landinu; hann yrði þá með margfalt meiri afurðum og sveitarþyngslin að mestu horfin. þrátt fyrir það, þó jeg alls eigi efist um, að ef þing og þjóð fer að íhuga þetta mál, að þá muni brátt leiðast í ljós þau ráð, sem duga til þess að fá þessu breytt til batnaó- ar; skal jeg þó ekki láta hjá líða að leiða þau atriði í ljós, sem mjer hefir komið til hugar að hjer gætu við átt, og eru þau í stuttu máli þessi : 1., að takmarka með lögum útgröpt jarða í landbúnaðarsveitunum, að minnsta kosti á þann hátt, að landstjórnarleyfi þurfi til þess að minna býli megi vera eða við- haldast út af fyrir sig en 10 hndr. að dýr- leika; 2., að öll innstæðukúgildi sjeu með lögurn af numin og landskuldinni sett einhver tak- mörk, eptir því sem þingið sæi sjer ýtr- ast fært ; 3., að skiptaráðendum sje boðið með lögum að gæta þess vandlega við skipti á jarð- eignum, að þær hlutist sem allraminnst í sundur, eptir því sem við verður komið hlutaðeigendum að skaðlausu; 4., að amtsráðum, sýslunefndum og hrepps- nefndum sje með lögum gert að skyldu að hlutast til um, að í hverjum hreppi sje stofnað búnaðar- eða »framfarafjelag» eitt eða fleiri, sem allir eða sem flestir hreppsbúar taki þátt í, vaka yfir störfum þeirra og frainkvæmdum og vera þeim liðsinnandi og leiðbeinandi, eptir því sem ýtrast er auðið. Verksvið amtsráða, sýslunefnda og hrépps- nefnda, fjelögum viðvíkjandi, ætti jafnframt að ákveða. Mark og mið þessara fjelaga ætti að vera: a., að leggja rækilega stund á niðurlagning og sameining hinna smærri býla, og sporna yfir höfuð við öllum útgrepti jarða ; bað starfa kappsamlega að alls konar jarðabótum, túnasljettum, vatusveitingum, girðingum og öðru, eptir því sem til hagar á hverjum stað, og sjerhverju því, sem að búnaðarlegum fram- förurn lýtur. Viðvíkjandi þessum fjelögum vil jeg geta þess, að jeg álít affarasælla að hafa þau ekki mjög margmenn, hafa þau heldur fleiri í hverjum hrepp og fámennari, t. d. 10 til 15 manns í hverju, eptir því sem bæjum hagar, því þá er bæði hægra að stjórna þeim, sem er svo mjög áríðandi að fari vel úr hendi, og í öðru lagi, að þau yrðu þá meir hvert annars keppinautur, sem er gott og gagnlegt til að skerpa framkvæmdina. Nú á tímum er næg reynsla fyrir því, að búnaðar- og jarðabótafjelög í sveitum starfa meira og almennara bæði að ýmsum gagn- legum jarðabótum og öðru, sem til framfara horfir í búnaði; enda er áhugi manna held- ur að vakna í þá átt, og ætti því alls ekki að spara þá krapta og þá aðstoð, sem hægt er í tje að láta til að efla og auka þessa frarofaraviðleitm. Með góðum tilstyrk frá landsstjórnarinnar hlið gæti hún vissulega inn- an skamms orðið til ómetanlegra framfara í landbúnaðinum, sem er aðalfóturinn undir þjóðbúi voru. Að öðru leyti ætla jeg ekki í þetta sinn að fjölyrða um þessi atriði, heldur láta nægja að þau komi þannig fyrir almenningssjónir til íhugunar og umtals. Jeg skal fúslega játa, að hjer er stutt yfir sögu farið, og að sum þessi atriði muni vera vandkvæðum bundin ; en jeg vona, að menn taki viljann fyrir verkið og verði fúsir á að leggja þeim liðsyrði til lagfærÍDgar, vegua hinnar miklu nauðsynar, sem liggur til grundvallar fyrir þessu máli í sjálfu sjer, og brýnasta þörf er á að gefa alvarlegan gaum, og helzt af öllu á meðan vel lætur f ári, því þá er einmitt tími til að koma ganginum á slíka framför. Eyvindarholti, í marzmán. 1891. Bjargráðamal- Síra O. V. Gíslason hefur í seinni tíð rit- að allmargar greinir í Isafold undir ofanrit- aðri fyrirsögn; en af því að jeg álít hana einkis einstaks manns eign, ætla jeg að nota hana líka, þegar mjer þykir við þurfa. í 23. tölubl. ísafoldar þ. á. birtist löng grein frá síra O. Y. G. með þessari vana- legu yfirskript, og hljóðar fyrsti kafli henn- ar um fiskverkan. það er lofsvert af hverj- um einum, sem vill hvetja menn til að vanda hana vel, og þótt síra O. V. G. í grein sinni ekki komi með neitt hvað fisk- verkan snertir, sem ekki allir sjómenn vita, þá er þó sú vísa aldrei of opt kveðin. ■ Hið verulegasta spor, sem stigið yrði til þess að vanda vel undirbúninginn undir fiskverkan hjá oss, teldi jeg það, ef menn vildu hætta því, að skipta aflanum í fjör- unni, þegar lent er, en taka upp þann sið, að salta allan aflann af hverju einstöku fari í einu lagi, og að menn skipti verkum milli sín, þannig, að t. a. m. sami maður- inn jafnan starfi að því, að þvo fiskiun, annar eða aðrir að fletja, þriðji að salta, o. s. frv. Jeg er viss ura, að fiskurinn yrði betur og jafnar verkaður á þann hátt. Honutn væri þá skipt á metunum, þegar inn væri lagt. þessi aðferð hefði marga kosti í för með sjer. Skipti á fiskinum í fjörunni, eins og tíðkast hjá oss, geta ekki verið allsendis nákvæm; en þótt sii ónákvæmni ef til vill ekki muni miklu að krónutali, þá er hún þó með hinni aðferðinni alveg fyrirbyggð; engin skipti geta verið nákvæmari en þau, að láta metin skipta. þegar nú búið er að skipta í fjörunni, hirðir hver sinn hlut, og fer svo að undir- búa hann tíl verkunar. þá byrjar nú að mínu áliti undirrótin til þess, að Faxafióa- fiskurinn stendur á baki fiski Vestfirðinga, þegar til Spánar kemur. það er þá fyrst, þegar afhöfðað er. / Vestfirðingar skera hausinn frá bolnum svo að fiskurinn verður því líkastur, senx hnakkakýldur sje; hjer syðra rífa menn hausinn frá, svo að hnakkakúlan og mikið af hausroðinu fylgir fiskinum. það er kuun- ugra en að frá þurfi að segja, hvað þetta lýtir fiskinn. Og ekki er þetta annað en vaninni eintómur, því það, að bregða einu hnífsbragði milli hauss og bols, væri litlu eða engu tafsamara en hitt, að standa og slíta. Tö <um svo til dæmis skipshöfnina á einu sexmannafari. Formaðurinn á skúr eða hús, sem hann saltar í; hann er vanur fiskverkan, þvær fisk sinn vel í saltið, allt blóð úr honum og allar hinar dökku himn- ur úr þunnhyldinu; hann fletur fiskinn vel, saltar mátulegu, og staflar fiskinum svo, að hann njóti sem bezt saltsins; einn há- setanna er úr sveit, og hefur aldrei róið fyr; hann fer að fletja, en kann það ekki, og krubbar fiskinn og skemmir; hann hefur ekkert skýli til að salta í, en saltar í opið byrgi eða undir húshlið, og raðar einni steinaröð umhverfis; ef til vill þvær hann fiskinn í saltið, ef til vill líka ekki; annar hefur ekki salt við hendina, og lætur fisk- mn liggja ósaltaðan til næsta dags; einn roðfletur, annar mænufletur, og í stuttu máli : verkan fiskjarins á sama sexmanna- farinu verður eins margvísleg, eins og há- setarnir eru margir. / Fyrir vestan fara menn allt öðruvísi að; þar er allur aflinn af sama skipinu saltað- ur í einu lagi, og allur undirbúningurinn undir verkanina er reglubundinn; formaður og hver háseti hefur þar sitt vissa starf: formaðurinn mun optast salta, vissir menn meðal hásetanna slægja fiskinn, aðrir þvo,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.