Ísafold - 13.06.1891, Page 3
187
allar sakir þeim á hendur, sem gengust
fyrir atförunum að bandingjunum ítölsku,
en samanlesið mikinn fjölda ódáða, sem
aðkomufólkið frá Ítalíu hefir þar framið.
Blaine segist ekki geta lengra haldið í því
niáli.
Stjórn Bandaríkjanna gerði fyrir nokkru
herskip upptækt úr flota uppreisnarmanna
í Chili. það hafði aflað sjer vopnabirgða
þar nyrðra og annars forboðafarms. Skipið
slapp þó úr varðhaldi og hjelt strokleið á
burt. Eptir því herskip send til eltingar,
en fundum hefir ekki saman borið. Sumir
segja, að hjer kunni launráð undir búa, og
stjórnin ætli sjer svigrúm, ef hún þykist
þurfa að skerast í leikinn þar syðra og
velja um málstaði.
Harrison forseti nýlega heim kominn úr
ferðum sínum um Bandaríkin vestri. Hon-
um var alstaðar með fögnuði tekið, og al-
staðar tjáði hann í ræðum sínum, hvert
hlutverk Bandaríkin ættu fyrir höndum í
öllum Yesturheimi og hver rjettindi þeim
bæri gagnvart Evrópuþjóðunum. Margir
segja, að ferðin sje með fram farin til að
búa í haginn fyrir samveldismenn við for-
setakosninguna næstu. Talað um að Blaine
kunni að bjóða sig ti! kosningar, en sumar
frjettir segja hann farinn að heilsunni, þó
aðrar beri það aptur.
Edison hefir nú búið til nýja töfravjel,
fyrir augu og eyru, sem kemur á Chicago-
sýninguna. Hún flytur manni heim í her-
bergi sitt frá fjarlægum leikhúsum sjónar-
leiki, orð og tóna, myndir og hreifingar og
svipaskipti þeirra manna, sem þar leika. —
Og annað eptir því.
Chili. Að engum lyktum enn rekið.
Sprengibátum stjórnarinnar hefir tekizt að
koma í kaf einu herskipi uppreisnarmanna,
en hún hefir þó ekki enn bolmagn móti
þeim á sjónum. Til verri tíðinda dregur
þá fyrir þessu landi, ef nábúaríkin (Perú
og Bolivia) slá sjer í lið með öðrum hvor-
um til að fá bætur þess, er þau urðu af
hendi að láta eptir viðskiptin fyrir nokkrum
árum. En þá kann til kasta að koma
Bandaríkjanna norður frá.
Frá Sínlandi- Nýlega ofsóknir framdar
í Nanking með eldi og ránum gegn kristn-
urn mönnum og kristniboðum. Herskip
Englendinga á leið komin til að stöðva ill-
ræðin, en sagt að hersveitir Sínverja væru
líka á leiðinni til tilbeiningar.
Hæstarjettardómur var uppkveðinn
2. þ. m. í skuldamáli kaupm. B. Muus &
Co. við erfingja Magnúsar heitins Jónsson-
ar í Bráðræði og varhjeraðsdómurinn (Reykja-
víkur bæjarþingsrjettar) staðfestur, en hann
skyldaði stefnda, M. J., til að greiða stefnda
B. Muus & Co, 30,469 kr. 60 a. með 7°/»
rentu frá 23. apríl 1887, og enn fremur 6y.
rentu af 38,469 kr. 60 a. frá 1. ágúst 1886
til 23. apríl 1887. Málskostnaður fyrir öll-
Um rjettum var látinn falla niður.
Landsyfirrjettur hafði þar á móti dæmt
Magnusi Jónssyni synjunareið.
1 ástæðum hæstarjettar segir svo : »Ept-
ir því sem málsfærslan í undirrjetti með
sjer ber, var neitunin á undirskript Magn-
úsar Jónssonar undir ábyrgðarbrjefið eigi
byggð á neinni yfirlýsingu frá honum sjálf-
úru eða neinum, er sjálfum var kunnugt um
það, og eptir að í tilefni af því var fram
komin eindregin áskorun frá hálfu gagn-
stefnanda (B. Muus & Co.) um að fá yfirlýs-
ingu Magnúsar Jónssonar sjálfs um þetta
atriði, þá var þeirri áskorun ekki gégnt, og
það borið fyrir, að Magnús Jónsson væri
eigi fær um að gefa neina skynsamlega yfir-
lýsingu. En fyrir því, að þetta væri rjett
hermt, var eigi færð nein sönnun, þrátt fyr-
ir ítrekaða áskorun, og úr því er ekki bætt
með læknisvottorði því, er lagt hefir verið
fram fyrir hæstarjetti, og útvegað hafði ver-
ið mörgum mánuðum á undan áskoruninni
í því tilefni, að gjöra skyldi Magnús Jóns-
son ómyndugann. — þar að auki getur
hæstirjettur þess, að með framkomnum
skýrslum eptir að hinn áfrýjaði dómur var
uppkveðinn sjeu fengnar miklar líkur fyrir,
að undirskriptirnar á ábyrgðarskjalinu sjeu
ófalsaðar.
Gufuskipið Magnetic, Slimons, kom
hingað í fyrra dag og fer aptur í kvöld
vestur fyrir land og norður. það kom við
á Vestmannaeyjum og eins á Eyrarbakka,
með vörur til Guðm. Isleifssonar. Með því
komu hingað meðal annars 14 enskir ferða-
menn, en til Eyrarbakka Zöllner kaupm.
frá Newcastle. Eitthvað fer með af vest-
urförum.
Póstskipið Laura, Christiansen, kom
hingað í fyrri nótt, og með henni fjöldi far-
þega frá Khöfn og Færeyjum hingað til
bæjarins: kaupmennirnir Fr. Fischer, N.
Knudtzon og H. Th. A. Thomsen; A. Le-
folii frá Eyrarbakka, með konu^ sinni, O.
Olavsen frá Keflavík, Tang frá ísafirði og
Jón Magnússon frá Eskifirði. Enn fremur
cand. mag. Bogi J. Th. Metateð, læknaskóla-
kand. Gísli Pjetursson, stúdentarnir Sigurð-
ur Pjetursson, Gunnar Havsteen, Guðm.
Hannesson, Guðm. Björnsson, Björgvin Vig-
fússon o. fl. Sömuleiðis f. ^sýslum. þorst.
Jónsson og sonur hans Jón Ó. þorsteinsson
kaupm. Loks rúmir 60 Færeyingar til
Austfjarða.
Ölfusárbrúin. Með Laura kom einnig
hr. Tryggvi Gunnarsson og hafði með sjer
danskan verkfræðing (ingenieur), Ripperda,
er á að bafa umsjón yfir brúargjörðinni á
Olfusá af stjórnarinnar hendi. þeir lögðu á
stað austur þegar í gærkveldi. En með
Magnetic kom til Eyrarbakka sá, sem brúna
hefir smíða látið, Vaughan frá Newcastle,
ásamt 6 verkamönnum enskum, er eiga að
setja brúna saman. I för með Vaughan var
og enskur general-ingenieur, er lengi hefir
verið á Indlandi,—skemmtiferð hingað.
Thyra, strandferðaskipið, kapt. Hov-
gaard, lagði af stað hjeðan í nótt vestur
fyrir land og norður, með fjölda af farþeg-
um.
Gufuskipinu Anna, hlnu norska, er
legið hefir í lamasessi í Gufunesi, frá því í
vor snemrna, á nú að reyna að fleyta heim-
leiðis, eptir einhverja lítilsháttar viðgerð, og
kom nú með Laura ný skipshöfn í því
skyni: skipstjóri, stýrimaður, vjelmeistari og
4 hásetar.
Embættispróf við háskólann í lögum
hafa þessir tveir Islendingar lokið við í vor:
Jón Magnússon frá Laufási og Lárus Bjarna-
son frá Bíldudal, báðir með 1. einkunn.
Útlendir ferðamenn. Auk þeirra 14
Englendinga, er komu hingað með Magne-
tic, var með Laura þýzkur höfðingi, er nefn-
ist Gadendorf barón, og í för með honum
2 þýzkir aðalsmenn, v. Flotow og Rappardt,
og danskur stórkaupmaður, Funck að nafni,
ásamt 2 þjónustumönnum. Ætla þeir að
ferðast til Heklu og Geysis.
Barðaste.sýslu vestany. 1. júní:
»þrátt fyrir hinn góða heyskap, sem hjer
um sveitir fekkst seinasta sumar, fór þó svo,
að hey gáfust upp hjá flestum, enda þótt
veturinn væri eigi harður hvað frost og snjó-
komu snertir. Hinir sífelldu umhleypingar
og stórviðri, sem gengu mestan part vetr-
arins, ollu því, að lítt varð notuð útbeit, og
þar sem fjenaður lifir mest á útigangi, varð
hann í slæmu standi, ef hey brustu til að
gefa. Yeturinn varð því alls eigi affaragóJ-
ur, með því líka að bráðapest og lungna-
veiki stakk sjer víða niður, og urðu mest
brögð að því á útigangsjörðum. Um langan
tíma hafa nú gengið þurkar og kuldar, svo
að jörð öll er gróðurlaus enn þá, og tún svo
sem ekkert farin að grænka. Fiskilaust er
alveg af þorski síðan vorvertíð byrjaði, en af
steinbít hefir aflazt talsvert, þá sjaldan gefið
hefir á haf og enda á lóðir á grunnmiðum.
Bætist ekki úr með þorskaflann, verður ekki
upp á annað að byggja hjá flestum hjer en
hina mjög óvissu líkn og miskunn kaupmanna
í því að lána lífsnauðsynjarnar, og þá með
þessum vanalegu frjálslegu (!) skuldbinding-
um, sem draga menn undir okið og ánauð-
ina, hve nær sem misbrestur verður á afla-
brögðum, einmitt af því að menn ekki kunna
rjett að fara með björgina þegar hún veitist.
Hjer er þannig alls ekki glæsilegt útlit nú
sem stendur. þó má telja það til hagsbóta,
að hvalur var í vor róinn á land áAlptamýri
við Arnarfjörð, og varð það talsvert bjarg-
ræði, en eingöngu fyrir þá sveit, er þess
varð aðnjótandi, og helzt fyrir þá menn, er
sáu hann rekandi á firðinum og náðu honum
að landi. Samt skal geta þess að þeir seldu
öðrum utansveitar með bærilegu verði nefnil.
rengi á 40 aura fjórðunginn og spik á 80 a.
þvesti allt var ónýtt, þvf hvalurinn var fyrir
löngu dauður. Hinn voðalegi kíghósti á
börnum hefir gengið í vor, einkum í Patreks-
firði og Tálknafirði, og hafði á skömmum
tíma dáið úr henni á einum bæ í Tálkna-
firði 3 börn á ungum aldri, en fjöldi er enn
þá veikur. Að öðru leyti er heilsufar bæri-
legt, nema þetta vanalega kvef, sem gengur
á hverju vori.
Beneficeret.
Tilforordnede i den kongelige
Landsover- samt Hof- og
Stadsret i Köbenhavn
göre vitterlig: at for os har andraget Be-
styrelsen for Erik Olafsons Legat til For-
del for Broddanes Rep inden Strande Syssel
paa Island, at den finder sig foranlediget til
i Medhold af dertil given kongelig Bevill-
ing af 30. April d. A. og Bevilling til fri
Proces af 2. Maj d. A. at söge Mortifika-
tionsdom paa en i Islands Landfogedkontor
under 18. August 18S3 af daværende Land-
foged Y. Finsen udstedt Tertiakvittering for
31 Rdlr. 48 Skill. rede Sölv, paategnet en
af Landfoged Finsen bekræftet Genpart af
vedkommende i Islands Stiftamthus under
sainme Dato af J. D. Trampe udstedt Ordre
til Landfogden om i Jordebogskassen at mod-
tage til Forrentning i Overensstemmelse med
det kongelige Rentekammers Skrivelse af
28. September 1822 og allerhöjeste Resolu-
tion af 16. Oktober 1839 den Summa 31
Rdlr. 48 Skill. rede Sölv tilhörende Erik
Olafsons Legat af Strande Syssel, hvilken
Tertiakvittering er bortkommen.
Thi indstævnes herved med sex Maan-
eders Varsel den eller de,som maatte have
ovennævnte Tertiakvittering i Hænde, til
at möde for os i Retten paa Stadens Raad-
og Domhus, eller hvor Retten til den Tid
holdes, den anden ordinære Retsdag, for
Tiden Mandag, i Januar Maaned 1892 til
sædvanlig Retstid, for Tiden KI. 9 Formid-