Ísafold


Ísafold - 20.06.1891, Qupperneq 3

Ísafold - 20.06.1891, Qupperneq 3
195 eigi fengið skipun, nema því að eins, að hann teldi þær til þess hæfar. 8. Beikningsmál. Fundurinu vildi, að reikningar um kostnað við nám yfirsetu- kvenna og fátækraflutningsreikningar lægju undir endurskoðun og úrskurði sýslunefnda. Nýir sparisjóðir. Stofnun sparisjóðs er á leiðinni á 2—3 stöðum enn, að því er Isafold hefir fengið vitneskju um. Á fundi sýslunefndarinnar í Vestur-Barða- strandarsýslu 30. april þ. á. »gengu sýslu- nefndarmenn og nokkrir aðrir í fjelag til að koma á sem fyrst að verða má sparisjóði fyrir vestursýsluna, er vera skyldi á Pat- reksfirði, og er meiri von, enda líka mjög æskilegt, að það fyrirtæki komist á fót«. I annan stað er Isafold skrifað 4. þ. m. úr Ólafsvík: sMenningarfjelagið okkar, er stofnað var í fyrra, hefir haft á dagskrá meðal annars stofnun sparisjóðs fyrir þetta pláss. Hinn 31. f. m. hjeldum við fund og fengum loforð fyrir 900 kr. í ábyrgð, ein- ungis frá nokkrum »MenningarfjeIagsmeð- limum«, og svo ætlum við að reyna að fá hr. S. B. Sæmundsson kaupmann og fleiri góða menn til að styðja fyrirtækið með því að gjörast meðstofnendur og meðábyrgðar- menn sjóðsins. Jeg hef góða von um, að fyrirtækið hafi framgang. Jeg og fleiri af stofnendum viljum leggja fram helming ábyrgðarfjárins þegar í stað gegn þeim vöxt- um, sem sjóðurinn gefur, og láta það standa þar fyrst um sinn, til þess að sjóðurinn geti tekið til starfa undir eins og hann er stofnaður, bæði með útlán og annað. Með því að leggja fram fje undir eins, sýnum við meiri tryggingu fyrir áreiðanleik sjóðs- ins«. Mjög mundi það rnælast vel fyrir og afla Jöklurum orðstírs út í frá, ef þéir kæmu sjer upp laglegum sparisjóði. Sjerstaklega væri það einn vottur meðal fleiri um nýjan aldarhátt í Ólafsvík og betri miklu en fyrr- um, meðan það kauptún laut hinu forna kaupmannseinveldi o. s. frv. Loks mun vera að komast á hreifing til sparisjóðsstofnunar í Vestmannaeyjum. Sparisjóður Svarfdælinga- það er þriðji sveita9parisjóðurinn við Eyjafjörð, og hafði eigi komizt inn í upptalningu íslenzkra sparisjóða í ísaf. 11. marz þ. á. Skýra forstöðumenn hans frá, að hann hafi verið stofnaður í ársbyrjun 1884 og öðlazt árið eptir lögheimiluð sparisjóðshlunnindi. Við síðustu ára mót var innieign samlagsmanna rúm 3300 kr., en varasjóður orðinn 150 kr. Frá nýári til 14. maí þ. á. lagðar inn 800 kr. Allar innborganir frá byrjun sjóðsins til þess tíma rúmlega 10,500 kr., að því er gjaldkeri sjóðsins, Jóhann bóndi Jónsson á Ytra-Hvarfi, skýrir frá f brjefi til ritstj. Isaf. Er það greinilegt dæmi þess, hve drjúgt er það sem drýpur og auðgert muni að draga fje að sparisjóð- um í álitlegum kauptúnum, úr því það lánist eigi lakara en þetta] jafnvel lengst upp til sveita. , Alþingiskosning. Bangvellingar hafa kosið til þings 15. þ. m. síra Ólaf Ólafsson í Guttormshaga, með 58 atkv. f>órður hreppstjóri Guðmundsson í Hala hlaut 54. Hafði orðið að kjósa tvisvar, með því að í fyrra skiptið hlaut enginn helming atkvæða, -—þeir síra Ólafur 53 og þórður 56, en Jón Jónsson söðlasmiður frá Hlíðarendakoti 9; hafði hann verið á atkvæðaveiðum um sýsl- una á undan kjördegi; slóst meiri hluti þessara 9 atkvæða hans í lið með síra Ólafi í seinni kosningunni, en nokkrir höfðu tínzt af fundi. Mannalát. Ekkjufrú Steinunn Bjarna- dóttir (amtmanns Thórarensens) í Klaustur-* hólum, ekkja síra Jóns próf. Melsteðs, and- aðist aðfaranótt hins 15. þ. m. Verður hennar minnzt ýtarlegar síðar. t »Hinn 18. apríl þ. á. andaðist eptir langvinnar sjúkdómsþjáningar ekkjumaður- inn Jón Jóhannesson á Breiðabólsstað í Sökkólfsdal, 71 árs að aldri. Foreldrar hans voru hjónin Jóhann Pjetur Einarsson og Guðrún Jónsdóttir, er síðast bjuggu í f>ing- nesi í Bæjarsveit. Jón sál. var búhöldur ágætur og auðsældarmaður mikill, enda bar hann ótrauður langmesta byrði sveitar sinn- ar; hann var gjafmildur við fátæka, hjálpfús, gestrisinn, ráðhollur, góður eiginmaður og faðir barns síns og fósturbarna og ágætur húsfaðir. Hans er því sárt saknað af öllum sem vel þekktu hann.» Vbstmannaeyjum 9. júní: Umliðinn maí- mánuður var fremur kaldur og þurrviðrasam- ur, mestur hiti 21. og 25. -f 13,4°; minnst- ur aðfaranótt hins 15. -f-0,l°. Úrkoma var allan mánuðinn að eins 47 millimetrar, og hefir hjer ekki komið deigur dropi úr lopti frá 22. maí til þessa dags, svo að sárilla lítur út með grassprettu og garðrækt, jörð sumstaðar jafnvel farin að brenna af þurki og hita, því að síðustu viku hefir verið vel heitt á daginn, í gær -f 18°. Maímánuður var allur fremur vindasamur, gengu austan- áttir um byrjun og lok mánaðarins, en vest- an-og norðanáttir um miðbik hans. Ofsarok á austan var 4., 5. og 6. maí, svo og 1. þ. mán. Gæftir á sjó hafa því verið mjög stirð- ar og lítill afli. Helzt hefir aflazt trosfiski hjer í djúpinu og ýsa allvel undir Sandi, þegar þangað hefir orðið komizt, en við þorsk og löngu hefir að eins orðið vart. Fjenaðarhöld urðu yfir höfuð í meðallagi og sauðburður hefir gengið vel. Heilbrigði ágæt. Bryde hefir þegar sent 2 vörufarma til Víkurkaupstaðar, og munu fleiri á eptir fara. Norskt timburskip frá Mandal kom hiugað fyrir 2 dögum með pantaðan viðarfarm til Bangvellinga, hjelt í gærkvöldi undir Sand til að afferma þar. Sýslunefndarfundur var hjer nýlega haldinn og þar meðal annars samin og samþykkt reglugjörð umfjársöfn m. m.; sömuleiðis reglu- gjörð um lækningar á hundum, sem eptir reglugjörðinni eiga að takast til lækninga einu sinni á ári. Beiðni kom frá hrepps- nefndinni um að mega leggja 500 kr. af sveitarsjóði í Söfnunarsjóðinn, og veitti sýslu- nefndin samþykki sitt til þess. Enn fremur veitti nefndin 30 kr. styrk til sundkennslu í sumar. Baeðasteandarsý8LU sunnanv. 28. maí: Veðuráttin hefir yfir höfuð mátt heita góð í vor, þó hún hafi einlægt verið fremur köld og stundum umhleypingasöm. Vegna vorkuldanna hefir þetta vor verið eitt hið gróðurminnsta; grænn litur sást ekki á túnum fyrr en í 5. viku sumars og sauðgróður kom ekki fyrr en með 6. vikunni. Talað er því um að hey hafi gefizt mikil í vor, eins og í vetur, og heyfyrningar hjá almenningi því engar. Bæði vegna þess, að sauðfje gekk vel feitt undan vetrinum, og hey voru víðast til að gefa í vor, eru hæði góð höld á sauðfjenaði og hann víðast í bezta standi, og aldrei hefir kvikfjenaður selzt með eins háu verði eins og 1 vor á uppboðum hjer og í nálæg- um plássum. Steandasýslu 3. júní: »Tíðin hefir verið köld optast og er því gróður heldur lítill; ís hefir verið að flækjast öðru hverju hjer inn með Ströndunum, þó hefir hann eigi hindrað siglingar og nú sem stendur er hann horfinn. Skepnuhöld góð og sauð- burðurinn gengur vel, enda stórhretalaust í allt vor. Jörð er vel þíð, og vinnutíð góð, en vinnukitipta vantar hjer mjög um þessar mundir, því hjer í plássi er fylgt þeirri gullvægu(!) reglu, að flestallir verkfærir menn labba sig vestur að Djúpi um páska °g l'ggja þar þaDgað til 10 vikur af sumri, og er það óbætanlegt tjón fynr landbúnað- inn. A vetrum er hjer ávallt nóg af iðju- lausum *lausamönnum; þeir fara ekki til sjávarins fyr en um það leyti, sem útiverk byrja. Að þessu sinni koma þeir líklega heim, því allt af er aflalaust fyrir vestan. 53,000 kr. voru gefnar nýlega á uppboði í Ameríku iyrir 1 expl. af biflíu þeirri, er Gutten- berg prentaði, á 15. öld. 400,000 kr. rúmar græddi Stanley á fyrir- lestrum sínum í Ameríku í vetur um ferðalög sín í Afriku. Hann er nýlega kominn til Eng. lands vestan að. 18,000,000 kr. hefir skemmtiskip ítússakeis- ara kostað, enda kvað það vera hið langskraut. legasta og viðhafnarmesta skemmtiskip í heimi. 3985 papj»rsmyllur kváðu vera til í heimin- um alls. HÓMKIRKJUPRESTURINN messar i Görð- um á Álptanesi á morgun og verður því eigi messað hjer þann dag. Styrktarsjóðnr W. Fischers. þeir sem vilja sækja- um styrk úr þessurn sjóði, geta fengið sjer afhent eyðiblöð í verzlun W. Fischers í Reykjavík og Kefla- vík. Styrkurinn er ætlaður ekkjum og börnum, er misst hafa forsjármenn sína í sjóinn, og ungum Islendingum, er hafa í tvö ár verið í förum á verzlunar- eða fiski- skipum, sýnt iðni og reglusemi, og eru verðir þess, að þeim sje kennd sjómannafræði og þurfa styrk til þess. Um ekkjur er það haft í skilyrði fyrir styrkveitingu, að þær hafi verið búsettar 2 síðustu árin í Bvík eða Gullbringusýslu og um sjómenn og börn að vera fæddir og að nokkru leyti uppaldir þar. Bónarbrjef þurfa að vera komin til stjórn- enda sjóðsins (landshöfðingja og forstöðu- manns Fischers-verzlunar í Reykjavík) Jfyrir 31. júlí þ. á. Samkvœmt opmi brjefi 4. jan. og lögum 12. apríl 1878 innkallast hjer með allir þeir, sem telja til skuldar í dánarbúi manns- íns mins sál. síra Finnboga R. Magnússonar, til þess innan sex mánaða frá siðustu birt- ingu auglýsingar þessarar að sanna skulda- krófur sínar fyrir undirskrifaðri ekkju hans. Húsavík 1. júní 1891. Jónína Markúsdóttir.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.