Ísafold - 11.07.1891, Blaðsíða 3
Eir. Briem kosinn fjehirðir ineð 25 atkv.,
í stað amtmanns E. Th. Jónassens, er baðst
undan kosningu; pórhallur Bjarnarson end-
urkosinn skrifari með 30 atkv., og Morten
Hansen endurkosinn bókavörður með 32 at-
kv. Yaraembættismenn : dr. Björn M. Ól-
sen varaforseti (22 atkv.), jjorieifur Jónsson
varafjehirðir (9), Indriði Einasson varaskrif-
ari (9) og Sigurður Kristjánsson varabókav.
(17).
Endurskoðunarmenn voru endurkosnir
Halldór Jónsson og Björn Jensson, og í
Tímaritsnefnd með forseta 1892 endurkosnir
Stgr. Thorsteinson, Eir. Briem, B. M. Ólsen
og Kristján Jónsson.
|>rír menn voru teknir í fjelagið á fund-
inum.
Gufubáturinn Faxi- Perðin í gær
gekk mikið vel, upp á Akranes og Borgar-
nes, og hingað aptur í gærkveldi. Eerðin
tafðist nokkuð fyrir það, að bíða varð eptir
flóði til að komast inn á Brákarpoll. Fimmt-
án farþegar fóru ineð bátnum hjeðan og 6
komu aptur. Ljetu þeir mikið vel yfir ferð-
inni. Báturinn er ferðmikill og þokkalégur
nú síðan hann var hreinsaður og málaður.
í morgun Iagði hann af stað til Keflavíkur
og Voga, en með ekki nemalfarþega og mjög
lítinn flutning. A morgun fer hann aðra
ferð til Akraness og Borgarness og kemur
aptur að kvöldi. Mun standa til, að ýmsir
hjer úr bænum fari þá með honum skemmti-
ferð.
Norskt gufuskip, Augusta, frá Hauga-
sundi, um 200 smálestir, kom til Borgar-
ness í gær, frá Norvegi, hlaðið timbri, og
meðþvíeigandi verzlunarinnar þar, stórkaup-
maður Lange frá Bergen. Er mælt að það
eigi að koma á fleiri hafnir hjer við land
og optar í sumar.
Oveitt prestakall. Rafnseyri í Yest-
ur-ísafjarðarprófastsdæmi (Rafnseyrar og
Alptamýrar sóknir). Metið 983 kr. 21 e.
A prestakallinu hvílir kirkjubyggingar- og
hiisabótalán, tekið 1885, að upphæð 1000
kr., sem afborgast með 100 kr. árlega af
kirkju og prestakalli auk vaxta, alls á 10
árum. Auglýst 7. júlí.
Frá Útlöndum bárust með franska
herskipinu í fyrra dag eigi önnur merkis-
tíðindi en lát Johns Macdónalds, hins nafn-
togaða ráðaneytisforseta í Canada um lang-
an aldur.
l»iljubátur, »Den Lille«, sem stórkaup-
maður Lefolii sendi til Eyrarbakka fyrir
nokkrum árum til að flytja á ýmsar vörur
með ströndum fram, lagði þaðan út á fiski-
veiðar þann 7. júní, og kom aptur að þrem
vikum liðnum og hafði þá aflað um 4 þús-
und, mikinn part þorsk. Er það hið fyrsta
þilskip, sem lagt hefir út til fiskveiða hjeðan
frá Eyrarbakka. Vonandi er, að það örvi
menn þar til að gefa þilskipaútveg meiri
gaum en verið hefir.
Gufubáturinn »Oddur«. Stórkaup-
maður Lefolii á Eyrarbakka hefir keypt og
sent þangað gufubát, að stærð hjer um bil
24 smálestir, er hann ætlar að nota til vöru-
flutninga, og jafnframt til að draga vöru-
skip sín inn og út sundið.
Eyrarbakka 1. júlí: iSíðustutvo mán-
uði, maí og júnímán., hefir veðrátta verið
mjög þurviðrasöm, en hefir þó að öllu sam-
töldu verið góð, að fráteknu kuldakastinu,
er hann gerði millum 25. apr. og 5. maí.
Úrkoma hefir verið mjög lítil, og hefir verið
að því stór bagi hvað viðvíkur grasvextinum,
einkum á mýrlendi. Tún og harðvelli hefir
ar á móti sprottið vonum fremur. Úrkom-
an var að eins 45 millim. í maí, en 24 í
júm'. Mestur hiti í maí var þann21. + 12.7
C., en minnstur þ. 3.+3.9 um hádegi. I
júním. var mestur hiti þ. 26.+18.6 um
hád., en minnstur þ. 1. + Í0.2. Á nóttu var
mestur hiti 1 maí þ. 21.—22. + 5.1 á C.,
minnstur þ. 3.—4.-^6.2. í júní mestur hiti
á nóttu þ. 23.—24. +11.4, en minnstur þ.
6.—7. + 1.4. jpann 23.—27. júní var hjer
venju fremur heitt, og soðnaði þá töluvert
af hálfþurrum saltfiski hjá þeim, er höfðu
hann breiddan þá daga.
Alþingi.
iv.
Eundur á hverjum degi í báðum deildum
dagana 8., 9. og 10. þ. m. Umræður litlar
enn í efri deild, en nokkrar í neðri um
stöku mál, t. d. ellistyrk embættismanna, í
fyrra dag. Við hafa bætzt þessa 3 daga 11
frumvörp. jpau eru því orðin 46 alls. Enn
fremur komnar 3 þingsályktunartillögur.
Hjer skal getið helztu málanna hinna
nýju o. s. frv.
Stjórnarskrárfrumvarpi hafa þeir
Benid. Sveinsson og Sigurður Stefánsson
gjörzt flutningsmenn að á þessu þingi, og
mun það eiga að koma til umræðu á mánu-
daginn 13. þ. m. J>að er samhljóða frum-
varpi því, er samþykkt var í neðri deild
1887, en dagaði uppi í efri deild.
Utanþjóðkirkjumenn. ]?eir Skúli
Thoroddsen og Lárus Halldórsson vilja fá
utanþjóðkirkjulögunum frá 1886 þannig
breytt, að »hver, sem segir sig úr þjóðkirkj-
unni, skuli frá þeim tírna vera undanþeginn
öllum lögboðnum gjöldum til prests og kirkju«.
Eptirleiðis skulu brauð veiöt með þeim fyr-
irvara, að prestur verði að hlíta þeirri tekju-
rýrnun, er leitt getur af lögum þessum.
jíeir, sem nú eru í embættum, skulu fá
uppbót úr Iandssjóði.
Alþingiskosningar. Jón A. Hjaltalín
hefir borið upp hið sama frumvarp og á síð-
asta þingi um breyting á kosningarlögum til
alþingis^ (hreppakosningar o. s. frv.), og
Sighv. Arnason annað frumv., lítils háttar
breyting á sömu lögum: um kjörskrár.
Þingfararkaup vilja þeir Jón A. Hjalta-
lín og Eriðrik Stefánsson hafa fastákveðið,
dagpeninga af þingi og á, ásamt ferðakostn-
aði, allt í einu lagi, miðað við heimiliskjör-
dæmi hvers þingmanns, eins og haldið var
fram og ýtarlega útlistað í »ísafold« fyrir
3 missirum, og látið einu gilda, hvort þing-
maðurinn fer sjóveg eða landveg, en 6 kr.
að auki í dagpeninga meðan þing stendur,
vitanlega. jþingfararkaupið vilja þeir hafa
hæst fyrir Norðurmúlasýslu, 728 kr., og
minnst fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu, 32
kr.; hin þar á milli. þeir Skúli þorvarðar-
son og þorlcifur Jónsson vilja éinnig hafa
fast þingfararkaup, en miklu lægra, og gjöra
auk þess mun á, hvort farið er landveg eða
sjóveg. Lægsta þingfararkaup er hjá þeim
30 kr., en hæst 450 kr. (fyrir Múlasýslur),
ef landveg er farið, en 300 kr. sjóveg.
Kjörgengi kvenna- þeir Skúlí Thor-
oddsen og Ólafur Ólafsson vilja láta ekkjur
og aðrar ógiptar konur, er standa fyrir búi
eða á einhvern hátt eiga með sig sjálfar,
hafa kjörgengi i hreppsnefnd, sýslunéfnd,
bæjarstjórn og safnaðar- og hjeraðsnefndir,
ef þær fullnægja að öðru leyti lögákveðnum
skilyrðum fyrir karlmenn.
Sjereign og myndugleiki giptra
kvenna- Sömu þingmenn vilja láta það
vera sjereign giptrar konu, er hún á á gipt-
ingardegi eða henni síðar kann að áskotnast
við arf eða gjöf, nema öðruvísi sje ákveðið
i hjúskaparmála. Giptar konur eiga og að
verða hálfmyndugar og fullmyndugar í fjár-
málum á sama aldri sem karlmenn. »Bónd-
anum er óheimil hvers konar umráð yfir
sjereign konunnar, nema lögmætt samþykki
hennar komi til«.
Menntun kvenna- Sömu 2 þingmenn
vilja láta konum jafnt heimilt sem körlum
að njóta kennslu og ganga undir burtfarar-
próf hins lærða skóla í Reykjavík, presta-
skólans, læknaskólans og annara menntun-
arstofnana, er scofnaðar kunna að verða,
hafa jafnan rjett til styrktarfjár við námið
og jafnan aðgang að embættum landsins að
afloknu prófi.
Landsbankinn. þeir Eir. Briem og
Indriði Einarsson vilja láta bókara og fje-
hirði landsbankans hafa 2000 kr. í laun
hvorn, í stað 1000 kr., og fjehirði að auki
i af þúsundi af innborgunum bankans og
útborgunum.
Strandferðir og vegir. Síra Jens
Pálsson hefir borið upp mikið mál, frum-
varp, um strandferðir og vegi. sLandssjóð-
ur Islands heldur úti á sinn kostnað gufu-
skipi i strandferðum við landið eigi skemur
ár hvert- en 7 mánuðia, með farþegarúmi
fyrir 100 menn og vörurúmi fyrir 50 smá-
lestir.
Vegir skiptist í aðalflutningabrautir, aðal-
póstvegi, fjallvegi, sýsluvegi og hreppavegi.
»Aðalflutningabrautir eru þeir vegir, sem
aðalvörumagn hjeraða er flutt um, að kaup-
stöðum og öðrum helztu hafnstöðvum og frá
þeim«. Að öðru leyti er frv. líkt vegalög-
unum frá 1887, enda skulu þau úr gildi falla
og önnur hin eldri vegalög.
Póstferðir. Til að »íhuga og gjöra til-
lögur um breyting á ferðum landpóstanna
og um fjölgun þeirra, svo og til að íhuga
reglur þær og fyrirskípanir, er póstmenn
eiga að fylgja i störfum sínum«, hefir neðri
deild skipað í nefnd: Jens Pálsson, Sigurð
Gunnarsson, Ólaf Olafsson, Ólaf Briem og
Jón Jónsson þm. N.-þing.
Búnaðarfjelagastyrkur. Aðra nefnd
hefir neðri d. skipað til að semja og koma
fram með ákveðnar reglur fyrir útbýting
þess fjár, sem veitt er af landssjóði til bún-
aðarfjelaga : Sigurð Stefánsson, Gunnar Hall-
dórsson, Bened. Sveinsson, Pál Olafsson og
Svein Eiríksson.
Undirskrifaður kaupir eptirnefnd-
ar bækur fyrir hátt verð:
Ármann á alþingi 1.—4. árm. sýnishorn.
Minnisverð tiðindi 1.— h.
Gaman og alvara 1.—2. h.
Maanedstidende, Hrappsey, 811.
Heimskringla —
M. Ketilsson: Porordninger 3. b.
Matreiðslukver, Leirárgörðum 1800.
Akureyrarpósturinn allur.
S. Breiðfjörð: Smámunir.
— — Grænlandsför.
Hannes Pinnsson: Kvöldvökur 1. útg.
Sv. Hallgrímsson: Dönsk lestrarbók 2. útg.
Agústína Eyjólfsdóttir, Ljóðmæli.
J. Olafsson: Stafrófskver, Eskifirði.
H. Briem: Enskunámsbók 1. útg. Akureyri.
O. Indriðason: Bænakver 1. útg.
Eerðabók Eggerts Olafssonar.
Norðri 1.—3. ár. Norðanfari allur.
Undirbúningsblað 1.—6. bl. Iðunn, Akureyri.
Norðurfari allur. Amerika 1.—6. bl.
Andrarímur. Heljaslóðarorusta, 1. útg.
Einungis heil og ósködduð expl. verða keyqt.
Kr. O. porgrímsson.