Ísafold - 05.08.1891, Page 1

Ísafold - 05.08.1891, Page 1
ÆCemur ót á miðvikudÖJum og augardögum. Verð árg. (um 100 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundln við áramót, ógild nema komin sje til átgefanda fyrir l.okt. Af- greiðslust. i Austwstrœti 8. XVIII. 62 Reykjavík, miðvikudaginn 5. ágúst. Um landbúnað og Búnaðarfjelag Suðuramtsins. Eptir amtmann E. Th. Jónassbn. I. Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi. J>að er öllum knnnugt, að aðalatvinnu- 'vegir landsins er tveir : landbúnaðurinn og fiskiveiðarnar; en það er einnig alkunnugt, að þeir eru eigi enn þá á svo fullkomnu stigi eða gefa eins mikið af sjer eins og þeir geta, ef þeir eru vel stundaðir og menn hafa kunnáttu til þess að færa sjer þá sem bezt í nyt. Að því er snertir hinn fyrri af þessum atvinnuvegum, landbúnaðinn, þá má víst fullyrða, að hann sje ekki eins stopull eins og fiskiveiðarnar, sem, á meðan þær mest- megnis eru reknar á opnum skipum og bát- um, er að eins geta farið skammt undan landi, ætíð hljóta að bregðast við og við og ekkert gefa í aðra hönd, þegar fiskurinn eigi gengur upp að landi á fiskimið hinna opnu báta. En landbúnaðurinn getur nú líka orðið stopull, ef menn eigi gæta þess að afla nægilegra heyja, því að þau verða fóturinn undir landbúnaði; ef þau vantar, deyja skepnur bóndans og hann er þá engu betur staddur en sjávarbóndinn, sem lítið eða ekkert aflar úr sjó; sá er að eins mun- urinn, að það getur staðið svo á og muu optast vera svo ástatt, að vöntun heyjanna eru sjálfska,parvlti landbóndans, þ. e. að hann hefir annaðhvort vanrækt að afla sjer nægilegra heyja eða þá sett skepnur á hey af lítilli eða engri fyrirhyggju, en sjávar- bóndinn getur ekki að því gert sjálfur, þótt fiskurinn eigi aflist. J>að er þess vegna einkar-áríðandi, að landbóndinn ekkert van- ræki, er lýtur að því, að auka heyforða hans handa skepnum sínum ; en hvernig á hann að fara að því? Svarið liggur beint við : hann á á allan hátt að rækta svo vel jörð þá, sem hann býr á, að hún framleiði með sem minnstum kostnaði sem mest gras, ■en vegurinn til þess er, að auka sem mest grasið á túni jarðarinnar og einnig að bæta sem mest og auka grasið á útjörðunni (engjum) með öllu mögulegu móti, t. a. m. vatnsveitingum, þar sem þeim verður við komið og sem víða er hægt, með því að grafa skurði og þurka upp fen og blautlendi o. s. frv. Jeg býst uú við, að menn muni svara mjer því, að allt þetta sje hverju orði sannara, en að bændur vanti fje til iþess að koma í verk endurbótum á jörðum sínum. þetta kann nú að vera satt að nokkru leyti, en það má þó margt verkið vinna til endurbóta jarðanna, ef tíminn er vel notaður, en það er hægt að sanna, að ■margir bændur nota hann illa, og sömu- leiðis, að þeir skemmi þær jarðir, sem þeir aitja á. |>að er, eptir því sem jeg þekki til, hvorki efnaleysi nje tímaleysi að kenna, að svo lítið er gert enn að jarðabótum hjer á landi, heldur kemur það mest til af deyfð, er grúfir yfir sumum sveitum; þar er eng- inn bóndi, sem tekur öðrum fram, og svo situr allt við sömu vanafestuna í búskapn- um þar og hefir verið; það sjest bezt á því, að ef einhverri sveit vill það happ til, að þangað flytur sig einhver dugandi maður, er fer að gera jarðabætur á ábúðarjörðu sinni, þá líður vanalega ekki á löngu áður en hinir bændurnir fara einnig að gera það og hafa þá allt i einu bæði efni á og tíma til að láta framkvæma þær jarðabætur, sem þeim áður fannst ókleyft að leggja út í. j?að er því eigi svo mjög efnin sem skortir | til þess að endurbæta jarðirnar, eins og upp- örfun, og að bændur þreifi á því, að sú vinna, sem þeir verja til jarðabóta, borgi sig, o: gefi af sjer arð og hann varanlegan. Reyndar er hverjum bónda ætlandi, að skílja það, að þegar hann t. a. m. sljettar tún sitt og þannig árlega eykur grasmegnið af því, svo að hann getur farið að hafa á jörðinni langt um fleiri kýr eða fjenað en áður og þarf langt um minni tíma til að afla heyjanna en áður, þá eykur hann stórum velmegun sína og jafnframt velmegun landsins. En til þess að gera jarðabætur að nokkr- um mun, þarf talsverðan vinnukrapt, en vinnukrapturinn kostar peninga; en það er einmitt sá hlutur, sem hinn fátæka bónda skortir hvað mest, og þess vegna geta ein- ungis hiuir efnuðu bændur bætt jarðir síu- ar og þannig aukið efni sín, en hinir fá- tæku bændur, sem opt eru einyrkjar, geta það ekki,— munu menn segja. Ráðin til þess að hinir fátæku bændur geti komið á- fram jarðabótum, er fyrst og fremst það, að þeir noti tímann sem bezt, því ef hinn fá- tæki bóndi gerir það, þá mun hann verða að játa, að hann hafi marga þá stundu af- gangs, er hann gæti varið til þess að bæta jörð sína; en það er einkum þó á annan hátt en með eigin vinnu og hjúa sinna, að honum á að verða það mögulegt að vinna að jarðabótum, og það er með því, að stofn- uð sjeu fjelög í sveitunum til jarðabóta, því að »margar hendur vinna ljett verk«; þess konar fjelög, sem sameini hina dreifðu krapta, til þess að verja þeim sameinuðum til hags- muna fyrir allt sveitarfjelagið, geta undir góðri stjórn gert ómetanlegt gagn, og það er mjög gleðilegt, að þess konar fjelög eru stofnuð sumstaðar á síðari árum, þar sem bændur styðja hvor annan í búskaparfram- kvæmdum með því, að leggja fram vinnu hver hjá öðrum. A þennan hátt getur hinn fátæki bóndi með sjer litlum tilkostnaði komið því til leiðar að bæta ábúðarjörð sína. Vegna þess, hvað strjálbyggðin er 1891 mikil, er sjálfsagt hentugast að stofnuð sjeu jarðabótafjelög í hverjum einstökum hreppi, eins og nú er farið að gera sumstaðar, en þó hvergi nærri nógu víða. þessi fjelög þyrftu í hverri sýslu að hafa yfir sjer nokkurs konar yfirstjórn; en öll búnaðarfjelög í Suð- uramtinu ættu að standa í sambandi við »Búnaðarfjelag Suðuramtsins«. Ofarlítil ádrepa. Svo Iangt er þá komið áleiðis, að alþing- ismaður þorlákur Guðmundsson álítur brú- argæzlu nauðsynlega ; fleiri vantrúaðir munu koma á eptir ; að eins þykir honum að jeg risti »lengjuna breiða»; hann vill hafa hana »mjóa«, en þá á hann eptir að sýna almenn- ingi, hve stór breiddarmunurinn er. Líklega setur landshöfðingi reglur fyrir gæzlunni á Olvesárbrúnni — ef gæzlan ann- ars verður nokkur —, hvort heldur bænd- urna á Selfossi, eða reglulegur brúarvörður verður fenginn til að gæta hennar. þar verður sjálfsagt gert að skyldu að gæta brú- arinnar fyrir ryði og fúa, sem framast er unnt, og enn fremur verja hana fyrir skeyt- ingarlausri og skaðlegri umferð vegfarenda m. fl. m. fl. Jeg hef úður sagt, að það er fullkomlega eins nanðsynlegt að verja hengi- brýr fyrir óþarfahristingi, eins og að mála járnið og tjarga trjeð. Hve mikið vilja nú bændurnir á Selfossi hafa fyrir daglegt eptirlit á brúnni, sam- kvæmt þessum skilmálum ? Og fyrir hve mikið vill reglulegur brúarvörður taka að sjer þenna starfa ?, sá sem annaðhvort hefir greiðasölu eða handverk við hliðina sjer til framfærslu. Hvort hefir landið meiri trygg- ing fyrir dyggilegri gæzlu, þegar sá maður lítur eptir brúnni, sem stöðugt getur verið við brúarsporðinn, eður ef bændur verða settir til þess, sem þurfa að vera á engjum og í ferðalagi, og að öðru leyti sinna búi sínu ? Tryggingin er augljós, að mjer virðist; en hve mikill munur er á kostnaðinum, er ekki hægt að sanna, fyr en vissa er fengin fyrir því, hversu mikið bændurnir á Selfossi vilja hafa fyrir það, að taka að sjer þetta starf, og svo landshöfðingi á hina hliðina hefir auglýst, að hæfur maður geti fengið þessa stöðu fyrir ákveðin laun. þegar þetta er fengið, er hægt að meta breiddarmuninn á »lengjunum«, en um leið þarf að gæta þess, hvort verðmunurinn sam- svarar gæðamuninum. Fyrir mitt leyti er jeg sannfærður um, að hr. alþm. |>. G. hefir gjört kjósendum sín- um og öðrum landsmönnum fremur óleik en gagn með andófi sínu gegn því, að þeir, sem nota stórbrýr, greiði fyrir slit, gæzlu og skemmdir á þeim. Ef þingið fylgir nú hans

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.