Ísafold - 05.08.1891, Blaðsíða 4

Ísafold - 05.08.1891, Blaðsíða 4
1248 •vill fella frumvarpið, en tveir í nefndinni, Jón Jónsson N.-M. og Ól. Ólafsson, koma með annað í staðinn, þess efnis, að amts- ráðum skuli heimilt að fjölga kjörstöðum í sýslu hverri, eptir óskum og tillöguin sýslu- nefnda; »þó skulu kjörstaðir aldrei vera fleiri en þrír í hverri sýslun. Minni hl. nefndarinnar, Páll Briem, vill samþykkja frumv. efri deildar (J.A. H.) með lítils háttar breytingum. Vistarskyldan. Neðri deild hefir lokið TÍð það mál. Er 1. gr. frv. svo hljóðandi: »jpað er úr lögum numið, að nokkur maður sje skyldur að vera í vist eptir að hann er 20 ára, og er hverjum manni heimilt að ráða sig til vinnu um svo stuttan tíma sem vera skal«. Enn fremur skal hver verkmaður, sem eigi er í vist, eiga víst ársheimili frá far- dögum til fardaga hjá einhverjum húsráð- anda, sem eigi er á sveit, og skal sá hinn sami greiða lögboðin gjöld fyrir hann, ef hann refjast. Frestandi neitunarvald- Grímur Thomsen hefir vakið upp aptur hugmynd- ina um frestandi neitunarvald konungs, og borið upp í því skyni stjórnarskipunarlaga- frumrarp um breyting á 3., 10. og 25. gr. stjórnarskrárinnar. Hið frestandi neitunar- ■á þó að eins að ná til þeirra lagafrumvarpa, -»er snerta landsins sjerstöku atvinnuvegi«. •Staðfesti konungur eigi þess konar laga- frumv. frá alþingi, skal frv. óbreytt lagt fyrir næsta alþingi, og samþykki báðar deildir þingsins það þá óbreytt á ný með f atkvæða, eru það lög«. Launabót. Arnlj. Ólafsson flytur frum- varp um hækkun á sýslumannalaunum í 2 sýslum, Skagafjarðar og Skaptafells, upp í 3500 kr. Ríkisráðið- Sami þingm. vill látaskora á stjórnina að sjá um, að Islandsráðgjafinn sitji eigi í ríkisráði Dana að því er snertir Island8 sjerstaklegu málefni. Leiðarvisir ísafoldar. 776. Má ekki sá maður, sem er 21 árs, ráða j «ig í hvaða vist sem hann vill eða fara frá for- í eldrum sínum, ef hann ekki vill vera hjá þeim j lengur, þá hann er orðinn þetta gamall? Sv.: Jú. 777. Mega smiðir út um land selja gluggarúð- ur, án þess að leysa borgarabrjef? Sv.: Ef í hart er farið ekki öðru vísi í glugg- um, sem þeir smíða 778. Geta aðrir en húsettir menn fengið verzl- unarleyfi til sveita? Sv.: ðlei, sjá lög 7. nóv. 1879, 5. gr. 779. Ef oddviti falar skyttu úr öðrum hreppi til að liggja á greni við refaveiðar, en ákveður ■ekki, hver liggja skuli með honum, getur skytt- an þá ekki tekið hvern sem hún vill til þess? Sv.: það getur húri óefað. 780. Er jeg sem skipuð yfirsetukona í umdæmi mínu skyld að fara til konu, sem lætur sækja mig, og vera lijá henni svo vikum eða jafnvel mánuðum skipti, áður en hún elur barnið, án þess að mega vonast eptir að fá eins eyris þókn- un í launa skyni hjá hlutaðeigendum, þó þeir sjeu megnugir um að borga? Sv.: Nei. 781. Á Vestmanneyjum er siður, að allir þeir, sem eina jörð hafa, gjaldi 50 pd. töðu úr stáli eða 100 pd. af velli í bolatoll, þeir sem tvær jarðir hafa helmingi meira o. s. frv. og það þótt ábúandinn hafi engn kú. Geta þeir, sem enga kú hafa, ekki neitað að greiða bolatoll? Sv.: það geta þeir fráleitt, sje þessi siður orð- inn að fastri venju (lögvenju). 782. Jeg hef tryggt líf mitt og sett trygging- una kaupmanni að veðifyrirskuld og jafnframt því að hann lánaði mjer það sem jeg óumflýjanlega þyrfti til að lifa við, þó með því skilyrði, að hann fengi afla minn á kauptið. Nú hefur hann látið taka aflann, en brugðizt með alla hjálp, nema salt og veiðarfæri. Er mjer ekki heimilt að taka af aflanum framvegis til þess að jeg geti dregið fram lífið, ef jeg læt afganginn til verzl- unar fyrnefnds kaupmanns? Sv.: Sje rjett skýrt frá málavöxtum, hefir kaupmaður gert sig sekan í samningsrofi að minnsta kosti, og þarf spyrjandi þá ehkert að leggja inn af afla sínum hjá honum samningsins vegna. 783. Er það eigi skylda sýslumanna að aug- lýsa skipti í þrotabúum áður en þau (skiptin) fara fram? Sv.: Hann á að minnBta kosti að boða skuld- heimtumenn er hafa gefið sig iram, á skipta- fund, sjá 37. gr. skiptalaga 12. april 1878, sbr. 81. gr. Telefon 751 A. Ravnsborg Tvergade 6. Grundlagt 1853. Hojeste Udmærkelser (Solvmedalje) i Kjobenhavn 1888. Salon- og Kabinestflygeler med fritliggende Jernramme og Resonnantsbuud, hvorved opnaas den dobbelte Tone og Sangbarhed. (Patent). Oprets. krydsstrengede Koncert-Pianoer med Plygeltone (Patent). Hisse Pianoer, som fabrikeres efter ameri- kansk System, der i Holdbarhed har vist sig at være uovertræfieligt og som tillige for ædel Tone har erholdtGuldmedalje paa Udstillinger i Ud- landet, faaes kun hos ovennævnte Eirma, som har Eneret paa Pabrikationen. Krydsstrengede Pianoer fra 500 Kr. Stort Udvalgaf brugte Pianoer. Afbetalingindrömmes ved Henvendelse til Eabriken eller N. H. Thom- sen Reykjavik. Brugte Pianoer tages i Bytte. Pirmaet garanterer til enhver Tid for sit Pabrikat. Exportkaffið Hekla er nú álitið bezt. Exportkaffið Hekla er hreint og ósvikið. Exportkaffið Hekla er hið ódýrasta export- kaffi. Exportkafifið Hekla er nú nálega selt í öll- um stærri sölubúðum á íslandi. D. E. G. Brasch, Hamburg Röskur drengur heilsugóður, nýfermd- ur, af góðu fólki kominn, getar komizt í skraddaralœri nú þegar. Menn snúi sjer til undirskrifaðs, sem gefur nánari upplýsingar. H. Andersen. 16. Hðalstræti 16. Allir, sem eiga brauð inni í bakaríi mínu, eru beðnir að snúa sjer til bakaranna Erederiksen og Jensen, sem láta úti brauð gegn bílætum frá mjer. O. S. Endresen. Laugardaginn 4. þ. m. varð eptir í portinuhjá Glasgow fatapoki. þann er kynni að hafa hirt hann, bið jeg að gjöra mjer sem fyrst visbend- ingu um það að Hruna i Árnessýslu. 10. júlí 1891. Einar Jónsson. Tvö naut hafa verið tekin í óskilum í landi bæjarins: annað ljósgrátt, kollótt, ómarkað, hitt hvítt, hyrnt með rauðan blett á hálsi og hægra eyra, rauðbíldótt á hægra auga og mark ó- glöggt: blaðstýft aptan vinstra. Nautin eru í haldi og verða seld við opinbert uppboð, ef eigendur ekki hafa vitjað þeirra hingað og borgað áfallinn kostnað innan 8 daga. Bæjarfógetinn í Reykjavík, 5. ágústm. 1891. Halldór Daníelsson. Sá sem keypt hefir nr. 322 í Lotteríi »Systrasjóðsins« í Iteykjavík í næstl. júní- mánuði, er beðinn að vitja sem allra fyrst hlutarins, sem unnizt hefir á þessa tölu, hjá forstöðukonu kvennaskólans í Reykjavfk. Svört silki-sólhlíf hefur orðið eptir í ein- hverju húsi eða búð hjer í bænum í síðast liðinni viku. Beðið að skila á afgreiðslust. Isaf. Sveitsarostur og mysuostur ný- komirn til M. Johannessen. Proclama. þar sem fjelagsbú hjónanna Jóns Sœmunds- sonar og Guðrúnar Sigurðardóttur frá Esju- bergi á Kjalarnesi er tekið til opinberrar skiptameðferðar, er hjer með samkvœmt lög- um 12. apríl 1878 sbr. o. br. 4. jan. 1861 skorað á þá, sem tit skulda telja í búi þessu, að gefa sig fram og sanna kröfur sínar fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu innan 6 mánaða frá síðustu birtingu auglýsingar þessarar. Skrifstofu Kjósar-og Gullbringusýslu 1. ág. 1891. Franz Siemsen. ELDAVJEL, ferköntuð, er til sölu með góðu verði. Ritstj. vísar á. Takið eptir! Sætið kjörkaupum. Hvergi eru eins ódýr hestajárn og aliar járnsmíðar, og fljótt af hendi leyst eins og hjá undirskrifuðum, helzt móti borgun út í hönd. Allar gjaldgengar vörur teknar með sann- gjörnu verði. Skálholtsgötu. Reykjavík 17. júlí 1891. Benidikt Samsonarson. Yfirrjettarmálaflutningsmaður Lárus Bjarnason flytur mál bæði fyrir yfir- og undirrjetti, inn- heimtir skuldir, semur samninga og rekur öll önnur rjettar erindí. Mig er að hitta í Aðal- stræti nr. 7 st. um þingtímann 11—12 f. h. og 3—4 e. h. Skrifstofa fyrir almenning 10 Kirkjustræti 10 opin hvern rúmhelgan dag kl 4—5 e. h. Bókbandsverkstofa ísafoldarprentsmiðju (Austurstræti 8) — bókbindari þór. B. þorláksson — tekur bækur til bands og heptingar. Vandað band og með mjög vægu verði. Nærsveitamenn erubeðnir aðvitja „ísafoldar11 á afgreiðslustofu hennar (i Austurstræti 8). Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil. Erentsmiðja ísafoldar.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.