Ísafold - 08.08.1891, Qupperneq 1

Ísafold - 08.08.1891, Qupperneq 1
Kem i ‘V * m\ ðvikudótjum og aug-irdÖíjam. Verð árg. (um IOO arka) 4 k> .; erlendis 5 kt. Öorgist fyrir miðjan júlímánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundtn við áramót, ógild nema komin s)e til útgefanda fyrir I.okt. Af- greiðslust. í Austurstrœti 8. XVIII. 63. Reykjavík, laugardaginn 8. ágúst. 1891 Um landbúnað Og Búnaðarfjelag Suðuramtsins. Eptir amtmatm E. Th. Jónassen. II. . (Siðari kafli). Jeg hlýt að ttera ráð fyrir, að allir bænd- ur í Suðuramtinu þekki þetta fjelag, sem stofnað var 1837 fyrir ötula framgöngu og dugnað konferenzráðs fórðar Sveinbjörns- sonar, þá verandi sýslumanns í Arnessýslu, og sem unnið hefir Suðuramtinu svo mjög mikið gagn á ýmsan hátt, enda er þetta fjelag, eptir því sem hjer á landi er um að gera, ríkt fjelag, þar sem það á í sjóði nú rúm 20 þúsund krónur, og árlega nýtur styrks af því fje, er alþingi hefir veitt til styrktar landbúnaðinum. jþað er svo al- kunnugt bæði af blöðunum og af skýrslum iþessa fjelags, er prentaðar hafa verið, að það á ýmsan hátt hefir unnið Suðuramtinu stórvægilegt gagn. Menn skyldu þvi halda, að bændur með því að ganga í fjelagið ihefðu mest og bezt styrkt það frá upphafi vega sinna, með því að tilgangur þess er, að efla þann atvinnuveg, sem bændur lifa af; en það eru því miður að tiltölu mjög fáir bændur, sem gengið hafa í fjelagið; eins og það voru embættismenn, sem stofnsettu það, eins hafa það verið embættismenn og kaup- menn':< í Suðuramtinu, sem hingað til bezt hafa styrkt það með því að gerast fjelags- ménn. Jeg læt hjer með fylgja skýrslu, er sýnir þetta ljóslega, hvað nuverandi tíma snertir, og jeg hef nákvæmlega athugað það fyrir umliðinn tíma, og er þar hlutfallið hið sama. Meðlimatala Búnað- = c c S cc £» <X> c CÖ arfjelags Suðuramts- s c Ch E ins 31. des. 1890. s H 8 ffl oi W C cð X w cð co Reykjavík ' 29 2 12 4 i 48 Gullbringu- og Kióars. 7 39 3 y 49 Borgarfjarðarsýsla 4 28 yi r 30 Árnessýsla 8 19 í 28 Rangárvallasýsla 2 7 9 Skaptafellssýsla 3 6 8 í Norður- og V.amtmu 13 7 2 í 23 Alls | 66 1 10ó 1 13 | 4 2 j 195 Góðir bændur! þetta má eigi svo til ganga að þjer sýnið svo litla rækt því fjelagi, sem stofnað er til þess að auka búsæld ykkar og efni og um leið alls Suðuramtsins; það er hrein og bein skylda yðar að styðja sem mest og bezt fjelag þetta, því að þess meira sem efni þess vaxa, því betur ætti það á allan hátt að geta stutt að eflingu og gagni landbúnaðarins í Suðuramtinu. Tillagið til fjelagsins éru 10 kr. eitt skipti fyrir öll eða 2 kr. á ári í 10 ár; þessi gjöld eru svo væg, að hver einn og einasti bóndi ætti að geta *) það er eptirtektavert, að kaupmenn í Reykja- vík og kaup8töðunum í Suðuramtinu hafa nálega flestir gerzt fjelagsmenn i |)ví frá því að það var 'stofnsett, og þannig lagt til þess talsvert fje. greitt þau, án þess að finna neitt til þess; en þar sem í öllu Suðuramtinu eru 1336 jarðir, auk hjáleigna, og á mörgum jörðum tvíbýli eða fleirbýli, þá er það eigi lítið fje, sem árlega bættist fjelaginu, ef sem flestir bændur í Suðuramtinu kostuðu kapps um að styðja fjelagið með því að gjörast fjelag- ar þess og sem undir eins gerði því það mögulegt að styrkja allar búnaðarframkvæmd- ir svo miklu meira en það getur nú; en það er eigi torvelt að sjá, hversu mikið hagur sveitanna í Suðuramtinu og hvers einstaks bónda þar getur aukizt við þá árlegu hjálp, er svo ríkt fjelag gæti látið í tje. Ef flestir bændur í Suðuramtinu gerðust fjelagsmenn þess, mundi fjelagið eflast svo, að það gæti styrkt búnaðarfjelög þau í sveit- unum, er ættu örðugt uppdráttar, útvegað búnaðarfjelögum verkfæri o. fl. með vægu verði, gefið út nytsamlegar ritgjörðir um ýmisleg búnaðarmál o. s. frv. En jeg verð að taka það fram, að það er auðvitað eigi nóg, að bændur gerist fjelagsmenn; þeir verða líka að hafa þann einlæga ásetning, að ger- ast fjelagsmenn ekki einungis að nafni, held- ur og að gagni, og greiða tillag sitt; því það hefir því miður of mikið átt sjer stað, að bændur hafa að eins goldið nokkuð af til- laginu, en svo verið ófáanlegir til að gjalda það, er eptir hefir staðið; — það þekki jeg sem gjaldkeri fjelagsins. Slíkan vansóma verða bændur að leggja niður. Að mínu áliti ættu forstöðumenn búnaðar- fjelaganna í hverri sýslu Suðuramtsins ár- lega fyrir árslok að senda formanni Búnað- arfjelags Suðuramtsins ýtarlega skýrslu um allar jarðabætur, sem á árinu hafa verið gerðar í hverjum hreppi í sýslunni, með á- rituðu vottorði formanns búnaðarfjelags hvers hrepps um, að skýrslan sje rjett; svo og ætti formaðurinn að skýra árlega frá því, ef ein- hver jörð í hreppnum af náttúrunnar völdum hefði gengið úr sjer, og sömuleiðis ef eiuhver jörð þar er illa eða trassalega setin af ábú- anda, hvort sem han er eigandi eða leiguliði. Með því móti hefði Búnaðarfjelag Suður- amtsins áreiðanlega lýsingu á hverri jörð í hverjum hreppi í Suðuramtinu, og er það ljóst, hvílíkt gagn það getur gjört, eigi ein- uugis fyrir fjelagið sjálft, þegar sótt er um styrk til þess, heldur og t. a. rc. fyrir allar lánsstofnanir; þær þurfa þá eigi annað en að snúa sjer til formanns Búnaðarfjelagsins til að fá að vita í hvaða ástandi hver jörð í hverjum hreppi er, í stað þess að menn nú verða að fara eptir lýsingum og virðingar- gjörðum jarða, þegar beðið er um lán upp á þær, sem ekki ætíð eru svo áreiðanlegar sem vera skyldi. Sem sagt: það virðist að mestu undir bændum í Suðuramtinu komið, hvort Bún- aðarfjelag Suðuramtsius á að geta átt fyrir höndum vöxt og viðgang og hvort það á að geta gert það gagn, sem það upprunalega var til ætlað að láta af sjer leiða, þ. e. að efla landbúnaðinn í suðuramtinu. Eigi það einungis að aukast fyrir tillög embættis- manna og kaupmanna og einstaka bónda, nær það eigi sínum fagra tilgangi *hema að litlum parti. það er víst eigi of djúpt tekið í árinni, að segja það, að engin jörð sje hjer á Is- landi, sem eigi má bæta til helminga, þann- ig, að hún geti framfleytt helmingi fleiri skepnum en nú, ef tún hennar eru bætt á þann hátt, er bezt á við á hverri jörðu, og ef engjar hennar eða útjörð er betur rækt- uð og endurbætt en nú er, og það, þegar endurbótin er á komin, með helmingi minni tilkostnaði en nú fyrir ábúandann. Jeg hef í síðustu tuttugu ár meir eða minna á hverju ári látið fást við jarðabætur, svo og veitt jarðabótum annara eptirtekt, svo jeg hef þó nokkra reynslu við að styðjast, og hef jeg vissu fyrir því, að jörðin hjer á landi er mjög þakklát og endurgeldur marg- faldlega þá vinnu, sem kostað er upp á að endurbæta hana. Auk þess er mikið land hjer óræktað víða, er taka mætti til rækt- unar. J>að tjáir eigi lengur að koma með þá mótbáru, að það svari ekki kostnaði að fjölga fjenaði hjer miklu meir en nú, því bændur geti eigi selt hann og þannig haft upp úr honum þann kostnað, er þeir hafa orðið að verja til að koma honurn upp; því að það er öllum kunnugt, að hinn bezti markaður er hjer nú og mun framvegis verða fyrir sauðfjenað til Englands, og mun einnig geta orðið fyrir nautpeuing, ef hanu er í góðu standi. Aptur á móti álít jeg það að eins til skaða, að ala upp stóð til þess að selja það til útlanda fyrir það lága verð, sem nú um tíma hefir verið á hross- um. jþá er það engura efa undirorpið, að ef kúabúin færu vaxandi hjer á landi, sem ætti að verða sjálfsögð afleiðing af því, að túnin væru endurbætt og stækkuð, þá mætti búa til hjer miklu meira af smjöri en nú, þannig, að ekki einungis yrði nóg handa landsmönnum, heldur afgangur, en hann er hægt að selja til Englands t. a. m., ef smjur- ið er vel verkað* eu með vaxandi þekkingu í búnaði ætti bændum eigi að vera vorkunn að búa til hreint og gott smjör, enda er nu sumstaðar hjer á landi búið til svo gott smjör, að það má álíta eins gott og útlent smjör. A hinn bóginn er víst eigi rangt að gera ráð fyrir því, að með blómgun landbúnaðar- ins og annara atvinnuvega hjer fari fólkmu fjölgandi í landinu, svo það þurfi einnig að kaupa meira af fjenaði og afurðum landbún- aðarius en nú. það sem jeg hjer að framan hefi tekið fram, er fæst nýtt; en naldrei er góð vísa of opt kveðin«, og ef oss á að geta miðað áfram til framfara og velsældar, er vjer allir óskum og vonum, þá er það bráðnauðsynlegt, að efla með öllu móti atvinnuvegi landsius, og eugin hugvekja, er miðar í þá áttina, er þá óþörf landsmönnum. *á 17. og 18. öld var flutt út smjör frá íslandi.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.