Ísafold - 10.10.1891, Page 4
324
Kristján Ó. f>orgrimsson,
skrifstofustjóri fyrir almenning,
flytur mál fyrir undirrjetti, skrifar sátta-
kærur, semur samninga, innheimtir skuldir
og gegnir öðrum málaflutningsmannsstörfum
Skrifstofan er í Kirkjustræti, nr. 10, og
er opin hvern virkan dag kl. 11—12 f. h.
og 4—5 e. h.
FUNDARBOÐ,
Síðari ársfundur Búnaðarfjelags Seltjarn-
arnesshrepps verður að forfallalausu haldinn
í barnaskólahúsi hreppsins laugardaginn 17.
þ. m. kl. 12.
Lambastöðum 9. okt. 1891.
Ingj. Sigurðsson, skrifari fjel.
W h i s k y
%
4^" Verzlun Eyþórs Felixsonar
s e 1 u r :
^ TheEdinburgold.ord. Whisky.fr. i,25fl
w Old. Scotch Whisky Genuine - i,oo - ^
x
m
Whisky
Tvær aðrar dýrari tegundir af
Whisky Kr. 1,60—1,80 fl.
rt Án flösku 12 aur- minna hver w
flaska, einnig talsverður af - k*
> sláttur sje mikið keypt í einu. «<!
Whisky-tegundir þessar
eru mikið góðar.
&
W h i s k y ^
Til sölu
er nýlegt, rúmgott og vandað hús í miðj-
um bænum. Menn snúi sjer til yfirrjettar-
málflutningsmanns Lárusar Bjarnasonar í
Aðalstræti nr. 7.
Bókaverzl. ísafoldarprentsm.
(Austurstræti 8)
hefir til sölu allar nýlegar íslenzkar bækur
útgefnar hjer á landi.
„Sameiningin‘‘,
mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristin-
dómi Islendinga, gefið út af hinu ev.lút-
kirkjufjegi í Vestrheimi og prentað í
Winnipeg. Bitstjóri Jón Bjarnason. Verð í
Vestrheimil doll. árg., á Islandi nærri því
helmingi lægra: 2 kr. Mjög vandað að prent-
an og útgjorð allri. Eina kirkjulega tíma-
ritið á íslenzku. 6. árgangr byrjaði íMarz
1891. Eæst í bókaverzlan Sigurðar Krist-
jánssonar í Beykjavík og hjá ýmsum mönn-
um víðsvegur um allt and.
Ný sölubuð!
Undirskrifaður er nú fluttur í hiis Ólafs
gullsmiðs Sveinssonar, Austurstræti 5,og sel-
þar með fleiru vörur þær, sem auglýstar
voru í síðasta blaði Isafoldar.
Jón pórðarson.
5. Austurstræti 5.
Páll Einarsson,
yfirrj ettarmálaflutningsmaður,
flytur mál fyrir undir- og yfirrjetti, skrifar
sáttakærur, semur samninga, innheimtir j
skuldir og gegnir öðrum málaflutniiig^manns-
störfum. Skrifstofan er í Austurstræci nr. 16
og er opin hvern virkan dag, kl. 11—12
f. h. og 4—5 e. h.
Kirkjublaðið, októbernúmer:
1. Til himna er gott að hefja sýn (kvæði).
2. Trúrækni og kirkjulíf fyr meir, eptir
síra þorkel Bjarnason.
3. ísl. kristniboð.
4. Samtal (milli ýmsra og ritstjórans).
5. Barnauppfræðingin í kristindómi (við
sjávarsíðuna sunnanlands) o. fl.
Kirkjublaðið pantist hjá prestum og bók-
sölum. ogútg.þórh. Bjarnarsyni í Bvík. Verð
árgangsins 1892 1 kr. 50 a.
TAPAZT hefur svartkinnótt hryssa, með
blett á vinstri nára, mark: sýlt bæði og
og tveir bitar aptan bæði. Finnandi skili
til Benidikts Samsonarsonar í Skálholtskoti
í sex undanfarin ár hefi jeg þjáðzt af
megnum veikindum á sálunni, og hefi jeg
brúkað ýms meðöl, en ekkert hefur dugað,
þar til nú fyrir 5 vikum að jeg fór að brúka
»Kína-lífs-elixír« Valdimars Petersen frá
Eriðrikshöfn; brá þá strax svo við, að jeg
fór að geta sofið reglulega, og þegar jeg var
búinn að brúka 3 flöskur, var jeg orðinn
talsvert betri, og hefi þá von, að jeg með
framhaldandi brúkun verði albata; þetta er
mjer sönn ánægja að votta.
Staddur i Keykjavík 12. júní 1891.
Pjetur Bjarnason
frá LaiiUnKoti.
Vottorð þetta er gefið af fúsum vilja og
fullri ráðdeild.
L. Pálsson.
prakt. læknir.
LEIÐABVÍSIB TIL LÍFSÁBYBGÐAB
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar
upplýsingar.
Forngripasafnið opið hvern ravd. op ld. k) 1—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 12 2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12__2
útlán md„ mvd. og ld. kí. 2 -3
Málþráðarstöðvar opnar 1 Rvík og Hafnarf. hvern
rúmhelgan dag kl. 8—g, io—2 Og 3—5.
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. i
hverjum mánuði kl. 6—6
Veðurathuganir i R.vik, eptir Dr. J. Jónassen
okt. Hiti (á Celsius) Loptþ.mæl. (millimet.) Veðurátt.
á nótt. umhd. fm. em. fm. | em.
Mvd. 7. + 3 + 9 729.0 726.4 A. h d A h d
Fd. 8. + H + 10 729.0 736.6 Ahd 0 d
Fsd. 9. + 1 + « 73b.6 731.5 0 b Nhb
Ld. 10 + 1 734.1 0 d
Hinn 7. og 8. var hjer austangola og
dimmur í lopti, við og við með regnskúrum;
h. 9. var hjer fegúrsta veður, gekk til norð-
urs um hádegi, hægur. I dag (10.) logn
en dimmur í morgun.
Bitstjóri Björn J01 .ason cand. phil.
Prentsmið,,a lsafoldar.
. 1
löb
að senda Abraham fjelaga sinn á fund Hallvarðs og beiðast
viðtakna af honum. Spöruðu þeir eigi Abraham, hversu sem
til tækist, og skyldi hann reyna að stela peningum Hallvarðs
Abraham ljezt þess albúinn og treysti hann í hvívetna stel-
vísi sinni, og fór hann á fund Hallvarðs og beiddist viðtöku.
Hallvarður tók við honum og var Abraham með honum um
hríð og vann baki brotnu. En svo fór honum sem Eyvindi,
að aldrei komst hann að, hvar peningar Hallvarðs voru, hversu
hnýsinn sem hann var og slýngur við stuldi. Nennti Abra-
ham þá eigi lengur að vinna fyrir gíg og vildi á braut verða
og strjúka sem fyrst. það fann Hallvarður brátt, yfir hverju
hann bjó og hvert erindi hans var. Sagði hann honum það
og sýndi honum peningana. Voru þeir í bóli því, er Abrabam
hafði legið í, og hafði hann sofið á þeim. Bjeð Hallvarður
honum að fara þess eigi optar á leit, nema hann vildi, að
verr færi. Hafði Abraham það heilræði og fór svo búinn
aptur til Eyvindar.
22. kap. Hallvaröur flytur hval Jóns lögmanns.
Hallvarður keypti nálægt þessum tíma að Ólafi lögrjettu-
manni Jónssyni á Eyri í Seyðisfirði skip eitt gamalt, er hann
hafði hafc til hvalveiða og Gnoð hjet. Hafði Ólafur verið
ærið fengsæll hvalskutlari á fyrri árum sínum, en gerðist nú
gamlaður mjög. Hafði Hallvarður skip það opt til sjófara
sinna, og er sagt, að mjög bætti hann að því. Sjálfur var
Hallvarður skipasmiður mikill, og höfðu menn trú á, að eng-
um þeim skipum hlekktist á, er hann smíðaði. það ætla
menn, að nálægt þessum dögum færi hann byggðum í Skjalda-
159
bjarnarvík í Strandarsýslu, en að engu finnst þá getið Jóns
bróður hans, og er helzt að sjá, að hann væri þá andaður
eða frá sjóförum með einhverjum hætti. Talið er, að Hall-
varður flytti sig á Gnoð með þorgerði ráðskonu sína í Skjalda-
bjarnarvík, sem hann hafði keypt. Jón, sonur Ólafs lögsagn-
ara og lögrjettumanns á Eyri, fjekk vísilögmannsdæmi og bjó
um hrfð í Miðhúsum á Beykjanesi. Hann átti þorbjörgu
Bjarnadóttur sýslumanns á þingeyrum Halldórssonar. Nær
þessum tíma var það, að hval rak að Dröngura, að því er
talið er. Keypti Jón vísilögmaður þar hval eigi all-lítinn.
En fyrir því að Jóni þótti ervitt að koma þeim hval að sjer,
þá falaði hann af Hallvarði að flytja hvalinn til sín sjóveg.
Tók Hallvarður lítið undir það í fyrstu, en tók þó eigi af
með öllu. Maður hjet þorsteinn og var Böðvarsson, kallaður
skenkur, Barðstrendingur einn, óreiðumaður og þjófur, og varð
hann sekur þar um. Var honum lýst á Skálanesþingi og sú
lýsing lesin á alþingi; þvi varhann »skenkur« kallaðnr, að opt
stal hann því á einum bæ, sem hann gaf á hinum. Hann
var lftill vexti heldur, en röskur til sumra hluta, einkum til
sláttar og sjófara. Mælt er, að þorsteinn væri um hríð með
Fjalla-Eyvindi. Stundum hafði og Hallvarður leyft honum
skjól með sjer. Sökum þess að nú var eigi við kostur Jóns,
bróður Hallvarðs, er flestir ætla, að þá væri látinn, þá tók
Hallvarður þorstein með sjer að flytja hvalinn. Eigi voru
aðrir hásetar hans. Og er Hallvarður hugði, að sjógæftir
mundu haldast umfstund, steig hann á Gnoð og þeir þorsteinn.
Mælt er, að vel byggi Hallvarður sig út í ferð þá. Sótti
hann hvalinn að Dröngum og hjelt svo vestur fyrir Strandir