Ísafold - 17.10.1891, Page 2
a30
eigi varpað á glæ fyrir ráðleysu og hand-
Vömm.
Aðfengnir verkfræðingar um stuttan tíma
eru harla gagnslitlir á við það sem þeir geta
orðið, og hljóta að verða, sjeu þeir vel vald-
ir, ef þeir ílengjast hjer. Takist valið
heppilega, svo sem segja má vafalaust um
þá Hovdenak og Siwertson, þá eru þeir
tapaðir óðara en þeir fara að kynnast, í
stað þess að þá ríður hvað mest á að halda
í slíka menn. Takist það miður, geta þeir
orðið til tjóns og ekki annars. Bn því opt-
ar sem þarf að vera að útvega slíka menn,
því hættara er við að valið misheppnist.
Enda er þeim, sem ráða eiga, ætlandi að
leggja sig betur í framkróka um valið, er
það á að verða til frambúðar, auk þess
sem þá má til frekari varúðar ráða mann-
inn að eins til bráðabirgða fyrst um sinn
og festa hann eigi í embættinu nema hann
reynist vel.
Morðsaga.
Með pósti að norðan nýkomnum frjettist
voðaleg morðsaga og fáheyrð hjer á iandi.
Stúlka frá Svartárkoti í Bárðardal fannst
dauð í Svartá seint í f. m., og lá svo grunnt,
að vatn fiaut eigi yfir vit hennar. Hefir
morðinginn, ef satt reynist, setlað að leyna
glæp sínum með því að draga líkið í ána, en
eigi haft nógu djúpt á því til þess, að dauðinn
gæti af druknan stafað. Hún hafði verið
vanfær eptir vinnumann á öðrum bæ, er
komið hafði að Svartárkoti og fengið hana
til að fylgja sjer; fór hún með leyfi hús-
móður sinnar, en kom aldrei aptur. Vinnu-
maðurinn var þennan dag við fjárleitir upp
með ánni, én hvarf þar hinum leitarmönn-
unum og vissu þeir eigi hvert hann fór.
Lagðist þegar grunur á manninn,. og var
sent til sýslumanns og læknis til rannsókn-
ar. í sjúkdómsforföllum hjeraðslæknis,Asgeirs
Blöndal, krufði þorgrímur læknir Johnsen
líkið og mun hafa komizt að þeirri niður-
stöðu, að stúlkan hafi verið kyrkt. Enda er
mælt, að vinnumaðuriun hafi játað fyrir
sýslumanni, Benid. Sveinssyni, að hann hafi
kœft stúlkuna með klút sínum og vetlingum
og dregið síðan líkið út í ána.
Var þetta nýafstaðið, er póstar fóru um,
og frjettin því ef til vill eigi fullskilmerki-
leg eða óyggjandi.
Um nokkur hreppanöfn á Islandi-
Eptir Eggert Ó. Brím.
(Niðurl.).
Fyrrum hjet Kaldaðarnes (eða fyrir tillík-
ing Kallaðarnes) í Steingrímsfirði vestur (svo
sem í Flóa austur), er nú (nefnist og) skrif-
ast Káldrananes. f>að er óefað bjöguð mynd,
sprottin af misskilningi og rangri heimfærslu.
Menn hafa eigi skilíð Kaldaðar-, sem sjálf-
sagt er mannsnafn, en viljað setja bæjar-
nafnið í samband við kuldalega náttúru og
næðingsamt landslag. Vel færi á, að tekin
væri upp eldri myndin Kaldaðar- (eða Kall-
aðar-) í nafni bæjarins og hreppsins.
Hiirðudals- er bjagað úr Hörðadals-. Dalur-
inn dregur að sjáifsögðu nafn af Hörðum frá
Hörðalandi í Noregi, en eigi beinlínis af
Herði, er þá dalinn af Unni hinni djúpúðgu
og fyrstur bjó þar. En vel má vera og þykir
enda líklegt, að Hörður hafi verið hörðskur
að uppruna, og að Harðar-n&ínið, sem hann,
er kunnur undir, hafi upphflega verið auk-
nefni, er táknað hafi átthaga hans, en aðal-
nafnið sje týnt (sbr. Ketill raumr, hersir á-
gætr í Baumsdal í Noregi: Landn., Vatnsd;
hann hefir tekið nafn af átthögum sínum).
I Hörðu- er ekkert vit, og er því einsætt
að leiðrjetta það í Flörða-, og rita Hörðadals-
(og eins ætti að skúiaHörðaból og Hörðaskúli,
er nú er hvorttveggja bjagað til H'örðu-).
Torfastaða- er rangnefni, en í Jarðab. er
hreppurinn rjettnefndur Torfustaða-, og svo
er bærinn nefndur í fornum ritum (Grettla,
Finnb., þhr.). þar bjó Skáldtorfa, móðir
Bersa skálds Skáld-torfusonar. Einsætc er
að laga þessa villu, sem trautt hefir stuðn-
ing í almennum framburði. Nú er bærinn
tvískiptur (»efri« og »neðri«) og hreppurinu
sömuleiðis (»ytri« og »fremri«).
Skoradals- er latmæli fyrir Skorradals-.
Skorri (ekki Skori) hjet sá maður, er fyrstur
byggði dalinn. Sjálfsagt er að rita Skorra-,
því að hvorki mun svo verða álitið, að sá
framburður sje með öllu úreltur, enda skrifa
Jarðab. ogBæjat. Skorrastaður. Samkvæmni
heimtar, að hvorttveggja sje eins ritað.
Eyða- er rangritan fyrir Eiða-, enda er
bærinn rangnefndur Eiðar (eða ep.tir almenn-
mennum nthætti Eyðar) fyrir Eið. Vonlegt
þykir, að nemendur og lærisveinar Eiða-
skólans leggi bráðum niður slíka rangritan,
er við enga skynsemd hefir að styðjast, ef
þeir eru eigi þegar búnir að því.
Lundareykjadals- er ambögulegt orðskrípi,
sem ekkert vit er í. Dalurinn hjet fyrrum
»Beykja(r)dalur hinn syðri«, en síðan var
tekið að kenna hann við einhvern helzta
bæ sveitarinnar Lund (svo sem hinn nyrðræ
dal við »Reykjaholt«), en engan veginn er
hann kenndur við neinn lunda, svo sem rit-
háttur bendir til. þetta [lúalega latmæli
ætti aldrei að sjást í riti, en ávallt skyldi
rita Lundarreykjadals-.
Vallna- (Eyjafj. og Suðurm.) og Fellna-
(Norður-m.) er óhafandi bögumálsbeyging,
svo sem Vellir og Fell væri kvennkennd orð,
fyrir Valla- og Fella-.
það er með öllu rangt, svo sem gjört er
1 Jarðab. og Bæjat. (ekki í Jarðat.), að rita
Hraunhreppur, Hvolhreppur, Neshreppur og
Ogurhreppur í tveim orðum.
þó að fleira kunni að vera athugavert við
hreppanöfn á íslandi, verður hjer staðar að
nema.
„Matvörahækkunin".
I grein með þeirri fyrirsögn, er birtist í
blaði yðar, herra ritstjóri, 3. þ. mán., telj-
ið þjer þessa hækkun, sem þjer auk þess
álítið ónauðsynlega, »mjög tilfinnanlegt áfall
fyrir allan hinn fátæka þurrabúðarmannalýð
hjer við sjóinn«. — Jeg skal eigi fara út í
þá sálma, hvort hækkun þessi hafi verið
nauðsynleg eður eigi, en að eins geta þess,
að hún hefir eigi, eins og þjer segið, náð
til allra þurrabúðarmanna, því jeg fyrir mitt
leyti hefi ekki hækkað matvöruverðið í haust
hvorki við sjómenn á þilskipum mínum, nje
við fasta verkamenn, sem hjá mjer hafa
verið. A hinn bóginn hefi jeg eigi sjeð mjer-
fært, að selja almennt matvöru með því
verði, því að það hefði orðið til þeas, að jeg
hefði á örstuttum tíma orðið matvörulaus,.
og þannig eigi getað fullnægt þeim mönn-
um, sem jeg ætlast til að sitji í fyrirrúmi;
fyrir öðrum við verzlun mína.
Jeg er eigi svo kunnugur öðrum verzlun-
um, að jeg geti um það borið, hvort þær
hafa að einhverju leyti látið matvöruverðið.
halda sjer, en vel má það vera, þó jeg viti_
það eigi.
Reykjavík 15. október 1891.
G. Zo'éga.
*
❖ *
Aths. ritstj. það er satt að segja lítil
leiðrjetting í þessari skýrslu hr. G. Z. það-
mun engin nýlunda eða frábrigði frá því
sem almennt gjörist, þótt kaupmenn láti
þá, sem hjá þeim eru, fá «umar vörur með,
vægara verði en aðra óviðkomandi rnenn.
Hitt, að hann hefði átt illt með að halda í
matvöruna, ef hann hefði eigi fært hana upp,
það getur því að eins átt sjer stað, að hann
sje háðari sínum innlendu skiptavinuru en
almennt gjörist um kaupmenn; en það mun,
vera öðru nær um hann.
Annað mál hefði verið, ef hann hefði
getað skýrt frá, að hann hefði aftekið að
vera með í hinum almennu verðhækkunar-
samtökum kaupmanna hjer um pláss í sum-
ar undir eins og frjettin kom frá Kaup-
mannahöfn um matvöruhækkunina vegna.
útflutningsbannsins rússneska o. s. frv.
Verzlunarmannafjelag Reykjavík-
ur. Samkomur hófust í haust í þessu unga,
efnilega fjelagi föstud. 9. þ. m. og flutti hr. Páll
Melsteð þarmjögfróðlegan og skemmtileganfyr-.
irlestur um fiandaríkin íNorðurameríku, sögu
þeirra framan af. Mun hann halda áfram
með sama efni: sögu Bandaríkjanna; í tveim-
ur fyrirlestrum enn, er mjög marga mun
fýsa að heyra, því allir vita, hver fyrirtaks-
sögumaður hann er, málið hremt og fagurt
meðferð efnisins hagleg og skemmtileg. Fje-
lagið heldur samkomur á hverju föstudags-
kvöldi í hótel Reykjavík og skemmta fjelags-
menn sjer við lestur bóka og blaða, tafl,
spil, samræður o. fl.; eu fyrirlestrar eiga að
vera 2. og 3. hvert föstudagskvöld, ef við-
verður komið og nógu margir fást til þess,
en á það hafa ýmsir dregizt, þar á meðal
nokkrir hinna færustu manna hjer í þeirri
grein. — Formaður fjelagsins er kaupmaður
Th. Thorsteinsson. Fjelagsmenn muu þegar
orðnir um 40.
Læknaskólinn- I>ar hefir enginn læri-
sveinn við bætzt i haust, en 7 voru fyrir.
f>rír í elztu deild: Jón Jónsson, Jón þor-
valdsson og Olafur Finsen.
Einn í miðdeild: Friðjón Jensson.
f>rír í yngstu deild: Sigurður Pálsson,.
Skúli Árnason og Vilh. Bernhöft.
Prestaskólinn- f>ar eru nú 17 læri-
sveinar eða eiga að verða,—einn er ókom-
inn af Austfjörðum,—9 í efri deild og 8 í,
neðri.
jpessir eru í efri deildinni: Einar Pálsson,.
Fillippus Magnús8on, Gísli Jónsson, Gísli
Kjartansson, Kjartan Kjartanseon, Lúðvík
Knudsen, ofeigur Vigfússon, Sigurður Jónsson,
og Vilhjálmur Briem.
En í neðri deildinni eru: Bjarni Símonar-
son, Björn Blöndal, Björn Björnsson, Jes
Gíslason, Júlíus f>órðarson, Magnús f>or-
steinsson, Sveinn Guðmundsson, og Vigfús
f>órðarson (ókominn).
Latínuskólinn. f>ar er lærisveinatal-
an nú 82, að meðtöldum 6 piltum, sem,
munu vera á leiðinni austan úr Múlasýsl-
um, sjóveg. Nýsveinar eru 20: fimmtán í'
1. bekk, fjórir í 2. og einn í 4. bekk.
Thyra, strandferðaskipið, er ókomini
hingað enn, en var komin á Sauðárkrók á
rjettum tíma, 6. þ. m., að frjettin segir að.
norðan.