Ísafold


Ísafold - 17.10.1891, Qupperneq 3

Ísafold - 17.10.1891, Qupperneq 3
331 Eyjafirði 1. okt.: Yorið var mjög þurrt, svo ekki kom deigur dropi úr lopti frá j Krossmessu og til 3. júlí, og jafnaðarlega var kalt á nóttunni, svo gras spratt seint og tún voru heldur í lakara lagi, þegar byrj- að var að slá; en þá gjörði hina allra hag- stæðustu heyskapartíð; vætudagar skiptust svo hentuglega á við þurkdaga, að bæði fengu menn rekju til að slá og þurk til að hirða; og þessi tíð hjelzt þangað til fynr tæpri viku. Sökum þessa hafa menn í þessu byggðarlagi fengið bezta heyfeng bæði að vöxtum og gæðum. þegar í ágústmánuði komu frostnætur vio og við, svo að náði enda 7 stigum á Celsius. J>etta gerði miklar skemmdir á jarðeplavexti, því að grasið fjell, og náði sjer ekki aptur. Annað slys vildi jarðyrkjunni til í júnímán- uði. Hinn 20. og 21. kom hjer ofsaveður af suðvestri og sópaði burtu mestöllu úr kálgörðum, en þá var nýbúið að sá eða planta. það, sem eptir varð, spratt vel. Sumstaðar fauk og til skemmda af jarðepl- um. Seinni part vorsins og fyrri part sumars- ins var góður fiskiafli hjer út í firðinum og fit á Olafsfirði, en lítið kom hjer inn á fjörð- inn. Nú um langan tima má heita, að verið hafi fiskilaust, lítið eitt hefir orðið vart við síld, en ekki til neinna muna. Hákarla- skúturnar hafa fengið dágóðan afla. Sumarið hefir þannig verið mönnum gott bæði til lands og sjávar, og það þvi fremur sem heilbrigði manna hefir verið með bezta móti. þetta ár hefði því efalaust mátt telja með einhverjum beztu árum, ef verzlunin, hefði ekki orðið eins afleit eins og hún er. Krarn eptir sumrinu var hún allgóð; en aðal- verzlunin hjer hjá oss er á haustin, þegar sauðasalan byrjar, og fæstir taka matvöru nema rjett eptír því sem þeir eyða, þang- að til á haustin. Fjárkaupamenn _ komu hjer engir nema Coghill gamli. Hann vildi eigi gefa nema 13 kr. fyrir tvævetran sauð; uin eldri sauði er hjer naumast að tala. Hann hafði fyrsta markaðinn ut i Svarfaðardal, og vildu menn þar eigi selja fyrir þetta verð. TJrðu jafnvel nokkrir til að ausa fúkyrðum yfir Coghill fyrir það, að hann vildi eigi kaupa sauðina dýrari; svo karl firrtist við, og kvaðst aldrei mundikoma þar framar. Var eigi laust við, að sum- ir hjeraðsbúar kenndu Svarfdælum uni, að eltkert hefði orðið af sauðakaupum nein- staðar f sýslunni, því að Coghill hætti þá við öll kaup hjer og fór burtu eins og hann kom. En þess ber að gæta, að frjettirnar voru svo nýjar um ársbrestinn ytra, þegar markaðurinn var haldinn í Svarfaðardalnum, að menn voru ekki farnir að tráa því, og hjeldu þetta prett einn af Coghill, þar sem hann var einn um kaupin; væntu og að heldur mundi hann hækka verðið nokkuð en fara burt með tómt skipið. En þeim varð ekki úr því, sem ekki var við að bú- ast. Sumir kaupmeun hjer keyptu nokkuð af fje, en mikið af því upp í skuldir, og borguðu að eins lítið í peningum. Menn bera 8Íg því mjög aumlega af peningaleysi; allir höfðu búizt við sauðasölu hkt og vant er, og ætlað sjer með þeim að borga peninga- skuldir sínar, bæði jarðargjöld, pantanir, lán o. fl. En nú stendur allt fast, og hvergi fæst eyrir. Matvörukaup verða líklega að mun minni en venð hafa, þar sem verð á henni hækkaði hjer nyrðra líkt og er i'yrir sunnan undir eins og frjettirnar komu út hingað um ársbrestinn. Flestir munu því reyna að halda eins mörgum skepnum og þeir geta með nokkru móti komizt undan að láta, því að heybirgðirnar eru nógar. Kjötverðið er hjer nú 12, 14 og 16 a. pund- ið, mör 20, gærur 25 a. pundið, og haustull 40—45. Pöntunarmenn sendu nokkuð af sauðum til Englands, en margur held jeg að sje uggandi um, hvernig salan muni verða. Nýtt lag á gufuskipum. I sumar kom til Liverpool gufuskip austan um At- lanzhaf, frá Norður-Ameríku, er mörgum varð starsýnt á, vegna mjög frábreytilegs sköpulags þess. |>að er hjer um bil í hvals- líki. Hásetarnir amerísku kölluðu það »svíns- trjónunginn«; þeir sögðu það væri eins og svínstrýni framan og aptan. Sumir segja það sje eins og hvolft saman tveimur ein- trjáningsbátum indverskum. það er með öðrum orðum eins og sívalur hólkur, lokað- ur 1 báða enda og afsleppur, og er gufu- vjelin í öðrum endanum, en hitt er allt saman farmrúm. En ofan á skipinu eru káetur á stólpum og aðrar vistarverur fyrir skipshöfn og yfirmenn, m. m. Annars geng- ur sjór viðstöðulaust yfir þilfarið eða bumb skipsins, þann er upp veit, og sakar það engan. Skipið er ailt af stáli gjört. það kvað vera mjög óvalt í sjó, vegna þessarar einkennilegu lögunar. Lík skip þessu í lagi, en smærri miklu, hafa að sögn lengi verið á gangi um stöðuvötn í Ameríku, en þetta er hið fyrsta sinnar tegundar, er lagt hefir út á Atlanzhaf. Gekk sú ferð prýðilega, og þykir líklegt, að fleiri muni á eptir koma. Leiðarvísir ísafoldar. 815. Er jeg skyldur að gera rajer á minn kostnað et til vill margar ferðir til gjaldandanna, til þess að krefja þá um gjöld sin, jafnvel fyrir lögákveðinn gjalddaga? Og er mjer skylt, án enduigjalds, að verja þeim vörum, sem jeg hlýt að taka í gjöldin, þó að það kosti mig mikla fyr- irhöfn, í peninga, til þess að geta borgað áfallna peningaskuld? .Sv.-. það kemur eigi til mála að krefiast g.jalda fyrir gjalddaga. En að öðru leyti brestur heim- ild til að borga fyrir þá fyrirhöfn, er hjer um ræðir. En l.ún ætti Ibil eða engin að þurfa að vera, ef hreppsnefndin gerir upphaflega hverj- um útsvarsgreiðanda að skyldu að greiða tiltölu- lega hluta útsvars síns, miðað við peningaþörf sveitartjelagsins, i peningum. 816. Siðastliðið ár tíundaði jeg 4.80 hdr. í lausafje. Hreppsnefndaroddviti krafði mig um 84 auiaí lausafjárt und og kirkjuhaldari sömu- leiðis um 84 a., en prestur þar á móti um enga tíund, en þar á móti um dagsverk. Er allt þetta rjett krafið? eða hvað ber mjer að gjalda hverj- um fyrir sig af tiund minni? Sv.: þar eð 4.80 hdr. nær eigi skiptitíund, hverfur öll tiundin óskipt til sveitarsjóðs. Presti ber dagsverk, en kirkjuhaldara ekkert í notum tíundarinnar. 817. Jeg er búsettur maður. Er jeg skyldur til þess að greiða prests- og kirkjugjald, og sömuleiðis orgelgjald, sem mjer hefir eigi verið gpfinn reikningur fyrir f tvö eða þrjú (eða fleiri), ár, þó að mjer hafi eigi verið gefinn reikningur yfir þau? Sv.: Vanrækt gjaldtakanda á að gefa reikn- inga leysir eigi gjaldanda frá gjaldskyldu, en gjaldtakandi missir lögtaksrjett á skuldinni, ef hennar er eigi krafizt innan árs frá gjalddaga. 818. Jeg er búsettur maður. Er jeg skyldur að greiða sveitarútsvar mitt i peningum ? Sv.: Sjálfsagt tiltölulega við aðra útsvarsgreið- 188 og sötraði í lögg. Síðan þakkaði hann beina við sig, og kall- aði mikla brjóstbirtu verið hafa. þaðan gekk hann Línakra- dal til Miðfjarðar, þá til Hrútafjarðar, og ljetti eigi fyr en hann kom heim til Skjaldabjarnarvíkur. 28. kap. Frá sjóferöum Hallvarös. Maður hjet Guðmundur og var Halldórsson. Hann bjó á Kirkjubóli í Steingrímsfirði. Hann var formaður og kom norðan af Gjögri úr veri. Sá hann bát fyrir Steingrímsfjarð- armynni og engan mann á. En að stundu liðinni, þá er þeir Guðmundur tóku róður að bátinum, reis maður upp og tók til ára. Var það Hallvarður og hafði sofið. Eigi leið á löngu. áður hann komst langt fram um þá Guðmund á sex árar, og það þó þeir tæki að skerpa róðurinn. Lagðist þá Hallvarður aptur til svefns, til þess er þeir nálguðust hann. þá tok hann aðra skorpu, unz hann hvarf þeim. — það var öðru sinni, að skipverjar á hákarlaskipi sáu bát »dymolta« úti á miði og engan mann á. Eeru þeir að bátnum og kenndu, að þar var Hallverður og svaf. Festu þeir þá bátinn við sig. Litlu síðar reis Hallvarður upp og mælti: »Hafið sælir gjört, skörnin ykkar! Síðan greip hann festina og vildi slíta, en fjekk eigi. Eykkti hann síðan á í öðru sinni. Báðu þeir hann þá að slíta ekki festina og höfðu heldur í skimpi. En þá sleit hann togið og tók til ára og skildi þar með þeim. — Sagnir eru um það, er Hallvarður barg Tma. 29. kap. Lok Hallvarös. Jón hjet maður, er sagður var Arnason. Hann var fóstri 165 með bónda og gisti þar. Var það þá um nóttina, að draug- arnir komu á glugga að vanda með buldri og ólátum. Hall- varður tók þá hringinn, sem bóndi hafði tekið, og kastaði út um gluggann. Mælt er, að hann kvæði um leið vísu á hollenzka tungu,en eigi vitum vjer að greina hana. Öllu öðru fleygði Hallvarður og út, er bóndi hafði af þeim tekið. Hallvarður gisti þar aptur aðra nótt, og komu draugarnir þá eigi heim. En sakir þess að sauðir bónda höfðu kornið nærri dysinni um nóttina, lágu þeir þar þrír dauðir um morguninn. |>á kvað Hallvarður það sýnt, að eigi vildu þeir á landi liggja, er þeir væru útlendir, fór til og smíðaði kistu að líkunum, gróf þau upp og kistulagði, en rak áður járnfleina fyrir brjóst og iljar þeim, bar kistuna síðan rangsælis um dysina, flutti á skip og reri síðan á sjó út og sökkti henni niður með grjóti. Afreimdist síðan með öllu í Eekavík og þakkaði Jón Hallvarði vel liðveizluna. 26. kap. Viöureign Hallvarös og Halldórs sýslumanns. Halldór Jakobsson hjelt nú Strandasýslu sem áður er talið. Galt Hallvarður honum lítt eða ekki skyldur sínar, og kallaði hann lítt hæfan sýslumann, er hann gætti þess eins að hoimta tekjur sínar, en vanrækti allt annað. Eigi sótti Hallvarður heldur þing. Var þó, sem Halldór vildi litlu við hann skipta, enda þótt Ralldór væri af sumum margvís haldinn. Astríður kona Halldórs var hin fjegjarnasta. Hún hvatti því Hallvarð bónda sinn fast til að ná rjetti sínum af Hallvarði. Tjáði Halldóri þá eigi annað fyrir ákafa sakir hennar, en ganga að tekjunum. Kom svo um síðir, að hann

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.