Ísafold - 21.11.1891, Qupperneq 2
870
þau eru táknuð á stalli "minnisvarðans í
tveim kvennmyndum, er lúta niður yfir
vöggu hetjunnar.
Sum blöð erlendis minnast svo á stilling-
arbrag frönsku stjórnarinnar, að hún vitt
vel hvað Frakkland á nú undir vígafla sín-
um, enda mun það rjett, sem enskur mað-
ur (Charles Dilke) sagði fyrir skömmu, að
Frakkar aettu nú meiri her að stýra en
þjóðverjar, og betur að skotvopnum búinn.
Utgjöldin fyrir komanda ár til varna á sjó
og landi reiknuð á 1139 miljónir franka(!)
Boulanger vann á sjer til bana í Bryssel
með pístóluskoti á leiði fyrverandi fylgikonu
sinnar, sem hjet Bonnemain og var ekkja,
en hafði styrkt ráð hans og tilraunir með
ærnu fje, svo miljónum skipti. Bilandi
hugur og þrotnandi fjárhagur hefir gert
hann leiðan á lífinu.
f>ýzkaland. þjóðverjar og Frakkar líta
nú mun hýrlegar hvorir til annara eptir til-
hliðran hinna fyrnefndu um ferðir og sam-
göngur í Elsass og Lothringen.
Deilunni með fylgisblöðum Bismarck og
stjórnarblöðunum vill ekki linna. Blöð
Bismarcks standa fast á því, að hag og veg
þýzkalands hafi lakrað síðan taumarnir
voru þrifnir úr höndum Bismarcks, og í
einu blaði var það nýlega rakið, hvað skör-
ungurinn mátti þola, er keisarinn tók af
honum ráðin með byrstu bragði. Andsvara
er ekki vant af hinna hálfu, og í einu svo
að kveðið, að Bismarck hafi tapað þjóðrækn-
inni með völdunum. Ymiss er getið til um,
hvort hann vitji sætis síns á þinginu eða
ekki.
A fundi sósíalista í Erfurt kom mikill á-
skilnaður fram, en frekja sumra leiddi til
sundrunga, og þeim var út vísað. Sá þing-
maður, af hófsemdarflokki, sem Vollmar
heitir, brýndi það skorinort fyrir fundar-
mönnum, að sósialistum missýndist hrapar-
lega, er þeir reiddu sig á styrjöld og á um-
turnun þegnlegs fjelags, og ljet sig ginna
af frönskum sjónhverfingum, án þess að
minnast afdrifanna 1871. Hann vítir hart,
er þeir virða vettugi ættjarðarástina, en
kallar þeim þá leið eina færa, sem til ávinn-
ings og afreka liggur gegnum Iöggjafarþing-
in og lagabætur smámsaman, svo sem unnt
má verða. Hann vill þeir varist allar öfgar
og hringlanda. A fundinum hjeldu þeir
Bebel og Liebkneckt að vísu velli, en hitt
þykjast menn vita, að ummæli Vollmars
hrífi á eptirleiðis.
Hinn 13. október varð Virchow, lækna-
skörungurinn og hinn heímsfrægi vísinda-
maður þjóðverja, 70 ára að aldri. Lotn-
ingarmerkin og heiðursgjafirnar streymdu
svo til hans þann dag frá þýzkalandi og
flestum löndum, sem aðrar eins forustu-
kempur undir merkjum vísindánna eiga skil-
ið. Virchow er einn af forkólfum frelsisvina
á ríkisþinginu og hefir 32 ár verið í borg-
arstjórn Berlínar og eflt þar öll nytjaráð,
og þar þá ekki sízt, er máli skipti um
heilsu og heilnæmi.
Dinn er Carl I. Wiirtembergskonungur,
68J árs að aldri, en til ríkis kominn frændi
hans Vilhjálmur annar. Carl konungur gaf
sig lítt að ríkisstjórn seinustu árin, en hafði
látið ánetjast af mönnum frá Ameríku, sem
fóru með leyndardómakukl, særingar og við-
tal við framliðna menn, en tóku sízt stein-
inn í staðinn fyrir fræði sína og íþróttir.
Italía- Samfellt er enn yorri öld, að
pílagrímar sækja til Róms og páfans, sem
í fyrri daga, og væri þá vel, ef alls góðu
gegndi. í lok septembermán. komu þar
7000 pílagrímar frá ýmsum löndum, og söng
Leo páfi þá messu í Pjeturskirkjunni og
blessaði þar yfir 100 þúsundir manna. Margir
pílagrímar vitjuðu um leið Pantheonskirkj-
unnar, en þar er legstaður Viktors Emanú-
els, en meðal þeirra voru þrír franskir menn,
sem um leið og þeir skrifuðu nöfn sín í
nafnaskrána bættu við ósvinnuorðum um
Viktor Emanúel og son hans Umbertó, og
báðu þá fara norður og niður. þetta flaug
eins og logi um borgina og leíddi til hávaða
og róstuláta, svo að lögregluliðið varð að
koma pílagrímunum undan. Heyrðust þá
mörg hrakleg óp að klerkum og páfa. Bæði
á Frakklandi og Italíu reyndu klerkablöðin
að gera þetta að ýfingarefni, en það mis-
tókst með öllu.
Skömmu fyrr hafði hafði hátíðarhald stað-
ið nálægt því hliði Rómaborgar, sem Porta
Pia heitir, en um það hafði Viktor Emanúel
haldið með her sinn 20. sept. 1870 eptir
vopnaviðskipti með páfaliðinu. þar taláði
einn af þjóðveldissinnum Itala til lýðsins,
Hector Socci að nafni, og tók biturlega til
orða um páfaveldið. Hann kallaði Róma-
borg á þriðja lífsskeið sitt komna, þar sem
hlutverkið væri að hrinda af sjer falsi og
lygi, oki kirkjunnar, af lýð landsins, en berj-
ast til sigurs fyrir sannindum, uppfræð-
ingu og alls konar andlegum göfugleik og
þrifnaði.
Um nokkurn tíma hefir v. Giers kanselleri
Rússakeisara átt dvöl á Ítalíu og haft þar
virðulegustu viðtökur af konungi og átt við
hann viðræður og við Rudini, ráðherra ut-
anríkismálanna. Mörgum getum er leitt um
erindið, en blöð Itala taka öllu fjarri um
minnstu röskun á þríveldasambandinu. Lík-
ast þykir, að viðræðurnar hafi verið um
verzlunarmál, og að hvorumtveggju hafi sam-
izt um sumar greinir, sem varða hag Rússa
og ítala í Miðjarðarhafi, og, ef til vill, um
viðhorf Ítalíu, ef ný tíðindi yrðu áBalkans-
skaga (t. d. á Búlgaralandi).
Alþjóðafundur friðarvina byrjaði í Róma-
borg fyrir fám dögum, og skal seinna minnzt
á það markverðasta, sem hjer fer fram.
Fyrirvari hafður á að koma við það, sem
stendur Frakka og þjóðverja á milli.
Rússland- Alexandra prinsessa, kona
Páls stórfursta, en dóttir Georgs Grikkja-
konungs, beið bana af barnsförum sínum, og
fór keisarinn og drottning hans ásamt fleir-
um af skyldfólkinu til útfararinnar, en vitj-
uðu svo aptur vistar sinnar á Fredensborg.
Gyðingar í burtfararbúningi frá Rússlandi
til ýmissa landa, og er nú nokkuð vægileg-
ar að þeim farið, fyrir tilhlutun stórauðugra
manna af þeirra kyni. Atorkumestur er
barón og stóreignamaður í Austurríki, sem
Hirsch heitir. Hann leggur fram 60 miljónir
króna til landkaupa handa þeim og ný-
byggða í Argentína (í Suður-Ameríku), og
ætlast til að þeir í 20 árin fyrstu stundi að
eins jarðyrkju og landbúnað.
þó stjórninleiti allra úrræða aðbjargaþar
fólkinu, sem kornbresturinn olli hungursneyð,
hefir hún hvergi nærri við; enda má nærri
geta, er menn segja, að 25 miljónir byggi
það svæði, þarsem neyðarinnar kennir.
Frá Ameríku- þær misklíðir risnar í
Brasilíu með Fonseca, ríkisforsetanum, og
þinginu, að hann hefir hleypt því upp og
tekið alræðisvald til tveggja mánaða, en boð-
að nýjar kosningar innan skamms tíma.
Hjeðan verður nánari sagna að bíða.
Frá Sínlandi. Ofsóknir gegn kristni*
boðum og kristou fólki halda áfram, ogvíða
er til vopna tekið móti löggæzlumönnum og
landstjórum stjórnarinnur, sem á flestum
stöðum verða vanburða fyrir. Sumstaðar
samsæri gerð með þeim ummælum, að hjer
skuli ekki staðar nema fyr en allir kristnir
menn sje reknir úr landi eða þeim sje f
hel komið.
Viðbcetie 9. nóv. í Cork er sá kosinn,
sem mótstöðumenn Parnellinga hjeldu fram,
Martin Flavin að nafni.
Frá þýzkalandi eða Berlin borið um banka-
hrun í meira lagi. Einum þeirra, sem hjet
»víxlabanki« Berlínar, stýrðu tveir bræður,
Sommerfelt að nafni. þeir hafa báðir ráðið
sjer bana. Fallinn liggur og gamall banki,
kenndur við »Hirschfeld og Wolff«, og er
sagt stórfje sumra virðingarmanua og tig-
inna hafi horfið í þetta rastarsog.
1 dag borið fráNoregi, að vinstrimönnum
sje þegar svo í vil gengið, að þeir komi nú
til þings með 60 atkvæða afla, gegn 54.
Póstskipið Laura (Christiansen) kom
hingað í gær og með henni 4—5 farþegar
þar á meðal kaupm. W. Christensen með
konu sinni, stúdent Eiríkur Sverrisson, e. fi.
Ný lög. þessi lög frá þinginu í sumar
hefir konungur staðfest, fjárlögin 6. nóvbr.,
hin öll 2. okt.:
7. Fjáraukalög fyrir árin 1890 og 1891.
8. Lög um samþykkt á landsreikningnum
frá 1888 og 1889.
9. Lög um ákvarðanir er snerta nokkur
almenn Jögreglumál.
10. Lög um breyting á lögurn 19. septbr,
1879 um kirkjugjald af húsum.
11. Lög um skipun dýralækna á íslandi.
12. Lög um landstjórninni véitist heimild
til að kaupa jörð handa Tröllatungu-
prestakalli í Strand aprófastsdæmi.
13. Lög um breyting á lögum um stofnuu
landsbanka dags. 18. sept. 1885, 25.gr,
14. Fjárlög fyrir árin 1892 og 1893.
Enn fremur hefir Khafnardeild Stjórnar-
tíð. meðferðis »ýtarlegar reglur um það,
hvernig haga skuli prófi stýrimanna við
stýnmannaskólann í Reykjavík«.
strandferðir 1892- l>ær verða 3, hjer
um bil eins lagaðar og 1889, — Berufirði og
Reykjarfirði þó alveg sleppt úr áætluninni—,
og fer aðalpóstskipið, Laura, auk þess 3
ferðir frá Reykjavík til vesturhafnanna
(nema ekki Flateyjar), eins og þá. Thyra
verður strandferðaskip, eins og áður. Held-
ur »hið sameinaða gufuskipafjelag« strand-
ferðunum uppi styrklaust af landssjóði, af
því það vill eigi fullnægja skilyrðum fjár-
laganna, en þau voru staðfest 6. þ. m., og
hagar þá auðvitað ferðunum eptir því, er
kaupmönnum hentar, því þeir nota það
langmest til flutnings.
Fyrsta strandferð byrjar frá K.höfn 1. maí
önnur 30. júní og þriðja 6. septbr. Frá
Reykjavík fer það í síðustu strandferð vest-
ur fyrir land og norður 1. október. a sum-
um höfnum kemur það ekki við nema einu
sinni hvora leiðina, svo sem Húsavík, Siglu-
firði, Skagaströnd og Önundarfirði.
Aðalpóstkipið, Laura, fer eins og vant
er 8 ferðir, og byrjar 1. ferðina frá Khöfn
17. jan. og síðustu 8. nóvember.