Ísafold - 27.01.1892, Side 2

Ísafold - 27.01.1892, Side 2
30 bar með sjer, að 3332 kr. hafði kostað að boma fyrirtækinu á stofn. Hafði sá kostn- aður verið greiddur með 53 fimmtíu krónu tillögum (hlutum) frá 35 fjelagsmönnum, og 20 kr. að auki, fyrir ekki hálfborgað hluta- brjef; enn fremur með 500 kr. láni úr spari- sjóði í Hafnarfirði; en þær 162 kr., sem til vantaði, ókvað fundurinn að verja skyldi tekjuafganginum fyrsta árið til að borga. Málþráðurinn tók til starfa 16. okt. 1890, og höfðu tekjurnar orðið þaðan í frá og til nýjárs 1891 564 kr. alls. þ>ar af voru 260 kr. árstillög frá föstum áskrifendum, 10 kr. frá hverjum, en hitt lausatekjur, sem sje fyrir afnot málþráðarins og sendiferðir. Kostnaðurinn varð á þessu sama tímabili 235 kr. Afgangur því 229 kr., er fundurinn kaus heldur að verja til að borga fyrnefnda stofnuuarskuld (162 kr.) og láta hitt liggja f sjóði en að skipta honum upp milli hlut- hafenda f vöxtu eða ágóða í þetta sinn. Kostnaðurinn var mest fólginn í húsaleigu fyrir málþráðarstöðvarnar í Keykjavík (58.50) og Hafnarfirði (67.50), og sendiferðir, rúmar 50 kr. á hvorum staðnum. Enn fremur hafði orðið að kosta í haust til nýrra mál- þréðastöðvar í Reykjavík rúmum 50 kr. þ>etta ár sparast húsaleigan hjer í Keykjavík, með því að kaupm. W. O. Breiðfjörð lætur hús- ur húsnæði í tje ókeypis, síðan í haust, að hann tók að sjer gæzlu málþráðarins, og tekur auk þess ekkert fyrir ómak sitt, lagði enn fremur nokkuð til ókeypis, sem þurfti til að koma málþráðarstöðinni í lag hjá honum; tjáði fundurinn honum fyrir það allt maklegar þakkir. Slitnað hafði þráðurinn nokkrum sinnum, en verið bættur jafnskjótt aptur. Stjórn var endurkosin: Jón þórarinsson skólastjóri, Björn Jónsson ritstjóri og Guðbr. konsúll Finnbogason ; og endurskoðunarmenn kosnir Eiríkur Briem prestaskólakennari og Indriði Eínarsson revisor. Landamerkjamál. Landsyfirrjettur dæmdi f fyrra dag í landamerkjamáli milli Keykjavíkurbæjar og Seltjarnarneshrepps annars vegar og Guðmundar bónda Magn- ússonar í Elliðakoti hins vegar, um landa- merki milli nefndrar eignar- og ábúðarjarð- ar hans og afrjettarlands Keykvíkinga og Seltirninga. Hafði málið verið dæmt í hjeraði 19. sept. f. á. f landamerkjadómi, þannig, að landamerkin skyldu vera aðal- farvegur Lyklafellsárinnar úr Nautapolli allt að suðurenda Vatna-ássins, þar sem farveg- urinn kvíslast; úr því róði nyrðri farvegur- inn, þangað til hann kemur f Possvallaá. Upp í málskostnað var áfrýjendum (R.vík- urbæ og Seltjarnarneshr.) gjört að greiða 49 kr. til dómendanna, og hinum stefnda (G. M.) 23 kr. Landsyfirrjettur dœmdi landamerkjadóm pennan ómerkan, og vísaði málinu heim aptur, en Ijet málskostnað fyrir yfirrjetti falla niður. Segir svo í ástæðum yfirdómsins: Samkvæmt landamerkjaskrá áfrýjendanna (R.víkur og Seltj.) hefir þess af þeirra hálfu verið krafizt, að landamerkin væn ókveðin þannig: fyrst að norðanverðu úr svo köll- uðu Hraunsnefi neðanvert við Læ.kjarbotna- land, og svo eptir hraunhólum þeim, sem liggja úr Hraunsnefinu beint norður í á, og svo ræður áin allt upp í Atthaga- (eða Nátthaga-)vatn, og svo eptir þvf miðju, þangað til 'áin fellur í vatnið fyrir norðan Atthagann, og sem sú á ræður, suðaustur með heiðarbrúninni; svo úr henni neðan til við uppsprettu hennar eptir árfarvegi og í aðal-Possvallaána, þar sem hún fellur niður úr gljúfriuu, fram af heiðarbrúninni; svo ræður sú á, sem liggur með heiðarjaðrinum (Elliðakotsheiði) alla leið að norðanverðu við Fóelluvötn allt upp fyrir norðan ás þann, sem skilur Efri- og Neðrivötn. þaðan eru merkin áframhald með sömu heiði upp ár- farveginn, sem liggur sunnan undir Lykla- felli, og eptir þeim farveg austur og upp í sýslumörk. A hinn bóginn hefir hinn stefndi haldið því fram, að landamerkin milli Ell- iðakots og afrjettarlands Keykjavíkurbæjar og Seltjarnarneshrepps sjeu þessi: »Frá Víf- ilsfelli niður Sandskeiðið niður fyrir Vatna- sæluhúsið og svo eptir árfarinu fyrir sunn- an Neðri-vötn niður að þúfu, sem stendur á holtstanga fyiúr neðan Neðri-vötn«. »Með dómsákvæði sínu, því er áður hefir greínt verið, hefir merkjadómurinn dærnt undir Eliiðakotsland nokkurn hluta (eða nyrðri partinn) af svo kölluðum Efri-vötnum, frá Nautapolli og niður fyrir Vatnaásinn, en þessa landsspildu vildu báðir rnálspartar eigna sjer. Ytns vel kunnug vitni hafa þó borið það í mólinu, að Fóelluvötnin (bæði Efri- og Neðri-vötnin) hafi utn langan ald- ur, eða svo lengi sem þau muna til, verið talin og notuð sem afrjettarland Seltjarnar- neshrepps og Reykjavíkur, enda er það við- urkennt af stefnda, að minnsta kosti að því er Reykjavík snertir, og allar líkur eru einnig fyrir því, að hreppatakmörkin (milli Seltjarnarneshrepps og Mosfellssveitar) skilji öll Fóelluvötnin frá heirnalandi Elliðakots. A móti þessu eru engar hinar minnstu lík- ur eða sannanir fram komnar frá hálfu hins stefnda eiganda Elliðakots, og virðist hann þó samkvæmt Jónsb. landsl.b. 26. kap. i. f. hefði þurft að færa sönnur á eignarrjett sinn að la.ndsspildunni gagnvart tjeðu eign- arhaldi eða notkun áfrýjendanna. Merkja- dómurinn verður því með þessu að álítast að hafa gjört sig sekan í lögleysu í dómi sínum. Auk þess er það eigi rjett af merkja- dóminum, að hann hefir eigi lagt dóm á um alla hina umþrættu merkjalínu, og eigi ákveðið merkin lengra upp og austur en að Nautapolli, þótt kröfur málspartanna og á- greiningur snertu merkin lengra austurn. Norskar gufuskipsferðir. Ur Eyja- firði er Isaf. skrifað 7. þ. m.: »Seint í nóv- ember kom til Akureyrar norskt gufuskip, er heitir Dido, að sækja síld. Útgerðar- menn skipsins eru norskt fjelag, sem heitir »Vaagens Kederi«. Var það fullyrt hjer, að þetta fjelag ætlaði að halda uppi reglu- legum gufuskipaferðum milli Kaupmanna- hafnar og austurlands og Akureyrar í hverj- um mánuði. Skipið á að koma við í Nor- vegi í annari ferðinni og annari í Skotlandi. Bætir þetta mikið úr hinum fækkuðu póst- skipsferðum, ef það kemst á. Mönnum þykir einnig gott, að hið »Sameinaða gufuskipa- fjelag« sje eigi eitt um ferðirnar«. Aflabrögð. Afli mikið góður í Bolung- arvík eptir nýárið, þá sjaldan róa gaf. I Garðsjó var róið laugardag 23. þ. m., í slæmu sjóveðri, og fengu einhverjir 50 í hlut af góðum stútungsfiski á lóðir í einu kasti (10 hlutir); einnig nokkur afli á færi. Morðsaga ný. Maður er grunaður um morð vestur í ísafjarðarsýlu í Onund- arfirði, Sigurðior nokkur, auknefndur »skurð- ur«, roskinn maður, frá Flateyri. Hann fylgdi skömmu fyrir jól ásamt öðrum tnanni, er Salómon hjet Jónsson, lausatnaður á Flateyri, Álfi nokkrum Magnússyni af Suð- urnesjum (áður f skóla) og 2 Súgfirðingum á leið frá Flateyri eða næsta bæ (Eyri) yfir að Stað í Súgandafirði. Allir voru þeir drukknir eða kenndir meira eða minna, er þeir lögðu af stað. A leiðinni höfðu þeir slegizt,Alfur og Salómon, og Salómon snúiðv eiun aptur. Nokkru síðar skilur Sigurður- við Súgfirðingana á há-heiðinni og snýr apt- ur, kemur einn heim um kvöldið og læzt ekkert vita um fjelaga sinn Salómon; svar- aði því til, að sumra sögn, að hann mundi gista á Klofningsdal í nótt, en það er eyði- dalur á heiðinni rnilli Önundarfjarðar og Súgandafjarðar. Daginn eptir var leitað að Salómon dauðaleit og fannst hann dauður skammt frá veginum, upp á Klofningsdal, með áverka-merki á höfði, en að læknis áliti (kand. Halldórs Torfasonar) líklega dáinn úr kulda. Sýslumaður fór og hjelt próf í málinu. Tlrðu þeir Alfur og Súgfirðingarnir- alveg samsaga, en Sigurður varð tvísaga eða margsaga, og sannaðist á hann að auki, að hann hefir haft hótanir um það við Súg- firðingana, að hann skyldi berja Salómon þegar hann næði honum. Ljet því sýslu- maðurinn setja hann í varðhald. En það. bar hann stöðugt, að ekki hefði hann fund- ið Salómon á heimleiðinni og haldið hann kominn heim á undan sjer. |>ar sem líkið fannst, á að hafa sjezt allmill harðspori í snjónum. — Frekari vitneskja eigi fengin um atburð þenna, og er þetta haft eptir brjefum frá áreiðanlegum mönnum vestra. Mannalát. Dáínn 19. desember f. á. ^PPgjafaprestur þorkell Eyjólfsson á Búð- um. Hann var fæddur 6. júní 1815; ólst upp hjá foreldrum sínum, Eyjólfi presti Gíslasyni, síðast til Miðdala, og Guðrúnu Jónsdóttur, prests á Bægisá, þorlákssonar; fór í skóla 1835, útskrifaðist 1841 með bezta vitnisburði; tók prestsvígslu 1844, og veittir Ásar í Skaptártungu s. á.; veitt Borg á Mýrum 1859 og Staðastaður 1875, en sleppti prestsembætti 1890. Hann kvæntist 1844 Ragnheiði Pálsdóttur, prófasts í Hörgsdal, er enn lifir. |>au áttu saman 17 börn; af þeim eru 10 á lífi, öll upp komin, Matthild- ur, ógipt, i Stykkishólmi; Guðrún, kona Clausens kaupm. s. st.; Eyjólfur, úrsmiður, í Rvík; Páll, tannlæknir; Jón, skipstjóri, á Isafirði; Jón, dr. phil., í Kaupmannahöfn; Bjarui, borgari, á Hjallasandi; Guðbrandur, verzlunarmaður, í Olafsvík; Kjartan, búandi í Staðarsveit; og Einar, eiunig búandi í Staðarsveit, er hann dvaldist hjá frá því, er hann sleppti prestaskap. — Síra þorkelí var maður vel gáfaður, hjartagóður, hrein- lyndur, spaklyndur og einhver skyldu- ræknasti embættismaður. Trúmaður var hann oinhver hinn öruggasti, og kenndi því með lifandi áhuga og af brennandi sannfær- ingu; þótti því mjög hjartnæmur kennimað- ur, áður en förla tók af elli; hann var ljúf- ur og þrautgóður eiginmaður og faðir. Sem fjelagsmaður var hann einbeittur vel, en þó eigi mjög framgjarn, drenglyndur í allri viðureign við aðra og hjálpfús, þótt aldrei hefði hann yfir auð að ráða á æfinrti. Annars auðkenndi alla hans framkomu guðsótti, drengiyndi og hreinskilni. E. jl 1 líanveig Kristín f orvarðardóttir Og Sveinbjörn f orvarðarson. (-J- 9. des. 1891). Fártrylldir stormar æða’ um hafið auða, Aflramir boðar rísa hátt frá djúpi, Og dauðans engill skrýddur skýja-hjúpi Að skipun alvalds boðar harðan dauða; Lítið er fley í fári sárra nauða, Formaður sveigir stýrið hraustum armi,. Systir hans andlit hylur fullt af harmi,. Hásetar sex við bráðan stríða dauða. Mannanna kraptur megnar ekki hót, Máttugar höfuðskepnur krapta reyria,

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.