Ísafold - 02.03.1892, Síða 3

Ísafold - 02.03.1892, Síða 3
71 En sannmæli reynist það opt, er Bryn- hildur kvað á helreið sinni: „Munu við ofatríð konur og karlar alls til lengi kvikvir fæðaat“. Hjördís skildi hið bezta hlutverk sitt; hún var eigi 1 neinum vafa um, hvað hún skyldí sýna, og kom því fram hispurslaust og náttúrlega. það er og aðalkostur Ornólfs, að því er mjer þótti. Síðast verð jeg að minnast dálítið á Dag- nýju, dóttur Örnólfs gamla, konu Sigurðar. hins frækna. Henni gat mjer alls eigi get- izt að sem konu þess manns, er fremstur var allra að hreysti og manna göfugastur. Á henni er enginn fornaldarbragur. All-ólík þócti mjer hún vera þorgerði Egilsdóttur, þar sem hún biður föður sinn freista þess, að yrkja erfikvæði um sonu hans, og ekki þekkti jeg heldur Guðrúnu Gjúkadóttur af orðum hennar nje atferli. Engar voru þær smáræðakonur, Guðrún og þorgerður, hvorki í orðum nje athöfnum. Að vísu grjet Guð- rún Gjúkadóttir, en hún grjet »svá at tár flugu«, og víst hefðu áheyrendurnir mátt heyra ngjallan grát Gjúkadóttum, ef hún hefði komið fram í fornri mynd. En svo var henni varið sem öðrum mikilúðgum konum, að hún grjet eigi, er henni var sem mestur harmur í skapi, en »hún var búin til að springa af harmi«: „Hon aat sorgfull nje liöndum slá yfir .Siguröi: nje kveina sem gerðit hon hjúfra konur aðrar“. Eigi rjeðist hún í smátt, er hún drap sonu sína, þá er hún hafði átt með Atla, Atla sjálfan, og brenndi höllina og hirðina alla og hefndi svo bræðra sinna, er vegnir höfðu verið að undirlagi Atla. Eigi myndi Dagný það verk unnið hafa. Líkari er hún ungri dóttur Sigurðar en konu hans í framkomu allri. Eigi gef jeg samt Dagnýju einni sök á því, þótt hún brygðist svona mínuno vonum. þessi vonbrigði eru að miklu leyti höfundi leiksins að kenna, því að hann gerir hana að »konu vesalli* í nútíðar merkingu þess orðs, eða að geðlausri, kjökrandi konu með öðrum orðum, er varla þolir sár að sjá, eins og auðsætt er af samtali þeirra Hjördísar og Dagnýjar á einum stað. Slfkt er hvorki Guðrún Gjúkadóttir nje þorgerður Egils- dóttir hin ríkiláta. þetca er uú saga mín. Svona þóttu mjer aðal-mennirnir koma fram. Dm aðra tala jeg ekki, því að þeir »töluðu ekki orð«, eins og þar stendur, og veit jeg því eigi, hvérjir garpar þeir kunna að vera. þegar til alls kemur, þótti mjer að þessari sjón hin bezta skemmtun, og sjaldan hefi jeg þótzt hafa varið betur einni krónu, en þeirri, er jeg galt fyrir aðgöngumiða í þetta skipti. Jeg hefi af ásettu ráði tilfært skaplýsing- arnar lijer að framan, nokkurra þeirra manna karla og kvenna, er höfundur leikritsins virðist hafa haft fyrir augum, ef verða mætt1 til leiðbeiningar fyrir einhverja af leikend- unum, og bið þá að virða vel, sem mælt er. Hafnarfirði 1. marz 1892. Bjakni Jónsson. Mannalát- í gærmorgun ljezt einn af lærisveinum hins lærða skóla, Jóhann Briem, sonur síra Yaldimars Briem á Stóra-Núpi, mjög efnilegt ungmenni fyrir gáfna sakir og annars, kominn í 4. bekk. Hann dó úr lungnabólgu; var brjóstveikur undir. Hinn 11. jan. þ. á. andaðist að Auð- lrálu í Húnavatnssýslu ekkjan Hólmfríð- ur Bjarnadóttir Eiríksen, móðir síra Stefáns M. Jónssonar að Auðkúlu. Hún var fædd 9. des. 181.8 að Bæ i Hrútafirði. Foreldrar hennar voru: Bjarni stúdent Friðriksson, prests að Breiðabólsstað í Yesturhópi, bróð- ur Stefáns amtm'anns þórarinssonar frá Grund í Eyjafirði, og Anna Jónsdóttir sýslu- manns (gamla) Jónssonar; hann var sýslu- maður Idúnvetninga næstur á undan Birni Blöndal. Frá 8. aldursári var Hólmfríður sál. alin upp hjá síra Gunnlögi Oddsen dómkirkjupresti og systrung móður sinnar, frú þórunni Björnsdóttur, prests í Bólstað- arhlíð. ' A 21. aldursári giptist hún Jóni: Eiríkssyni (d. 1851), þá bókhaldara í Rvík, albróður hins nafnkunna guðfræðings Magn- úsar Eiríkssonar í Khöfn. þau hjón eign- uðust 7 börn, er 3 hfa: Anna Kristín, ekkja, þórunn, gipt Eiríki Halldórssyni í Blöndu- dalshólum, og síra Stefán. Hóhnfr. sál. ól 50 ár æfi sinnar í Rvík, en fluttist vorið 1876 norður í Húnavatnssýslu með síra Stefáni, er vígðist þangað prestur. Jarðar- för hennar fram fór 27. þ. m. að Auðkúlu. Hólmfr. sál. var merk og velmetin kona, starfsöm mjög og þrekmikil, þar til hin síð- ustu ár, að heilsa og þrek bilaði. M. Sjónleikirnir- Tvö kvöld er nú búið að leika hjer »Víkiugana á Hálogalandi«, eptir Henrik Ibsen. Fyrra kvöldið var að vísu allvel sótt, en hið síðara var húsið alveg troðfullt, og varð fjöldi manna frá að hverfa. Ljetu áhorfendur þá hið bezta yfir. Virð- ist því almenningur ætla að kunna að meta þetta fyrirtaks-rit, eptir heimsins mesta sjónleikaskáld, er nú er uppi, og þar að auki um forn-íslenzkt efni, vel og rjett skil- ið, sem mjög er fágætt um útlend skáld. Til leiktjalda, búninga og vopna hefir fje- lagið kostað miklu fje, enda eru karlmanna- búningarnir að minnsta kosti mikið góðir og vopnin allgóð; við kvennbúningana virðistheld- ur slá út í nýmóðins viðhöfn að sumu leyti. — Síðar mun verða minnzt rækilegar bæði á ritið sjálft, og hitt, hvernig það er leikið. Uppboðsauglýsing Samhvœmt tilmœlum sýslumannsins í Skaga- fjarðarsýslu sem skiptaráðanda í dánarhúi Guðmundar sál. Sigfússonar frá Beynistað,. auglýsist hjer með, að há/fjörðin Skottastað- ir í Bólstaðarhlíðarhreppi hjer í sýslu, sem er eign nefnds dánarbús, verður seld við 3 opinber uppboð, sem haldin verða ztm hádeg- isbil, tvö hin fyrstu á skrifstofu sýslunnar að Kornsá í Vatnsdal, laugardagana 27. apríL og 7. maí nœstkomandi, en hið þriðja á jörð- inni sjálfri laugardaginn hinn 21. maí ncest eptir. 64 Grjetu sortnaði fyrir augum, þá er hún las þetta. Unn- usti hennar var þá enn á lífi. Hann var orðinn aðmíráll, og hann sendi eptir henni, til þess að gera brullaup til hennar! Hún rjeð sjer eigi fyrir furðu og fögnuði, og gjörði ýmist að k'æja eða gráta og kyssti hvað eptir annað blessað brjefið frá vmi síuum, er hún hafði ætlað dauðan, en henni þótti nú sem úr helju væri heimtur. Hitt heimilisfólkið var alveg for- viða og borfði með nokkurs konar lotningu á Grjetu, sem á- nægjan skein út i\r, rjett sem hún væri konungsdóttir, komin úr álögum. Yfirstýrimaður aðmírálans fór nú að taka upp úr ferða- skrínu sinni, er hafði mjög dýrmæt þing að geyma: þar voru dýrindis sjöl frá lndlandi og góðir gripir af gulli og silfri og gimsteinar, er aðmírálinn sendi Grjetu sinni í bráðina að brúðgjöf. Enn hafði yfirstýrimaður margar fríðar og fásjenar gersemar að færa þeim, er fyrrum höfðu verið vinir Niss de ®ombells aðmíráls, svo sem húsráðandanum í Bombell og froendum og vinkonum Grjetu. þá er menn höfðu um hríð svalað sjer á að dást að hnossum þessum, tóku menn að byggja til kvöldverðar. Grautarketillinn var borinn fram, en allt það fram reitt og á borð borið fyrir gestina og allt heim- ilisfólkið, er bezt var og lostætast í búrinu í Bombell. í>á er aðmírálinn gjörði yfirstýrimanninn í þessa sendi- or, vissi hann auðvitað ekki, hvar Grjeta var uiður komin, vort hún væri enn í Bombell, eða hvort hún væri á lífi. Hann hafði því lagt svo fyrir við stýrimanninn, að hann skyldi fyrst fara til fiskimannsins, frænda hennar, í Rómey, og spyrjast þar fyrir, hvað títt væri um Grjetu. Stýrimaður 61 sínum seldi hann í hendur brjefmiðann, og fól honum nokkur trúnaðarerindi. Hann brá þegar við og hjelt suður til Am- sterdamms. Tveim dögum síðar lagði skúta ein út frá Amsterdammi,. er stefndi í norðurátt og klauf hiuar ókyrru öldur Vesturhafs- ins fram með ströndum Fríslands. Á þilfarinu stóð y.firstýri- maður hins indverska aðmíráls, og beindi augunum gegn um þokuslæðinginn í áttina þangað, er aðmírállinn hafði áður ver- ið í vinnumennsku — á strönd Sljesvíkur. Grjeta var enn vinnukona í Bombell. Hún hafði í margt ár þráð unnusta sinn. Nú var hún þó tekin að hyggja af honum og ætlaði hann helzt dauðan, er hún hafði aldrei neitt af honum frjett síðan þau skildu í Rómey. Ymsir urðu til að biðja hennar, en hún vísaði öllum biðlum á bug, því að trygg vildi hún reynast honum Niss sínum, ef vera mætti, að hann vitjaði einkamálanna. Bombell lá í mjög afskekktri byggð nyrzt á vesturströnd Sljesvíkur. þangað bárust engin tíðindi af Indlandi um ófrið' eða annað, er þar gjörðist. Allmargir Frísar voru að vísu í sjóliði Hollendinga, en eigi skrifuðu þeir heim, enda munu: fæstir þeirra hafa kunnað að skrifa. Póstferðir voru þá ótíð- ar og óvísar, og um frjettablöð var lítið eða ekki á þeim tímum. þá er Grjeta var ein í svefnklefa sínum, minntist hún einatt unnustans horfna, og táraðist yfir missi hans. En á daginn var hún með jafnaðargeði við vinnu sína, eptir því sem til hagaði, svo sem hún hafði vanizt allt í frá barnæsku..

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.