Ísafold - 16.03.1892, Síða 2

Ísafold - 16.03.1892, Síða 2
86 Mótmælaskrár streyma til þiagsins, ein frá háskólanum í Berlín, og undir henni nöfn 6 eða sjö prófessora í guðfræði; en í blöðum og ritlingum er sýnt fram á, hvernig miðið sje hjer: ánýjað bandalag með ríki og kirkju, hversu lítið slíkt muni hrífa til eflingar trúræknis eða siðabetrunar, og hversu allt slíkt sje öldinni öndvert, já, hlýði illa •stefnunni nýju«. Nái nýmælin fraingöngu, óbreytt eða breytt að litlu, þá verður það fyrir fulltingi kaþólsku fylkingarinnar á þinginu, og þá mætti spyrja: »hvernig hlýðir þetta einasta stórveldi Lútherstrúarmanna?« Nýlundu má það næstum kalla, er stjórnin prússneska hefir snúizt á tilhliðrunarleið við Póllendinga í austurfylkjum ríkisins. Hjer er kominn pólskur erkibiskup, sem Stoblevski heitir, en með dýrum heitum, að gera Pól- lendinga að sem beztum þegnum, og nú er meiri vægð sýnd, að því er kennslu snertir pólverskrar tungu í skólunum. Slíku með þökkum tekið af fulltrúum Póllendinga á Berlín arþi ngin u. I þrjá daga hefir verið óeirðarsamt í Ber- lín. Upphafið var þyrpingagöngur atvinnu- lausra verkmanna að ráðhúsi borgarinnar og höll konungs, og þegar köllin heyrðust: »gefið okkur brauð, veitið okkur vinnu!« tóku óp skrílsins undir og óeirðarseggjanna, og svo kom til ryskinga og barsmíði, þegar löggæzluliðið vildi dreifa mannþrönginni. Slíkt var endurtekið á ýmsum stöðum, og sumstaðar brotizt inn í bakarabúðir, og nokkrum sinnum urðu löggæzlumennirnir að beita vopnum. Margir fengu áverka, en þeir inn settir, sem verst I]etu. Blöð sósía- lista skoruðu þegar á verkmenn að firrast allar óspektir, því af þeim mundi illt eitt Ieiða. Frakkland. Svo kom flestum á ó- vart fyrir skömmu, að atkvæðagreiðslan á þinginu steypti Freypinet, stjórnarforsetan- um, af stóli og ráðanautum hans, en þá rætt um varúðartilgæzlu af hendi stjórnar- innar gagnvart samkomum kaþólskra yfir- hirða og kardínála og öðrum tiltektum þeirra. Tilefnið var helzt brjef frá þeim til safnað- anna, seint í janúar, þar sem þeir, sum- part eptir bendingum páfans, biðja prest- ana að vera hlýðna og auðsveipa stjórn þjóðveldisins, en þylja um leið heilan bann- söng yfir höfði hennar fyrir það, hvernig hún hlynnir að vantrú og guðleysi með öllu móti. þó seinna kæmi brjef frá Leó páfa til biskupanna, þar sem hann brýnir fyrir þeim, að gegna öllum skyldum við stjórn Prakklands, hvort sem hún lúti konuailí eða ríkisforseta, þá vildu ráðherrarnir og þeirra þingliðar ekki láta við svo búið standa. En við umræðurnar um nýmælin kennd svo ýmsra grasa, að sumir vildu ekki við minna hlíta, en fullkominn aðskilnað ríkis og kirkju. A þvi eru allir hinir harðvít- ugu og einbeittustu vinstra megin. Fyrir þetta tók Freycinét þvert, en Ijet þó á skynja, að þar hlyti seinast að að reka. þessi tvíveðrungur hneykslaði á tvær hend- ur og gerði menn áttavillta, og því fór sem fór. Eptir langa baráttu hefir Carnot tek- izt að fá nýtt ráðaneyti. Fyrir því er sá mað- ur, er Loubet heitir — líklega af hófsmanna flokki —, en Freycinet hefir tekið aptur að sjer1 hermálin, Ribot utanríkismálin, og þrír aðrir hin fyrri sín embætti. Constans, kjarkmaðurinn mikli, sem vann Boulanger og hans kolapiltum að fullu, varð hjer apt- ur úr, og spá sumir, að það muni vart vel gefast. Austurríki. Nú þykir fyrir vonir komið, að sættir takist með Tjekum og þjóðverjum, er hinum eldn forustumönn- um Tjeka og hinum ríkustu stóreignamönn- um þeirra hefir komið saman um, að hætta við þær samningatilraunir, sem Taaffe greifi gekkst fyrir, þar sem allt lenti í refjum og þrefi. Kosningar Ungverja eru um garð gengn- ar, en með svo stríðum flokkaviðureignum á sumum stöðum, að menn lágu fallnir eptir eða lemstraðir. Stjórnarforseti er Szapary greifi, og frelsismenn kallast hans liðar. þeir höfðu betur, en misstu allmarga af hinum fyrri liðsafla. Kosningarnar eiga að hafa kostað þá 1,315,000 kr. Mótstöðu- flokkinn skipa þjóðernismenn eða sjálfsfor- ræðis; fyrir þeim Apponyi greifi, góður skör- ungur. JRússland. Sögurnar hræðilegar frá harðæris og hungursfylkjum ríkisins, og það þrátt fyrir öll framlögin og umstangið; en, því miður, hjer fer svo margt í óskilum. Hinn 18. janúar hjeldu klerkarnir í Tiflis út á litla ey í fljóti, er Kúra heitir við borgina, og vígðu var.nið í ánni, sem siður er til í kaþólskunni austrænu. Með þeim fór fólk í prósessíu yfir brúna, en þegar aptur var snúið, stóð þar mikill manngrúi, og brast hún sundur undir þeim fjölda. 77 lík hafa fundizt, en sagt, að margra fleiri sje saknað. Dáinn er 25. jan. Constantín stórfursti, föðurbróðir keisarans, fæddur 1827. Hann var lengi forræðisaðmíráll flotans, og kall- aður af sumum meira skörungmenni en bróðir hans. A seinustu árum var stund- um kvisað um Ieyndarmök hans við þá, er öndvert hugðú keisaranum og stjórn hans. Grikkland. I Píreus eiga próte- stautar litla kirkju. Nýlega gerði bæjar- lýðurinn atsúg að henni um messutíma, lömdu tvo presta, rifu bækur og Bkrúð kirkjunnar eða aðra muni, báru svo allt út á stræti og brenndu. þetta sýnir, hve skammt Grikkir eiga til trúaróra, sem fleiri lítilsiðar þjóðir, og hið sama vottaðist á Jónseyjum í fyrra við Gyðinga, og lá enn nærri fyrir skömmu. Portúgal. Mest er talað um fjár- hagsklípur þessa lands, og í ráðum haft, að selja Englendingum allar eignirnar í Afríku, og ætla flestir, að það verði úr á endanum. Ástandsins vegna hefir konungur dregið drjúgan part af tekjum sínum, eða 20 af hundraði, en þær eru 2,082,000 kr. Spánarrtki. þar voru nýlega 4 menn teknir af lífi, en 4 aðrir kumpánar þeirra komnir í æfilangt fangelsi. það voru for- göngumenn samsæra til byltinga um allt landið, eða óstjórnarmenn, sem höfðu ógur- legustu illverksráð með höndum, atvígi með hersveitum verkmanna og tældra manna úr hernum, brennur og tundursprengingar, o. s. frv.; en áformið var, að ná taki á auði bórganna og njóta svo að vild »lífsins sælu«. Belgía. Óvíst er enn talið, hvort end- urskoðun ríkislaganna, eða rjettara sagt kosningarlaganna kemst í kring þetta ár, en fari svo, sem sumir ætla, að svo verði um miðsumar, þá er þess tíma að bíða. Nú er að eins af miklum ágreiningi eða sundurleitni að segja. Höll ein brann í Bryssel, 23. janúar, þar sem mörg dýrustu málverk og aðrar ger- semar eyddust. þar brann og herbergið, sem Egmont greifi bjó í, með öllum þeirn búnaði, sem þar var þegar hann skildist við það og var til fangelsis færður 9. sept. 1567. Tyrkjave l di. Fyrir all-Iöngu sagt frá Miklagarði, að uppreisnin í Yemen í Arabíu væri við þrot, en í byrjun þessa mánaðar var borið, að hún hefði fengið nýj- an forustumann og nýjan viðgang, svo að mesta tvísýn væri á sigri Tyrkjahersins. Frá Egipta'landi. Jarlinn nýi á þegar vinsældum að fagna, en hann hefir líka byrjað stjórn sína með því, að hleypa þeim sköttum til mikilla muna niður, sem þyngst lágu á fólkinu, t. d. saltskatti, og það skattgjald af tekið, sem iðnaðar- og verzlunarmenn áttu að greiða sjer í lagi. F r á Bandaríkjum í Ú7. -A rti e r i k u. I lok ófriðarins í Chile fengu tveir sjó- liðar af herskipi Ameríkumanna bana við atvígi vopnaðra skrílmenna í höfuðborginni. Yar krafizt bóta fyrir, 1 miljón dollara. Tregðulega undir tekið, en hjer mun hinn ríkari hljóta að ráða, ef ekki er gjaldið greitt þegar. Sjerveldismanna megin hafa þeir í New- York gert fyrverandi fylkisstjóra sinn, Hill,. að sínu forsetaefni, en þó kann annað veð- ur að verða í lopti, áður kosningar fara fram, í nóvember. Fregnir bornar af nýjum uppgötvunum Edisons, að svo stöddu leyndardómsfullar heldur, en það má eptir hafa, að hann geti nú látið rafsegulmagnið flytja boð án frjettaþráðar. Viðbætie. Eptir að póstskip fór frá Khöfn, kom sá kvittur upp í þýzkum blöðum, að Vilhjálmur keisari œtlaði að bregða sjer hing- að til íslands í sumar, frá Noregi. En naum- ast er trúnaður á það leggjandi, með því að hingað vantar frjettaþráð, en það er meira en bagalegt fyrir mann sem þarf að vera »allt í öllu« dag hvern í ríki sínu og víðar. Póstskipið Laura (Christiansen) kom> hingað á tilteknum degi, 14. þ. m., og með því kaupmennirnir Guðbr. konsúll Finn- bogason og N. Zimsen konsúll, Björn Kristjánsson og Guðm. ísleifsson; enn frem- ur síra Ólafur Helgason (frá daufdumbra- námi) og fröken Kristín Isleifsdóttir. Piskisamjpykktarmálið- Samþykkt var á hinum almenna fundi í Hafnarfirði í gær með 174 atkv. gegn 50 breyting sú, er sýslunefndin hafði gert á samþykktinni frá 8. desbr. 1890: að net megi leggja 1. apríl. Gjöf til almenningsþarfa- Banka- stjórnin hefir tekið 6000 kr. af varasjóði. Sparisjóðs Reykjavíkur, er áður var (rúmum. 20,000 kr.) og gefið Búnaðarfjelagi Suður- amtsins til sandgræðslu, vatnsveitinga eða

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.