Ísafold - 20.04.1892, Side 2

Ísafold - 20.04.1892, Side 2
126 Löggjafarvaldinu hefir orðið það á, að taka hjer aptur að nokkru leyti með annari hend- inni það, sem það gaf með hinni, með því að ákveða að eins einn kjörstað í hverju kjördœmi. Sá kjósandi, er nota vill kosn- ingarrjett sinn, verður sjálfur að koma á þennan eina kjörstað, þegar kosningin á fram að fara. Nú er bæði þingmönnum og kjós- endum fullkunnugt, að í mörgum kjördæm- um verða margir kjósendur að leggja á síg 4—6 daga ferð, til að komast á kjörstaðinn og heim aptur; enn getur opt svo viljað til, að illviðri, vatnavextir, eða aðrir farartálm- ar komi fyrir, og geta þeir þá orðið miklu lengur í ferðinni. Getur nú nokkur maður sagt, að sanngjarnt sje að ætlast til, að nokkrir kjósenda leggi á sig svo mikinn kostnað, vos og erfiði, til að nota kosning- arrjett sinn? Jeg ætla ekki. Eða hvar eru þess dæmi, að löggjafar í nokkru landi gjöri kjósendum sínum svo ervitt að nota þann kosningarrjett, er þeir hafa gefið? Afleiðingarnar af þessu fyrirkomulagi hafa orðið þær, sem vænta mátti, að fjöldi kjós- enda hafa alls ekki sinnt þessum rjetti sín- um. Sjá má, að fjarlægðin frá kjörstaðnum er ein höfuðorsök þessa, þar eð sú hefir reyndin orðið, að tiltölulega lang flestir kjós- endur hafa sótt fundi úr þeim hreppum, sem næstir eru kjörstaðnum. Sjá: Um kosning- ar og kjósendur til alþingis, eptir Indriða Einarsson, í Tímariti Bókmenntafjelagsins V, 26. |>ar segir, að meira en hálfu fleiri kjós- endur af hundraði hafi sótt kjörfund úr þeim hreppum, þar sem kosningarnar fóru fram, heldur en úr hinum hreppunum. Naumlega getur hjá því farið, að áhugi fyrir landsmálum, eður fyrir því, hverjir ráði þeim, dofni mjög, ef hann ekki hverfur al- veg, hjá þeim kjósendum, er eigi sjá sjer fært að nota kosningarrjett sinn. |>að er og allt of sjaldgæft, að þingmenn eða þíngmannaefni haldi fundi víðs vegar um kjördæmið og hafi tal af öllum þorra kjósenda sinna eða gefi þeim tækifæri til að hafa tal af sjer, svo eigi vekur það áhug- ann, þar sem hann er daufur, nje heldur honum við, þar sem hann er nokkur. Jeg get nú eigi skilið, að nokkrum þeim manni, er áhuga hefir á landsmálum, geti líkað þetta ástand. Eða hvernig geta menn með góðum ástæðum kallað vilja 1600 eða 2,000 kjósenda vilja alls þorra landsmanna? eða, að hitt eður þetta sje vilji alþýðu, þar sem eigi hafa fleiri en nú voru taldir látið 1 ljós skoðanir sínar um það? Hvar sem þing eru, ætla frjálslyndir lög- gjafar það fyrstu skyldu sína að rýmka kosningarrjettinn, það er, að veita sem flest- um þennan rjett, og mjer hefir heyrzt, að þeir meðal vor, er kalla sig frelsis- og framfara- menn, hafi og látið sjer orð um munn fara í hina sömu stefnn. En til hvers er að veita fleirum kosningarrjett, ef einmitt hin sömu lög, er veita rjettinn, hafa önnur ákvæði, er bægja mönnum frá að nota hann? Er þá svo erfitt að ráða bót á þessum ókostum kosningalaganna, sem mjer virðast svo alvarlegir, að eigi sje takandi í mál að gjöra það? Jeg ætla, að það sje engan veginn svo. Jeg ætla, að eigi þurfi annað en fjölga svo kjörstöðum í hverju kjördæmi, að hver kjósandi geti farið heiman og heim á ein- tim degi; og fyrir því verð jeg enn sem kom- ið er að halda því föstu, að sú ætti að vera aðalreglan, að kjörstaður væri í hverjum hreppi. Jeg þykist hafa lagt minn skerf til þessa máls, því að jeg hefi á tveim fyrirfarandi þingum komið með frumvarp um þetta. I hvorttveggja sinnið komst það í gegnum efri deild, þótt það mætti ekki svo litlum mót- mælum. En í neðri deild hafði það skemmri aldur. I fyrra sinnið var það fellt með miklum atkvæðamun, en á síðasta þingi var það fellt þar með 11 atkv. gegn 10. Eigi skal jeg neita því, að þingmannaefni þyrfti að hafa nokkuð meira fyrir að ná kosningu en þeir nú þurfa, ef frumvarp mitt yrði að lögum. f>au þyrftu að halda fundi 1 flestum hreppum kjördæmisins, áður en kosningar færu fram. En þetta kalla jeg miklu fremur kost en ókost, enda hafa á seinustu árum fáeinir menn, sem hafa viljað ná kosDÍngu, haldið fuud með kjósendum á allmörgum stöðum í kjördæminu. f>ó er ekki að búast við, að allur þorri þingmannaefna gjöri það, nema þeir þurfi. f>eim er varið eins og mörgum öðrum mönnum, að þeir vilja ná takmarki sínu með sem hægustu móti, og skal jeg ekki fara um þá hörðum orðum fyrir það. En engin ástæða ætti það að vera fyrir kjósendur að hlífa þeim við því. Hin ástæðan af hálfu þingmannaefna móti frumvarpinu, að þeir geti eigi verið á öllum kjörfundum, finnst mjer eigi heldur á mikl- um rökum byggð, því að þess eru dæmi hjá fjölmennari og þingmálavanari kjósendum en vjer erum, og þykir þess þar engin þörf, er þingmannaefni hafa nýlega haldið fundi með kjósendunum. Svo getur og staðið á, að atkvæði kjós- endanna verði öllu frjálsari, ef þingmanna- efnin eru eigi við. Sú mótbára hefir og komið fram, að óhaf- andi sje að láta aðra vera rjettkjörna en þá, sem fá meira en helming allra þeírra at- kvæða, er greidd eru; en mjer er kunnugt, að með bundnum kosningum vill optar svo til, að sá verður rjettkjörinn, er fæsta hafði fylgismenn meðal kjósenda í fyrstu, en sjaldn- ar sá, sem hafði flesta fylgismenn í fyrstu. Fyrir því sýnist mjer sú regla betri, að sá sje rjett kjörinn, sem hafði flesta fylgismenn í fyrstu. í frumvarpinu sjálfu eru ákvæði, er reisa skorður við því, að atkvæðin fari of mjög á dreif eða að kjósendurí hverjum hreppi kjósi að eins innan hrepps mann. Jeg skal svo eigi telja fleiri mótbárur, en vísa kjósendum að eins til alþingistíðindanna A, 19, 55, 85; B, 305, 1351; C, 28, 264. Jeg skal eigi láta þess ógetið, að 2 þeirra manna, er höfðu málið til meðferðar í neðri deild, komu með frumvarp um að fjölga kjörstöðum, og komst það frumvarp gegnum neðri deild. En þeir gallar voru á því frum- varpi, að rýmkunin var allt of lítil og hún varbundin þeim skilyrðum, að hún gat orð- ið engin; ein grein þess var og svo orðuð, að ekki var unnt að fá vit úr henni. Jeg hef áður tekið fram, að öllumlslend- ingum ætti að þykja miklu varða, að sem flestir landsmanna hefðu skynsamlegan áhuga á landsmálum, og fylgdi honum fram að svo miklu leyti, er til þeirra kemur; en þó er hjer um mál að ræða, er snertir kjósend- ur enn meir en aðra menn. Mætti því bú- ast við, að þeir mundu styðja þetta mál af alhuga; en það hefir eigi verið. Frá einu einasta kjördæmi kom til síðasta þings ósk um það, að kjörstöðum væri fjölgað; enda bar og einn andmælandi frumvarps mína. fram þá mótbáru, að engar yfirlýsingar hefðu. komið frá kjósendunum um það, að þeir vildu fá þessa rjettarbót; og hafði hann satfr að mæla, þegar undan er skilið hið eina kjördæmi, sem jeg nú gat um. Ólíklegt er þó, að svo mikil deyfð og doði sje yfir kjós- endum, að þeim þyki engu skipta, hvort málinu er haldið fram eða eigi. En hvað sem um það er, þá verð jeg nú að fela kjós- endum þetta mál. þeir verða sjálfir að knýja það áfram, ef þeim þykir það nokkurs virði, því að óvíst er, hvort jeg verð optar á al- þingi. Og þótt einhver þingmanna taki það upp enn einu sinni, þá virðist mjer mjög efasamt, að málið hafi nokkurn framgang, nema því fylgi sterkar yfirlýsingar frá kjós- endum, að það sje þeirra vilji, að það verði að lögum. Enda er nú gott tækifæri aó minnast á þetta mál við þingmannaefni, er bjóða munu sig fram til kosninga á næsta, sumri. Jón A. Hjaltalín. Smápistlar um mjólkurgerð- Eptir Ólaf Ólafsson. I. |>ó vjer Islendingar lifum mest á kvik- fjárrækt, þá er þó vanalega lítið minnzt á meðferð og notkun afraksturs hennar, en eink- um er sjaldgæft að sjá í blöðunum neina bendingu eða athugasemd um meðferð á mjólk. Máske það sje nokkuð því að kenna, að hún, eður það sem úr henni er til búið: smjör, ostur, skyr o. s. frv., er ekki verzlun- arvara nú sem stendur, til annara landa. En hvers vegna er hún það ekki? Auðvitað af því, að vjerfyrst ogfremst fram leiðum svo ótrúlega lítið af þessari vöru, og í öðru lagi er sú litla vara, sem vjer búum til úr mjólk, svo — ja, mjer liggur við að segja — skammarlega af hendi leyst, að vjer opt, þó ekki sje nema vjer gefum manni að borða, megum bera kinnroða fyrir, hvað smjörið t. a. m. er óhreint og óhrjálegt á allar lundir. þetta kemur auðvitað af meðferðinni, eu ekki efninu, því íslenzk mjólk er í sjálfrí sjer eins góð, ef eigi betri, einkum á sumr- in, heldur en víða í öðrum löndum. |>ví til sönnunar, að úr henni megi búa til góða vöru, skal jeg geta þess, að 1883' sýndi jeg hinum nafnkunna mjólkurfræðing Dana, prófessor Segeleke, lítið sýnishorn af smjöri úr Engey, og sagði hann, að það> stæði ekkert á baki dönsku »herragarðssmjöri«. Oll meðferð á mjólkinni frá því hún kem- ur úr júfri skepnanna og þangað til búið er að skaka strokkinn og berja smjörskökuna saman á strokklokinu, er almennt mjög bág- borin, og er nærri því furða, að til skuli vera heiðarlegar undantekningar, að það’ skuli þó vera á stöku stað búin til allbæri- leg vara úr mjólkinni. það er þó sannar- lega kominn tími til, að vjer förum að taka oss fram í þessu efni; aldrei hefir verið brýnni nauðsyn til þess en nú, er smjörlíkið (marga- rínið), sem flyzt hingað frá öðrum löndum, fellir vort ekta smjör svo í verði, að ekki er hægt að koma því út nema með afföllum, eður í skiptum eptir gömlu lagi, og þykir gott, þegar það fæst.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.