Ísafold - 04.05.1892, Síða 2
142
tollum á auð og tekjur, og svo miðað til
Ijettis fyrir þá, sem við lítil efni búa.
Laugardaginn fyrir páska rjeð einn af
þingmönnum, Moursund að nafni, sjer bana
með pístólu inni í einu herbergi þinghúss-
ins. Hann var hjeraðsdómari norður í Ló-
fót, en vissi um sig uppkomna óskilameð-
ferð á dánarbúi, sem blöð hægrimanna
myndu vekja máls á.
A þingi Svía hafa tollverndarmenn beðið
nýlega ósigur, og hið sama um ráðaneytið
að segja, þar sem til hinnar gömlu streitu
kemur fyrir efling hers og varna.
England. Við kosningarnar í Lundún-
u>n til borgarráðsins unnu frelsis- og fram-
fara-vinir meiri sigur en við var búizt, er
84 (þeirra 118 er borgarmenn sjálfir kjósa)
urðu af þeirra liði, en af íhaldsmannaliði
34. þ>eir hafa því ekki lítið til síns máls,
sem segja, að þetta viti á kosningasigur
Gladstoninga í höfuðborginni, þegar þar
að kemur.
Löngu þrefi með Englendingum og Banda-
ríkjunum í Norður-Ameríku um selveiðarjett-
indi í Beringssundi ætla hvorutveggja að
láta lykta í gerðardómi, en koma sjer sam-
an um bráðabirgðagreinir þangað til dóm-
urinn er upp kveðinn.
Nýlega hafa Englendingar hleypt á flot
stærsta bryndreka, sem til er í heimi. Hann
er á lengdina 380 fet, á breidd 75, á hæð
44^, en stálpanzarinn 18 þuml. þar sem
þykkast er.
í miðjum marzmánuði var sá maður
fjötra settur í Ástralíu, Deeming að nafní
sem ótrúlegasta ódáðaverk hefir unnið; ban-
að, að því sannað þykir, tveimur konum
sínum (eða þremur) og með hinni fyrri 4
börnum. þ>á bjó hann í þorpi, er Bainhill
heitir, nálægt Liverpool, í litlum garði af-
skekktum, en þar gróf hann líkin 5 undir
gólfinu, og lagði það síðan múrlími. Eptir
það hjelt hann úr landi, en sagðist hafa
sent konu og börn á undan sjer. Að hjer
um bil ári liðnu kom hann aptur til Rain-
hill, þá í hermannabúningi og nefndist öðru
nafni, bjó í gestahöll í Liverpool, jós ut
peningum og leigði sjer lystigarðinn, sem
fyr var getið. Hann festi sjer enn unga
stúlku, og dansaði við hana á múrlímsgólf-
inu. Síðan hjeldu þau til Ástralíu, og þar
banaði hann henni og barni þeirra. Hann
hefir víða farið og verið, skipt opt um nöfn
bæði á Hollandi og í Suðurafríku svikið
banka og fjeflett með prettum einstaka
menn.
{•ýzkaland- Helztu tíðindi þaðan eru,
að Vilhjálmur keisari hefir látið stjórnina
taka skólalögin aptur, er hann sá að ann-
að mundi ekki tjá, en við það sögðu þeir
af sjer Zedlitz greifi (kirkjumálaráðherra)
og Caprivi. Fyrir áskorun hjelt Caprivi kan-
selleraembættinu, en sleppti fosetadæmi
Prússaveldisstjórnar. Við því hefir tekið
Eulenburg greifi, sem fór með innanríkis-
mál á Bismarcks tímum. Með þeim dró
sundur, og svo þykir hætt við að fara
kunni með þeim Caprivi, og að Eulenburg
verði honum þungur í skauti í sambands-
ráðinu.
Á afmælisdag Bismarcks, l.apríl, streymdu
til hans heiðursgjafir og fagnaðarkveðjur,
sem fyrrum, eða svo ríkulega, að hann kvað
þær þjóðarþakkir vera sjer kærri og meiri
á metum en allar orðurnar, sem hann hefði
fengið um dagana.
í fylkingu apturhaldsmanna hefir til ó-
skilnaðar dregið út af apturtekning skóla-
laganna, eða jafnvel til tvídeildar.
Welfasjóðnum nú svo sleppt við hertog-
ann af Cumberlandi, að honum skal rnx
leigurnar greiða.
Frakkland- Á þinginu hefir allt skap-
lega farið til þessa, og ráðherrarnir hafa
enn gott atkvæðafylgi, enda hafa þeir tekið
öllu fjarri um einkamál við páfann, og heit-
ið að ganga hlífnislaust að hverjum klerki,
sem dirfðist að óvirða þjóðveldið eða sýna
því mótþróa.
það lagaboð er nú sarnþykkt, að hver sá
sæti lífláti, sem hefir sprengitundur til skaða
og eyðilegginga.
Við Senegal eiga Erakkar þar óþjálan
granna, sem er Dahomey-konungur. Hann
heitir Behanzin og gerði 1890 innrás í
strandalendur, sem þeir eiga eða hafa helg-
að sjer og halda verndarskildi yfir. þeir
hrökktu honum frá aptur, og ljet hann svo
leiðast til sáttmálagerðar. Til að gera hann
sjer gegnan og hollan hjetu þeir honum á
ári 20 þúsundum franka, en hann í móti
að láta allt þeirra í friði. Nú hefir hann
rofið sáttmálann og ætlar að sækja þá heim
í annað skipti, eða xreka þá alla í sjóinn«,
sem hann segir. Peningana hefir hann haft
til vígbúnaðar og vopnakaupa, en sum
frönsk blöð segja, að hann hafi góðar byss-
ur fengið hjá þýzkum kaupmönnum þar
syðra. Sagt er, að lið hans sje 14,000
manna, grimmar sveitir og harðfengar, en
meðal þeirra tvær skjaldmeyjasveitir, hvor
1500 kvenna, og þær illvígastar allra.
Frakkar efla nú lið sitt á þeim slóðum og
ráðast á móti »háfsa konungi«, sem hann er
kallaður; en hjer er erfitt að herja og illfc
il framsóknar sökum fjallvega, loptlags og
steikingshita.
Rússland- Harðæris- og hungurskvein-
in nokkuð minni en fyr, og björgum í betra
lag komið. Fyrir skömmu kom stórmikill
kornforðafarmur á höfn í Ríga; það var
hjálpræðissending frá Bandaríkjunum í Norð-
urameríku, og var hún feginsamlega þegin.
þrátt fyrir raunir ársins efla Rússar flota
sinn og kastalavarnir við Svartahaf með
svo miklu kappi og stórfenglegum tilkostn-
aði, sem væri þeim alráðið, að taka þar
innan skamms tíma til óspilltra málanna,
sem staðar varð að nema 1878.
Grikkland- Ráðherraskipti orðin, og
má kalla, að Georg konungur ræki Délyan-
nis úr öndveginu. Orsakirnar helztu voru
óreiðan í fjárhag ríkisins, en Delyannis
hafði eytt fje í óhófi til hers og landvarna,
Skuldir þessa litla ríkis komnar upp í 750
miljónir franka. Constantinopulos heitir sá,
sem nú hefir forstöðu fyrir stjórninni, en
flestir ætla, að Trikupis taki aptur við
henni eptir kosningarnar nýju. Hann er
beztur talinn í skörungatölu Grikkja.
Serbía. Milan konungur hefir nú afsal-
að sjer öllum áskildum frumtignum í Serbíu,
já, sjálfum þegnrjettinum, og heitið aldrei
þar að koma. Fyrir þetta hefir hann feng-
ið 2 miljónir ftanka. Serbar kalla því fje
vel varið.
Belgía. Af loptkveikjugasi varð það
manntjón í miðjum marzmánuði í einni
kolanámunni, að 250 manns, sem þar voru
niðri, höfðu annaðhvort bana eða lemstra..
í>eir um 90, sem lífið Ijetu.
Frá Japan- þar eru nýjar kosningar
um garð gengnar, og stjórninni heldur í vil,
en sóttar með svo miklum ákafa og flokka-
forsi, að víða sló í baráttu og skothríðar.
Tuttugu menn ljetu líf fyrir, en 130 fengu
sár og örkuml. — »Já, þeir fara nú að læra
allt af okkur til hlítar, námfúsu bræðurnir
í Japano, segja sum Evrópublöðin í hálfu
skopi.
Frá Suður-Ameríku- Margt er það-
an borið í hraðfrjettum og margt aptur bor-
ið af óróa í Argentínu og víðar, en það mun
satt frá Brasilíu, að eitt af útsuðurfylkjun-
um, sem Mattó Grossó heitir, hefir sagt sig
úr sambandinu. Ibúar þess viðlíka margir
og á Irlandi.
Vibbætir 21. apríl. það er af þingkosn-
ingum Dana að segja, sem fóru fram í
gær, að vinstri menn (2) og sósíalistar (2)
hjeldu þingsætum sínum í höfuðborginni-
en atvæðagreiðslan sýndi það á öllum stöð-
um, að kjósendatala þess liðs hefir drjúg-
um aukizt. Annars höfðu vinstri menn
þann ósigur á öðrum stöðum, að tala þeirra
á þinginu er nú komin niður í 32 (eða, ef
nær er farið, 29) úr 38. í Kjöge var
Hörup steypt af stóli.
Nýjar sögur eru bornar af vjelum óald-
armanna, eða uppgötvunum sprengivjela, frá
Spáni, Ítalíu og Ameríku, en voðaspellum
hefir aptrað orðið.
Frá Italíu- Sá ágreiningur er nú ris-
inn með ráðherrum konungs, sjerílagi ráð-
herra fjármála og hermála, um framlags-
auka til hersins eða minnkun hans, að nú
er los á ráðaneytinu, sem Rudini á erfitt
að gera við; en það er um leið uppkom-
ið, að fjárhagur ríkisins er langtum verri,
en látið hefir verið.
Póstskipið Laura (Christiansen) kom,
hingað í lyrri nótt og með henni allmargir far-
þegar, einkum kaupmenn og verzlunarmenn,
bæði hingað og til vesturhafnanna; Dith
Thomsen, Eyþór Felixson (með konu sinni),
Valg. Breiðfjörð (með konu og fósturdóttur);
|>orst. Egilsson frá Hafnarf., er sigldi með.
síðasta póstskipi; Sig. E. Sæmundsen frá
Ólafsvík; Holg. Clausen frá Stykkishólmi
(með konu sinni); Björn Sigurðsson frá
Flatey; N. Chr. Gram frá jpingeyri; L. A.
Snorrason frá Isafirði. Sömul. verzlunarm.
Kristján Jónasarson. Enn fremur stúdent-
arnir Pjetur Hjaltested og Brynjólfur Kuld;
og danskur dýrafræðingur, Lundbeck, til
sjódýrarannsókna hjer við land. Loks frá
Vestmannaeyjum Jón sýslum. Magnússon
o. fl-
Embætti. Eyjafjarðarsýsla og bæjarfó-
getaembættið á Akureyri er veitt cand. juris
Klemens Jónssyni, er settur var í það em-
bætti í fyrra.
Síra Jón Bjarnason í Winnipeg var
á heldur líklegum batavegi, er skrifað var
þaðan nú fyrir mánuði. |>«gar hann var
búinn að liggja mjög þungt haldinn í 12
vikur, opt dauðvona, gróf stóran sull út um
holdið, og tók þá sóttin snöggum umskiptum
til batnaðar.
Jón Ólafsson er orðinn ritstjóri
»Heimskringlu«, er um leið hefir innlimað í