Ísafold - 07.05.1892, Blaðsíða 1

Ísafold - 07.05.1892, Blaðsíða 1
Kemur út á miðvikudögum og laugardögum. Verð árg (um 100 arka) 4 kr., erleud- is 5 kr.; borgist fyrir miðjan júlímánuð. r Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema kom- in sje til útgefanda fyrir 1. októbermán. Afgreiðslustofa í Austurstrœti 8. XIX. árg. Reykjavík, laugardaginn 7. mai 1892- ;37. blað SKRIFSTOFA ísafoldar er opin hvern virkan dag kl. 1—3, og er ritstjórann að -e i n s að hitta á þeim tíma. Áskorun. Eins og opt hefir verið tekið fram, ber brýna nauðsyn til þess, að verulegar um- bœtur eigi sjer stað á allri saltfisksverkun. Við viljum þess vegna skora fastlega á alla þá, er fiskverkun hafa á hendi, eða hafa umsjón með henni, að þeir hver í sínu lagi, gjöri sjer allt far um að endurbæta hana frá rótum. jpað, sem einkanlega er fundið að fiskin- um, er það, að hann sje: cLökkur, illa þveginn, of mikið saltaður, ekki hráalaus, ósljettur, að roð hangi við hnakkakúlurnar, og að hann sje blár i þunnildunum. Afleiðingin af þessu verður svo sú, að fiskurinn verður jarðsleginn og geymist illa. Eins og nú er ástatt, er það sannarlegt velferðarmál, að þessu verði alvarlegur gaum- ur gefinn, og að nú þegar verði breytt til vendegra bóta. — f>að er hvorki stjórnin nje ný lög eða samþykktir, sem bezt geta hrundið þettu í lag, heldur að eins það, að hver einstakur taki sjer verulega fram 1 þessu efni og gjöri allt titt til að vanda verkun á fiskinum sem bezt, að hver og einn láti þv0 fiskinn úr hreinum sjó, fergja hann nægilega, ná úr honum öllum hráa, ng yfir höfuð viðhafa alla varkárni við með- ferð hans. Að eins með þvi, að almenningur taki sjer verulega fram í þessu efni, er nokkur von til þess, að bót verði ráðin á því óorði, sem nú er komið á fisk hjeðan frá Faxa- flóa. — Sje þéssu máli eigi nægilegur gaum- ur gefinn, verða afleiðingarnar eflaust þær, að fiskur hjeðan frá Faxaflóa verður erlend- is talinn til 3. eða 4. tegundar í saman- burði við góðan og vel verkaðan fisk, og fer þá auðvitað verð á honum eptir því. Eeykjavík og Hafnarfirði, 6. maí 1892. Guðbr. Finnbogason. G. E. Briem. Norðmenn Qölga búnaðarskólunum- f>eir menn, sem vilja fækka búnaðarskól- um vorum, segja oss, að Norðmena hafi einu sinni eignazt 20—30 búnaðarskóla, og hafi fellt þá flesta niður aptur á fáum árum, svo ekki sjeu eptir nema 6 af þeim. Vilja þeir með þessu telja oss trú um, að hið eina rjetta, sem vjer getum gjört f búnaðarskóla- málinu, sje, að leggjajniður 2 eða 3 af vor- um 4 búnaðarskólum. Búnaðarskólar Norðmanna voru nú raun- ar aldrei nema 18, þegar þeir voru flestir, og 19 með búnaðarháskólanum. En það gjörir nú minnst til, þó að mótmælendur skóla vorra hafi teygt úr skólafaraldri Norðmanna 1 frekara lagi; hitt er meira vert, að þessir menn minnast ekkert á það, að Norðmenn eru nú í óða-önn að reisa sína amta-búnaðarskóla á fætur aptur. þeir hafa þegar komið á fót 4 nýjum skólum, svo að þeir hafa nú 10 amta-skóla, og svo neðri deild búnaðarháskólans, sem er svipuð amtaskólunum. (í »f>jóðv. unga« 6. f. m. hef jeg getið þess, að amts-búnaðarskólar Norðmanna mundu nú vera 8 eða fleiri, en mjer hafði sjezt yfir, að 2 búnaðarskólar komust á fót ncestl. haust í Norðlands-amti og í þrándheims-amti). Andmælendur fjórð- ungaskóla vorra geta þess ekki, að Norð- menu iðruðust skjótt eptir skólaniðurskurð- inn, og að nálega á hverju ári síðan 1877 hefir verið rætt um að endurreisa búnaðar- skóla í einu eða öðru amti. Hvers vegna þegja menn um þetta? Vita þeir ekki af því, eða vilja þeir ekki minnast á það? |>að mundi þó varla skaða, að veita þessu atriði eptirtekt, úr því menn vilja taka Norðmenn til samanburðar í búnaðarskóla- málinu. I norskum ritum má fá nógar sannanir fyrir því, að skammt leið frá því, að Norð- menn höfðu fellt skólana niður, og þar til þeir tóku til að reyna að reisa þá á fætur aptur. Stórþingismaður G. Wankel fór nokkrum orðum um þetta atriði í »Norsk Landmandsblad« — aðalbúnaðartímariti Norðmanna — 1889, nr. 12, þar sem hann skýrir frá nýstofnuðum búnaðarskóla, og vil jeg lofa löndum mínum að sjá, hvað þessi maður segir um búnaðarskólamál Norð- manna. þó að orð hans snerti oss ekki beinlínis, þá geta þau að mínu áliti gefið oss ýmsar bendingar, og þar eð greinin er ekki löng, þá tek jeg hana eins og hún er, og hún er á þessa leið: »í fyrra skýrðum vjer frá, að á Sem í Asker væru bræðurnir B. og W. Holtsmark að stofnsetja búnaðarskóla, og gátum vjer þess, að lærisveinar yrðu teknir á skólann úr Akurhús- og Buskeruds-ömtum, og að ömtin mundu leggja fje til fyrirtækisins. Vjer skulum nú skýra frá kostnaði þeim, sem þetta fyrirtæki hefur í för með sjer, samkvæmt þeim skjölum, sem lögð voru fyrir stórþingið*. iMenn muna, að stofnendur jskólans eiga jörðina og búið, og hið opinbera hefir engan kostnað til lagt til að koma skólanum á fót. Útgjöld amtanna og ríkissjóðs er að eins hinn árlegi styrkur, sem skólinn nýt- ur«. »Úr Akurhús-amti hafa verið teknir 8 lærisveinar, með styrk, og öðrum 8 læri- sveinum verður bætt við í haust. Læri- sveinarnir eiga að dvelja á skólanum 1J ár, tvo vetur og eitt sumar. Kennslan er yfir höfuð viðlíka mikil og með líku sniði og á hinum öðrum amtsbúnaðarskólum. Reglu- gjörð fyrir kennsluna hefir verið samþykkt af innanríkisstjórninni, og búnaðarmálafor- stjórinn hefir eptirlit með skólanum. Hver lærisveinn greiðir sjálfur alls 200 krónur fyrir fæði, húsnæði og kennslu á skólanum, en á hverju ári fær 1 lærisveinn skólavistina borgunarlaust, og 2 aðrir borga að eins 100 kr. hver. þar að auki ábyrgist amtið skól- anum 2400 kr. styrk, ef lærisveinarnir eru 8, en frá 14. október í ár verður styrkurinu 3600 krón., þar eð lærisveinum verður þá fjölgað upp í 16 að vetrinum, en 8 verða að sumrinu, sem áður. Enn fremur legguy amtið til 200 kr. á ári fyrir ýmsan auka- kostnað við kennsluna. Varla er vafi á því að stórþingið muni veita helminginn af kostnaðinum við skólann og verður þá tillag amtssjóðsins hjer um bil 2000 kr. á ári«. »1 Buskeruds-amti er tilhögunin nokkuð öðru vísi. Amtssjóður veitir þar allt að 3000 kr. sem styrk fyrir unga menn, er vilja nema búnað, og er ætlazt til, að þeim sje útveguð bæði verkleg og bókleg kennsla í tvö ár, á opinberum eða prívat-búnaðar- skóla, eða að þeir fái kennslu á búnaðar- skóla í 2 vetur, og í 2 sumur hjá góðum bændum. Nú hefir verið veitt meðgjöf að öllu leyti með 7 lærisveinum, og að f fyrir hina 8. Oll meðgjöfin er 600 kr. fyrir hvern lærisvein yfir allan tímann, nefnilega 2 ár, eða 300 kr. á ári. Lærisveinarnir hafa nú verið teknir inn á búnaðarskólann á Sem í Akurhúsamti. Amtið áskilur, að ríkissjóður leggi fram helming af meðgjöfinni«. »Oss virðist að þetta búnaðarkennslu-fyrir- komulag, einkum það sem fylgt er í Akur- húsamti, sje mjög eptirtektarvert fyrir þau ömt, sem engan búnaðarskóla hafa«. »jþað mun hafa verið almenn skoðun á 8einni árum, að kennslan á amta-búnaðar- skólunum ætti helzt að fara fram á jörð, sem amtið ætti, og ætti að vera bæði verkleg og vísindaleg. Vjer munum líka varla fara villt í því, að almenningur hafi álitið, að ekki fengist ríkissjóðsstyrkur fyrir aðra skóla eu þá, sem þannig væri hagað. Vjer höfum líka ávallt álitið, og álítum enu þá, að hin lægri búnaðarkennsla (amtaskól- arnir í Norvegi eru nefndir lægri búnaðar- skólar gagnvart búnaðarháskólanum í Asi, og kennslan á þeim hin lægri búnaðar- kennsla) ætti að vera tengd við jörð og bú, en þó þannig, að lærisveinatalan sje ekki fast bundin við þá^fáu lærisveina, sem geta fengið nægilega kennslu í hinu verklega á

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.