Ísafold - 06.08.1892, Blaðsíða 4
262
að hoyri undir okur ? t. d. eí' tekin er vætt
eptir hundraðib ?
Sv.: Frjálst er að leigja jörð sína svo hátt,
sem leigumaöur vill að ganga, hvort sem henni
fylgja hlunnindi eða ekki, og segist ekkert á.
Áskorun. Mjer heyrist allmarga fýsa
í hvalskurð þann, er nefnist þingmennska
fyrir Borgarfjarbarsýslu. Hvernig vœri
að þeir sýndu sig allir á fjörunni hjer á
Akranesi einhvem tíma nokkru fyrir kjör-
fundf Akranes er fjölmennasta byggðin
í sýslunni, og liklegt, að kosning fari tals-
vert eptir þvi, hvernig almenningi þar lízt
þingmannaefnin. Pessi hugsun og tillaga
er eklci mín einsamáls, heldur margra
málsmetandi manna hjer, er jeg hefi átt
tál við.
Akranesi i júlímánuði 1892.
R. Þorst. Jónsson.
Misprent. Nokkur expl. af síðasta hl.
voru dagsett laugardag í stað miðvikudags
(en mánaðardagur rjettur.).
JJinum heiðruðu lántakendum í Búnaðar-
fjelagi Suðuramtsins auglýsist hjer með, að
vaxta-gjalddagi fjolagsins var 11. júní þ. á.
Eru því þeir lántakendur, er enn eigi hafa
greitt vexti sína, vinsamlega beðnir að
greiða ])á sem fyrst.
Reykjavík 6. ágúst 1892.
G . Z o é g a
p. t. gjaldk.
Verzlunarmannafjelag Reykjavíkur.
Duglegur verzlunarmaður, sem verið hefir
hókhaldari í mörg ár, er vel að sjer og
hefur heztu meðmæli, óskar að fá atvinnu
nú þegar. Fjelagið gefur uppíýsingar.
HESTAR fást til leigu til útreiðar og ferða-
laga úr því næsta vika kemur. Ritstjóri vís-
ar á.
Fundizt hafa peningar á götum bæjar-
ins og eru geymdir hjá fangaverði S. Jóns-
syni.
l æ s
Mod Indsendelse af Kr. 5.00 sender jeg
alle Pladse i Landet fragtfrit et meget
praktisk Fotografiapparat hvormed en-
hver uden Forkundskaber kan levere
virkelig smukke og gode Fotografier i al-
mindelig Yisitformat.
Apparaterne leveres under Garanti med
Brugsanvisning.
Joh. A. Wilson
Skippergaden No. 13 B.
Kristiania.
Góð snemmbær kýr
(á að bera í 4 v. vetrar) fæst keypt hjá
N. Zimsen í Reykjavík.
Samkvæmt opnu br. 4. jan. 1861 og lög-
um 12. apríl 1878 er hjer með skorað á
aila þá, sem til skulda kynnu að telja í
dánarbúi mágs míns, Jóhanns sál. Guðna-
sonar á Halldórsstöðum í Laxárdal, til að
koma fram ineð kröfur sínar og sanna þær
fyrir undirskrifuðum innan 6 mánaða frá
síðustu (3.) birtingu auglýsingar þessarar.
Sömuleiðis er skorað á þá, sem kunna
að hafa átt hinum framliðna ógoldnar
skuldir, að segja til þeirra.
Bakka á Tjörnnesi þ. 6. júlí 1892.
Jóel Gíslason.
Uppboðsauglýsing.
Þriðjudag 9. þ. m. verður selt á uppboði
hjá Waageshúsi (Pósthússtræti nr. 16) ým-
islegt viðarbrak, timbur, tunnur, kassar
og fleira.
Uppboðið byrjar kl. 11. Uppboðsskil-
málar birtir á uppboðinu.
Reykjavík 6. ágúst 1892.
S. E. Waage.
Bókbandsverkstofa
Isafoldarprentsm. (Austurstr. 8)
— bókhindari Þór. B. Þorláksson —
tekur bækur til bands og heptingar.
Vandað band og með mjög vœgu verði.
Uppboðsauglýsing.
Föstudaginn 12. þ. m. kl. 11 fyrir hád.
byrjar stórt uppboð í verzlunarhúsum kon-
súls N. Zimsens hjer í bænum, og verður
þar selt: um 300 tunnur af salti, ýmsar ný-
lenduvörur, reyktóbak, vipdlar, rauðvín,
messuvín og brennivín, franskt kex, sápa,
sóda, litunarefni og farfl, klæði og annar
vefnaður úr ull og bómull, segldúkur,
boldang o. fl., alls konar tvinni og zefyr-
garn, járnvörur, margar tegundir, leir- og
gleríát, stundaklukkur, færi og seglgarn,
smíðajám og hestajám, borðviður og spír-
ur, franskar nautshúðir, mikið af glysvam-
ingi, ýmsar pletvörur, pappír, hattar og húf-
ur, skófatnaður, flöskutappar og margt
fleira.
Söluskilmálar verða auglýstir við býrjun
uppboðsins.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 6. ágúst 1892.
Halldór Daníelsson.
»LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR«
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynleg-
ar upplýsingar.
Skrifstofa fyrir almenning:
10 Kirkjustræti 10
opin hvern rúmhelgan dag kl. 4—5 e. h.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. 11-12
Landsbankinn opinn hvern virkan d. kl. 11 ‘Þ-21/*
Landsbókasafnið opið hvern rúmh. d. kl. 12—2
útlán mánud., mvd. og ld. kl. 2—3
Málþráðarstöðvar opnar í Rvík og Hafnarf.
hvern rúmh. dag kl. 8—9, 10—2 og 3_5
Söfnunarsjóðurinn opinn 1. mánud. í hverjum
mánuði kl. 5—6.
Veðuratliuganir í Reykjavík.
Júlí Ágúst Hiti (A Celsius) Loptþ.mæl. (millimet.) Veðurátt
á nótt. urn hd. í'm. em. fm. em.
Mvd. 3. 13 746.1 N h 1.
Fd. 4. 7 11 754.0 753 3 A h d A b d
Fsd. 5. 5 13 766 0 765.7 0 b N h d
Ld. 6. 6 757.8 A h b
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Prentsmiðja Isafoldar.
162
mjer aptur. Jeg hafði eigi veitt því eptirtekt, að vagn-
lest kom utan göngin með þeirri fieygingsferð, að vjer
fengum rjett með naumindum skotizt inn í veggskot, er
til hliðar lágu, og kúrðum þar, meðan hún þeyttist fram
hjá með braki og brestum.
Jeg hafði eigi átt slíkum háska að venjast, og fvrir
því kom svo mikill óstyrkur í mig allan, að ætlaði vart
að geta valdið rekunni.
»Hvernig skyldi henni Onnu minni vera núna innan
brjósts, ef hún vissi, að jeg va‘ri hjer staddur?« hugsaði
jeg með sjálfum mjer og var hjartanlega ánægður af því,
að jeg hafði eigi tjáð henni frá, hvers konar vinna það
var, er jeg hafði á hendur tekizt.
Vjer skriðum skjótt aptur út úr skotunum, en eigi
leið á löngu, áður en skrölt og skarkali barst oss til eyrna
og vjer eygðum í fjarska ljósker brautarlestar, er nálg-
aðist, sem óskærar stjörnur væri. Verkstjórinn bað oss
að gæta vor, og vjer skýldum oss aptur í veggskotunum.
Stjörnur þessar urðu æ skærari og köstuðu hrævabjarma
á hina votu veggi. Þær fóru svo sem vaxandi, því meir
sem þær nálguðust, og stefndu svo nær oss, sem þær
myndi kveikja í oss og brenna oss upp til agna. Þá
heyrðist skrölt hátt og hvinur mikill og bjart leiptur bar
fyrir augu. Lestin skrapp fram hjá og við hjeldum leið-
ar okkar.
163
Það var allt annað en fljótunnið að komast áfram,
því að vart liðu meir en þrjár mínútur í milli lestanna,
og í hvert sinn urðum við að skjótast undan svo sem
hálfri mínútu fyrr, til þess að sjá oss borgið. Sumum
kynni að sýnast slíkt óþarfleg tímaeyðsla. En svo var
fyrir lagt, að vjer skyldum víkja úr vegi svo löngum
tíma áður. Mig minnir, að það væri sjö vagnlestir, cr
við urðum fyrir að víkja, áður en vjer kæmumst þangað,
er til starfa átti að t.aka.
Það er í meira lagi óskernmtilegt að þurfa að starfa
niðri í slíkum göngum fyrir mann, sem slíku er allsendis
óvanur. Ilvervetna leggur að manni sviðalykt ogfúalykt
í nasir; það er rjett svo sem eimvagnarnir hafi í sig sólg-
ið lífvænlegt lopt, en leift eptir svælu eina. Vjer festum
lampann á járnsúlur, er vjer höfðum með, og festum í
jörð niður i millum brautarjárnanna, en það bil nam svo
sem sex fetum. Og svo ætluðum vjer að fara að taka
til starfa.
Mjer var það með öllu óskiljanlegt, að vjer mundum
nokkurn tíma fá lokið þessu starfi, því, að bæði var það,
að lestir voru sífellt á ferðinni, svo að vjer höfðum naum-
ast næði til að moka svo sem tiu rekur, áðuren vjer urð-
um undan að hrökkva, enda virtist verkið mundu vera
seinlegt i sjálfu sjer, þar eð brautarjárnin höfðu svignað
á lörigu svæði. Fyrst var að pjakka mölina undan þeim,