Ísafold - 25.02.1893, Qupperneq 1
Komur út ýmist ©inu sinni
eða tvisvar í viku. Verð Arg.
(75—80 arka) 4 kr.. erlendis
5 kr. eT)a 1 */* doll.; borgist
fyrir mibjan júlímán. (erlend-
is fyrir íram).
1SAF0LD.
Uppsögn(skrifleg)bundin -vib
Aramót, ógild nema komin
sje til útgefanda fyrir 1. októ-
berm. Afgroibslustofa blaös-
ins er i Austurstrœti 8.
Reykjavík, laugardaginn 25. febr. 1893.
XX. árg. ||
Varúðarreglur gegn kóleru.
Eptir
landlækni Schierbeck.
II.
(Siðai'i kafli'.
Vjer höfum nú hjer að framan minnzt á
hin helztu ráð til að verjast kóleru, er hún
vofir yfir eða er komin. Þær ráðstafanir
hafa þann kost, að þær má gjöra með
skömmum fyrirvara, ef' nóg kapp er á lagt
og nokkuð í sölurnar lagt. Þær eru áríð-
andi. En hitt er þó meira umvert, að ala
yfirleitt önn fyrir, að jarðvegurinn sje hreinn
afþesskonar efnum, er sóttkveikjan daf'n-
ar við. Því að til þess að veruleg kóleru-
landfarsótt geti komið upp, er eigi nóg, að
sóttkveikjan berist hingað, heldur verður
jarðvegurinn að vera hagfeldur fyrir vöxt
og viðgang bakteríanna annarsstaðar en í
líkama mannsins. Fái þæi þess konar gróðr-
arreiti, ráðast þær þaðan á þá, sem þar
búa nærri, og verða svo ákaflega hættu-
legar vegna þess, að þær sjást ekki; það
er barátta við hið ósýnilega. En það er
nú einmitt samsafn saurinda og ýmiss kon-
ar úrgangs úr dýra- og jurtaríkinu, sem
er a.ð rotna, er verður að slíkum gróðrar-
stíum fyrir bakteríurnar. Forsvaranleg
meðferð á slíkum ef'num og sk,jót brott-
f'ærsla þeirra, nægilogt afrennsli fyrir skólp
o. s. fr., — það eru ráðin, er hafa verður
til að reyna að halda jarðveginum hrein-
um: að sjá um þaö, og svo að útvega gott
og hreint drykkjarvatn, það eru hin mik-
ilvægustu atriði í almennum heilbrigðis-
ráðstöfunum. Takist það á tíma hættunn-
ar, er alvarleg sótt gengur, með því að
beita allri atorku og leggja stórfje í kostn-
að, að vinna bug á sóttinni með framúr-
skarandi hreiniætisráðstöfunum, þá er það
í rauninni ekki annað en það, að jarðveg-
urinn hefir þá í bráð verið gerður illa lag-
aður til þess, að sóttkveikjan geti æxlast
þar og dafnað; en þá sjest það líka, þó
seint sje nokkuð, að þetta hef'ði mátt vinna
sjer mun hægra, og ekkert manntjón þurft
að verða, ef' í tíma hef'ði verið annazt um
að halda jarðveginum hreinum. Því betur
og rækilegar sem leitazt er við á friðar-
tímum að rýma burt fyrtjeðum efnum, því
betur geta ráðstafanirnar í fyrra flokknum
(hjer að framan) komið að haldi. Hve
mikið sje í það varið, að rýma burt þess-
um efnum, má glöggt marka á því, að í
stórborgunum vilja menn fúslega leggja í
sölurnar svo miljónum króna skiptir til
þess að koma þessu í gott lag; því stór-
bæjum er hættast við öllum landfarsóttum.
Nú er Reykjavík raunar enginn stórbær,
heldur aðeins þorp. Loptið er yfirleitt gott
og heilsusamlogt, og húsin standa ekki svo
þjett, að það hafi eigi nóg rúm til að bylta
sjer innan um þau. En þó ætla jeg eigi
allsendis úrhæfis í þessu sambandi, að líta
eptir, hvert svo er búið um brottfærslu
saurinda og frárennsli skólps, að hægð-
arleikur sje að hreinsa jarðveginn), og
verja sóttkveikjunni að taka sjer bólfestu
umliverfls hýbýli vor. Það mun að rjettu
lagi verða að telja jarðveginn lijer í Rvík
mjög óhreinan sakir þess, hve viða er safn-
að áburði hjer inni í bænuni, og sjerstaklega
vegna þess, að hjer er ekkert frárennsli
fyrir skólp og þcss háttar, svo að það
kemst ekki burtu, heldur verður jörðin að
drekka það í sig, en þar af lciðir aptur,
að hið óhreina vatn getur hæglega sigið
inn í brunnana, sem eru yfirleitt með ofan-
jarðarvatni.
Hver sem þekkir afstöðu Reykjavíkur,
veit, hve örðugt er um frárennsli frá mið-
petti bæjarins, í kvosinni, og mætti ef til
vill ætla, að hallaleysið væri aðalorsök
þess, að sorprennur hjer eru svo óhreinar
og ljótar. Auðvitað er góður halii mikils-
verður. En að það er eigi nóg, má giöggt
sjá, ef' skoðaðar eru rennurnar, sem liggja
ofan hinar byggðu brekkur beggja vegna,
austan og vestan, niður í miðpetti bæjar-
ins; því þær líta eigi hóti betur út en hin-
ar í miðhænum; þar er þynnsta skólpið
runnið burtu, en hitt eptir, og safnast þann-
ig sorpið 'f'yrir í smærri og st.ærri, þefillar
hrúgur. Það er vatn, sem vantar, til að
skola burt og hreinsa. Ef svo færi, að vjer
þyrftum nú í sumar á að halda daglegri
sótthreinsun á rennunum hjer til lengdar,
þá yrði að láta bera nægð af vatni upp
á hæðirnar beggja vegna. og láta svo sófl-
ana ganga, eina tíu sófla, eptir rennunum
alla leið niður úr í gegn. Því að láta mann
með skóflu í hendi moka burtu rnesta sorp-
inu einu sinni eða tvisvar á sumri, getur
að visu verið nokkurs vert frá fegurðar
sjönarmiði eða glatt augað ; en sem heil-
brigðisráðstöfun er slík hreinsun þýðingar-
laus, með því að jafnan verður eptir nóg
sorp til hœlis bakteríum miljörðum sam-
an. Slík rækileg sótthreinsun árennunum
í Reykjavík verður enginn hægðarleikur,
ef á að bera vatnið upp á hæðirnar og
berjast við hinn ósljetta botn í rennunum
— víða eru þær jafnvel alveg botnlausar
með djúpum holum og fylgsnum inni á
milli steinanna í rennubörmunum —, og
þegar loks er einnig hallaleysið við að
stríða og frárennslisleysið í miðbænum.
Þó að hættan jafnvel vofi yfir, verður
naumast unnt að sótthreinsa rennurnar svo
lið sje í og rækilega ; það verður að minnsta
kosti mjög svo örðugt og kostnaðarsamt, í
því ástandi, sem þær eru nú. Að stinga
nú upp á stórum neðanjarðarræsum eða
kostnaðarsömum stífluumbúnaði bæði nið-
ur við sjó og suður við Tjörn, og að sprengja
10. blað.
upp botninn á iæknum, — það mundi vera að
reisa sjer hurðarás um öxl að svo stöddu;
en talsvert má þó afreka til hollustu fyrir
bæinn og án of stórkostlegs kostnaðar,
ef unnið er að því ár eptir ár. Með nokk-
urri leit má sjálfsagt ná i vatn í hæðun-
um fyrir austan bæinn og vestan; þótt ekki
væri neyzluvatn sem væri auðvitað á-
kjósanlegast —, þá væri samt mikið í það
varið. Ef svo væri gerðar nokkrar aðal-
rennur með sljettum botni niður brekkurn-
ar og þær skolaðar með nægu vatni og
góðum sóflum, mnndi brátt mega komast
fyrir eins áreiðanlega og með beztu halla-
mælingu, hvar væru verstu þröskuldarnir
fyrir frárennsli um miðbæinn, í kvosinni ;
mundi þá að líkindum nýja rennan, »gull-
rennan»,sem svo er kölluð, geta orðið nýti-
legur liður í því kerfi. Þá mundi og mega
fara nær um, hvert lið gæti orðið að því,
að dýpka lækinn hæfilega og hafa þar
stífluumbúnað, í því skyni að fá frárennsli
frá miðbænum.
Athugum vjer þar næst hið mikla sam-
ansafn af saur og úrgangi hingað og þang-
að um bæinn, munum vjer sjá, að það
stafar að miklu leyti f'rá hinu mikla kúa-
haldi lijer í bænum. Að mykja undan
kúm sje látin safnast fyrir á vetrum, verð-
ur að láta svo vera, enda er það naumast
til muna hættulegt; en sumarmykjuna ætti
að flytja burt úr bænum á viku hverri. Þó
að múraðar gryfjur með loki yfir sjeu mik-
ið góðar frá fegurðar sjónarmiði og til
drýginda fyrir áburðinn, þá er mjög valt
á að ætla, að sá umbúnaður komi að
nokkru liði hvað hollustu snertir ; til þess
er oförðugtað sótthreinsa þær af bakteríum,
svo að óyggjandi sje. Má vera, að nokk-
uð minna sígi úr þeim í jörðina umhverfis,
ef þær eru vel gerðar, enda kann og minni
hætta af því að stafa niðri í kvosinni að
minnsta kosti, þar sem sterk selta sígur i
gegnum jörðina frá sjónum.
Að því er salerni snertir, getum vjer að
svo stöddu eigi hugsað til annars fullkomn-
ara handa Reykjavík en að liafa tunnur
undir saurinn, eins og nú er gert; það er
mikið happ, að vjer höfum eigi salernis-
gryfjur. Þegar liættuna ber að, er oss inn-
an handar að hreinsa tunnurnar betur en
nu gerist og tæma þær aptur og sót.threinsa
daglega það sem í þeim er.
Aptur er hjer miklu ábótavant að þvíer
snertir burtflutning matreiðslu-iirgangs og
þess háttar. Þess konar dóti eropt fleygt
skammt frá húsunum og safnast þar í stór-
ar hrúgur, meira eða minna úldið og rotið.
Sje ókleyft að láta vagn fara nm göturn-
ar svo sem tvisvar í viku til þess að hirða
þær, mætti samt lát.a lögregluþjónana að
minnsta kosti á sumrin hafa góðar gætur
I á slíkum stöðum, þar sem verst er, einkum.