Ísafold - 16.12.1893, Blaðsíða 1

Ísafold - 16.12.1893, Blaðsíða 1
K©n»ur út ýmist emu sinni ’eða trisvar í viku. Yerö árg (75—80 arka) 4 kr., erlendis 5 kr. et)a l1/* doll.í borgist fyrirmibjan júlimán. (erlend- is fyrir fram). 1SAF0LD. % Uppsögn(skrifleg)bundin vi& áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1.okt6" berm. Afgreibslustofa blabi- ins er i Austuratrœti 8. XX. árg. Reykjavík, laugardaginn 16. des. 1893. 78. blað. Afgr.stola landsbankans verður, eius og að undanfðrnu, lokuð dagana 22. des. til 4. ,jan- úar næstkomandi, að báðum þeim dögum ineðtöldum. Landsbankinn, Reykjavík 15. desbr. 1893. Tr. Grunnarsson. Hvernig íslendingar nota frelsi sitt og sjálfsforræði. Eptir Vagn. IV. Samþykktavald. Áður en vjer lAtum mAli voru lokið um 'Tbjeraðastjórn landsins, vil juíu vjer með fám *orðum minnast á vald það, sem sumum hjeruðum heflr verið veitt og er veitt til þess að gera bindandi samþykktir um ein- stök mál, sem sjerstaklega snerta það eða það hjerað. Það er mjög frjálslegt fyrirkomulag, að leyfa einstökum hjeruðum að gera slíkar samþykktir; með því móti gefst almenn- ingi fyllsti kostur á að fjalia um mál sín; kunnugustu og skynsömustu menn hjeraðs- ins ættu þá að geta komið við hæflleikum sínum; áhugi almennings á sinni eigin heill ætti þá að geta komið i ijós; þar kemst engin harðstjórn að, inniend eða útlend; hjeraðshúar eru í einu orði einráðir og sjálfráðir um að taka þær ályktanir, sem þeir vita og finna, að þeim er fyrir beztu ■og sem eru skynsamlegastar og heillarík- astar fyrir alda og óborna. Og það er ekki til sjálfstjórn, ef hún er ekki lieimiluð hjer- uðunum með samþykktavaldinu, það sem það nær; menn geta ekki verið sjálfráðari um neinn hlut en að mega haga honum eptir vild sinni, einungis að ekki sjeu brot- in gildandi landslög. Það má því ef til vill segja, að samþykktavaldið sje hin hentugasta og næmasta vog til að vega á þroska manna og hæfileika til sjálfstjórnar. Sjálfsforræði og sjálfstjórn er, að mega ráða sínurn eigin sjálfstjórnarmálum til lykta sjálfur, án þess að óviðkomandi og ókunn- ir menn geti blandað sjer inn í það; lands- lýðurinn getur þó aldrei orðið sjálfráðari - en sjálfráður. Þegar nú heilum og fjölmennum bjeruð- um er veitt þetta vald, þá er þeim um leið geflð færi á að sýna það og sanna með ómótmælanlegum rökum, að almenningur viti sjálfur, hvað til hans friðar heyrir í því eða því efni, og um leið, að hann hafi vit, viija og áræði til að ráða málum sínum tii lykta á heillavænlegasta hátt. Það eru því tvær ástæður til þess að fara vel með þetta vald: meðferð þess á að verða hjeraðsbúum til sóma og til sannra gagns- muna- En nú kemur sú spurning: Hvernig nota menn þetta vald? Hefir meðferð þess orð- ið hjeraðabúum til sóma? hefir hún orðið til þess að staðfesta þá skoðun, að vjer sjeum færir um að fjalla um vor eígin mál, eða hefir hún sýnt, að yjer sjeum miður þroskaðir en skyldi? Hvað sem um þetta má segja, þá er það eitt víst, að meðferð þess hefir sýnt og sannað, að þverúð og þrályndi eru of rík- ar þjóðareinkunnir, að oss er hætt við að virða að iitlu skynsamleg i-ök og ástæður, en halda dauðahaldi í skoðanir þær, sem vjer einu sinni höfum bitið oss fasta i. Þessi iyndiseinkunn þjóðarinnar hefir orðið að fótakefli og hneykslunarhellu ekki síður í meðferð hjeraðamála en landsmála bæði fyr og seinna; því það er svo sem ekki ný bóla hjer á landi, að nauðsynjamál fara í meiri eða minni handaskolum, fá meiri eða minni óheppileg úrslit, afþví að hvorugur málsparturinn, ef um tvo er að ræða, vill eða kann að vægja. Hvernig hafa þá hjeraðabúar farið með samþykktarvaldið, þar sem þeim hefir ver- ið lagt það í lófa? Sumstaðar vel, því er ekki að neita, og er það vel. En sumstaðar hefir meðferð þess verið mjög á annan veg en æskilegt væri, farið meira eða minna í handaskoium, orðið heilum hjeruðum og einstökum mönn- um til niðrunar. Þetta leynir sjer ekki, ef rennt er auga yfir meðferð og gang sumra samþykktarmála frá upphafi til enda. Yanalega hefir máli því, sem samþykkt átti og þurfti að gera um, verið hreift fyrst í blöðunum; einhver hefir orðið til að skýra máliö, lýsa öllum kringumstæðum og brýna fyrir almenningi þörfina á að taka í taumana. Jafnharðan hefir þá ann- ar risið upp og reynt að rifa það niður, sem hinn byggði, reynt að drepa málið í fæðingunni. Rimman hefir svo smálengzt og harðnað, þangað tii bæði almenningur og litstjórarnir hafa verið orðnir svo leið- irá rifrildinu, að blöðunum hefir verið lok- að um stund fyrir fleiri deilugreinum um það efni. Já, já! Nú er þá málið komið á dag- skrá, allmikill áhugi vaknaður hjá hjeraðs- búum að fá einhvern botn í það. En — það er nú »hægra ort en gjört«, því all- miklar viðsjár eru orðnar með mönnum. Flokkarnir eru kannske eins margir og hrepparnir í sýslunni, og í hverjum hreppi er-ailt á sundrungu og í giundroða. Þáá nú að fara að halda fund, almennan alls- herjarfund til að ræða málið og ráða því til lykta. Eptir glamrinu að dæma, sem bergmál- að hefir um alla sýsluna, skyldi maður ætla, að heldur sæist »mannareið um lijer- að« fundardagsmorguninn! Jú, jú! Yiti menn! Ur sumum hreppum koma 2 og 3, en úr sumum enginn; en í hreppnum, sem fundurinn er haldinn í, er smalað saman öllum þeim, sem hægt er að hafa höndur í hárinu á, til þess að hafa afl atkvæða, hvað sem fyrir kemur. Hvað er svo gert á fundinum? Lítið eða ekkert annað en að hnakkrífast hálf- an eða heilan daginn; og síðan er hætt við allt að kvöldi hálfkarrað og óbotnað. Hver situr við sína meiningu, þvi að menn eru ekki komnir til að láta sannfærast, heldur til að berja sitt mál áfram með linúum og hnefum, ef unnt er. Svona er haldinn hver fundurinn á fætur öðrum; en allt af sama niðurstaðan: enginn botn. Meðan þessu fer fram í hjeraðinu, þá er rifrildið byrjað aptur í biöðunum, og er uú »hálfu verra heldur enn áður«, eins og Skjaldvör, er hún kom apturgengin. Þegar hjer er komið sögunni, sjá og finna beztu menn hjeraðsins, að »svoleiðis má eigi til ganga« ; er því gjörð hin ýtr- asta tilraun og um leið aflraun og fundur haldinn enn að nýju. Þar koma þeir nú bæði frá austri og vestri. Farísear og skriptlærðir, tollheimtumenn og bersynd- ugir taka þar höndum saman og leggja heilann í bleyti til að sjóða saman sam- þykkt, sem ekki hafi »blett nje hrukku«. Eptir æði-langan meðgöngutíma og harð- ar fæðingarhríðir hieypur nú samþykktin af stokkunum og er síðan send amtmanni til staðfestingar. Amtmaðurinn setur náttúr- lega upp gleraugun, er hann fær þetta »dókúment«, sem hann eins og aðrir hefir heyrt mikið af sagt og frjett að væri í fæðingu. En er hann fer að rífa sundur ritningarnar sínar, þá kemur upp úr kafinu, að samþykktin getur ekki fengið staðfest- ingu, því hún kemur eptir allt saman i bága við gildandi lög. Það hafði sem sje farið á samþykktarfundinum líkt og segir í Eddu, að fluga hafði sezt á nefið á þeim fundarmanninum, sem átti að blása meðan samþykktin var soðin saman; og hún hafði kvalið hann svo, að hann mátti til að grípa um nefið, en þá kom suðugalli á smíðisgripinn. Meðan samþykktin er hjá amtmanni, er logn í hjeraðinu. En áður en við er litið er hann bráð-rokinn; því samþykktin er komin heim aptur, eins og barnið forðum »óskírð og illa verkuð«. Þá byrjar sama sagan upp aptur ; Flokka- drættirnir, rifrildið og gauragangurinn. Eptir svo og svo langan tíma er sam- þykktin endurfædd og fær nú staðfest- ingu. Þá »kemur nú til kasta Teits og Siggu«;þvi nú á að fara að breyta eptir henni og hlýða henni. Þeir, sem eru óánægðir með hana, neita hreint og beint að hlýða henni, og brjóta hana eptir geðþótta. Þá er nú skipuð »legio« af umsjónarmönnum, til- sjónarmönnum og gæzlumönnum, eða hvað þeir eru kallaðir; þeir verða að vaka og

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.