Ísafold - 02.06.1894, Síða 1

Ísafold - 02.06.1894, Síða 1
Kemur út ýmint emo sinri ■eða tvisvar í viku. Verö «rg (minnst 80 arka) 4 kr.. erlendie 6 kr. eda ll/» doll.; borgist fyrirmibjan júlimún. (erlend is fyrir fram). ÍSAFQLD. Uppsögn(skrifíeg) bundin vi^ áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir l.októ- berm. Afgreibslustofa blabs- ins er i Auaturftrœti 8 XXI. árg. Eeykjavík, laugardaginn 2. júní 1894. 32. blað. Gufubáturinn „ELÍN“ fer þ. ú- frá Reykjavík til Borgarness júní B., 9., 19. og 25.; júlí S., '9., 18. og 30.; sept. 4., 11., 17., 22. og 29.; oktbr. 2. og 6. — . _ frá Borgarnesi til Revkjavíkur júni 6., 10., 20. og 26.; júlí 4.. 10, 19. og 30.; sept. 5, 12., 18., 22. og 30.; oktbr. 3. og 7. — frA Reykjavík til Kefiavíkur júní 3., 7.. 22. og 28.; júlí 5.; ágúst 9.; sept. 6. og 13.; oktbr. 4. og 9. — frá Keflavik til Reykjavikur ,lúni 4., 8.. og 23.; júlí 1. og 6.; ágúst 12.; sept. 7. og 13.; oktbr. 5. og 10. Sjá að öðrn aðaláætlunina. Skuldheimtulaganýmælin. Aufe þeirra tveggja nýmæla þar að lút- andi, er á dagsferá voru á siðasta þingi ■eða lengur, og minnzt hefir verið á fyrir skðmmu bjer í blaðinu, nefnilega um varnarþing í skuldamálum og úrsfeurðar- vald sáttanefnda í smáskuldamálum, heflr á nýhöldnum þingmálafundum hjer í Reykjavík verið vakið máls á hinni þriðju vjettarbót í sömu átt eða í stað hinna. Það er að hafa dómþing, hin reglulegu. tiðari miklu en nú gerist, utan kaupstaðar- lögsagnarumdtemanna og breyta jafnframt varnarþingsreglunum þannig, að hver sýsla sje ein varnarþinghá, en ekki hver hreppur, ■eins og áður (manntalsþinghá), og dóm- þingstaður þá sýslumannssetrið eða þing- staðurinn i heimilishreppi hans. Það var annað hinna nýju þingmanna- ■efna, landritari Hannes Hafstein, er þessu nýmæli hreifði og taldi því ýmislegt til gildis, sumt álitlegt í fljótu bragði, en sumt miður. Það er álitlegt í fljótu bragði, að eiga kost á að fá mál fyrir tekin og dóina upp- kveðna opt á ári á reglulegutn tímum, t. ■d. hverjum hálfum mánuði, eins og tillögu- maður fór fram á, í stað þess að nú er eigi haldið nema 1 reglulegt dómþing á ári, •manntalsþingið. En meir yrði það í orði ■en á borði, að dómþingum fjölgaði til stórra muna fyrir það, með því að auka- þing (aukarjettarhöld) bæta stórum upp dómþingafæðina nú, en þau má fá haldin ’hvenær sem er og sýslumaður er við lát- inn. Helzti kosturinn við þetta nýja fyrir- komulag er og eptir hugsun uppástungu- manns eigi þessi, heldur sá, að málsaðilum sparaðist með því þyngsta útgjaldagreinin, •er til lögsókna kemur til sveita, en það er ferðakostnaður dómarans (sýslumanns- ins). Það er og kostur, mikill kostur. Þó vegur þar í móti eigi svo lítið ferðakostn- aður málsaðila sjálfra á sýslumannssetrið, ef til vill utan af sýsluenda, og skiptir sú vegalengd sumstaðar mörgum dagleiðum. Ættu vitni að ferðast lika þann óraveg, yrði kostnaðurinn mjög svo tilfinnanlegur. Bót við þeim annmarka hugsaði tillögu- maður sjer þá, að nærri sýslumannssetrinu risu upp málfærslumenn, lærðir eða ólærðir, og flyttu mál fyrir alla sýslubúa, nær og fjær; þyrfti eigi annað en senda þeim umboð og önnur málsskjöl, en málsaðili sæti sjálfur heima. En margsinnis mundu málsaðilar þurfa eða vilja mæta sjálflr fyrir rjetti eigi að síður, og langt mun hins að bíða, að til verði lærðir málfærslu- menn í hverri sýslu, 2 eða fleiri, því minna stoðar eigi handa báðum málspört- um, en ólærðir opt vérri en ekki neitt. Og hve afardýrir mættu þeir eigi til að veraáverkum sínum, ef sæmilega atvinnu ættu að hafa að iðju sinni, svo fá mál sem fyrir falla á ári hverju hjer til sveita viðast hvar. Mundi þá fara að kárna um sparnaðinn fyrir almenning á þessu fyrir- komulagi. Þó er enn ótalið langviðsjálasta atriðið í þessu fyrirhugaða nýmæli. Það er hin gersamlega kollvörpun hins eldgamla varn- arþingsrjettar, þeirra hlunninda máisaðila, að geta sótt rjett sinn og varið að lögum svona hjer um bil sama sem heima hjá sjer, eða að minnsta kosti innan hrepps optast nær, með þeim fáu undantekning- um, er í lögum höfum vjer um það frá fornu fari. Það er mikilsverður rjettur, sem ekki ætti að hrapa að því að nema burtu með öllu og allt í einu. Má vera, að of mikið sje úr honum gert stundum í orði kveðnu; en það má heldur eigi gera of Iítið úr honum, og varasamt að skerða hann nema veruleg nauðsyn beri til eða miklu sje fyrir að gangast í aðra hönd. Þessari síðustu klausu mun nú skjótlega svarað svo, að talsverð skerðing varnar- þingsrjettarins hafi þó verið á dagskrá á undanförnum þingum og vel látið yfir af mörgum, þar á meðal þessu blaði, þar sem er hið alkunna frumvarp um varnar- þing í skuldamálum: að hafa varnarþing þar, sem skuld er stofnuð. En þar til liggja þau andsvör, að fyrst og fremst erþað eigi nema afmarkaður flokkur mála, erhinnýja varnarþingsreglaátilaðná: að eins skuldamál, og þau hvergi nærri öll, heldur að eins kaupstaðarskuldamál (nokkrum öðrum við bætt í frumvörpun- um, en því ætti helzt að sleppa). í ann- an stað væri þetta, að löggilda skuldstofn- unarstaðinn sem skuldgreiðslustað að því er kaupstaðarskuldir snertir, í raun rjettri ekki annað en staðfesting þess, sem al- kunnugt er að er þegjandi eða óuppkveð- ið samkomulag milli þeirra, er verzlunar- viðskipti hafa í kaupstað. Skuldgreiðslu- staðurinn er sem sje eptir því orðalausa samkomulagi einmitt búð kaupmannsins, þar sem vörurnar hafa verið út teknar og skuldin þar með stofnuð. Því er einmitt ráð fyrir gert af beggja hálfu, þótt orða- laust sje, og auk þess helgað af fastri venju, sem sjaldan bregður út af, að bóndi komi á ákveðnum tima, í næstu kauptið eða svo, í kaupstaðinn aptúr og borgi skuld sína. Kaupmaður mundi alls eigi lána að jafnaði, ef skilmálarnir væru þeir, að hann ætti að sækja borgunina heim til bónda. Hví skyldi þá snúa þessu öllu við, ef bóndi refjast eða stendur eigi í skilum? Á hann að hafa þessi hlunnindi upp úr því, að kaupmaður þurfi þá að vitja skuldarinnar heim til hans? Og hvað hefir bóndi auk þess upp úr því óumsamda ómaki kaupmanns annað en að hann verð- ur að borga það ómak sjálfur, ef nokkuð er af honum að hafa, en skilamennirnir fyrir hann elia, með auknu gjaldi á sínar vörur í þessnotnm? Það er einmitt þetta, sem gera kaup- staðarskulda-varnarþings - undanþáguna mjög svo eðlilega, en hins vegar verulega nauðsynlega sem öflugt ráð til þess að draga úr kaupstaðarskuldunum. Það mun hafa verið fundið eitt með öðru skuldamálavarnarþinginu til foráttu, að vitja þyrfti eptir sem áður skuldunauts heima til þess að gera hjá honum fjárnám eptir dómi. En eigi bætir hin tillagan hót úr því; þess þarf alveg eins við, þó að dómþingum sje fjölgað og hver sýsla gerð að einni varnarþinghá. Það er alveg hið sama.----- Svo minnzt sje um leið enn á hitt málið, um úrskurðarvald sáttanefnda, þá er þess fyrst að geta, að það er misgáningur, sem hermt var um daginn samkvæmt ræðu landshöfðingja í þingtiðindunum, að í frum- varpinu í fjTrra, eins og efri deild skildi við það, væri ætlazt til, að gerðardómum sáttanefnda mætti áfrýja til undirrjettar o. s. frv. Þar sem um þá stendur i frv. — og eins úrskurðina, ef þeim er eigi á- frýjað —, að þeim megi fullnægja eins og undirrjettardómi (en ekki hæstarjettardómi), mun eiga að skilja það svo, að fullnægingar- aðferðin sje hin sama og við undirrjettar- dóma, en ekki hæstarjettardóma. Hins ætlar frv. skýlaust til, að sáttanefndar- úrskurðina megi láta fara fyrir alla rjetti á eptir, ef vill; en það gerir þetta nýja embættisvald nefndanna harla þýðingar- lítið. Virðist af tvennu til ákjósanlegra aðfæra enn niður skuldartakmarkið hæsta, t. d. niður í 50 kr., heldur en að hafa ekki annað upp úr nýmælinu en nýtt hapt neðan við dómastigann. — Síðustu greinar frv. frá í fvrra hafa inni að halda nokknr atriði, er til bóta horfa frá því sem nú er og ógetið var um daginn eða lítið úr gert, en það eru fyrirmælin um að málsfærslan í smáskuldamálum, er þar um ræðir, skuli að öllum jafnaði vera munnleg, ura að frest megi eigi veita nema af mjög skornum

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.