Ísafold - 09.06.1894, Blaðsíða 3
135
margir þangað gjafir slíkra manna, enda voru
þan á síðari árum vel efnnð orðin, þótt fátæk
hefðu búskapinn byrjað og eigi setið í launa-
háu embætti, en dugnaður, forsjálni og hæfi-
leg sparsemi uku fljótt efnahaginn. Yar þó
heimiii þeirra hið gestrisnasta. Sauðlauksdals-
kirkju gáfu þau 200 rd. þá er hún var byggð
1863 og síðar mjög vandaðan og fagran hökul
og rykkilín. Þar sem hún dó, tór ein af fyr-
irtakskonum þessa lands.
Systir hennar, Ingbjörg Eggertsdóttir, sem
um síðustu 30 ár hafði dvalið hjá henni
dó 25. s. m., nær 84 ára gömul, ógipt, en hafði
eignazt 1 son, er dó um tvítugt.
Hinn 29. s. m. andaðist á sama bæ heiðurs-
konan Ingibjörg Sigurðardóttir, 56 ára að
aldri. Hún giptist 26. sept. 1859 Sigurði hók-
bindara Gíslasyni, hróður síra Magnúsar, manns
mad. Steinvarar. Eignuðust þau 10 mannvæn-
leg hörn, er öll eru á lífi; þar af er Gísli Sig'
urðsson, fyrnefndur, eitt. Þennan mann sinn
missti hún í maí 1875; hann drukknaði af þil-
skipi. Aptur giptist hún 17. okt. 1877 eptir-
lifandi manni sinum, Árna Jónssyni. Þau
eignuðust 2 efnilega syni; var hinn yngri
þeirra fermdur i vor. Ingibjörg sál. varthin
mesta merkiskona fyrir margra hluta sakir;
tápmikil mjög til líkama og sálar, dugnaðar-,
ráðdeildar- og umhyggju-mikil kona, hin vand-
aðasta við hvern, er við var að eiga, kom
hvervetna fram til góðs hin ástríkasta eigin-
kona og móðir og húsmóðir, sönn prýði hvers
þess heimilis, er hún dvaldi á, meðal annars
sökum sinnar miklu stillingar og geðprýði.
Hún bjó með fyrri manni sínum í Vestur-
Botni við Patreksfjörð, og enn með síðari
manni sínum nokkur ár, en áður i Hænuvík
i sömu sveit. Síðustu árin dvöldu þau hjónin
hjá einni dóttir hennar í Kvígyndisdal, þar
sem »infiúenzan« varð hennar banamein.
Sama dag og mad. Steinvör, 23. apríl, and-
aðist í Saurbæ á Rauðasandi enn ein merkis-
kona, Eagnheiður Gisladóttir, ekkja eptir Jón
yngrajónsson á Kvígyndisfelli við Tálknafjörð<
80 ára að aldri. Hjónaband hennar varaði
mjög stutt, en fram úr þvi, að hún • missti
mann sinn, veiktist hún — hafði vakað yfir
honum sjúkum og lagt mjög mikið á sig.
Lá hún síðan alla æfi rúmföst eða rúm 40 ár.
Dvaldi allan þann tíma hjá Ara óðalsbónda
Einnssyni í Bæ; hann á systur hennar, Guð-
rúnu.lF Faðir þeirra var Gísli, bóndi í bæ á
Selströnd. Bagnheiður var hin mesta mynd-
ar- og gæðakona, gáfuð og vel að sjer til
munns og handa, trúkona mikil og hin guð-
hræddasta, skemmtin og glaðvær í viðmóti,
blið í lund, mjög grandvör til orða og verka,
góðhjörtuð og góðgerðasöm við fátæka, en
góðviljuð öllum; tjör- og tápkona, afkastamik-
il, meðan heilsa leyfði, framúrskarandi þolgóð
í sínum langa og opt stranga sjúkdómi, heyrð-
ist aldrei um hann kvarta með einu orði, og
yfir höfuð sönn fyrirmynd kristinnar konu.
Hinn 28. apríl ljezt á heimili sínu Hvallátr-
um við Patreksfjörð sómakonan Guðrún Snœ-
bjarnardóttir, breppstjóra Pálssonar í Duf-
ansdal við Arnarfjörð, 66 ára að aldri. Hún
ólst þar upp hjá foreldrum sínum, en giptist
9. sept. 1849 Össuri ekkli og hreppstjóra Öss-
urssyni, bónda á Hvallátrum. Hann hafði áð-
ur átt Valgerði Gísladóttur, pfests Ólafssonar
í Sauðlauksdal, systur síra Magnúsar. er þar
var eptirmaður föður síns. Þau Össur og
Guðrún eignuðust 10 börn. Af þeim lifa 6:
1 sonur og 7 dætur, öll uppkomin og mann-
vænleg. Hún varð ekkja 11. júni 1874. Guð-
rún sál. var mjög vel greind kona, guðrækn-
asta og trúaðasta kona, góðsöm við alla. en
einkum við volaða og sjúka, hin gestrisnasta,
mjög ræðin og skemmtin, dugnaðarsöm og
ráðdeildarmikil búkona, hin bezta eiginkona
og móðir og húsmóðir, sönn móðir hjúa sinna
og stjúpbarna, er hún tók í sina umsjón í
æsku; guðs orð og guðs ótti vildi hún að á-
vallt væri sú regla og mælisnúra, er allt heim-
ilislíf hennar lagaðist eptir. Það innrætti hún
og alla æfi af fremsta megni ungum og göml-
um, allt fram í andlátið. TJm all-langan tíma
fjekkst hún, enda þótt ólærð væri, við ljós-
móðurstörf, og leysti það sem annað, vel og
með heppni af hendi. J. B.
Úr Skagafirði skrifar frjettaritari ísafoldar
30. f. mán.: Meðal þeirra er dáiö hafa úr in-
fiúenza hjer í sýslu, vil jeg nefna húsfrú
Hólmfríði Björnsdóttur, kona Jóseps Björns-
sonar búfræðings og hreppstjóra í Asgeirs-
brekku; er að henni hinn mesti mannskaöi,
því að hún var hin duglegasta, umhyggju-
samasta og skynsamasta kona, á bezta aldri
(34 ára) og hraustbyggð. Þau hjón áttu 6
ung börn. Tveim dögum síðar andaðist á sama
bæ faðir Hólmfríðar sáh, Björn Pálmason, 62
ára, nýtur og dugandi maður; hafði hann lengi
búið með miklum dug og röggsemi í Ásgeirs-
brekku, og verið gróðamaður og ineð merk-
ari bændum í sinni sveit. Hinn 21. maí ánd-
aðist Danlel Olafsson (prests Þorvaldssonar
í Viðvík), söðlasmiður á Eramnesí, og 2 dög-
um síðar annar bóndinn á sama bænum,
Bjarni Jónsson. Enn fremur Sigurður Sig-
urðsson, mikill járnsmiður á Sauðárkrók, og
Geirlög Eiriksdóttir, á níræðisaldri, á Bæ á
Höfðaströnd, tengdamóðir Konráðs hreppstjóra
Jónssonar í Bæ, mjög greind og góð kona.
Margir fleiri eru nýlega dánir víðsvegar í
sýslunni, og á ýmsum stöðum liggja menn
mjög þungt.
Veiðibann. Hjermeð fyrirbýð jeg öll-
um, útlendum sem innlendum, að veiða
silung í Soginu og Þingvallavatni fyrir
Kaldárhöfðalandi i júní, júlí og ágúst-mán-
uðum, nema þeir hafi aðgöngumiða frá
mjer, sem fást keyptir á hótelunum »ís-
land« og »Reykjavík«.
Reykjavik, 4. mai 1894.
Guðm. Thorgrimsen.
VERZLUN
P. C. KNUDTSON & SONS
selur alls konar kornvörur, kaffi, sykur &c.
fyrir lágt verð, gegn peningum út í hönd.
Enn fremur:
Góð ofnkol á 4 kr. skpd.
Ágætt margarine á 60 a. pd.
Þakpappa á 2 kr. 60 a. rúlluna.
Nýkomið til verzlunarinnar:
ÁGÆTAR SAUMAVJELAR, eldavjelar,
steinolíuvjeiar, katlar og kaffikönnur,
hengilampar, borðiampar, lampakúplar
og margt fleira, er allt selzt með vægu
verði, gegn peningaborgun.
» LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐA R «
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr-
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynleg
ar upplýsingar.
72
»Jeg læt hann liggja { klefanum hennar Stínu. Hún
getur haft rúmið sitt i eldhúsinu á meðan«.
»Hm, jæja. En hver á að stunda hann? Hvorug
ykkar Stínu hefir tíma til þess«.
»Nei, en það er ekki annað en að jeg sendi eptir
henni mad. Muller gömlu, sem stundaði mig svo vel fyrir
2 árum. Jeg vaki þá fyrir hana, þegar hún þarf að taka
sjer dúr ... Vertu ekki neitt að hafa á móti því! Mjer
er engin vorkunn að vaka eina eða tvær nætur, þar sem
þú ert á þönum dag og nótt allt árið fyrir sjúklinga þína«.
Læknirinn strauk hendinni þýðlega um höfuð konu
sinni og mælti:
»Höfum það þá svona í drottins nafni! Þú talar þá
við hana Stínu og býr þetta undir. Á meðan fer jeg að
ná í vökukonuna og sækja allt sem þarf í lyfjabúðina«. —
Það voru mæðudagar, er nú komuif og enn mæðulegri
nætur. Það var svo að sjá, sem sveinninn mætti eigi tefj-
ast að halda á eptir móður sinni. Hann hafði megnustu hita-
sótt margar stundir samfieytt og var allt af að kalla á hana,
þangað til varirnar voru orðnar svo þurrar, aðþað varn-
aði honum máls.
»Jeg hefi litla von«, mælti læknirinn nokkrum dögum
eptir, er hann hafði skoðar sjúkling sinn vandlega áður
en gengið væri til rekkju. »Verði hitasóttin eigi rjenuð
i fyrra málið, þá er úti um hann«.
69
»Og þó eru öll systkinin hans miklu laglegri og
skemmtilegri« mælti læknisfrúin, eins og hún væri hissa.
»Nema það hafi verið einmitt af því, sem hún móðir
þeirra unni honum svo mjög».
Læknisfrúin hugsaði sig dálítið um.
»Já, það getur verið, að hún raóðir hans hafi gert
það« mælti hún. »Jeg vil ekki heldur hallmæla honum
neitt. Hann gerir það sem jeg segi honum, er iðinn og
þægur; en ekki get jeg látið mjer þykja vænt umhann.
En annars getur hann komið opt að finna systkinin sín
og átt okkur jafnan að«.
Læknirinn ansaði engu. En undarlegt var það, hvað
konu haus fannst hún vera óánægð með sjálfa sig, er
hún gekk til rekkju um kveldið; hún vissi ekkihvernigá
því stóð.------
»Líttu nú á, hvort jeg hef ekki rjett fyrir mjer um
það, sem jeg sagði um drenginn«, mælti kona læknisins
morguninn eptir, er maður hennar sat hjá henni stundar-
arkorn eptir að þau voru búin að borða; það var sunnu-
dagur. »Þarna hefir hann setið í sömu skorðum allan
morguninn, varla hreift legg nje lið og ekki skipt sjer
af neinu. Hann er alveg fjörlaus. Þó að systkin hans
sjeu að leika sjer og ólmast í kring um hann, þá lltur
hann ekki við; það er eins og hann viti ekki neitt af
neinu*.