Ísafold - 10.11.1894, Side 4
292
Munið eptir skósmíðaverkstofunni
Kirkjustæti 10. Þar verða allar pantanir og
allar viðgerðir fljótt af hendi leystar og með
vægu verði. Afsláttur fæst þegar borgað er
í peningum.
J. Jacobsen.
Tveir hafnsögumenn i Reykjavik
verða skipaðir frál.janúar 1895 naeð þeim
launum, sem ákveðin eru í lögum 16. sept-
ember 1893. Umsækjendur um sýslanir
þessar sendi bónarbrjef sín, stýluð til amt-
mannsins yfir suðuramtinu, hingað á skrif-
stofuna fyrir lok yfirstandandi nóvember-
mánaðar.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 5. nóv. 1894.
Halldór Danielsson.___________
Skiptafundnr
i dánarbúi Jóns Sveinbjarnarsonar frá
Sandgerði verður haldinn hjer á skrifstof-
unni mánudaginn hinn 12. þ. m. kl. 12 á
hádegi.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbrs. 5. nóv. 1894.
______Franz Siemsen.______________
Þar eð búast má við, að hin nýju lausa.
mannalög gefi tilefni til þess, að meiri um-
ferð bæja og bygðarlaga milli verði hjer
eptir en hingað til, og að sumir þeirmenn
sem milli bygða ferðast hafi á stundum
miður nauðsynleg erindi, þá var það á al-
mennum hreppskilafundi fyrir Vatnsleysu-
strandarhrepp, þann 13. þ. m. samþykkt
að veita hjer eptir ferðamönnum nætur.
greiða og annan fararbeina að eins fyrir
hæfilega borgun, en ekki ökeypis. Sam-
tök þessi eiga, — samkvæmt áminningu
sýslunefndarinnar, — að miða til þess, að
framfylgja ákvæðum sveitarstjórnartilskip-
unar frá 4. maí 1872, 22 grein.
Batnsleysustrandareppi 30. okt. 1894.
Guðm. Guðmundsson (oddviti).
Lijósmoldóttur foli 3-vetur, ómarkaður á
eyrum, með brenuimark á framfótahófum Þ.
B. (óljóst) er óheimtur af íjalli í haust. Sá,
sem kynni að hitta hann, er vinsamlega beð-
inn að halda honum sem fyrst til skila að
Flensborg við Hafnarfjörð.______________
Brúkuð frímerki og bækur eru til sölu
hjá Jónasi Jónsyni á Laugaveg.
Innköllun.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878ogopnu
brjefi 4. janúar 1861 er hjer með skorað á
alla þá, er telja til skulda í þrotabú verzl-
unarfjelagsins »Islandsk Exportforretning«,
sem rak verzlun á Flateyri við önundar-
fjörð, að lýsa kröfum sínum og sanna þær
fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu innan 12
mánað frá síðustu (3.) birtingu þessarar aug-
lýsingar.
Skrifst. ísafjarðarsýslu, 14. sept. 1894.
____Sigurður Briem.
Tapazt hefir frá Hólmi að Miðdal látúns-
búinn tannbaukur merktur I>. Ó., og trjebauk-
ur með beinstút frá Arbæ að Breiðholti. Ósk-
ast skilað að Jófríðarstöðum við Hafnarfjörð.
Lystxbatur nýr og vef smíDaður, sjeretaklega
hraðskreidur, er til sölu. Ritstj. visar á.
Munið eptir hinum góðu, ódýru og
margbreyttu fataefnum hjá W. 0. Breiðfjörð.
10—12 fallega, einlita hesta, 3—7 vetra,
kaupir undirskrifaður til 25. nóvbr. þ. á.
Eyþór Felixson
Hannevigs-gigtáburður. Þetta ágæta
gigtarmeðal er nú orðið mjög eptirsótt,
því hinar góðu verkanir þess eru ugglaus-
ar, ef rjett er brúkað. Meðalið fæst ein-
ungis hjá W. 0. Breiðfjörð.
Miðvikudaginn 14. þ. m. kl. 11 f. hád.
veröur eptir beiðni Kr. Ó. Þorgrímssonar
á hans lóð selt við opinbert uppboð mik-
ið af mör, skinnum og kjöti. Uppboðsskil-
málar verða birtir á undan uppboðinu.
Skrifst. Bæjarfógeta í Rvík., 8. nóv.1894.
Halldór Danielsson.
C. Zimsen
selur ýmsar vörur fyrir lágt verð.
Smjör, Tólg, Haustull, Sjóvetlinga. og Rjúpur
er tekið jafnt peningum.
Öll Alþingistíðindin 1894 eru nú af-
greidd frá mjer á póststofuna til allra þeirra
innanlands, sem skylt að senda þau.
Reykjavík 10. nóv. 1894.
Sigfús Eymundsson.
Hjá W. O. Breiðfjörð
fást ágæt vetrarsjöl. Svuntuefni. Slipsi—
allavega lit. Vetrar-yfirfrakkar, mjög ó-
dýrir. Skinnjakkar. Alls konar líntau og
allt þar til heyrandi, og margt, margt
fleira.
Í verzlun F. Finnssonar
á Laugaveg 17 fæst: Hvalsrengi og hval-
ur, harðfiskur, trosfiskur, saltfiskur, stein-
bítur, grásleppa, vel verkuð. Kjöt, nýtt
og saltað, mör, tólg og kæfa. Sauðskinn
eru seld langt undir lægsta verði hjer.
Vatnskápurnar þolgóðu fást eptir pöntun.
Rjúpur, vel skotnar, eru keyptar, einnig
smjör og önnur íslenzk vara.
W. Christensen’s verzlun
kaupir rjúpur.
Gott sauðakjöt úr Rangárvalla-
sýslu er til sölu í dag og næstu daga við
verzlun Jóns Þórðarsonar í Rvík.
U p p b o ð
á ýmsum vöruleifum, tunnum o. fl. verður
haldið hjá verzlunarhúsum P. C. Knudtzon
& Söns, næstk. mánudag, kl. 11 f. hádegi.
Loðnir skinnhanzkar, svartir, hafa týnzt
eða. verið skildir eptir. Finnandi skili á afgr.
stofu Isafoldar.
Veðurathuganir i Rvík, eptir Dr. J. Jónassen
nóv. Hiti (A Celsins) Loptþ.mæl. (millimet.) V eðurátt
á nótt. um hd. fm. em. fm. em.
Ld. 3. + 3 + 7 739.1 736.6 A hv d Ahv d
Sd. 4. + 7 + 5 744.2 749.3 A h d A h d
Md. 5. + 2 + 5 749.3 746.8 A h b A h d
Þd. 6. + 2 + 4 734.1 734.1 A hv d A hv d
Mvd. 7. + 4 + 6 736.0 739.1 A h b 0 d
Fd. 8. — 2 + 3 744.2 744.2 0 b A h b
Fsd. 9. + 4 + 6 736,6 734.1 A hv d Nahd
Ld. 10. + 3 7366 N h b
Undanfarna viku heíir verið sífelld austan-
átt, stundum hvass með köflum, en að öðru
leyti óvenjulega hlýr. Hjer er alauð og þíð
jörð og snjórinn sem hjer var í lok fyrra mán-
uði er fyrir löngu horfinn.
Ritstjóri Björn Jónsson cand phil.
rentgmihja Itafoldar.
182
»Hvaða hjegórai er þetta, Dick«, anzaði jeg. »Hvað
ætli þjer vilji svo sem til?«
„Þú tekur ekki sjerlega lagamannlega í það, Mallory»,
anzaði hann og fór að reyna að gera sjer upp bros.
En viltu nú ekki gera það fyrir mig, að lita á málið
hins vegar, eins og málfærslumaður. Er ekki skynsam-
legt að gera slíka ráðstöfun?«
»Auðvitað«, svaraði jeg. »Það er að eins þetta, að
þú þykist vita á þig feigð ; jeg hirði ekki um að hlýða
á það. Þú ert ef til vill ekki alveg heill heilsu, eða
hvað?«
»Þú getur aldrei fengið mig ofan af því, að það er
eitthvað sem yfir mjer vofir. Það gengur ekkert að mjer
annað en þetta ólukku hugboð, sem jeg hef. Það getur
vel verið, að jeg sje óeðlilega dapur f huga; en jeg get
ekki að því gert. Annað kveld verður þvf lokið á ein-
hvern hátt. Það er síðasti dagurinn á morgun. Ætlarðu
þá að hafa erfðaskrána tilbúna?«
»Auðvitað skal hún verða samin og vera tilbúin seinni
partinn á morgun«, mælti jeg, og var að velta fyrir mjer,
hvort hann mundi vera drukkinn eða þá vera að verða
brjálaður.
»Jeg læt það svo vera«, mælti hann seinlega. »Jeg
skrifa þá undir. þegar; en lifi jeg aðra nótt af, er allt f
góðu lagi«.
183
»Það er jeg líka að vona, anzaði jeg og brosti við
Jeg tók upp vín og fór að reyna að gera honum ljettara
í skapi. Þá var það, sem hann sagði mjer frá hima fljót-
ræðislega heiti, er hann hefði unnið, hversu það ásótti
hann, og að blaðið hafði horfið.
Jeg hló að heimskunni í honum og hræðslunni og var
að reyna að hafa af fyrir honum, en það lánaðist ekki.
Jeg sagði hann skyldi láta rifa skrifborðsskriflið gamla;
I en það mátti hann ekki heyra nefnt, heldur en það væri
goðgá, (og sagði að það mundi vekja eptirtekt og grun á
heímilinu.
»Það er að auki gagnslaust«, mælti haun enn fremur.
»Það er þar ekki. Jeg hef leitað alstaðar í því vand-
lega«.
Þá sagði jeg við hann, að hann skyldi vera hjá mjer
kveldið eptir, og furðaði jeg mig á því, að hann jankaði
því undir eins. En hvað mig iðraði þess síðar.
Daginn eptir að áliðnu kom hann á skrifstofuna sína
og hafði með sjer prívatskrifara sinn, er skyldi vera vitni,
er testamentið væri undirskrifað. Hann skrifaði undir skjal-
ið og fór, fölur, tekinn til augnanna og utan við sig —
allur annar maður en hann átti að sjer. En hann kom
heim til sin klukkan milli 8 og 9 um kveldið, í enn þyngra
skapi en áður.