Ísafold - 29.12.1894, Side 1

Ísafold - 29.12.1894, Side 1
Kemtir út ýmist einn sinn ®ða tvisvar í viku. Ver?) árg minnst 80 arka) 4 kr.. erlendis B kr. eða l1/* doll.; borgist fyrirmibjanjúlimkn. (erlend- is fyrir fram). ÍSAFOLD. UppsOtfLii skrií'eg) i'undn. vib Aramót. ógild aema komin sje til útgefanda fyiir 1 .októ berm. Afgreibslustota blaós- ÍQ8 ui i AuHturstraiti o XXI. árg Reykjavik, laugardaginn 29. desember 1894. N 89 b!að Vegagerö 1894. Það var unnið í sumar að vegagerð á landssjóðs kostnað á 3 stöðum: í Borgarfirði, á Mosfellsheiði og Hellisheiði, auk þess sem talsverð vinna fór í viðgerð og við- hald (ofaníburð) á veginum frá Elliðaám upp í Fóelluvötn, — syðri hluta Hellisheið- arvegarins. Vegavinnunni í Borgarfirði stýrði Arni Zakaríasson. Var þar lagt framhald af aðalpóstveginum, sem gerður var í fyrra, nefnil. 1 röst (km.) fyrir norðan Hvítá, »af Síðumúlahálsi eptir svokölluðu Húsasundi og norður í Kleifar«, og fyrir sunnan Hvítá »frá Kláfossbrúnni og suður á Hamra- mela (upp í Bjúpnalág,)« rjett að segja 4 rastír. Enn fremur vegarspottar frá brúnní á Flóku, um 170 faðma að norðanverðu og 36 faðm. fyrir sunnan brúna. Loks gert við og rutt um 200 faðm., á Hamramel- um og fyrir sunnan Flóku. Er þar með fenginn greiður og góður vegur af Varma- lækjarmelum og norður í Kleifar, eða að og frá Kláffossbrúnni, sem áður var veg- leysa; enda umferðin mjög mikil um brúna. Vegavinna þessi stóð yfir frá þvi í miðj- um maímán. og framundir septemberlok, með 23—24 verkamönnum lengst af, auk verkstjóra. En þar í felst einnig vinna að stöplahleðslu við brúna yfir Flókadalsá, er lögð var í sumar, um 250 dagsverk. Verkstjóri hafði 4x/2 kr. i kaup á dag, smiður 4 kr., flokkstjórar (2) 3 kr. 25 a., aðrir 2 kr. 85 a. til 3 kr.; sumir lítið eitt minna. Meðalkaup allra 2 kr. 92 a. Auk þess 1 kr. í fæðispeninga á sunnudögum. Kaup verkamanna alls 7,846 kr.; annar' kostnaður nær 900 kr., þar af helmingur hestaleiga. Lögð var jafnframt í sumar brú á Flóka- dalsd, illt vatnsfall, þótt ekki sje stórá Það er trjebrú, 22 álna löng, eða þriðjungi styttri en Kláffossbrúin, smíðuð með um- sjón Helga kaupmanns Helgasonar í Reykja- vík. Hún mun hafa. kostað að efni og smíði fram undir 1000 kr., og stöplarnir að henni aðrar 1000 kr.; þar við bætist flutn- ingur. Brúin liggur 4—500, föðmum ofar en vegurinn gamli yfir ána, efst í gljúfra- petti þar dálitlu. Vegavinnunni á Mosf'ellsheiði stýrði í sumar Einar Finnsson, er vanizt hefir vegagerð í Norvegi í mörg ár. Hann liafði 33 verkamenn, frá því um miðj- an maimán. og fram í októberbyrjun. Það var framhald vegarins upp*með Selja- dal að austan, sem hann lagði af nýju, nær 4'/2 röst, þvínær hallalaust. Það kostaði rúml. 9,600 kr. Enn’ fremur bar hann eöa hans lið ofan í talsveröan spotta af kafla þeim, er lagður var i fyrra sumar og þá var eptir ógert; fóru til þess 372 þús. kr. Er nú mjög skammt eptir að hinum nýja vegi á háheiðinni. Verkalaunin sömu og í Borgarfirði. Að Hellisheiðarveginum var unnið í tvennu lagi. Vestan á heiðinni (eða sunnan) stóð Páll Jónsson fyrir verki. Hann lagði af nýju veg frá Svínahrauni nokkuð upp fyrir Reykja fell, sunnan megin við það, þar sem er miklu óbrattara og ósnjóhættara en um Hellisskarð, og komst nær 6 röstum. Hann byrjaði í miðjum maímán. og hjelt áfram til 9. okt. Vinnulið hans var um þrjátíu (31), með sömu kjörum og á hinum stöð- unum. Kostnaður 12!/s þús. kr. Talsvert af þeim vegi er »púkklagt« (sjá síðar). Mestur halli 1; 10, á litlum spotta. Loks hafði Erlendur Zakaríasson undir austurhluta vegarins, aðallega heiðarbrekk- una að austan, hina alræmdu Kamba, og er það langörðugasti vegarkaflinn, er gerð- ur hefir verið hjer á suðurlandi. Hann byrjaði við Hengladalsá, uppi á heiðinni austarlega, og komst spölkorn niður fyrir Kamba, hjer um bil 4 rastir alls. Vinnu- liðið 33—35, frá miðjum maí fram í miðj- an október, með sömu kjörum og á hinum stöðunum, og kostnaður við þann vegar- kafla rúmar 15,000 kr. í vinnunni felst enn fremur brúarstöplahleðsla við Varmá í Ölfusi, er kostaði með steinlímsaðflutn- ingi m. m. um 700 kr. Það er ekki all-lítið mannvirki, hinn nýi.'Kambavegur. Þrátt fyrir hina miklu brekku þar er vegurinn hvergi brattari en 1 : IOY21 skeiðríða hann upp og of- an, enda sljettur eins 0g fjalagólf nú fyrst í stað og vonanditil frambúðar; svo vand- lega hefir verið frá honum gengið. Sem nærri má geta, þurfti ákaflega miklar sneiðingar til þess að fá veginn svona ó- brattan, og eru þær á 18 stöðum svo krappar, að geisli bogans er ekki nema 2V2—4 faðmar. Víða varð að grafa í gegnum hryggi og klappir, eða fylla upp í lautir. Hlaða varð og víða allháan grjót- vegg undir vegarbrúnina neðri, til þess að fá af hallann, og er hann á einum stað jafnvel 2 faðma hár. Svo eru og steinar reistir upp á endann á neðri veggjarbrún- inni, þar sem hún er nokkuð há, stabba- steinar, með 1 faðms millibili, svo sem til varnar í myrkri. Mestur hluti vegar þessa er »púkklagður«, þ. e. gerður úr muldu grjóti, smækkandi eptir því, sem ofar dreg ur, en smágerður ofaníburður efst. Eru slíkir vegir stórum mun traustari og hald- betri en ella, og svarar það sjálfsagt hin- um aukna kostnaði, þar sem leið er fjöl- farin. Rúmar 7 kr. hefir faðmurinn kost- að upp og niður í þessum vegarkafla öll* um, á einum stað í Kömbum kostaðihann 24 kr. Brúarstöplarnir við Varmá eru 14 álna langir hvor, en 3 álna hár vestri stöpull- inn og 4j/2 alin sá eystri. Brúna d Varmá sjálfa, trjebrú, 16 álna langa, smíðaði eða smiða Ijet Helgi kaupmaður Helgason í Reykjavík, og mun hún hafa kostað 5—600 kr., auk flutnings, sem varð fremur ódýr, — viðinum fleytt upp Ölfusá og Varmá. Brúin er spölkorn fyrir neðan þjóðveginn, sem var yfir ána. Aðalforsögn og eptirlit með vegagerðum þessum heíir mannvirkjafræðingur lands- ins, hr. Sigurður Thoroddsen, haft, eptir fyrirskipunum landshöfðingja og með hans ráði. A sumri komanda mun verða. lokið við Hellisheiðarveginn, háheiðina, ásamt dá' litlum kafla fyrir neðan heiðina, beggja megin Varmárbrúarinnar, og verður þá kominn akvegur alla leið frá Reykjavík austur að Ölfusárbrú, nema hvað gera þarf samt enn talsvert við Svínahraun til þess, og svo er að eins reiðvegur spölkorn fram með Ingólfsfjalli. „Fj.konan44. »Fj.konan« hefir nú samþykkt, að hafa ritað greinina i sumar í fjelagi við Zöllner- Vídalín, og sem ritstjórinn sagðist þá einn hafa samið eptir upplýsingum sendimanns(V.) er hann hafl sent á fund Zöllners. Okkur greinir þá ekki lengur á um það, nje hitt atriðið, að »Fj.konuna« vanti traust alþýðu. Svar »Fj.konunnar« gengur ekki út frá því, að verja þessi atriði, er jeg nefndi, lieldur efnahag sinn, og segir hún hann í góðu lagi, ; og er bezt að lofa henni það. »Fj.konan« viðurkennir kaupendafækkun, en kennir því um, að hún reki menn úr reikningi.(l) og gera blöð það vanalega í síðustu lög. Loksins telur »Fj. konan«, að jeg hafi með atvinnurógsástríðu ráðist á söngfræðinga og blöðin, o. fl., en hann gleymir að geta þess að blöðin hafa fyrst ráðizt á mig, og að ekkert af þvi sem jeg hefl ritað um söngfræði hefir verið hrakið, að söngfræði sú, sem jeg samdi 1888, hefir aldrei mætt aðfinningum o. s. frv. »Fj. konan« getur vel sagt að jeg hafi ráðizt á ýmsa, það er að jeg hafi skrifað um ýms málefni, sem ekki hefir fallið öllum í geð, en hún getur aldrei sagt að jeg hafi gert það að ástœðulausu, nje ráðizt á menn, sem jeg hefi notið einhvers góðs af, eins og »Fj.-konan« hefir gert. Eins rita jeg jafnan fyrir sjálfan mig, en er ekki leigugripur annara. Reykjavík 29. des. 1894. Bj'örn Kristjánsson.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.