Ísafold - 26.01.1895, Qupperneq 3
15
Jeg þekki engan ungan mann, er veit eins
mikið og hann, og jeg hygg að enginn rússn-
eskur stúdent sje betur að sjer í sögu Eúss
lands. En bóklesturinn heflr gert hann
óframfærinn og hann hefir ekkert lag á
að láta á sjer bera — hann heflr erft feimn-
ina af henni móður sinni, enda eru þau
allt af saman, mæðginin. Ovinir keisara-
frúarinnar við hirðina kalla hann »dreng-
inn hennar mömmu sinnar«.
Það mun vera mikið hæft í því. Það
er móðir haus, sem langmestu hefir ráðið
um uppeldi hans. Þegar hún kom ti)
Rússlands, fann hún hvervetna meðal
keisarafólksins menjar hins venjulega hirð-
mannlega uppeldis.
■ . Hún einsetti sjer, að ala sjálf upp börnin
sín. Það var hið eina mál, er hún áskiidi
sjer að hafa afskipti af. En um fram allt
bar hún eizta son sinn, keisaraefnið, fyrir
brjósti. Enginn kennari var ráðinn handa
honum nema hún hefði haft áður nákvæm-
ar spurnir af högum hans og öllu hátterni.
Hún hafði nákvæm afskipti af, hvernig
sonur hennar verði timanum. Það, sem
helzt var að þessu uppeldi, er, að það
hefir stíað keisaraefninu heldur mikið frá
öllum nema foreldrum hans, systkinum hans
og bókunum hans. Það er mælt, að í hóp
frændsystkinanna á Fredensborg á sumr-
um hafi hann verið kallaður »lestrarhest-
urinn« og að hann hafi löngum setið með
bók úti í Marmaralundi, þegar hitt unga
fólkið var að leika sjer og skemmta á ýmsa
lund úti við: sigla, ríða eða skeiða á hjól-
hestum.
En þó að hann sje feiminn í framgöngu>
er mælt, að hann geti verið mikið einbeitt-
ur og ókvalráður. Það gekk sú saga i
Ejetursborg, og trúðu kunnugir henni þar,
að þegar hann var búinn að yfirfara Eúss-
landssögu, hafi hann sagt við kennara sinn:
»Nú erum við þá búnir með Rússlands
sögu eins og stjórnin lætur segja hana.
Nú skulum við taka til við sannieikann«.
Það er mein um hann, hvað lítið sópar
af honum, og kemur sjer það sízt vel við
herinn; enda hefir hann aldrei lagt mikinn
hug á hernaðarvísindi. Það er og ólík
legt, að friðinum standi mikill háski af
þjóðhöfðingja, sem er ekki meiri hermað-
ur en Nikulás keisari II. er.
Sjónleikir. Hellismennirnir (eptir Indr.
Einarsson), er leiknir hafa verið hjer nú 3
síöustu kvöldin samfleytt, hafa það fram
yfir guðspjöilin, sem kerlingin þráði mest:
að þar skortir eigi bardagana. Leikurinn er
ortur út af mikið þjóðlegri útilegumanna-
sögu og efnið þvi vel valið »fyrir fólkið«,
enda skotið inn í það ástaræfintýri, sem
jafnan kemur sjer vel. Þorri áheyrenda.
þýðist og vel mjúklegt ástarhjal og mál
göfugra tilfinninga og háleitra hugmynda
eins og það er eða var haft hjá skáidum
annara þjóða t. d. á fyrra hluta þessarar
aldar, og er ekki að rekistefnast í því,
hvort líkt muni hafa verið hugsað og tal
að hjer uppi á Grímstungnabeiði á 14. öld.
Sömuleiðis meiri skemmtun að heyra sung-
ið þar margraddað af nútiðar kunnáttu en
misjafnlega kveðið aö þeirrar aldar sið,
og meira augna-yndi að sjá íslenzka úti-
legumenn ganga í hirðmanniegum skar-
latsklæðum og með skygða hjálma og
brynjur en í ljótum úlpum og sauðafeldum.
Einnig ánægja að sjá útilegumenn í Surts
helli fyrir 5 öidum miklu betur sápu-
þveg'na og rakaða en nú gerist annarsstað-
ar en meðal heldra fólks í kaupstöðum.
Leiktjöld mikið faileg, Vopnalág og Surts
hellir m. m., eptir Sigurð heit. málara.
Guðmundur bóndason frá Kalmanstungu,
oddviti bygðamanna í aðförinni að Hellis-
mönnum, er mikið vel leikinn, af höf. sjálf-
um. Fjögramaki sömuleiðis dágóður, og
jafnvel fleiri Heilismenn
Hefir leikur þessi verið allvel sóttur
undanfarin kvöld og verður það að vonum
nokkur kvöld enn.
Baðstofnun í Reykjavik. Hjer var
stofnað nýtt hlutafjelag 21. þ. m., Baðhús-
fjelagið í Reykjavik, er þeir voru fyrstir
og helztir frumkvöðlar að, Guðbr. Finn-
bogason konsúll og Guðmundur læknir
Björnsson (millibilskennari við læknaskól
ann), í því skyni að afla höfuðstaðnum
einna af almennum þægindum meðal sið-
aðra þjóða, er hann hefir iengi þarfnazt, en
það er baðhússtofnun fyrir aimenning, þar
sem menn geti laugað sig í heitu vatni og
köldu, kerlaug eða með steypibaði
m. m. á öllum árstímum. Hafði boðs-
brjef um það mál, útgefið fám dög-
um áður af fyrnefndum mönnum og 4
öðrum (3 læknum og B. J. ritstj.) feng-
ið svo góðar undirtektir, að helmingi
fleiri skrifuðu sig á það en farið var fram
á upphaflega, eða 56 alls, með 25 króna
hlut hver. Lög voru samþykkt á fundin-
um og kosin stjórn: Guðbr. Finnbogason
(fjehirðir), Guðm. Magnússon læknaskóla-
kennari, Björn Jónsson ritstj. (skrif.), dr.
J. Jónassen og Guðm. Björnsson læknir
(formaður). Húsnæði hefir fjelagsstjórnin
leigt til bráðabirgða í noröurendanum á
Prentsmiðjuhúsinu gamla í Aöalstræti, rjett
hjá aðalbrunni bæjarins, og er ætlazt til,
að allt verði komið þar í lag og baðhús-
stofnunin þar nfeð á legg um mánaðamótin
marz—apríl þ. á. En vitaskuld væri hin
mesta nauðsyn á að fjelagið kæmi sjer
sem fyrst sjálft upp almennilegu baðhús
næði á hentugum stað; en til þess þarf
miklu meira fje heldur en kostur er á að
svo stöddu.
Kírbjublaðið V, 2: Kvöldsálmur V. B. —
Hulinn kraptur, þýtt. — TTm barnauppeldi. Br. J.
—Henry Drummond, útg. — Safnaðaembættin
í hinni elztu kristni m. m.
Kbl. 5. árg., 16 innheptar arkir, auk Kristi-
legra Smárita, fæst hjá flestum bóksölum og
prestum landsins og útg. Þórh. Bjarnarsyni í
Rvík.
Kaupendur að 6. árg., sem borga fyrir fram
beint til útg , fá allt sem út er kornið at Kbl.
og Smáritum fyrir 1 kr., ef senda þarf, en 50a.,
ef það er aihent hjer. Um 100 hafa sætt þessu
boði, og gengur þá fljótt á leitarnar. Óskemmd
frímerki af Kbl. kaupast háltu verði (sjá Kbl.
IV, 13).
— 76 arkir fyrir 2 kr. —
Hiis til sölu.
Lítið steinhús við Laugaveg nr. 32 ásamt
góðum matjurtagarði og y8 dagsl. erfða
festulandi er til sölu Irá 14. maí næstk.
Ert'ðafestulandið fæst keypt sjerstakt, ef
þess er óskað.
Semja má við undirritaðan.
Guðin. Guðinundsson,
bæjarfógetaskrifari.
Reikningur
yflr tekjur og gjöld Fiskimannasjóðs Kjalarnes-
þings 1894.
Tek jur:
1. Eptirstöðvar 31. des. 1893:
a. í lánum gegn fasteignar-
veði.............kr. 7850,00
b. skuld hjá Þóroddi
Bjarnasyni . . . . — ‘25, C0
c. í sparisjóði . . . . — 225,00
d. hjá reikningshaldara - 20 71 kr gl20 71
2. gjafir (andvirði fyrir safn úr slor-
kössum í Reykjavíkurfjörum) . . _ 16 00
3. Vextir:
a. af skudabrjefum . kr. 314.00
b. í sparisjóði . . ■ — 9.0C __ 323 0(;
Samtaís kr. 8458,77
Gjöld:
1. Veittur styrkur (fylgiskj. 1-3) kr. 300,00
2. Fyrir auglýsing á reikningi sjóðs-
ins o. fl. (fylgiskj. 3—6) . . . . _ 15,60
3. Eptirstöðvar 31. desember 1894 :
a. í lánum gegn tasteignar-
veði.............kr. 7850.00
b. skuld hjá Þóroddi
Bjarnasyni ... — 25.00
c. í sparisjóði . . . — 268,17 _ 8143,17
Samtaís kr. 8458,77
Bæjarfógetinn i Reykjavík 5. jan. 1895.
Halldór Daníelsson.
Harinonium, gott og ódýrt, er til sölu
hjá Jóni Laxdal bókhaldara.
----------
& segteNormal-Kaffe
:iy
(Fabrikken
»Nörrejylland«),
sem er miklu ódýrra, bragðbetra og
hollara en nokkuð annað kaffi.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu
brjefi 4. janúar 1861 er hjer með skorað
á alla þá, sem telja til skulda i fjelagsbúi
þeirra Stefáns Stefánssonar og Guðrúnar
Guðmundsdóttur, er önduðust að Enniskoti
í síðastliðnum ágústmánuði, að lýsa. kröfum
sinum og sanna þær t'vrir skiptaráðandan-
um lijer í sýslu áður en liðnir eru 6 mán-
uðir frá síðustu birtingu innköllunar þess-
arar.
Þá er og skorað á erfingja hinna látnu,
að gefa sig fram innn.n sama tíma.
Skrifstofu Húnavatnssýslu 20. des. 1894.
Jóh. Jóhannesson,
settur.
»LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR.
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vil.ja tryggja líf sitt, allar nauðsynleg-
ar upplýsingar.
Bóka- og pappírssölubúð
í safodarprentsmiðj u
Austurstræti 8
hefir margskonar skrifpappír og ritföng
nýfengin, svo sem skrautbrjefaefni, glans-
mynda album, teiknibækur, býantsyddara,
vasabekbyttur, tnagazínblýanta, brjefa-
veski, reglustikur 0. fi.
Bókbandsverkstofa
ísafoldarprentsm. (Austurstr. 8)
— bókbindari Þór. B. Þorláksson —
tekur bækur til bands og heptingar.
Vandað band og með mjög vœgu verði.