Ísafold - 16.02.1895, Page 2
54
lærum ekki að hagnýta betur náttúruöflin,
verða framfaraviðburðir vorir kák. Þá fyrst,
eross skortir eigi framar kunnáttufil að hag-
nýta oss þau gæði, sem náttúran lætur oss
í tje, getum vjer búizt við, að fólki taki
að fjölga, og að það meira að segja lifi
hjer miklu betra lífl heldur en nú á dög-
um. •
Hj. Sig.
Hin rjetta slátrunaraðferð.
Herra bankastjóri Tr. Gunnarsson heflr
í 3. tbl. ísafoldar ritað alllanga grein móti
grein minni um hina rjettu slátrunaraðferð,
en hann hefir ekki hrakið eitt einasta at-
riði í grein minni, sem eigi var heldur við
að búast, og því kom mjer fyrst til hugar,
að minnast ekki á þetta mál framar. En
bæði af því, að hætt er við, að grein
bankastjórans villi sjónir fyrir almenningi,
og svo einkum af því, að jeg las nýlega
grein í dönsku blaði (blationaltidende) ept-
ir lækni, sem ræðir þetta mál og er alveg
samhljóða minni grein, þá skal jeg þó enn
fara um málið nokkrum orðum. í nefndri
grein er sjerstaklega tvennt tekið fram, og
það er, að kjöt af skepnu, sem skorin er
á háls, er miklu betra en kjöt af skepnu,
sem er rotuð, og í öðru lagi — og það
varðar mestu — að sú slátrunaraðferð, að
skera skepnunaá háls, er mannúðlegust og
skepnúnni kvalaminnst.
Það, sem mjer líkar lakast við grein
bankastjórans, er sjerstaklega það, að hann
gjörir lítið úr því, sem vísindamenn með
nákvæmustu rannsóknum hafa sýnt og sann-
að, að sje hið eina rjetta. Herra Tr. G.
verður að gæta þess, að til þess að geta
lagt orð í belg um þetta mál, verður hann
að kunna dálítið í lifskurðarfræði og lif-
færafræði; Ijósasti votturinn um, að hann
er ekki vel heima í líffærafræðinni, sem
enginn getur láð honum, er það, að hann
heldur að skepna, sem skorin er á háls,
missi ekki meðvitundina fyrr en mænan
sje skorin sundur; þetta er svo fjarri öllum
sanni sem mest má verða. Sannleikurinn
er þessi: Sje kind skorin á háls, líður svo
að kaila strax yfir hana; og hver er or-
sökin? Blóðleysi í heilanum. Þegar í snöggu
bragði eru skornar sundur bæði slagæðar
og blóðæðar hálsins, sem bera blóðið til
og frá heilanum, hættir að sjálfsögðu allt
í einu öll blóðumferð um hei'ann og í
sama augnabragði öll meðvitund. Treyst-
ir Tr. G. sjer til að neita þessu? Margir
munu hafa tekið eptir því, að ef maður
missir snöggiega mikið blóð, þá líður yfir
hann, og er það ekki af öðru en því, sem
nú var greint.
Að því er snertir dæmið úr Sviss, þá er
það ef til vill berra Tr. G. ókunnugt, að
það var gjört í þeim tilgangi að flæma
Gyðinga burt úr landi, sem fylgja þessari
slátrunaðferð og mega ekki eptir Mósesar-
lögum hafa neina aðra.
Það er ekki rjett, sem Tr. G. segir, að
hvergi meðal siðaðra þjóða sjeu skepnur
skornar á háls nema hjer á landi; hinn
danski læknir, sem fyrr var getið, segir—
og honum má vera það kunnugra en hr.
Tr. G. — að kálfar og sauðkindur sjeu í
Danmörku ekkí rotaðar, heldur skornar á
háls.
Eitt vil jeg biðja alla að muna, að skera
aldrei neina skepnu á háls nema meðhár-
beittum hníf.
Reykjavík, 9. febr. 1895.
J. Jónassen.
Holdsveikin og doctor Elilers.
168. tbl. »Isaíoldar« þ.á. stendur grein með fyr-
irsögninni: »Holdsveikisrannsóknir dr. Ehlers*.
Jeg vil leyfa mjer að leiðrjetta ofurlítið í
þessari grein.
Doktorinn segir, að af 141 holdsveikissjúkl-
ingum sjeu 138 búsettir fyrir v est an 32.
mælistig, en það mælistig liggur um austan-
verðan Skagafjörð, nálægt Hofsós, 'og eru því
fjölda margir holdsveikissjúklingar í Eyjafjarð-
ar- og Þingeyjarsýslum fyrir austan það.
Svo segir doktorinn, að einungis 3 holdsveik-
ir sjeu á Austurlandi, þar af einn í Mývatns-
sveit.
Hver heGr flutt Mývatnssveit á Austurland?
Og þessi eini á að hai'a sýkzt við Eyjafjörð.
Hann heflr ekki komiö þangað.
En þar á móti hefir annar holdsveikissjúkl-
ingur úr hjeraði mínu komið á Eyjafjörð, svo
þessu er líklega blandað saman, en á Austur-
landi var hann samt sem áður ekki.
Það væri óskandi að eitthvað af rannsókn-
um dr. Ehlers væri áreiðanlegra en þetta.
Húsavík 31. des. 1894.
Ásgeir Blöndal.
Ný bráðasóttar-bólusetningar-
tilraun.
Skömmu eptir nýár í vetur Ijet nefndar-
bóndi einn á Mýrunum gera bólusetningar-
tilraun á fje sínu, sem tókst mun betur en
sú 1 Landakoti, og sýnir greinilega, að
heimska var að byggja fordæmingardóm á
henni. Hefir blaðið fengið um það svolát-
andi skýrslu:
»Með því að jeg býst við, að yður, hr.
ritstjóri, muni þykja talsvert varið í að vita
um sem flestar tilraunir, sem gjörðar hafa
verið til bólusetningar á sauðfje, leyfl jeg
mjer að tjá yður það sem nú skal greina.
Fyrir hjer um bil hálfum mánuði — brjef-
ið er dags. 23. jan. — gjörði aukalæknir
þessa hjeraðs (Friðjón Jensson) tilraun til
bólusetningar á fje Hallgríms bónda á
Grimsstöðum í Alptneshrepp og fjekk hann
sjer fyrst 1 kind og bólusetti, og hafði þá
bóluefnið lítið eitt sterkara en sagt er í
skýrslu yðar í ísaf. í fyrra, en að öðru
leyti fór hann alveg eptir þvi, sem þar er
fyrir mælt, og heppnaðist vel á þessari
kind að öðru leyti en því, að læri hennar
bólgnaði lítið eitt og kindin var mjög hölt
í 3—4 daga. Síðan bólusetti hann fleiri
kindur Hallgríms og hafði þá bóluefni og
annað allt nákvæmlega eptir áminnztri
fyrirsögn, og heppnaðist það mœtavel.
Kindurnar urðu að eins lítið eitt haltar i
1—2 daga. Eptir þetta bólusetti hann yfir
60 fjár Hallgríms bónda, og fór allt á sömu
leið. Engin kindanna hefir veikzt að öðru
en því, að heltast lítið eitt.
Bóluefnið setti hann í kindurnar með
stálsprautu (stakk endanum í gegn um
hörundið innanlærs), svo að eins kom líkt
og stórt saumnálargat, og spýtti bóluefn-
inu þar inn. Engin af kindum þessum
heflr drepizt síðan. Hvort það er bólu-
setningunni að þakka eða því, að pestin
hafl verið í rjenun (á Grímst.), erekki gott
að segja um, en nægileg er þessi tilraun
til þess að sanna, að aðferð sú, sem herra
Guðmundur i Landakoti hafði, heflr verið
mjög ónákvæm. Daginn áður en bólu-
setningin f'ór fram á Grímsstöðum drapst
1 kind þar úr pest. Um 30 fjár hafði
drepizt dagana áður«.
Enn um taðvjelar. í 70. tölubl. ísafold-
ar f. á. heflr herra Sigurður Sigurðsson á Lang-
holti i Flóa ritað greinarstúf um taðvjelar, og
gefur hann mjer tilefni að fara um þær nokkr-
um orðum.
Það má óhætt fullyrða, að þeir, er eiga góða
taðvjel, eru honum samdóma um. að hún spar-
ar mjög vinnu, og, það sem meira er í varið,
mylur áburðinn svo smátt, að enginn verður
úrgangur og kemur hann því að fullum not-
um.
En allt fyrir það, þó verkfæri þetta haíi náð
mjög mikilli útbreiðslu, þá hefir það samt eigi
almennt fengið verðskuldað álit, sökum þess,
að það kemur—því miður—víða lítið meira en
að hálfum notum, vegna þess, að flestir hafa
það svo litið, sem verða má, og jafntramt illa
gert, þar eð margir basla við að klambra þvi
saman sjálfir, eða að öðrum kosti leita til þess
manns. er á að heita lagtækur, jafnvel þó hann
geti eigi smíðað það svo i lagi sje; þvr það er
nokkur vandi, þó verkfæri þetta í sjálfu sjer
sje einfalt eða ómargbrotið.
Tiigangur minn með línum þessum er að
leiðrjetta nokkur atriði í fyrnefndri grein, sem
höfundur hennar ter eigi rjett með sökum ó-
kunnugleika. Það er t. a. m. ekki rjett þar
sem hann segir: »Síðan hafa þær verið endur-
bættar á ýmsan hátt, einkum af herra hrepp-
stjóra Sigurði á Hellulandú. Höfundur hennar
Gíslí Sigmundsson á Ljótsstöðum, hefir bezt
endurbætt hana. Sigurður hefir gert tilraunir
í þá átt, en fæstar til bóta, hann mun hafa
smíðað þær flestar hjer í Skagafirði, því Gísli
gat ekki gefið sig við því, með því hann var
stöðugt við húsasmíði á þeim árum. Að þær
sjeu beztar frá Sigurði er heldur ekki rjett.
Þær eru álitnar betri eptir Gísla, mylja tals-
vert fljótara og öllu smærra, einnig betur
smíðaðar.
Greinarböfundurinn getur þess, að þegar
hann fór úr Norðurlandi 1890 hafi verið fleiri
en ein á sumum bæjum, og er það vottur þess
að þær mylja eigi fljótt, enda segir hann, að
Sigurður hafi þær eigi stærri en það, að 1
maður snúi þeim, og sje því ekki sveif nema
á öðrum endanum; en með því að hata hana
svo litla, verður sá er lætur upp í vjelina ein-
att að biða eptir henni, en geri það sami mað-
ur, sem snýr gengur verkið akaflega seint.
Gísli hefir þær nokkuð stærri og snúa þeim 2
og þriðji maöur hefir tæplega undan að láta
upp í, enda kemur það fyrir, að sama vjelin
er notuð af 2—3 bæjum yfir vorið, og hæg-
lega má mala yfir daginn 150 hestburði. Þó
þær sjeu þetta stærri, telur .enginn eptir sjer
að flytja þ»r á milli reinanna, þykir og þægi-
legast að bera þær á klárunum, sem notaðar
eru til að raka saman hlössunum. Það flýtir
mjög fyrir ávinnslunni, ef þess er gætt jafn-
framt og hlössin þiðna að vorinu, að moka
vel úr þeim, við það molna stærstu kögglarn-
ir í sundur og gengur því fl jótara ofan í vjel-
ina og Ijettara að mylja, er mykjan er sem
hörðust.
Það er alls ekki meining mín, að gera lítið
úr smiðum Sigurðar; hann er sem kunnugt er
fjölhæfur smiður og hugvitssamur; Gísli er
er það lika, en töluvert vanari trjesmiður.
Sje vandlega tínt upp í vjelina þarf svo sem
ekkert að hreinsa túnin á eptir, og eru þann-
ig unnin 2 verkin I einu.
Linum þessum bið jeg herra ritstjóra Isa-
foldar að ljá rúm í sínu heiðraða blaði.
Óslandi í Skagafirði í nóvember 1894.
Rögnvaldur Þorleifsson.