Ísafold - 26.06.1895, Síða 1
Kemnr út ýmisteinu sinni eða
tvisv. í viku. Verð árg.(80arka
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l‘/» dolí.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
ÍSAFOLD
Uppsögn(skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sje-
til útgefanda fyrir l.oktober.
Afgreiðslustofa blaðsins er í
Austurstrœti 8.
XXII. árg.
Reykjavik, miðvikudaginn 26. júni 1895.
54. biað.
H. Chr. Hansen, stórkaupmaðui (Kör
holmsgade 3) í Kaupmannahöfn, byrjaði ís-
lenzka umboðsverzlun 1882, tekur að s.ier
innkaup á vörum fyrir ísland, selur einnig
islenzkar vörur í Kauþmannahöfn og Leith.
Kaupir íslenzk frímerki fyrirhæsta verð.
vp.'v^'vi*
Heykjavik 26. júni.
»Ef hinir gera það«! — Af þeim heídur
fáu kjördæmum, sem fulitrúa munu eiga
á þessum Þingvallafundi núna, hafa nokk-
ur, ef ekki hjer um bil annaðhvort þeirra,
látið tilleiðast að senda á fundinn af þeirri
ástæðu, að önnur kjördæmi kynnu að gera
það. Það væri leiðinlegt að gera það ekki,
ef hin kjördæmin gerðu það, og þvi af-
fáðið að vera þÓ með. Afráðið sumstaðar
að eins með einhverju hrafli af þvi litla
hrafli af kjósendum, er mættir voru á svo-
nefndum þingmálafundi. Og afráðið ekki
Öðru vísi en þannig, að sagt var sem svo,
ef einhver ijeti á sjer heyra, að hann fýsti
að fara, jafnvel fyrir ekki neitt, — þá sögðu
menn að sjer stæði á sama, eða þeir sögðu
ekki neitt, — greiddu ekki einu sinni at-
kvæöí. Um nauðsyn eða nytsemi þessa
Þingvallarfundarfyrirtækis ekki stunið upp
einu orði. Miklu fremur tekið fram af
sumum, mótmælalaust, að fundurinn væri
þarfl aus og þ5rðingariaus. Og loks því nær
helmingur af kjördæinum iandsins fulltrúa-
laus á fundinum. Og slíkum allsherjar(!J-
fundi ætlast þeir til, aö heimurinn beri
djúpa iotningu fyrir sern mikilfenglegitm
vott um alvarlegan, áhugamikinn þjóðar
vilja. sjerstáklega i stjórnarskrármálinu !
Heföi nú ekki verið niun snjallara, að
fára aldrej að bisa við þetta Þingválla-
fundarhald núna?
Þá heföi það þó getað dulizt hoidur,
þetta greinilega þjóövilja leysi.
Einhverja dálitla sljákkun í »Skúla
farganinu* virðist það votta, að svo geyst
sem farið var á Arnesinga þingmálafund-
inum í fyrra dug, að Iiraungerði, þá liurfu
þeir samt frá að vilja láta greiða Skúla
svonefndar embættismis is skaðaliætur. En
að hann væri settur inn í embætti siit
aptur,— þaö heimtuðu þeir skilmálalaust,
að þingið krefðist af stjórninni. Það mun
þó ekki hafa verið af því, að þeir vissu,
að búið var að auglýsa embættið laust,
og búið að ákveða Sk. eptirlaun : í stuttu
máli fyrirsjáanlegt, að hvorki þíng nje
stjórn mundi láta sjer detta í hug sú fjar-
stæða, að gegna annari eins heitnsku?
Seladráp, laxafriðun o. s. frv. heflr verið
stórmikið áhugamál fyrir Árnesingum mörg
ár undanfarin, bæði á þingmálafundum
og utan þeirra. Nú á þessum þingmála-
fundi liggur við, að þeir sjeu búnir að
steingleyma því, fyrir—»Skúlafarganinu«.
Slíkrar staðfestu má mikið þykja til koma!
Fiskiveiðar Englendinga við ísland.
Eptir Hafnarblaðinu Nationaltidende.
VerndarfjelagEnglendingafyrir sjáfar-
útveg hjelt 24. apríl fjölsóttan fund f
Lundúnum; koniu þangað fulltrúar frá
hinum ýmsu fiskiveiðaplázum. Sir Edw.
Birkbeck stýrði fundiuum, og kvartaði
hann þegar í inngangsræðu sinni und-
an því gjörræði, sem útlend herskip
beittú við ensk fiskiskip, ög ieit hann
því svo á, sem þörf væri á að senda
brezk herskip til allra fiskiveiðastöðva,
en einkum tók hann fram veiðistöðvarn-
ar við Þýzkaland, Danmörh og ísland.
Eptir nokkrar umríeður var borin fram
svolátandi tillaga til fundarsamþykktar:
»Fundurinn er á þeirri skoðun, að hin
nýju lög, er danskastjórnin hefir gefið út,
lög, er banna að flytja botnvörpuveiða-
færi i landhelgi við Island, valdi ensk-
uni fiskimönnum alvarlegra örðugleika,
og það þvi f'remur, sem utan við þriggja
fjórðungsmílna takmörkin eru góðar
veiðistöðvar, sem vel eru fallnar til
botnvörpuveiða, svo að allar tak-
markanir í þá átt, sem um er að ræða
í þessum nýju lögum, bægja skipunum
frá að komast upp að ströndunum, tii
þess að átta sig á, hvar þau eru stödd,
eða leita landskjóls. Enda þótt sann-
gjarnt sje að banna botnvörpuveið-
arnar sjálfar, ætti þó að afnema laga-
ákvæðið gegn flutningi botnvörpuvetðar-
færi í lándhelgi«.
Á fundinúm var lagt fram brjef, sem
utanríkisstjórninenskahafðisentHeneage
þingmanni, og hafði hún áður borið sig
saman við »Board of Trade«. Brjefið
var ritað i tilefni af mótmælum, er koinið
höfðu frá ábyrgðarfjelagi Grimsbys fyrir
gufuskip tii fiskiveiða út úr þessum
dönsku lögum. Utanríkisstjórnin leiðir
i brjefi þessu athygli að því, að þetta
islenzka fiskiveiðamál komi alls ekkert
við samningnum um fiskiveiðar í Norð
ursjónum utan landhelgi . . . »Rjettur
hverrar þjóðar«, segtr stjórnin, »til þess
að banna fiskiveiðar i landhelgi og gera
ákvarðanirfyrir löggæzlu þar,er almennt
viðurkenndur, og sjeu ekki sektir fyrir
brot gegn þeim ákvörðunum gersamlega
óeðlilega háar, þá geta önnur ríki ekkert
skipt sjer af þeim málum. Sektirnar,
sem hin nýju islenzku lög ákveða, eru
auðvitað mjög háar; en konsúll Breta
í Reykjavík hefir lýst yfir þvi, að lögin
stafi af því, að með mildari lögum
hafi ekki tekizt að tálma botnvörpu-
veiðum útlendinga i íslenzkri landhelgi.
Þegar svo stendur á, getur stjórnin ekkl
mótmaflt þeim sektum, sem lagðar eru
við botnvörpuveiðum útlendinga i land-
helgi, enda þótt þær sektir sjeu óneit-
anlega mjög háar. Annað mál er að
leggja sektir við því, að skip flytji að
eins botnvörpuveiðafæri í landhelgi,
og sendiherra hennar hátignar í Kaup-
mannahöfn hefir verið boðið, að telja
um fyrir dönsku stjórninni að þvi er
snertir þann hluta laganna. Að þvi er
við kemur herskips-sending, skal jeg
leiða athygli að því, að enskt herskip
hefir ekkert vald yfir fiskiveiðum í land-
helgi við Island, sem hin nýju lög eiga
eingöngu við. Virðist því engin nauð-
syn bera til að senda neitt herskip til
Islands«. — Þingmaður sá, er áður er
nefndur, mælti því næst með því, að
fundurinn samþykkti tillögu þá, er komið-
hafði fram, til þess að styrkja utanríkis-
stjórnina í tilraunum hennar í Kaup-
mannahöfn. Honum þótti hinar lögá-
kveðnu sektir óþarflega þungar; en það
sem mótmæla þyrfti væri það ákvæði,
að það væri talið sama lagabrotið hjá
ensku fiskiskipi, að vera statt í land-
lieigi vlð Island og að vera að fiska þar,
Tillagan var svo samþykkt í einu hljóðii
En vjer sjáum ekki, hvernig það á
að takast, að varna enskum fiskiskip-
unt að nota botnvörpur í landhelgi við
Island, svo framarlega sem þeim sje
leyft að vera þar tneð botnvörpuveið-
afærin. Hvervetna, þar sem enskir
fiskimenn hafa verið nokkurn veginn
óhultir fyrir eptirliti og afskiptum yfir-
valdanna, hafa þeir kynnt sig að ósvífni.
Yfirvöldunum á Islandi er alls eigi unnt
að leggja hin minnstu bönd á framferði
útlendra fiskimanna, og það þarf meira
en eitt einasta danskt herskip til þess
að halda verndarhendi yfir rjettindum
íslendinga á sjónutn. Oss virðist því
mjög æskilegt, að lögunum sje ekkert
breytt, en skyldu breytingakröfurnar
verða of sterkar, mætti fara fram á
það við Englendinga, sem Frakkar hafa
þegar gert lengi, að senda þangað her-
skip, sem sæju um, að landar þeirra
fengjust alls ekki við neinar fiskiveiðar
í landhelgi við Island, og til þess yfir-
leitt að sjá um að fiskimenn þeirra hög-
uðu sjer þar sómasamlega.