Ísafold - 29.06.1895, Blaðsíða 1

Ísafold - 29.06.1895, Blaðsíða 1
Kemurútýmisteinu sinni eða tvisv. i viku. Yerð árg.(80arka minnst)4kr.,erlendis5kr. eða l*/» doll.; borgist fyrir miðjan júlí (erlendis fyrir fram). ÍSAFOLD Uppsögn (skrifleg) bundin við- áramót.ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. oktober. Afgreiðslustofa blaðsins er í Austurstrœti 8. XXII. árg. Reykjavik, laugardaginn 29. júni 1885. 55. bfað. Eins og- að undanförnu verður landstoankinn opinn í júli og ágústmán. í sumar frá kl. 93/í f. m. til kl. 123/4 e. m. Banka- stjórnina verður að hitta frá kl. 10V* til kl. 11*/*. Keykjavík 27. júní 1895. Tr. Guiinarsson Gufuskipsferðamálið. i. Svo framarlega sem Sagt verður með sönnu, að sterkur áhugi sje vaknaður manná á meðal hjer á landi fyrir nokkru máli, þá eru samgöngur vorar við önnur lönd þaö mál. Það mun óhætt að full- yröa, að ekki sje til nokkur sá íslending ur, sem ekki kannast við það, að vjer getum ekki lengur lotið að öðru eins og oss hefir hingað til verið boðið í því efni. Eíkari óánsegja er sjaldgæf hjer á landi ten sú, er hvervetna kemur i Ijós, þegar minnzt er á gufuskipaf'jclagiö danskn, með öllu þess hringsóli ogdiolli, háa flutnings- og fargjaldi, iila aðbúnaði og strjáht og óáreiðanlegu skipagöngum. Oss kemur fráleitt eins vel saman um nokkurt þjóð- mál eins og það. að samgöngur vorar við önnur lönd verði að komast i betra horf. II. Vjer þurfum að fá fastar, áreiðanlegar samgöngur við önnur iönd, miklu tíðari en vjer liöfutn átt og eigurn enn kost á — ekki sjaidnar en tvisvar á mánuði á suntr- um og einn sinni á vetrum. Ekki ætti að þurfa meira en eitt skip til þess að fara milli landa fyrst uni sinn, en það aflti að vera svo skjótt í förum,aö það gæti jafn- franit komið við á sninrum í hverri ferð á hinunt slærri höfnuni umliverfis landið, en á hinmu minni stöðum til skiptis. Og svo þyrfti að hafa dálitla gufubáta lil að draga uppskipunarbáta, nokkra í einu, til þess að uppskipun og framskipun þurfi ekki að ganga jafn sigalega og maður á nú að venjast. og jafnvel til frekari flutn- inga fiá miUilandaskipinu, þar sem svo hagar til. Það verður f'ráleitt niiklum örö- ugleikum bundið að fá alinenna viður- kenning l'yrir þvi, að minna getum vjer ekki sætt oss við, að því er samgöngur á sjó snertir. Svo er nú hættara við að leiðir manna skilji, þegar til þess kemur, að kippa því í lag sem ábótavant þykir, koma málinu í eitthvert nýtt ákveðið borf. III. Því hefir verið hreilt lijer i blaðinu, að tiltækilegt mundi. að landið eignaðist sjálft gufuskip og hefði það i förum á eigin kostnaö. Mörgum hefir áreiöanlega getizt vel að þeirri tillögu. Vjer skulum eigi úyljast þess, að oss virðist hún all-var- hugaverð. Bein gróðafyrirtæki þykja að jafnaði ganga nokkuð örðugt fyrir land stjórnum. Og auk þess er svo ástatt sem stendnr, að nokkuð örðugt mundi í fljótu bragði að vísa á mann, sem því væri vax- inn að veita forstöðu sliku fyrirtæki, sem því er þar væri um að ræða. IV. Það muna allir undirtektirnar undir siglinga- og járnbrautarmálið það í fyrra, »stóra málið« sem kallað var. Um járn- brciutar-hliöira á því máli voru skoðanir manna mjög skiptar. En um siglinga- hliðina kom mönnum allvel saman. Það er lítill vafi á því, að ef kostur hefði ver- ið á að aðskilja það tvennt, þá hefði tek- izt samningar um siglingarnar, og það þótti illa farið, að þess var enginn kost- ur. En að þar væri nú til tekið, er í fyrra var frá horfið, og reynt, hvort ekki kunni að takast við Englendinga járnbraut- arlausir samningar um þær siglingar, sem vjer fyrir hvern mun þurfum að fá. Vjer höfum ekki trú á því, að þeir samningar takist viðunanlega við annara þjóða menn, t. d. Dani eða Norðmenn, sem helzt mundi annars til leitað. Og það er einkum fyrir þá sök, að Englendingar standa svo langtum hetur að vigi en aðr- ar þjóðir. Það mundi örðugt, að fá Dani til að hlaupa yfir millistöðvarnar, og vjer vitum hvað það þýðir, að hafa Færeyjar á ferðaáætluninni. Englendingar eiga skemmra til vor en aðrir. Þeir einir geta fært sjer i nyt Vesturheimsflutninga, ef þeir eru nokkrir. Þeir einir flytja sauðfje hjeðan af landi — og það væri fráleitt neinn bagi fyiir laudið, þó að fleiri en einn yrði um hituna í þeirri grein. Og þá er ekki minust um það vert, að það eru Englend- jngar einir, sem g< ta heint ti) vor þeim ferðaniannastraum, sem oss munaði nokkuð uni. Þaö er 'skortnrinn á satn- göngum við England, en ekki við Dan mörk eða Noteg, sem veldur því, að vjer enn förum á mis við þá tugi þúsnnda, sem hvcrvctna eru samfei'ða ferðamanna straumnum, þar sem hann er að nokkrn marki. Og enn má benda á það, að fyllstu líkur cru til þess, að fyrirtækinu mundi að öllu samanlögðu verða betur stjórnað í höndum Englendinga en annara, Dana að minnsta kosti; hjá Englendingum mundi allt ganga greiðara og verða landsmönn- utn notadrýgra og affarasælla. V. Það er lítill vafl á því, að siglingasamn ingar geta tekizt við Englendinga — svo framarlega sem vjer viljum nokkuð leggja í sölurnar sjálfir. En það verðum vjer að hafa hugfast, að vjer verðum eitthvað til að vinna. Vjer f'áum aldrei komið sam- göngum vorutn í viðunanlegt horf, nema vjer tínium að leggja eitthvað fram sjálfir, og það fráleitt neitt lítilræði, sízt i byrj- uninni. Vjer fáum aldrei útlenda menn til að leggja út í annað eins og þaðr að koma samgöngum vorum við önnur lönd í viðunanlegt horf, nema þeir fái á- þreifanlega sönnun fyrir því, að oss sje það verulegt áhugamál. Það er engin vom Fyrst og fremst er því samfara efnaleg á- hætta, og svo er enginn vafi á því, að á- hættan er í byrjuninni meiri í augum út- lendinga, sem ekki eru hjer gagnkunnugir, heldur en hún er í raun og veru. Þeim hættir eðlilega við, að miða við ástandið eins og það er nú. En tíðum og greiðum s <rogöngum fylgir svo mikil bylting i við- skiptalifinu, að landið á undan og eptir á í raun og veru ekki saman nema nafnið. VI. Vjer þurfum áreiðanlega að leggja fram allháan styrk, fráleitt öllu lægri en þann, er farið var fram á í fyrra til siglinganna, 50,000 krónur. Og vjer verðum að sjálf- sögðu að lof'a honum um nokkuð mörg ár, með engu móti skemur en til 10 ára. Það má ganga að því vísu, að örðugast verði i byrjuninni að gera arðberandi það fje, sem í fyrirtækið veröur lagt. og þeir, sem leggja það fram, verða að fá sanngjarnan tíma til að kornast að raun um, hvort fyrirtækið er í raun og vérú arðberandi eða ekki. Og svo má, ef til viil, húast við, að því fjelagi, sem hingað til hefir lagt okkur tii aðalsamgöngufærin, vafa- laust með mjög miklum gróða, og að öll- um líkindum þykist eiga okkur með húð og hári, muni þykja súrt 1 broti að missa tangarhaldið at' okkur. Engum ætti að koma á óvart, þótt það fjelag reyndi að vinna slig á þessari framfaraviðleitni með megnustu samkeppni. Það hetir leikið slikt bragð áður við sina eigin landa með allt of miklum árangri. Það mundi hverjum þeim kunnugt, sem hugsanlegt væri að senija við, og því má ganga að því vísu, að hverjir sem tækju þetta fyrirtæki að sjer, mundu heimta, að því væri sjeð far- horða þau árin, sem þeir þyrftu að óttast megna samkeppni og þar af leiðandi lítinn arð eða jafnvel fjártjón. VII. Meginhluti þess fjár, sem til þcssa fyrir- tækis þarf, hugsum vjer oss að komi frá enskum mönnum, eins og þegar hefir verið tekið fram, og þá yrði fyrirtækið eðlilega undir þeirra yfirstjórn. En engu að síður væri ekki að eins ákjósanlegt, heldur og sjálfsagt, að stjórn iandsins hefði jafnframt hönd i hagga með, að því er tilhögunina snertir að ýmsu leyti. Vjer sjáum ekki, að því augnamiði yrði náð á auðveldari nje ánægjulegri hátt en þann, að landið ætti einhvern hluta af hötuðstólnum, segj- um */5 part, enda virðist ekki neitt þurfa að vera því til fyrirstöðu. Það væri að minnsta kosti minni áhætta fyrir landssjóð, heldur en ef hann færi að leggja út í skipkaup upp á eigin spýtur að öllu leyti,.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.