Ísafold - 07.12.1895, Síða 1

Ísafold - 07.12.1895, Síða 1
Kemur öt ým ist eí ®,u sinni eða evisv.íviku, Verð árg.(80arka miimst) 4 kr., eriendis 5 kr. eða i‘/» dolí.; borgist fyrir mið/an júli (erlendis iyrir í'ram). ÍSAFOLD. CTppsögn(skriíieg) bundin við áramót. ógild nema komin sje til útgefanda fyrir l.oktober. Afgreiðslustofa blaðsins er í Austurstrœti 8. Beytejavík laugrardagina 7. desember 1896 XXII. árg. TVISVAE i viku kemnr ísafold út núna til jólanna, nefnil. miðvikudaga og laugardaga, Ferðaáætlun landsgufuskipsins fylgdi næsta bl. á nndan til allra kanpenda ísai'oldar, ntan lands og innan. Kennslu í teikning og málaralist veitir Kristín Jakobsson í I,andakoti bæði börnum og fuílorðnurn i hú-i kaupmauns W. 0. Breiðfjörðs (stóra salnum) hvern virkan dag. Árangur lögsóknarinnar út af forseta-atkvæöis-hneykslinu. Lesendum ísafoldar er fráleitt úr minni lið- in málshöfðun forseta neðri deildar, br. Beni- dikts Sveinssonar, gegn ritstjóra þessa blaðs út af frásögn af háttalagi hans á þingfnndi í stjórnarskrármálinn í sumar og ummælum um það atferli. Hjer á landi eru nyjungarn- ar ekki svo tíðar, að mönnum verði ekki minnisstætt það, er jafnmikla eptirtekt vekur eins og sú málshöfðun. Viö nndirrjett var ísafold sýknuð með öllu og fyrir þeim dómi færðar röksamlegar ástæð- ur, sem birtar hafa verið hjer í blaðinu. Landsyfirrjetturinn hefir nú með dóm, iupp kveðnum 2. þ. m , komizt að s'ómu niður- stöðu sem undirrjettur. 1 dómsástæðum yfirrjettarins er það af- dráttarlaust tekið fram, að skyrsla ísafoldar uin háttalag forsetans bafi verið rje.tt. Og nm hugleiðingar ísafoldar út af því hátta- lagi kemst yfirrjetturinn meðal annars að orði á þessa leið: »í hiimi síðari greininni, sem er sakarefni, cr sagt með tilvitnun til skýrslunnar í grein þeirri fram,ar í blaðinu, sem talað er nm bjer á undan, að stilling og óhlutdrægni sje jafn- rík og belg skylja þingforseta sem dómara í dómarasæti, að þingforseti verði að fara í allt annan ham, er hann er settur í það virðu- lega og ábyrgðarmikla emhætti, að það sjeu fáheyrð afbrigði fráþessari sjálfsogöu og allsstað- ar viðurkenndu reglu, sem forseti neðri deildar haf i sýnt þá fyrir 2 dögum (o: þegar stjórnar- skrármálið var til atkvæöagreiðslu í ncðri deild), að það sje raunaleg ávirðing, fyrst að grípa til þess óyndisúrræðis, að vilja taka sjer at- kvæðisrjett, því næst að óska úrskui-öar þing- deildariimar, en óhlýðnast honum gjörsam- lega og heldur ódælt, og muni mjög vafasamt, hvort nokkurn tíma hafi nokkurs staðar gjorzt dæmi viölíka hátternis af þingforscta. — 1 grein þessari er þannig með þungum orðum fundið að aöferð áfryjanda, og honum horið á brýn, að hann hafi eigi synt þá stilling og ó- ldutdrægni, sem hæfi forseta, og sje þetta raunaleg ávirðing; en áfrýjandi virðist liafa gefið nokkurt tilefni til þessara ummœla....» Svo þetta er þá það, sem forsetinn hefir grætt á málshöföun sinni. Hann hefir fengið það staöfest af tveimnr dómstólum, að hann hafi gefiö tilefni til þeirra ummæla, að hon- um hafi oröiö á sú raunalega ávirðing, að hafa í frammi fáheyrð afbrigði frá þeirri sjálfsögðu reglu fyrir þingforseta, að viðhafa stilling og óhlutdrœgni, og að það muni mjög vafasamt, hvort nokkurn tíma hafi nokkursst.aðar gjörzt dœmi viðlíka hátt- ernis af þingforseta. Oneitanlega betur farið en heima setið!! Það væri nú, ef til vill, ástæða til, að láta þessa málshöfðun liggja í láginni, eins og hvern annan skapstyggðar-barnaskap, sem fengið hefir makleg úrslit, ef ekki væri svo raunalega ástatt, að hún hefír dýpri og víð- tækari þýðing en þá eina, að sýna miður við- felldna hlið á þeim manni, sem máliö höfðaði. En það er ekki rjett, að ganga þegjandi fram hjá því atriöi, að hann er aðalleiðtogi þeirra frelsisglamrara, sem mest hafa látiö yfir sjer á hinum síðari árum og fyllt eyru þjóðarinn- ar með ópi og óhljóðum að hverjum þeim, er hefir leyft sjer að hafa sínar eigin skoðauir, hvað sem öllum gauraganginum hefir liöið. Enda þurfti svo sem ekki að sökum að spyrja, h veniig’»Þj('ðólfur« tók í strenginn, þegar ísa- fold hafði skýrt frá háttalagi forsetans. ísafold hafði hafzt það að, að skýra ná- kvœmlega rjett, eins og sannaðist fyrir dóm- stólunum, frá því,er einn tiltekinn dag gerðist á þingi þjóðarinnar,og svo láta í Ijós sínar skoðanir á þessum þingathurðum, án þess að minnast með einu orði á nokkuð það, er þeim atlmrð- um væri óviðkomandi. Hvin hafði með öðrum orðum notaö í fyllsta hófi það annars fremur takmarkaða prentfrelsi, sem Iög þessa lands heimila. Það er þetta, sem leiðtogi »frelsis- mannanna« ætlar að hanna blaðinu. Fyrir þetta ætlast hann til að ritstjóri þessi sæti sektum eða fangelsi. Og það blað, sem gerzt hefur smalaseppi hans og stöðugt tjáist vera á þönum fyrir »frelsið«, gengur tafarlaust í lið með honum! Svo innileg er frelsisþráin hjá þessum kumpánnm, hvort sem þeir nvi er í leiðtoga eða smala stöðu, að ein af þeirra allra-hjartanlegustu eptirlöngunum er sýnilega sú, að svipta menn einum af hinum dýrmæt- ustu rjettindum, sem þessi þjóð hefur öðlazt, rjettindnm til að minnast á opinbera framkomu þeirra manna, er störf hafa á hendi fyrir þjóðfjelagið! Margt finnum vjer Islendingar að stjórn vorri, og óueitanlega er margt af þeim að- finnmgum á rokum byggt. En fróölegt þætti oss að fá bendingu um, hvenær komið hafa fram hjá henni jafn - rússneskar ófrelsis- og kúgunartillmeigingar eins og þær, að leitast við að koma mönnum undir refsingu laganna fyrir að gera almenningi það skiljanlegt, er ger- ist á þingi þjóðariimar í viðurvist fjölda manns. 92. blað. Það væri og fróðlegt að vita hvernig litið væri á slíkar frelsishetjur í öðrum löndum. I því efni getur maður ekki byggt á neinni reynslu, því að slíks eru frá- leitt dæmi í nokkuru landi af hálfu þeirra manna, sem eru að telja þjóð sinni trú um að þeir standi sífellt á verði fyrir frelsi hennar. Vjer tölum ekki um þær þjóðir, sem lengst eru komnar í skilningi á frelsinu, og leyfa hlöð- um sínum að segja hvað sem þeim dettur í hug um öll þau mál, er almenningi koma við. Vjer tölum um þær þjóðir, sem hafa álíka prentfrelsi eins og vjer íalendingar. En þótt vitanlega sje engin reynsla á slíku hneyksli þeirra á rneðal, þá dirfumst vjer að fullyrða, að þeir frelsispostular hjá þcim, sem ljetu slíkt spyrjast um sig, mundu tafarlaust verða lilegnir — ekki í hel, hcldur í órjúfanlega, eilífa þögn. Smákaflar um verzlun, samgöngur o. fl. eptir Jakob Gunnlögsson. II. í beinu sambandi við verzlun eru sam- göngurnar, því án þeirra er verzlunin og viðskipti ómöguleg. Samgöngurnar gjöra meira en að efla verzlanina, þær flytia þjóðir og hjeruð nánar saman og efla framfarirnar á margvíslegan hitt. Allar þjóðir geta iært nokkuð hver af annari, jafnvel sú þjóð sem stendur framar hinni í menntun og kunnáttu, getur !ært afþeirri sem skemmra er komin, en sú þjóðin, sem skemmra er á veg komin, getur þó lært enn meira af þeirri, sem að öllu saman- töldu stendur framar. Á síðustu árum hefir það verið vakandi fyrir þjóð og þingi, hversu samgöngurnar ern áríðandi til þess að efla framför í landinu, og er sannast að segja, að viljann til þess að koma þeim í betra horf heflr eigi vantað og eiga allir hlutaðeigendar þakkir skylið fyrir það. í því máli heflr eigi brytt á ósamlyndi og tortrygni. Það er nú reynslan, sem á eptir að kenna oss að flnna híð bezta fyrirkomulag. Næsta ár fáum vjer mjög tíðar gufa- skipaferðir til og frá útlöndum, því auk þess, sem gufuskipafjelagið danska o. fl. munu halda áfram ferðunum svipað og ogáður, kemur lanlssjóður til með eitt gufu- skipeðasintvögufuskip,efþauverðatvö. Það má ganga að því vísu að þar muni landið þurfa að borga nokknð dýran kennslueyri, en með tímanum munu menn læra að sjá galla þá sem á eru í byrjuninni og laga þá. Eins mun það sjást með tímanum, hvort haganlegra muni að kaupa eða leigja gufuskipin, og má síðan ætlast til, að reynt muni verða að fá ferðunum fram hal dið á stm haganlegastan hátt og með

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.