Ísafold - 25.03.1896, Side 3
67
•sveitunum nærlendis, hin nýja verzlun í Yík,
sem flestir Eytellingar munu farnir að skipta
o. fl. Ails hafa verið rónir 9 róðrar, og mun
hæstur hlutur orðinn tæpir 60 af þorski. Nú.
er komin loðna og stórfiskur, enda var aflinn
líflegastur í gær, bæði í djúpi og undir landi;
tvennir hióðu, aðrir öfluðu bjarglega.
Fjenaðarhöld, eru góð til þessa, en menn ótt-
ast að fje verði mjótt og magurt með vorinu
eptir hið kraltlausa græugresi, sem þaut upp
é, þorranum, og ijeð var þá að svelta s:g f'yrir
Um háskólahug'myndina íslenzku fer
ritstjóri y>Fimreiðarinnar<i, alþingismaður, dr.
phil. Valtýr Guðmundsson háskólaltennari
svofeldum orSum, í eptirmála aptan viS þýð-
ing eptir sr. Matth. Jochumsson á hinum
frægu ljóSum Welhavens »Norges Dæmring«
(Eimr. II. 56):
»Þetta merkilega snilldarkvæði getur alveg
eins átt við apturelding Islands eins og aptur-
•elding Noregs. Það getur verið heilsusam-
legt fyrir marga Íslendinga að líta í þessa
skuggsjá, að minnsta kosti fyrir þá, sem eru
ekki enn orðnir allt of grómteknir af þeim
þjóðarþvergirðingi og eintrjáningsskap, sem
heldur að nútíðarþjóð vor geti lifað eingöngu
á frægð forfeðranna og helzt vill bægja öllum
útlendum menntunarstraumum frá landinu, t.
d. með því að hrófla upp íslenzku háskóla-
tildri og fleira þess konar, sem aldrei gæti orð-
ið annað en apaspil, til athlægis fyrir útlend-
inga, en niðurdreps fyrir sannarlegt íslenzkt
menntalíf. Það er öðru mér en að slíkt sje
sönn þjóðrækni. Það er í rauninni ekkert
annað en þjóðdramb og hjegómaskapur, sem
getur orðið því hættulegra, sem það jafnan
reynir að hjúpa sig í tælandi þjóðræknisblæju,
þó hún sje býsna ’götótt, svo allt af skíni í
óhroðann undir, ef vel er að gáð«.
Brezkir ferðamenn. Von er á 35—40
brezkum ferðamönnum í sumar, sem koma í
einum hóp og ætla til Þingvalla, Geysis og
Heklu. Foringi ferðarinnar verður Mr. Howell,
sá hinn sami sem komst upp á Oræfajökul
hj er um árið, — höf. bókarinnar Icelandic
jfictures drawn with pen and pencil. Flokk-
urinn leggur af stað með landskipinu »Vesta«
11. júlí og fer aptur með »Laura« eptir 18
daga dvöl hjer á landi. Ferðamennirnir ætla
að fara fótgangandi um landið, og flytja
farangur sinn á 5—6 hestum. Fyrir hönd
förunauta sinna óskar Mr. Howell að fá sem
íslenzkastan mat á bæjum. Með því að haga
ferðinni á þennan hátt er búizt við að kostn-
aðurinn verði ekki meiri á mann en 360 kr.
Matarást á menntastofnuu.
Herra ritstjóri! Á þessari roinútunni er hjer
nú staddur Akureyrarpósturinn og færir hann
mjer 1. tbl. »Stefnis« þ. á.Jsem jeg strax sá,
að hefir kveðju að íæra okkur Húnvetningum
og jeg því finn viðeigandi að taka öðruvísi
en með algerðri þögn.
»Stefnir« segir, að okkur Húnvetningum þyki
svo mikill matur í að haia kvennaskóla og
þeir menn muni ráða hjer i sýsluneind, sem
svo miklar hvatir hafi til að halda dauðahaldi
i skólann að alls ekki sjeu líkur til að þeir
Akureyrarbúar nái í hann til sín.
Það er nú vitaskuld aö við Húnvetningar
þurfum sizt að þakka okkur einum, hvað
Eyjarskólinn er á veg kominn, þvi þó við
matarhliðina, sem »Steínir« spýtir þunnu af að
hugsa til, sje aðallega átt, þá i byrjuninni
eru það íremur Skagfirðingar en við Húnv.,
sem ijárstofninn framlögðu; og síðan skólinn
náði starfsfestu hefir, auk sýslna þessara og
landsjóðs, amtsráðið, fyrst meðan það var eitt
og síðan bæði eptir að þau urðu tvö, með
rausn og góðvild styrkt skólann, svo við
mættum játa það, að ef við vildum halda honum
svo tast, að ekki skyldi af sleppa fyrri en
hann veslaðist upp í höndum okkar, svo rjett
nefndu dauðahaldi mætti nefna, og þessari
fastheldni stjórnaði framast öllu matarást, þ.
e. kölluu og rikjandi viðleitni til að halda í
stofnun þessa, til að hata hana að fjeþúfu, ef
ekki tyrir allt sýslufjelagið. þá fyrir einstaka
menn þess, eins og »Stefnir« helzt gefur í
skyn, — þá munu þó þeir Húnvetningar tii, sem
»Stefni« yrðu þakklátir fyrir, ef hann gæti
dylgjulaust og rökstutt sýnt, að svona væri
nú í raun og sannleika göiugur hugsunarhátt-
ur sá er hjeldi menntastofnun við í Húnavatns-
sýslu handa ungu stúlkunum.
Við Húnvetningar skulum sízt fyllast öfund
nje afbrýðissemi, þó Eyfirðingum hafi farizt
ósjerplægnislegar en okkur í meðhöndlun og
ráðsmennsku þess fjár, sem skóli þeirra hefir
fengið. — Það væri lika að bæta gráu ofan
á svart. Fyrst að brúka ije það, sem skólan-
um er lagt. sem menntastofnun til nota og
vissum mönnum til þess kjörnum trúað fyrir
að meðhöndla sem hagsýnilegast stofnuninni
til eflingar — fyrst segi jeg að seðja maga
sjálfs sín á því, þar til skólinn væri á heljar
þröm kominn, en bæta því svo otan á að öf-
unda þá sem betur hafa á haldið og vilja enda
fá þá með stofnun þeirra tii sömu afnota.
En þrátt fyrir það þó »Stefnir« segi að al-
menningsálitið sje það, að menning standi á
efsta stigi í kringum hann, þá er mjer óhætt
að fullyrða, að það eru ekki nema sumir Hún-
vetningar, ef nokkrir eru, sem vildu senda
dætur sínar til að nema menntun þá og listir
sem hann segir að sinn vaxandi æskulýður
sje enn þá einu sinni að írama sig i. — Við
erum líka svo mannfáir og undir eins barn-
sárir, að við viljum helzt ekki missa fyrir
fullt og allt dætur okkar þó við sendum þær
frá okkur á menntastofnun, en það álítum við
að auðveldlega geti komið fyrir.
Eyjarskóla 26. febr. 1896.
Á. Á. Þorkelsson.
Aflabrögð. Þurr sjór hjer í innflóan-
um; reynt í gær hjer af nesinu á dýp3tu
íiskimiðum, en urðu eigi varir. Skútur
hafa komið inn hingað þes3a dagana vel
íiskaðar, helzt úr Hafnasjó og Miðness,
enda flskast þar vel á opin skip á færi.
Reytingur í austurveiðistöðum: Mýrdal,
Eyjafjallasandi o. s. frv.; sömul. i Þorláks-
höfn allgóður; mesta gættaleysi á Eyrar-
bakka og Stokkseyri.
Hitt og þetta.
Dauðir úr hungri. Lúndúnablaðið Times
skýrir frá því, að samkvæmt stjórnarskýrslum
hafið árið 1894 39 menn í Lundúnum dáið úr
sulti eða sjúkdómum, sem stafað hafi af skorti
og eymd. Árið áður hötðu 61 dáið af þeim
orsökum.
Háskólarnir í Bandaríkjunum, sem
flestir eru stofnaðir af prívatmönnum, fá irá
stuðningsmönnum sínum gjafir, sem fráleitt
eru dæmi til annars staðar í heimi. Rocke-
feller einn hefir þannig gefið háskólanum í
Chicago 13 miij. króna. Háskólinn var stofn-
aður íyrir sárfáum árum, og nú þegar nema
eignir hans 25 milj. króna, og Chicagomenn
gera sjer von um, að húsin fyrir hinar ýmsu
deildir hans muni verða tígulegri en háskóla-
deildirnar í Oxford og Cambridge. Ekki er
höigull á próíessorum. í jarðfræði einni eru
7 prófessorar og 2 aukakennarar.
Brezka þinghöllin verður innan skamms
raflýst. Fyrrum hefur verið harðbannað að
kveikja þar. A dögum Cromweils voru lampa-
Ijós bönnuð, og stafaði það bann af samsæri,
sem gert var um að sprengja þinghöllina í
lopt upp með púðri. Maður, sem óhlýðnaðist
boðinu og kveikti tvö ljós í höllinni, var
dæmdur í eins dags fangelsisvist. Árið 1717
fengu starfsmeun hallarinnar fyrst leyfi til,
að kveikja á lömpum. Um 1860 komu gasljós
í hana. Mikla þýðing hefir, hvernig höllin
er lýst, með því að þingfundir dragast opt
langt fram yfir miðnætti.
Aðalsmenn í Norðurálfunni, sem komnir
hafa verið í skuldakröggur, haía á síðari ára-
tugum lagt mikla stund á, að bæta íjárhaginn
með því, að ná í dætur miljóna eigendanna i
Vesturheimi, og hafa þær venjulegast verið
allfúsar á að kaupa sjer tignina með auðæfum
sinum. I haust auglýsti kaþólskur klerkur i
Indíana, að hann hefði á boðstólum prinz af
frönskum ættum, og að hann ætlaði að láta
hann fara fyrir tvær milljónir dollara, og
jafnframt borga vörumiðlinum 10,000 í ómaks-
laun, jafnvel 16,000 doll., »ef kaupin verða
um garð gengin íyrir 1. desember, með því
að mikið er undir þvi komið, að þetta verði
sem fyrst«, segir presturinn. Að líkindum
hafa eignir ættarinnar verið veðsettar og
skuldin falíið í gjalddaga í desembermánuði.
Astralíukjöt á Norðurálfumörkuðum.
Þrír helztu kaupmennirnir í Melbourne, sem
flytja út freðið kjöt, sendu síðasta ár, 1895,
354,000 freðna kindakroppa til Norðurálfunnar,
en 164,000 árið áður. Undir umsjón stjórnar-
innar voru í fyrra flutt út frá Melbourne 20
milj. punda af smjöri.
Til lieimalitunar
viljum vjer sjerstaklega ráða mönnum til
að nota vora pakkaliti, er hlotið hafa
verðlaun, enda taka þeir öllum öðrum lit-
um fram, bæði að gæðum og litarfegurð.
Sjerhver, sem notar vora liti, má örugg-
ur treysta því, að vel muni gefast.
í stað hellulits viljum vjer ráða mönn-
um til að nota heldur vort svo nefnda
»Castorsvart«, þvi þessi litur er miklu feg-
urri og haldbetri en nokkur annar svartur
litur.
Leiðarvísir á íslenzku fylgir hverjum
pakka.
Litirnir fást hjá kaupmönnum alstaðar á
íslandi.
Buchs Farvefabrik.
Studiestræde 32.
Kjöbenhavn K.
FinesteSkandinavisk Export Kaffe Surrog at
er hinn ágætasti og ódýrasti kaffibætir
sem nú er í verzlaninni. Fæst hjá kaup-
mönnum á íslandi.
F. Hjorth & Co.
Kaupmannahöfn.
Hjer með er skorað á þá, er telja til
skulda í dánarbúi Sesselju Egilsdóttir, er
andaðist í Grísatungu í Stafholtstungum 5.
nóvbr. f. á., að bera fram kröfur sinar og
sanna þær fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu
áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu
birtingu þessarar innköllunar.
Skrifst. Mýra- og Borgarfj.s. 28. febr. 1896.
Sigurður Þórðarson.
»LEIÐARVÍSIR TIL'LÍFSÁBYRGÐAR»
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og lyá dr
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynleg
ar upplýsingar.