Ísafold - 29.04.1896, Blaðsíða 3
Í07
tir úr túni sínu, og láta allt annað, hið marga
smáa ganga á trjet'ótum, getur aldrei blessazt,
og gjörir ekki heldur, en smáu sporin, gleiðk-
andi og vaxandi, eru happasæl, og landið fær
annað útlit.
Sýslufundur var haldinn hjer fyrir miðjan
marzmánuð, og er fátt af' honum að frjetta.
Hjer var þó samþykkt reglugjörð um hreins-
an hunda at' bandormum, sem hjer hefir með
miklum dugnaði. — það má þó segja um
sýslunefndiua — verið framkvæmd í þrjú áð-
ur undanfarin ár. Þó gat ekki enn á þessum
sýslufundi orðið samþykkt ný reglugjörð um
fjallskil og annað þar að lútandi, og er slíkt
'illt mjög, og bágt fyrir marga að eiga undir
hinni gömlu reglugjörð lengur að búa í sum-
um greinum.
Frjáls samskot
og iiauðungaráiögur handa einkisnýtum
landsómögum.
Herra ritstjóri! Mætavel líkaði mjer grein-
in um daginn í yðar heiðrað’a blaði um »á-
viröiiigar Hjálpræðishersins«. Það var orð í
tíma talað, og allt satt og rjett, þótt mörg-
nm muni samt hafa þótt það beiskt á bragðið.
Jeg lái yður ekki, þó að þjer hneykslizt á
þessari makalausu umönnun fyrir aurum fá-
tæklinganna, sem kaupa sig inn á samkomur
»hersins« (fyrir 5 eða 10 aura!), sem svo
ganga að meiru eða minna leyti til annara
enn meiri fátæklinga. Og setjum svo, aö
þeir peningar gengju mestan partinn til við-
urværis þessu fólki, sem yfirstjórn Hjálpræð-
ishersins hefir sent hingað bæði til að flytja
guðsorð og til að inna af hendi margvísleg
líknarverk, sem þorri annara guðsorðsflytjenda
lætur ógerð; er þá meiri óhæfa að ala það
fólk þannig af frjálsum vilja og án þess að
það kosti meira fyrir það allt (6 manns) held-
ur en þjóðin er látin árlega með laganna valdi
leggja einum uppgjafa-landsómaga, sem hefir
hætt að vinna fyrir sjer á bezta skeiði, eða
fyrir sjálfskaparvíti ekki orðið notaður lengur
til umsaminnar vinnu í landsins þjónustu, og
dembt sjer þannig á lands-sveitina, en kostn-
aðurinn til að ala hann tekinn lögtaki af
gjörsnauðri alþýðu?
Mjer er óskiljanlegt, hvernig þeim mönn-
um er yarið, sem fella sig betur við slíkt
heldur en hinar frjálsu »hattgjafir«—eða hvað
það nú er — hjá Hjálpræðishernum.
Fdtœkur gjaldþegn.
Skipakomur. Fyrsta kaupt'ar hingað á
árinu kora síðasta vetrardag, 22. þ. m.,
XiORENZ (141 smál., skipstj. Levinsen) með
ýmsar vörur til Brydes verzlunar frá Khöfp.
Þá kom 2 dögum siðar, 24,, WALDEMAR (89,
Albertsen) til Fischersverzlunar, með salt frá
Liverpool, en 25. INÖ (130, M. Weber) með
alls konar vörur til H. Th. A. Thomsensverzl-
unar frá Khötn, og s. d. H. A. FRIIS (160,
ft. C. Friis) með alls konar til W. Fischers-
verzlunar frá Khöfn.
Húnavatnssýslu 11. april: Á sýslufundi
hjer í sýslu, sem haldinn var á Blönduósi 9.
—14. f. mán. var meðal annara mála tekið til
meðferðar Blönduós bryggjumdlið. Voru af
sýslunefnd kosnir i merkir nefndarmenn til
fess að skoða og athuga framkvæmdir bryggju-
aefndarinnar, og hvernig smiðirnir hefðu leyst
verk sitt af hendi. sömuleiðis að athuga hvað
nú lægi fyrir að gjöra til framkvæmdar fyrir-
tækinu.
Þegar þessir 5 menn höfðu vel og vandlega
eptir öllum kringumstæðum kynnt sjer allt
þessu yiðvíkjandi, ljetu þeir þá skoðun sina
í ljósi, að bryggjan væri sjerlega ramger, og
í alla staði vel af hendi leyst. Bryggjan er
að lengd 84 álnir, breidd 6 ál. að of'an, 9 álnir
að neðan.
Sýslurief'ndin kom sjer saman um, að hjer
skyldi að sinni staðar numið. Þótt hetra
hefði verið að hún væri lítið eitt lengri, þá
væri hún þó orðin svo löng, að komið hefði
að beztu notum. Sýslunefndin áleit þvi nauð-
synlegra að snúa sjer að því, að hlaða öldn-
kamp austanvert við bryggjuna til skjóls fyr-
ir báta og varning, til þess að sjór fengi ekki
grandað nema því sem þar væri á land fintt.
Fyrirtæki þetta er þegar orðið til mikilla
hagsmuna fyrir þá, sem þurfa að nota iend-
ingu við Blönduós, þegar brim eru að mun og
ólendandi að sunnanverðu við ána, sem opt
ber við. Allir hjer, sem vit hafa á endnrbót-
um vondra og óhafandi lendinga, bera hlýjan
hng til hr. dbrm. Einars B. Guðmundssonar á
Hraunum, sem í fyrstn átti tillöguna um, hvern-
ig þessu skyldi fyrirkomið. Það var líka hann,
sem byrjaöi á bryggjugerðinni eptir að mann-
virkjafræðingur Sig. Thoroddsen hafði skoðað
og athugað allt og gjört uppdrátt að henni
o. s. frv., og kom hr. E, B. G. þar fram með
sínnm venjnlega dugnaði, hagsýni og vand-
virkni. Heflr trúvirkni hans þegar sýnt sig,
með því að bryggjan hefir staðizt þab hafrót,
er elztu menn hjer mnna ekki eptir öðru eins.
Strandasýslu sunnanv. 17. apríl: Vetur-
inn sem nú er þvi nær liðinn hefir án eta
verið einn hinn gjafíeldasti nú um nokkurt
árabil. Fram yfir nýár var að vísu góð veðr-
átta og hagar, en opt hjelur, svo lömbum var
víðast ekkert beitt frá því um miðjan nóvem-
berm. og fullorðnu fje gefið mikið með allt
frá jólaföstnbyrjnn. Síðan skömmu eptir ný-
ár má heita að allar skepnur hafi staðið inni.
því þó opt væri auð jörð á þorranum þá urðu
þess engin not vegua illviðra, nema lítið eitt
fyrir hesta. Gjafatíminn er orðinn iangur, því
nú er búið að gefa fje (lömburn) á 23. vikn og
sumstaðar ekkert farið að beita enn. Hag-
snapir eru þó viða komuar, ,en heldur litlar,
þvl optast er norðanátt, en jafnan frostvægt.
Hafíshroði er nokkar hjer á Hrútafirði og
norðnr með Ströndunum, en lítil líkindi ern
að hann sje mikili, með því að aldrei eru
frosthörkur.
Ftestir hafa nokkurn veginn heybirgðir enn;
fáeinir þó heylausir fyrir fje. Annars er
útlit fyrir að heyfyrningar vet'ði litlar al ■
mennt í vor, þó heyskapur væri góður næst-
liðið sumar.
Mjög víða ber á óþrifum á fjenaði nú eins
og undanfarna vetra. Þó hægðarleikur sjeað
lækna þennan fjárkldðafeA verðnr honnni þó
aldrei útrýmt nema með almennum böðunum
og er undarlegt, hve fáir hafa framkvæmd til
þess að baða fje sitt í stað þess að vera að
sífeldu íburðarkáki vetur eptir vetur með meiri
kostnaði og fyrirhöfn en böðuninni fylgir og
auðvitað langtum minni árangri.
Taugaveiki hefir stungið sjer niður á nokkr-
um bæjum i vestanverðri Húnavatnssýsln.
Engir hafa dáið úr henni. Bann mun hafa
verið lagt íyrir samgöngur eða samblendni
fólks af veikum og heilbrigðum bæjum, með
því að veiki þessi þótti útbreiðastískyggilega
fljótt.
Margir vorn hjer óánægðir með ferðaáætl-
un landsgufuskipsins Vestu, enda verða hjer
»samgönguskemdir» frá þvi sem i fyrra var,
því ferðir Thyru hingað til Borðeyrar í fyrra
vorn af tvennu til skárri þ. e. á hentugri
tíma fyrir menn hjer heldur en þessar.
Hitt og þetta.
Móðirin (alvarleg): Hvernig stóð á því,
að þú skrökvaðir svona að kennaranum þín-
um?
Drengurinn: Jeg gerði það til þess að
koma dálitium dreug undan heguingu.
Móðirin (blíðari;: Þetta vissi jeg, að þjer
mundi hafa gengið eitthvað gott til. Hver
var drengurinn. sem þig langaði til að hjálpa?
Drengurinn: Það var jeg.
Skóbustarar Lundúna. í íátæklingaskól-
um Lundúna (ragged schools) er flokkur af
drengjum, sem vinnur fyrir sjer með þvi að
busta skó og stígvjel manna úti á götunnm.
Flokkurinn er orðinn 44ára gamall; 850 dreng-
ir hafa verið í honum, og þeir hafa unnið sjer
inn um 2 miljónir króna. Sem stendur eru
drengirnir 95. Þeir sem ötulastir eru vinna
fyrir kr. 3,60 á dag. Af því sem þeim inn-
hendist halda þeir 45 aurum, og svo þriðjung
þess sem þá verðnr eptir, og er það kaup
þeirra. Annar parturinn er lagður ísparisjóð
í þeirra reikning, og þriðji þriðjungurinn fer
til fjelags þess, sem fæðir þá og hýsir. Hve-
nær sem drengnr hefir eignast 9 kr. i spari-
sjóðnum, má aíhenda honum þær til fatakaupa
og annars, er hann þarfnast. Skrítið er það,
að allörðugt kvað vera að fá drengina til að
bnsta skóna á sjálfum sjer.
Gufubáturiun „Oddur“.
Eptir í dag gerðum samningi við sýslu-
nefndirnar í Arness- og Rangárvallasýslum,
fer gufubáturinn »0DDUR« í sumar eptir-
taldar 5 ferðir:
1. milli 18.—26. maí:
Milli Þórshafnar, Grindavíkur, Selvogs, Þor-
lákshafnar — Eyrarbakka.
2. milli 28. maí—6. júni :
Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Landeyja —•
Eyjafjalla.
3. milli 19.—27. júní :
Milli Reykjavíkur, HafnarfjarSar, Keflavíkur,
SandgerSis, Þorlákshafnar — Eyrarbakka.
Auk þess kemur báturinn viS í þessari ferð í
Grindavík, ef farmrúm leyfir.
4. milli 2.-9. júii :
Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Landeyja —
Eyjafjalla.
5. miili 9.—17. júlí :
Milli Reykjavíkur, HafnarfjarSar, Keflavíkur,
SandgerSis, Þorlákshafnar — Eyrarbakka.
Flutningsgjald á góssi er í öllum þess-
um ferðum */*, eða. 25°jo lœgra en í fyrra.
Þeir, sem senda góss meS bátnum, eiga að
setja skýrt einkenni á hvern hlut og aðflutn-
ingsstaS.
A tilvísunarbrjefinu, sem ávallt á að fylgja
hverri sendingu, á sá, er sendir, að skýra frá
innihaldi, þyngd (bruttovigt) eða stær'ð hvers
hlutar.
Menn eiga að skila og taka á móti góssinu
við hliS skipsins á öllum viSkomustöðum. Á
Eyrarbakka verður annast um upp- og útskip-
un fyrir væga borgun.
Nákvæmari upplýsingar fást hjá:
hr. faktor Jóni Norðmann í Reykjavíkt
— — Gunnl. E. Briem í Hafnarfirðir
— — Jóni Gunnarssyni í Kefiavík
og hjá undirskrifuSum.
Eyrarbakka, 21. apríl 1896.
P. Nielsen.
Hið bezta Chocolade
er frá súkkulaðet'abrikkunni »Sirius« i frí-
höfninni f Kaupmannahöfn. Það er hið
drýgsta, næringarmesta og inniheldur njest
Caeao af öllum sjókoladetegundum, sem
hægt er að fá.