Ísafold - 02.05.1896, Blaðsíða 3

Ísafold - 02.05.1896, Blaðsíða 3
111 leyti. Bera menn bezta traust til landshöfð- ingjans, að honum takist að kippa þessu í lag. Strandasýslu 12. apríl: Nú ter að verða hver síðastur af þessum vetri, og er því ó hætt að uppkveða dóminn yfir honum. Ekki má heita að hann hafi harður verið; því opt voru þíður og eyður á honum venju fremur miklar hjer um pláss, en þó v.ar hann óhag- Stæður, og má því þegar á allt er litið telja hann með hinum lakari vetrum. Praman af var frosta- og snjóasant í meira lagi, svo að hross komu viða á gjöf fyrir jólaföstu; varþó optast hagi. Um sólstöðurnar hlánaði vel og stillti til; eptir það hjeldust stillur og frost fram yfir nýár; en þann tíma notaðist þó lítt að beit, því bæði var það, að hjelur voru þá, og jörð venju fremur ljett eptir hin miklu úr- felli í haust, og svo voru margir hræddir við að j.ota beitina um það leyti sakir bráðapest- arinnar, sem talsvert hafði gjört vart við sig hjer og hvar. Skömmu eptir nýárið spilltist veðráttan apt ur; fyrst gjörði rosa-hlákur og illviðri, og sið an frostbylji, er hjeldust fram áþorra. Á þorr- anum voru sifeldir umhleypingar og opt fá dæma úrfelli. stórskemmdist þá hey viða bæði í görðum og hlöðum sakir leka, og eru það uál. einsdæmi hjer. Á góu voru norðanbyljir, frost og fannfergi mikil; þá kom hafíshroði, sem ekki er farin enn, enda hefir enn ekki komið veruleg hláka; var kominn mjög mik ill snjór f'yrir páskana og nálega ófært um jörðina nema á skíðum. Um bænadagana gjörði blota, svo að snjórinn seig nokkuð og gjörði hjarn er írysti; en nálega er haglaust enn, því kuldinn er ávallt svo mikill. að sól- bráð er svo sem engin, þó núna sje grunnt á jörð og hnottar nokkrir upp úr gaddinum. Út- litið er þvi engan veginn gott því margir eru heytæpir, og mun almenningur ekki eiga inni- stöðufóður lengur en viku til hálfan mánuð af sumri, enda er tje og hestar víðast búið að Standa inni yfir 20 vikur, og verður þvi ekki sagt, að mjög ógætilega hafi verið sett á, þeg- ar þess er gætt, hversu heyin hata skemzt, og að kúm er ætlað fóður 7til 8 vikur af sumri, sem ekki mun af veita, ef ísinn liggur íyrir landi fram á sumar. 111 þykja mönnum tiðindin af fjárflutnings- »banninu brezka, og er ekki gott fyrir að sjá, hvar það lendir, því hjer er varla um aðra verzlunarvöru að tala hjá almenningi en sauð- fje; enda hefir það sýnt sig, hversu megun manna hefir batnað ótrúlega mikið síðan sú verzlun hófst; er óhætt að íullyrða það, að almenningur lifir nú miklu betra lífi en áður voru dæmi til; húsakynni bæði fyrir menn og skepnur hafa tekið stórum bótum; eldavjelar eru nu t. d. komnar nálega á hvern bæ, en fyrir 10 árum eða jatnvel skemri tima var víst ekki ein einasta eldavjel í sýslunni fyrir aorðan Stikuháls (nema í Reykjafjarðarkaup- Stað ?), og svo er um ýmislegt fleira. Og ein- mitt nú í vetur var útlitið með blómiegasta móti eptir hið góða verzlunarár; kaupstaðar- skuldir voru svo sem engar, eða minni en engar, því að innieign við aðalverzlunina hjer (Hólmavíkurverzlun) var talsvert meiri en skuldirnar, og svo áttu menn mikið tje inni 1 fjelaginu, er þeir lengu útborgað á aðalfundi þess í vetur. Komu þaðan svo þúsundum tróna skipti í peningum hingað í sýsluna. Það munu því margir hata verið farnir að hugsa sjer til hreifings með ýmsar framkvæmd ir eptirleiðis, hefði allt farið skaplega. En þá kom þessi fregn eins og skrugga úr heiðríkju og sló hún miklum óhug á alla. Það er ems og að það verði alltat að ásannast, þetta: >ís- lands óhamingju verður allt að vopni*. Mannslát. Hinn 16. f. m. ljezt úr taugaveiki að heimili sínu Sauðlauksdal ~við Patreksfjörð sóknarpresturinn þar síra Jónas Bjarnarson 46 ára gamail, sonur Björns Kortssonar á Möðruvöllum í Kjós, útskrifaður úr skóla 1874. af prestaskól- anum 1876 vígður að Kviabekk s á., en varð aðstoðarprestur hjá síra Magnúsi Gíslasyni í Sauðlauksdal vorið eptir 1877 og fekk það brauð við uppgjöf hans 1879. Hann var piúðmenni og valmenni, reglu- maður mesti,góður kennimaður og búhöldur. Hann iætur eptir sig konu og 3 börn. Bmbætti. Þessi embætti hefir konung- ur veitt 14 f. m.: Hjeraðslæknisembættið i 1. læknishjeraði (Reykjavík og Kjósarsýslu m. m.) settum hjeraðslækni þar, cand. med. & chir. Guð- mundi Björnssyni. Hjeraðslæknisembættið í 2. læknishjeraði (á Húsavik) aukalækni Gisla Pjeturssyni í Ólafsvik. Kennaraembætti (5.) við latínuskólann settum kennara þar, cand. mag. Þorleifi Bjarnason. —Sama dag hefir konungur veitt 2 hjeraðs- læknum lausn frá embætti eptir umsókn og með lögákveðnum eptirlaunum: Ólafi Sigvaldasyni í Bæ (7. læknishjer.), Þorgrími A. Johnsen á Akureyri (11. læknishjer.). Frá útlöndum (Viðbætir). Ríkis- þinginu danska var slitið 20. f. m. Sama kveld andaðist Ingerslev ráðgjafi (fyrir samgöngumálum, áður lengi innanríkisráð- gjafi); hann varð bráðkvaddnr yfir kveld- verði. Það frjettist á eptir póstskipinu til Eng- lands, að þeir Bourgeois og hans fjelagar væri oltnir af valdastóli. Gufubáturinn „Oddur“. Eptir í dag gerðum samningi við sýslu- nefndirnar í Árness- og Rangárvallasýsluna, fer gufubáturinn »ODDUR« í sumar eptir- taldar 5 ferð'ir: 1. mllli 18.—26. maí: Milli Þórshafnar, Grindavíkur, Selvogs, Þor- lákshafnar — Eyrarbakka. 2. milli 28. maí—6. júni : Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Landeyja — Eyjafjalla. 3. milli 19,—27. júní : Milli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Keflavíkm, Sandgerðis, Þorlákshafnar — Eyrarbakka. Auk þess kemur báturinn við f þessari ferð í Grindavík, ef farmrúm leyfir. 4. milli 2.-9. júli : Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Landeyja — Eyjafjalla. 5. milli 9.—17. júli : Milli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Keflavíkur, Sandgerðis, Þorlákshafnar — Eyrarbakka. Flutningsgjald á góssi er í öllum þess- um ferðum */b e^a 25°jo lægra en í fyrra. Þeir, sem senda góss með bátnum, eiga að setja skýrt einkenni á hvern hlut og aðflutn- ingsstað. Á tilvísunarbrjefinu, sem ávallt á að fylgja hverri sendingu, á sá, er sendir, að skýra frá innihaldi, þyngd (bruttovigt) eða stærð hvers hlutar. Menn eiga að skila og taka á móti góssinu við hlið skipsins á öllum viðkomustöðum. Á Eyrarbakka verður annast um upp- og útskip- un fyrir væga borgun. Nákvæmari upplýsingar fást hjá: hr. faktor Jóni Norðmann í ReyJcjavík, — — Gunnl. E. Briem í Hafnarfirðiy — — Jóni Gunnarssyni í Keflavik og hjá undirskrifuðum. Eyrarbakka, 21. apríl 1896. P. Nielsen. J[^“ Frímerki Brúkuð isl. frímerki kaupir undirrit- aður óheyrt háu verði. Ólafur Sveinsson AReykjav?k!B' Uppboðsatiglýsing. Laugardagian hinn 16 n. m. kl. 12 á hádegi verður opinbert uppboð haldið að Tjarnarkoti í Njarðvíkurhreppi, og verður þar selt ýmislegt lausafje tilheyrandi dán- arbúi Arinbjarnar Ólafssonar, svo sem ó- verkaður saltfiskur. sauðfjenaður, hross, geymsluhús, skipastóll, sængurfatnaður og ýmisleg búsáhöld. ' Skrifst. Kjósar- og Gullbr.sýslu 26. apr. 1896. Franz Siemsen. Reikningur yfir tekjur og útgjöld sparisjóðsins i Húna- vatnssýslu fyrir árið 1895. Tekjur. Kr. au. 1. Peningar í sjóði frá f. á....... 223 88 2. Borgað af lánum : a. Fasteignarveðlán . . 60 10 b. Sjálfskuldarábyrgðarlán 850 00 910 00 3. Innlög í sparisjóð. á árinu 3774 04 Vextir af innlögum iagðir við höt'uðstól . . . . 146 80 3920 84 4. Vextir af lánum.............. 239 03 5. Ymislegar tekjur.............. 12 40 Krónur 6306 16 Gjöld. 1. Lánað út á reikningstímabilinu : a Gegn fasteignarveði 600 00 b. — sjálfskuldarábyrgð 2775 00 c. — annari tryggingu 600 00 3975 qq 2. Útborg. at innl. samlagsm. 270 74 Þar við bætast dagvextir 1 30 272 04 3. Kostnaður við sjóðinn . " ! 7”. 2 10 4. Vextir af sparisjóðsinnlögum . . 146 80 5. í sjóði hinn 31. desbr..............910 21 Krónur 5306 15 Blönduósi 27. janúar 1896. J- G. Möller. Pjetr Sœmundsen. formaður. gjaldkeri. Jafnaða reikningur sparisjóðsins í Húnavatnssýslu 31. des. 1895. Aktiva. Kr. a. 1. Skuldabrjef fyrir lánum : a. Fasteignarveðskuldabr. 930 00 b. Sjálfskuldaráb.skuldabr. 4665 00 c Skuldabrjef með annari . tryggingu............ 700 00 6195 QO 2. Útistandandi vextir áfallnir við lok reikningstímabilsins................ 6 90 3. í sjóði ...........................910 21 Krónur 7112 11 Passiva. 1. Innlög 93 samlagsmanna . . . 7019 85 2. Varasjóður................... 92 26 Krónur 7112 11 Blönduósi, 28. janúar 1896. J. G. Möller. Pjetr Sæmundsen. Reikninga þessa höfum við yfirfarið og end- urskoðað og ekki fundið neitt viðþá að athuga. p. t. Blönduós 14. marz 1896. Stefdn M. Jónsson. B. G. Blöndal. •LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR* fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynleg- ar upplýsingar.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.