Ísafold - 11.07.1896, Síða 2

Ísafold - 11.07.1896, Síða 2
190 'óhreinindi á hörundinu á skepnunni og í ull- inni, þar á meðal annars konar gerlar (bakt- eríur), og sumir þeirra ef til vill sóttvænir geti þeir valdiö annars kyns sykingu, »rugl- ings-s\'kingu«, sem skepnunni geti orðið að meini, þótt óskemmd sje af hinu ídælaða bólu- •efni; þessir annars kyns gerlar geti sem sje borizt Inn með dæluoddinum. Heldur segir hann að óhætt kynni að vera aS sleppa því, að bera »kollodium« á ídælu- blettinn, eptir að búið er að bólusetja; en ekki sje neinu í spillt, þótt sárið sje hulið með þessu efni. Endingargóðar og óbrothættar hörundsdælur (sprojter) segir dýralæknirinn að fáiSt bjá Svendsen & Hagen, tólasmiðum (Instrument- magere), St. Kobmager-gade, Kbhvn K., og kalli þeir þær »tuberkulinspr0jter« (berkla- dælur). Hyggur hann umkvartanir Þ. S. yfir ýmsum göllum á dælunum vera sprottnar af því, að þær hafi verið illa smíðaðar; »vera má og, að hann hafi ekki haldið dælunni og nál- unum uógu hreinum«. »Hvert skipti sem búið er að nota dæluna, á að spýta inn í hana hvað eptir annað hreinu vatni, og þurdæla hana síðan. Þurka skal af nálunum og velgja þær við vægan hita (á ofni), þangað til öll væta er rokin burt; síð- an skal núa þær vel með þurrum dúk og bera á þær góða matarolíu eða vaselín. Draga skal þráð gegnum holið á nálinni með dálitlu að bómull utan um, til þess að það verði einn- ig alveg hreint. Það má skrúfa dæluna alla í sundurogfara með hvern lið eða lim af henni eins og nú var sagt, nemabulluna; því að í henni eru tvær leður-pjötlur, en leðrið þolir ekki hita, held- ur skal hreinsa það með því að þurka af því. Því hættir við að herpast saman, eins og öðru leðri; en sje dælan lögð í vatn, áður en á að fara nota hana, fylla bullublökurnar út 1 dæluholið«. Um hinar vísindalegu rannsóknir segir hr. Bruland, að þær beinist nú nær eingöngu að því, að fá gott og óstopult bólusetningarefni, og muni að líkindum næsta fárvarnarráðið verða blóðvatns-ídæling (blóðvatni úr bólusettri skepnu spj'tt inn í heilbrigðar skepnur). Býst hann við, að úr því máli muni eigi full-leyst fyr en eptir 1—2 ár, en þá verðim vjer bún- ir að fá góða innlenda dýralækna, svo að sín þurfi þá ekki við framar, þótt mjög þætti sjer fýsilegt að koma hingað aptur. Bóbmenntaíjelagsfundur. Aðalfund- ur haldinn 8. þ. m. Forseti (dr. B. M. Ól- sen) gat þess, að fjárhagsins vegna gæfi deild- in hjer ekki út þetta ár nema hinar vanalegu ársbækur (Skirni og Tímaritið), auk formála, titilblaðs og viðauka við 1. hepti Landfræðis- sögu dr. Þorv. Thoroddsen, þannig, að 1. heptið verði að I. bindi, en Hafnardeildin hefði tekið að sjer að gefa síðar út framhald ritsins. Um leið gat hann þess, að fjelagið hefði selt út- gáfurjettinn að Biflíuljóðum síra Yald. Briem í hendur bóksala Sig. Kristjánssyni, eins og gert var ráð fyrir á vetrarfundinum síðasta. Eorseti skýrði frá undirtektum umboðsmanna, sem til sín hefðu borizt frá því á vetrarfundi um framhald Skírnis, og að stjórn deildar- innar samkvæmt undirtektum umboðsmanna í heild siimi mundi ekki að sinni bera fram lagabreytingu í þá átt, að afnema Skírni. Loks skýrði forseti frá fyrirhuguðum bókaútgáfum Hafnardeildarinnar. Stjórninni var falið að ráða menn til að semja útlendar og innlendar frjettir í Skírni. Embættismenn endurkosnir (forseti dr. B. M. Ólsen, fjehirð. Eir. Briem prsk.kennari, skrif- ari Þórh. Bjarnarson lector, bókav. M. Hansen skólastj.); varaembm. sömul. (nema Pálmi Pálsson varaskrifari í stað Bjarna Jónssonar), og Tímaritsnefnd sömul. (nema Stgr. Thorst. í stað H. Hafst.); endurskoðunarmenn Björn Jensson og Bjöm Jónsson. Geysismáiið á alþingi 1893. Af þvf að ritstjóri Sunnanfara hefir í blaði sínu skýrt skakkt fiá Geysismálinu á alþingi 1893, skal þess getið: 1. Þótt 19 þingmenn greiddu atkvaaði með málinu til 2. umræðu, greiddi þó þing maður Snæfellinga, Jón Þorkelsson, einn atkvœði á móti þvi (sbr. Alþt.). 2. Hann rengdi að það væri satt, sem flutningsmenn málsins sögðu, að Englend- ingar vildu kaupa Geysi, og spillti þannig fyrir málinu (sbr. Alþt. 1893, B. 416—422). Af þes3u er ljóst, að þingmaður Snæfell- inga hindraði framar öðrum að mál þetta yrði samþykkt á þingi. í fyrstu var mál- inu að vísu frestað vegna þess, að annað lagafrumvarp kom inn á þingið um að útlendíngar mættu ekki eiga jarðeignir á íslandi; en er það var fallið, reyndum við flutningsmenn Geysis-málsins hvað eptir annað að fá það tekið á dagskrá, og skor- uðum margopt á forseta neðri deildar að gera það. Þótt hann í fyrstu hefði góð orð um að taka málið á dagskrá, dró hánn það samt, en seinna fór hann að færast undan því. Þá er leið að þinglokunum, var á utanþingsfundi neðri deildar ákveð- ið, hvaða mál skyldi afgreiða og hver skyldu mæta afgangi. Að því er Geysis- málið snerti, var það eitt af þeim málum, er ákveðið var um að eigi skyldi taka á dagskrá, enda voru þá ýmsir þÍDgmenn farnir að trúa því, að það mundi vera ó- satt, að Englendingar eða útlendingar vildi kaupa Geysi, og áhugi þeirra því enginn á málinu. Það var þannig eigi hægt fyrir okkur flutningsmenn Geysismálsins, að fá það tekið aptur á dagskrá; og fýrir því kom það eigi aptur til umræðu á þinginu. Bogi Th. Melsteð, Þorl. Guðmundsson. Óveitt brauð. Hjaltastaöur í N. Mála- prófastsd. (Hjaltastaðar- ogEiðasóknir). Prests- ekkja er í brauðinu, sem nýtur eptirlauna samkvæmt lögum. Metið 1868 kr. 70 a. Veit ist frá næstu fardögum. Umsóknarfrestur til ágústmánaðarloka næstkomandi. Hvaðanæva. ■Vatnsveitingar í eyðimörk Norður- Ameríku. Afarmikið landflæmi í Bandaríkjunum er gróðurlítil víðátta, sem kölluð er eyðimörk Norður-Ameríku. Þessi eyðimörk nær yfir allstóra fláka af ríkjunum Nýa Mexico, Ari- zona, Nevada, ídaho, Montana, Wyoming, Co- lorado og Texas, og hefir verið talin ónýt til akuryrkju vegna þurka, fólkið mest lifað á námagrepti og kvikfjárrækt, þannig, að bú- smali hefir leikið lausum hala um sljetturnar. Annars stjálbygt mjög. Eyðilegast er svæði þetta í Nýju Mexico og Arizónu, sljettan þar víða eins og sífelld öskubreiða. Þessa eyði- mörk er nú tekið að rækta, og það á hinn fegursta hátt, gera hana að hinum dýrlegustu aldingörðum, og kynlegast er, að það sem gerði þetta svæði að eyðimörk, þurkurinn, þykir nú mesti kosturinn þar. Það er með vatnsveitingum, að bætt er úr regnskortinum, og yfir þeim. hafa menn meira vald en regn- inu. Til vatnsveitinganna eru sumpart hafðar stíflur miklar uppi í fjöllunum — regnvatni og leysingavatni safnað þar saman —, sum- part skurðir úr ám og lækjum, og sumpart brunnar. Vindmylnur eru hafðar til að ná vatninu upp úr brunnunum og koma því út í skurðina. Á stóru svæði er þá líkast um að litast eins og á Hollandi, vindmylnurnar al- staðar. Hver bóndi á brunn og mylnu út af . fyrir sig, mylnan sogar vatnið upp í stóra múr- skál, og þaðan liggja smáskurðir út um landið, og eru þeir ýmist opnaðir eða þeim lokað með hönum, sem hvert barnið getur ráðið við. I skálarnar eru og látnir fiskar, sem tímgast þar fljótt, svo að bændur hafa nýan fisk allt árið. Stundum tekst svo vel að temja fiskana, að þegar hringt er til miðdeg- isverðar, þyrpast þeir saman til að fá brauð- mola. Yfirmaðurinn yfir jarðfræðismælingum Banda- ríkjanna gizkar á, að á þessari eyðimörk geti að minnsta kosti allir núverandi Bandaríkja- menn — nær 70 miljónir — komizt fyrir og haft mætavel ofan af fyrir sjer. Hálf miljón hefir þegar viðurværi sitt beint úr eyðimörk- inni, og 4—5 miljónir hafa safnazt þar sam- an. Búskapurinn er í raun og veru allur annar en nokkursstaðar annars staðar. Vatnsveit- ingarnar borga sig bezt með því að rækta jörðina betur en áður munu vera dæmi til. Af því leiðir aptur, að býlin verða smá; því minna sem býlið er og betur ræktað, því bet- ur borgar það sig. Einn til fimm teigar (teig- ur, þ.e. hektar=3 dagsláttur rúmar) eru nógu stórar jarðir, svo að fjölskyldur lifa þar góðu lífi, og hafa nokkum afgang. Og með því að yfirferðin er svo lítil, getur fjölskyldan gert allt verkið án þess að kaupa sjer mannhjálp, eða fer langt með það að minnsta kosti. Hjer um bil hver fjölskyldumaður er jarðeigandi, og daglaunamannastjett verður engin, en held- ur ekki auðmannastjett. Þjettbýlið er mikið, svo að sveitirnar eru hálfgildings-bæir. Opt fær öll sveitin vatn úr sama skurðinum, og þá liggja húsin með litlu millibili fram með skurðinum beggja megin og jarðirnar eru allar á lengdina upp frá hon- um. Em sumstaðar komnar allt að 30 rasta langar götur, skurðir eptir þeim endilöngum, þar sem hvert býlið er við annað, og hver garðurinn með hinum dýmstu ávöxtum tekur við af öðrum. Pósturinn kemur áhvert heim- ili, og menn hafa þar í raun og veru öll hlunnindi borgalífsins, en eru lausir við ókost- ina. Áf lífinu í þessum nýlendum er einkar-vel látið. Þangað hafa valizt afbragðsmenn, og menntun þessara bænda er við brugðið, enda er ekki sjaldgæft í Vesturheimi, að háskóla- gengnir menn sjeu bændur; menntunin er þeim ekki atvinna, heldur nautn. Á stómm svæðum í bessum nýlendum er áfengis alls ekki neytt. Fólk þarf þar ekki á því að halda; fjörið og glaðværðin er nóg án þess. Það eru Mormónar, sem hafa heiðurinn af því, að hafa fyrstir byrjað á að breyta eyði- mörk Vesturheims í aldingarð, og árangurinE. af viðleitni þeirra í Útah er líkastur ausfcur-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.