Ísafold - 30.09.1896, Síða 1

Ísafold - 30.09.1896, Síða 1
ÍCemur út ýmist einu sinnieba tvisv.í viku. Verð árg.(90arka minnst) 4kr., erlendis 5 kr.eða l‘/a doil.; borgist fyrir miðjan júlí (erlendis fyrir framj. ISAFOLD. Uppsögn (skrifieg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er í Austurstræti 8. Reykjavík, miðvikudaginn 30. sept. 1896. 68. blað. XXIII árg. Landsgufuskipið og samgöngur vorar á sjó. Um mál þetta, sem vitanlega er eitthvert mesta áhugamál þjóðarinnar, enda aðalmál síð- asta alþingis, höfum vjer átt nokkurt samtal við hr. farstjóra D. Thomsen, sem stöSu sinn- ar vegna hefir að sjálfsögðu kynnt sjer það mál flestum betur, og hyggjum vjer, að mörg- um muni þykja fullfróðlegt að sjá það er hann hefir um það að segja. Fyrst bar eðlilega á góma gufuskipsútgerð landssjóðs. Um skipið sjálft er ekki annað en gott að segja; öllu er vel fyrir komið, skip- ið hraðskreitt, skipverjar liprir og farstjóri hinn ötulasti og áhugamesti í hvívetna. Þótt ymsir annmarkar þyki á útgerðinni, eru þeir kostir ómótmælanlegir, að ferðir hafa orðið fljótari og tíðari, sambandið við Færeyjar hef- ir slitnað og fargjald og farmgjald lækkað. Um kostnaðinn við útgerðina hafa fáar sög- •ur borizt, sízt áreiðanlegar. Farstjórinn fræddi oss á því, að tillagið úr landssjóði hefði verið ■orðiðum 32,000 kr. núna 1. sept. í þessari upp- hæð væri innifalinn allur kostnaður við bilun »Vestu« á Akureyri og leiga á aukaskipunum. — í íjárlögunum er gert ráð fyrir 45,000 kr. tillagi fyrir allt árið og hyggur farstjóri, að það muni hrökkva. Byrjunin hefir því gengið betur en vænta mátti. Farstjórinn bendi á, að bæði kaupmenn og pöntunarfjelög hefðu stutt skipið vel. Far- þegar liefðu verið alls um 1700, og því virt- ist engin vanþörf að hafa verið á bættum og auknum samgöngufærum. Slysið, sem »Vesta« varð fyrir á Akureyri, sagði farstjóri hefði haft ýmsan halla í för með sjer, en þó minni en búizt var við, vegna þess að leigusamningurinn væri svo úr garði gjörður, að gufuskipafjelagið varð að endur- borga leiguna fyrir þann tíma, sem skipið var ekki sjófært, og eins varð það að borga "viðgerðina í Skotlandi. Ýms smærri útgjöld væru óútkljáð enn þá, en óvilhöllum dómara (Dispacheur) í Kaupmannahöfn væri falið á hendur að útkljá um þau. Vjer minntumst á, að suma hefði furðað á því, að hann hefði leigt skipið hjá »samein- aða gufuskipafjelaginu«, þar sem fjelag þotta væri aðalkeppinautur vorrar eigin útgerðar. Farstjóri brosti við og kvað betra að fá mót- ’stöðumenn sína til að vinna fyrir sig baki brotnu en spana þá upp til mótgjörða við sig. Gufuskipafjelagið væri ekki öfundsvert af ágóðanum, sem það hefði haft á eimskipa- útgerð landssjóðs; hann væri talsvert minni en ekki neitt. Um ferðaáætlunina bentum vjer á, að ýms- um virtist meira tillit vera tekið til milli- landaferðanna en til strandferða innanlands. Farstjóri játaði fúslega, að þetta væri svo, ságði það vera vandasamt verk að semja forða- aætlun, sem öllum líkaði, einnig æði-öröugt að uppfylla allar kröfur með einu skipi, og ennfremur þyrfti að taka talsvert tillit til efnahags útgerðarinnar. Skipið hefði komið hrjefum milli landa fram og aptur taisvert fljótara — einu sinni á helmingi styttri tíma — heldur en póstskipin hin, og talsvert kapp hefði verið lagt á að bæta póstgöngurnar, en mætt daufum undirtektum í Kaupmannahöfn. Sagðist samt búast við, að útgerð landssjóðs fengi póststyrk samkvæmt stöðulögunum næsta ár. í ár hefði skipið í hverri ferð far- ið umhverfis land allt og hjerum bil í annari. hvorri ferð tínt upp allar smáhafnir; en auð- vitað væri þörf á, að skipakomur væru tfðari og skipin kæmu víðar við, en hann áliti þetta að miklu leyti vera verksvið fjórðungsbát- anna. í hinum ferðunum kæmi »Vesta« að eins við á aðalhöfnum landsins, en sá kostur fylgdi ferðum þessum, að greiðari samgöngur fengjust milli landsfjórðunganna innbyrðis og fljótari samgöngur milli aðalhafna landsins og annara landa; ferðir þessar hefðu verið notað- ar mjög mikið, seinast verið alls 60 farþegar hingað. Næsta ár kvaðst farstjóri ætla að gjöra talsverðar breytingar á ferðaáætlun skipsins, t. d. ætti að verða ferð hjeðan vest- ur og norður í byrjun júlfmánaðar. Þeirsem helzt mundu nota skipið væru: alþingismenn, kaupmenn, skólapiltar, kaupafólk, sjómenn og svo skemmtiferðamenn, og farstjóri kvaðst gjöra sjer góðar vonir um að geta orðið við kröfum þeirra allra. Vjer leiddum samtalið að kröfum Húnvetn- inga og spurðum farstjóra um skoðun hans á blaðagreinum Björns Sigfússonar alþingis- manns. Farstjóri kvaðst bera mjög hlýjan hug til Húnvetninga, og taldi það einkum illa farið, að engar gufuhátsferðir hefðu verið þetta ár frá ýmsum höfnum Faxaflóa upp í Borgarnes, því flest kaupafólk frá Suður- landi mundi fremur kjósa að fara þann veg norður, heldur en fara sjóveg alla leið kring um Vesturland. Sagðist hann hafa haft í huga þegar í ár að láta aukaskip fara eina ferð norður, eins og sjá mættiaf frumvarpi til ferða- áætlunar, sem prentað hefði verið x »Austra« í vetur; en það hefði farizt fyrir, með því að varlegra hefði þótt að sleppa aukaskipi fyrsta árið. Næsta ár hefir hann í hyggju, að haga ferðum svo, að kaupafólk fái hentugan flutn- ing til og frá Húnavatnssýslu. Hann hefði gjört sjer mikið farum, að Húnvetningar gætu haft not af fjórðungsbát Austfirðinga og Norðlinga, en samningar ekki komizt á. Þótti farstjóraþað illa farið, einkum með því að ferðir bátsins næsta ár að líkindum næðu allt til Isafjarðar, og Húnavatnssýsla hefði þá getað haft tals- verð not af þessum ferðum. Rangt þótti honum að gjöra jafn-lítið úr marzferð lands- skipsins sem B. Sigf. gerði; hún gæti komið að miklu haldi 1 ísárum og hefði nú þegar fyrsta árið verið notuð að mun. Bryggjan á Blönduósi þótti farstjóra allgóð, en skipaleg- an óþægileg vegna brima, sem straumurinn úr Blöndu eykur að miklum mun, og opt gjörir bátum örðugt fyrir að ná til skipanna. Vjer spurðum farstjóra þá um skoðun hans á fjórðungsbátamálinu. Farstjóri kvaðst vera máli þessu nokkuð kunnugur. Aust- firðingar hefðu stigið fyrsta sporið með því að kjósa nefnd til að ráða fram úr því. Nefnd- in hefði reynt að útvega viðunanlegan bát, en ekki tekizt. Norðlendingar hefðu þá skrifað sjer (D. Th.) og beðið sig að koma þeim í samband við Austfirðinga, þannig að sami báturinn færi fyrir báða fjórðungana. Til- raunir í þessa átt hefðu tekizt mjög vel, bát- urinn væri fenginn og hefði reynzt vel. Næsta ár yrði báturinn líklegast látinn ganga alla leið frá Hornafjarðarós til ísafjarðar. Frá Vesturlandi hefði farstjóra borizt beiðni um að grenslast eptir, með hvaða kjörura væri hægt að fá gufubát keyptán. Hefði hann út- vegað sölutilboð fyrir 8 bátum, og á fundi, sem haldinn var á Isafirði, hefði komið fram leigutilboð, en ekkert samkomulag væri enn þá fengið milli sýslunefndanna og hlutaðeig- andi útgerðarmanna. Samtalið snerist þá að Elínarmálinu og að því, hve lítið hefði verið gjört til þess að út- vega annan gufubát á Faxaflóa. Farstjóri spurði oss, hvort vjer gætum frætt hann nokkuð um tilraunir í þá átt. Vjer kváðum nei við, en farstjóri kvaðst heyrt hafa, að bæjarstjórn Reykjavíkur hefði fengið umboð til að semja um gufubátsferðir fyrir allan Faxaflóa. Ennfremur hafði hann heyrt, að bæjarstjórnin hefði snúið sjer til eins stór- kaupmanns, en kaupmaðurinn hefði gjört það að skilyrði fyrir tilboði, að styrkurinn væri veittur til 5 ára í senn. Nefndin hefði þá skrifað alþingismönnum til þess að fá per- sónulegt loforð þeirra fyrir áframhaldi lands- sjóðsstyrksins, og einnig ávarpað kaupmann- inn og gefið honum undir fótinn að hann skyldi fá styrkinn, ef hann kæmi nú með tilboð. Farstjóri sagðist einnig hafa sjeð hjá kaup- manni ferðaáætlun þessa fyrirhugaða báts, en líkað hún heldur illa. Það væri gjört ráð fyrir, að fjórðxmgsbátur þessi væri á ferð hjer um flóann að eins 63 daga, en færi ferðir til útlanda milli hverrar strandferðar hjer, þann- ig að ferðirnar næðu alls yfir æðilangan tíma, frá byrjun maímánaðar til loka októbermán, Fyrir þessa 63 daga átti útgerðarmaðurinn að fá 10,000 kr. styrk, eða um 158 kr. á dag. Farstjóra þótti tillagið til þessa litla báts nokkuð mikið, þar sem tillagið til jafnstórs skips og landsgufuskipið erhefðiað eins verið um 175 kr. á dag og þar í þó innifalinn allur kostnaðurinn við slysið á Akureyri og auka- skipin. Einnig kunni farstjóri miður vel við, að skip þetta væri látið fara ferðir til ann- ara landa, því að með því yrði það keppi- nautur landsskipsins. Betur þótti honum eiga við að láta það nota þá 117 daga, sem ganga af Faxaflóaferðunum, til strandferða vestan- lands. En alveg fannst honum ófært að bæj- arstjórnin byndi sig við jafn-óhagfeldan samn- ing fyrir 5 ár, eins og gjört mundi verða að skilyrði. Styrkur til fjórðungsbátanna er ætlazt til að verði alls 41,700 kr. á ári, en laugtum ó- dýrara og hentugra áleit farstjóri að leigja

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.