Ísafold - 26.05.1897, Qupperneq 4
140
muni gerð óháS soldáni upp frá þessu öðru-
vísi en rjett að eins í orði kveðnu. En auð-
vitað loku skotið fjrir samlimunina við Grikk-
land að svo stöddu eða í bráð.
Ráðaneytið danska, þeir Reedtz-Thott
og hans fjela.gar, höfðu orðið að selja völd af
hendi sjer snemma í þ. mán., fyrir misklíð, er
þeir komust í við meirihlutann í landsþing-
inu, hægrimenn. Hafði Estrúp gamli verið
þeim einna örðugastur, enda stóð til, að hann
tæki aptur við stjórn. En eigi hafði hann enn
komið nyju ráðaneyti á laggir, þegar síðast
frjettir, þar á meðal engin vitneskja um, hver
verða mundi Islands-ráðgjafi.
Stórslys í París, m. m. Þar urðu þau
voðatíðindi 4. þ. m., að eldur kviknaði í geysi-
mikilli sölutjaldbúð, er reist hafði verið til
bráðabirgða og verzlað í með gefna n.uni í
guðs þakka skyni, eins og alt/ðkanlegt er (baz-
ar), en söluna önnuðust hefðarkonur fjölda-
margar, frúr og meyjar. Brunnu þar inni eða
tróðust undir til bana hátt, á annað hundrað
manna, flest hágöfgar konur, bertogafrúr og
annara stórhöfðingja, flestar franskar, en nokkr-
ar útlendar, þar á meðal nefndar kona og dótt-
ir hins danska yfirkonsúls í París, Hoskiærs
að nafni. Meðal hinna innlendu kvenna var
tignust kona (eða ekkja?) hertogans af Alen-
gon, sonarsonar Lúðvígs Filipps Frakkakonungs
(sonar hertogans af Nemours).
Skömmu síðar ljezt á sóttarsæng yngsti son-
ur Lúðv. Filipps konungs, síðastur þeirra barna,
hertoginn af Aumale, hið mesta göfugmenni,
fræðimaður mikill og frömuður mennta og vís-
inda. Hann var lengi hershöfðingi. Hann var
maður stórauðugur. Hann var nálfáttræður, er
hann ljezt.
Fyrirlestur um Ameríku flutti Jún
Ólafsson hjer í G.-T.-húsinu sunnudagskvöldið
23. þ. mán., mikið fróðlegan og jTarlegan.
Ljet meðal annars ekki vel af atvinnuhag og
atvinnuhorfum verkalyðs, daglaunamanna, í
bæjunum, hvort heldur er í Canada eða Banda-
ríkjum, en betur af sveitabúskap í hinum ís-
lenzku nýlendum, einkum meðal þeirra, er
fyrstir eða framan af hafa tekið sjer þar ból-
festu, sjerstaklega í Minnesota, og þá f Dakota.
Með því að fyrirlestur þessi mun eiga að
birtast á prenti sjer, í heilu líki, skal hjer eigi
frekara skyrt frá innihaldi hans.
Til fróðlciks og skemmtunar:
Eimreiðin (frá npphafi), Bókasafn alþýðu 1—2 h.
Bjarki (ritstjóri Þorst Erlingsson) fæst hjá bókh.
Sigurði Jónssyni, Skólastræti 5, Reykjavík.
IVIeyer &. Schou
hafa hinar mestu og ód/rustu birgðir af
alls konar
bókbandsverkefni,
öll áhöld til bókbands, n/justu vjelar, og st/1
af öllum tegundum.
Yiingaardstræde 15. Kjöbenhavn K.
r
Islenzk imiboðsverzlun.
Undirskrifaður selur íslenzkar verzlunar
vörur á marköðum erlendis og kaupir alls
konar útlendar vörur fyrir kaupmenn og sendir
á þá staði, sem gufuskipin koma. Söluum-
boð fyrir ensk, þyzk, sænsk og dönsk verzl-
unarhús og verksmiðjur. Glöggir reikningar,
lítil ómakslaun.
Jakob Gunnlögsson,
Cort Adelersgade 4,
Kjöbenhavn K.
Stúdentarnir árið 1887
eru beðnir að minnast þess, að vjer komum
oss saman um að eiga mót með oss þá er 10
ár væru liðin frá stúdentsprófi.
Yið undirritaðir leyfum okkur þessu sam-
kvæmt að skora á alla bekkjarbræður okkar
að mæta í Reykjavík 11. ágúst næstkom-
andi.
Ólafur Helgason, G. Björnsson,
prestur á Eyrarbakka. hjeraðslæknir í Rvík.
Til sölu 5 vetra kýr bráð snemmhær. Semja
má við Einar Magnússon, Holtastöðum, Reykjavík.
í húsi frú Sivertsen fæst mikið af blómstur-
bukettum og krönzum hæði af þurkuðum og lif-
andi hlómstrum.
Þann 15. þ. m. fann jeg undirskrifaður vestur
á Skagahraunnm sem svarar 1 netatrossu eptir kúlu-
tali, ásamt akkeri með 4—5 faðma færishút úr hik-
tógi. Herki er á nokkrum kúlum. Rjettur eigandi
getur vitjað þessa móti horgun fyrir hirðingu og
þessa auglýsingu.
Keflavik, 22. mai 1897.
Arni Geir Þóroddsson.
Fineste Skandinavisk Export KaffeSurrogat
er hinn ágætasti og ód/rasti kaffibætir, sem
nú er í verzlaninni. Fæst hjá kaupmönnum á
íslandi. F. Hjorth & Co, Khöfn.
Hjátrúin 1 höfudstadnum. Svo mikils
sem jeg virði hina vísindalegu nákvæmni og áreið-
anlegleik hans »Þjóðólfs« míns gamla, þá get jee
samt ekki skilið, að hann fari alveg rjett með
það, að höfuðstaðarlýðurinn sje svo hjátrúarfullur,
að hann eigni prestsvigslunni um daginn á rúm-
helgum degi þetta slys, er hann segir að nærri
hafi verið orðið hjer á höfninni um kveldið, sem
»Yesta« lagði af stað austur síðast. Jeg hef nú
ekki heldur vanizt að heyra það kallaðan lífs-
háska, þó að vel syndur maður detti snöggvast í
sjóinn af hát við skipshlið inni á höfn — af þvi,
að hann var að hjálpa kvennmanni ofan í hát-
inn — og þar á ofan að fjölda manna viðstöddum
til hjálpar, ef áhefðiþurft að halda; enda sje jeg,
að öðrnm hlöðnm hefir eigi þótt þetta atvik frá-
sagnarverð tíðindi. En hannnm það, hann »Þjóð-
ólfur« minn. En hinu leyfi jeg mjer að mótmæla,
að hjátrú sje svo rik hjer i höfuðstaðnum, sem
hann gefur í skyn með tjeðri grein sinni.
Borgari.
Andrew Johnson, Knudtzon & Co.,
Hull (England),
Telegramadresse: )>A ndrew, Hull((.
Import, Export & Commissionsforretning,
anbefaler sig til Forhandling af Klipfisk og
alle andre islandske Produkter.
Prompte og reel Betjening, Afregning & Re-
misse strax efter Salget.
Grundet paa gode Forbindelser blandt dt
störste spanske Klipfiskkjöbere, ser vi os al-
tid istand til at placere hele Lasten til for-
delagtige Priser.
Garanterer en vis Minimumspris.
Nærmere Oplysninger ved Henvendelse til
Firmaet.
Prima Referencer.
»LEIÐARVISIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR fæst
ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.med. J. Jónas-
sen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja
lff sitt, allar nauðsynlegar uppl/singar.
Ó. R. G. T.
Annað kvöld heklur stúkan »Einingin« nr.
14 fund á venjulegum stað og tíma. Árfð-
andi málefni. Allir meðlimir beðnir að mæta.
Laukur og Appelsínur n/komið í
W. Cliristensens verzlun.
ísl smjör í belgjum fæst keypt mjög
ódyrt gegn peningaborgun í verzlun
Eyþórs Felixsonar.
Hjálpræöisherinri.
A morgun, uppstigningardag, verður opin-
ber samkoma haldin í fundarsal hersins kl.
6 e. m. — Almennir fundir haldnir hvern
mánudag, miðvikudag, föstudag og laugardag
kl. 8*/2 e. m. og hvern helgan dag kl. 6 e. m.
Isl. smjör, tólg og saltað sauðakjöt, selur
lang-ódyrast
W. Christensens verzlun.
Hjálpræðisherinn
heldur samkomu í Skólahúsinu á Álptanesi,
sunnudaginn 29. maí kl. 5. Inngangseyrir 5
aurar.
Brúkuð íslenzk frímerki kaupir
Ólafur Horláksson,
Lækjargötu nr. 4.
Hjólreiðar.
Þeir, sem vilja læra að fara á hjólum, snúi
sjer til formanns »Hjólmannafjelags Reykjavík-
ur« konsúl G- Finnbogason. Hann
vísar mönnum á kennslu og veitir áheyrn, þeim
sem vilja ganga í hjólmannafjelagið.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn hinn 14. júní næstkom. verður
opinbert uppboð á Vigdísarvöllum í Grinda-
víkurhreppi og þar seld /misleg bús-áhöld,
hross, sauðfje og annað fleira tilheyrandi dán-
arbúi Brynjólfs Jónssonar samastaðar. Upp-
boðið byrjar kl. 10 fyrir hádegi og verða
söluskilmálar birtir á uppboðsstaðnum.
Skrifst. Kjósar- og Gullbr.s., 24. maf 1897.
Frauz Siemsen.
Heimsins vönduðustu og ód/rustu
orgel og fortepíanó
fást með verksmiðjuverði beina leið frá Carnish
& Co., Washington, New Jersey, U. S. A.
Orgel úr hnottrje með 5 oktövum, tvöföldu
hljóði (122) fjöðrum, 10 hljóðbreytingum (re-
gistrum), octavkúplum í dfslcant og bass, 2
hnjespöðum, með vönduðum orgelstíl og skóla
kostar í umbúðum c. 133 krónur. Orgel úr
hnottrje með 5 octövum, ferföldu (38/5) hljóð
(221 fjöður), 18 hljóðbreytingum osfrv. á c. 230
krónur. Orgel úr hnottrje með 6 octövum,
ferföldu (3’/2) hljóði (257 fjöðrum) á c. 305
krónur. Oll fullkomnari orgel og fortepfanó
tiltölulega jafn-ód/r og öll með 25 ára ábyrgð.
Flutningskostnaður á orgelum fi*á Ameríku
til Kaupmannahafnar c. 30 krónur. Allir
kaupendur eiga að snúa sjer til mín, og hjá
mjer geta þeir fengið verðlista með myndum
og allar nauðsynlegar uppl/singar.
Einkafulltrúi fjelagsins hjer á landi
Uorsteinn Arnljótsson,
Sauðanesi.
Húsnæfti með ölluni þægindum, 2—3
herhergi 1 skemmtilegu húsi rjett hjá alþingishús-
inu, geta alþingismenn eða aðrir fengið leigð frá
15. júni til ágústmán.loka. — Ritstjóri visar á.
Útgef. og ábyrgðarm.: Björn Jónsson.
Isafoldarprentsmiðja.