Ísafold - 09.06.1897, Síða 2

Ísafold - 09.06.1897, Síða 2
154 sögumaður málsins á þingi. Hann náði nú samkomulagi á milli nefndarinnar og annara þingmanna, þannig, að þingið samþykkti til- lögur hennar. Aðaltillagan var frumvarp til stjórnarskrár, sem konungsfulltrúi sagði skyr- lega, að ekki yrði staðfest, og nefndin og allir þingmenn gengu auðsjáanlega »ð því vísu, því að það má heyra á ræðunum, að allir settu allt sitt traust og von til varauppástungu þeirr- ar, sem kom frá nefndinni ásamt Bergi Thor- berg, síra Þórarni, síra Helga, Grími Thomsen, Jóni Pjeturssyni, Sig. Melsted, Þórði Jónassen og Pjetri biskupi (alls 15 mönnum eða meiri hluta alls þingsius — þá voru 27 þingmenn). Hún var svolátandi: »að ef H. H. konunginum eigi þóknist að staðfesta stjórnarskrá þessa, eins og ln'tn liggur fyrir, að hann þá allra-mildilegast gefi Islandi að ári komanda stjórnarskrá, er veiti alþingi fullt löggjafarvald og sjálfsforræði og að öðru leyti sje löguð eptir ofanrituðu frumvarpi svo sem framast má verða«. Svo sáttfús og tilslökuuarsamur var B. S. þá, að þegar minnzt var í ræðu á stöðulögin, segir hann: »Ef menn vilja í þessti máli, sem öllum mun koma bezt, slá striki yfir iíll kappsmál, þá er bczt að láta þetta atriði vera öldungis óumtalað og óafgjört í þing- ræðunum að þessu sinni. Nefndin hefir líka einmitt farið miðlunarveg til að komast hjá þessu spursmáli, og væri æskilegt að mönn- um gæti skilizt, að þessi aðferð getur orðið . . . . til þess, að sameina hinar mismunandi kappstefnur manna að undanförnu, án þess að præjudicera1 landsrjettindi Islands í nokkurn handamáta«. Hjer er þá B. Sv. þeirrar skoðunar, að þótt maður fari fram á minna en maður þykist rjett til hafa, þá þurfi maður með því ekki að afsala sjer neinum rjetti eða spilla rjetti sínum. Hann gengur enda svo langt, að hann með varatillögunni gefur allt upp á kóngsins náð og selur honum sjálfsdæmi. Svona langt hefir aldrei neinn maður geng- ið eða farið fram á að ganga til samkomulags í stjórnarbaiáttu Islands fyr nje síðar, eins og Benedikt og alþingi gekk í þetta sinn. Hvorki hann sjálfur nje stjórnin nje nokk- ur annar hefir nokkru sinni síðar látið sjer um munn fara, að alþingi hafi með þessu »afsalað sjer hinum helgustu þjóðrjettindum«. Menn blátt áfram ljetu í ljósi vilja sinn til að þiggja það frelsi, sem fengizt gæti þá að sinni, án þess að falla frá rjetti sínum til að fá |)að síðar aukið. Samkvæmt þessu gaf konungur út stjórnar- skrá íslands í byrjun næsta árs, eptir beinni áskorun (og þá auðvitað heimild) alþingis. Valdboðin er hún því ekki. Þannig vann Benedikt sem miðlunarmaður hinn eina pólitiska sigur æfi sinnar, og hann ekki lítinn. Fyrir það skal hann jafnan heið- ur hafa. (Niðurlag næst). Skagafirði 20. mai. Frjettir hjeðan eru nú þær, að hinn 1. þ. m. hyrjaði norðanhríð, sem var verst 2. þ. mán. Þá var vont norðanhriðar- veður; hjelzt það marga daga, en eigi mjög hart. Heyleysi var víða orðið allmikið og eru nú sögð víða ill skepnuhöld, og drepast skepnur jafnvel af fleiru en megurð. Sauðhurður verður efalaust leiðinlegur og mikill lamhadauði er viða sagður, það sem af honum er. Daginn, sem Jóhannes sál. sýslumaður var jarð- sunginn, 13. apríl, var þegar skotið saman 270 krónum af nokkrum vinum hans, til þess að reisa honum minnisvarða á gröf hans. Samskotunum á að halda áfram í sýslunni af frjálsum vilja, unz nóg álízt komið fyrir sæmilegt minnismerki. Af þessu sjest, að það var satt, að hann var vínsæll og ljúfmenni. Á sjónum hefir hylurinn í byrjun þ. m. orðið hræðilegur og háskalegur; það herast frjettir um marga og mikla skipskaða og manntjón. Fregnir eru enn nokkuð á reiki. Þessa dagana eru hlýindi að koma. í gær var mesta rigning. Jörðin er meyr sem heili. HoldsveikisspítaH og hraðfrjettaþráður. Tvenn stórtíðindi. Holdsveikisspítalanum fyrirhugaða verður komið upp nú á næstu missirum, hvort sem alþingi veitir þar til nokkurn eyri eða ekki. Útlent alheims-góðgerðafjelag, Odd-Fellow- reglan, hin danska deild þess, hefir tekið þetta líknarverk að sjer og ætlar að gera það ein- göngu á sinu kostnað. Formaður fjelagsins í Danmörku, Dr. Petrus Beyer, læknir í Khöfn, hefir skrifað þetta nú með Yestu þeim landlækni vorum, dr. J. Jón- assen, og hjeraðslækni Guðmundi Björnssyni, er hefir, eins og kunnugt er, fengizt" sjerstak- lega við að undirbúa holdsveikisspítalastofn- un hjer. Spítalinn á að verða eins stór og ráðgert var hjer, ef landið stofnaði hann, sem sje handa 60 sjúklingum, og auðvitað ekki miður frá honum gengið að neinu leyti. Fjelagið er stórauðugt og horfir ekki í kostnað, úr því það ræðst í þetta. Fyrnefndur formaður fjelagsins, dr. P. Beyer, ætlar að koma hingað í miðjum næsta mán- uði, til þess að skoða, sig um hjer, kaupa hús- stæði fyrir spítalann og gera aðrar ráðstafan- ir til undirbúnings málinu. Hann hefir með sjer húsgerðarfræðing, er gert hefir þegar upp- drátt til spítalans. Þegar spítalinn er kominn upp, gefur fjelag- ið landinu hann, með tilteknum skilyrðum. Fjelagið, Odd-Fellow-reglan, var tekið til að safna gjöfum til þessa fyrirtækis í fyrra sum- ar, rjett áður en landskjálftaslysið bar oss að höndum, en þá tóku allir að hugsa um að bæta það, og dró það úr spítalasamskotunum. En frumkvöðull þessarar velgerðar reglunnar mun hafa verið Dr. Ehlers, og honum því upphaflega að þakka, að vjer fáum nú jafn- mikilsverða og áríðandi stofnun. Samskot þau í sama skyni, er sfra Jón Sveinsson, kaþólskur prestur í Ordrup á Sjá- landi, stendur fyrir meðal trúarbræðra sinna í ýmsum löndum, einkum á Frakklandi, mun nú orðin um 20,000 kr. — ekkja mannvinarins Hirsch barúns í París gaf nýlega 3000 franka —• og er enn óráðið, eptir því sem hann skrif- ar hjeraðslækni Guðmundi Björnssyni, hvort þær gjafir verða lagðar til þessarar stofnunar, Odd-Fellow-reglunnar, með tilteknum skilyrð- um; eða stofnaður fyrir þær sjerstakur spítali’eðurJijúkrunarhús fyrir holdsveika, t.d. hjer í Landakoti, og mun það líklegra. Því ræð- ur hinn kaþólski biskup Norðurlanda, Jóhannes v. Euch. Tíðindin um hraðfrjettaþráðinn eru þau, að »Norræna hraðfrjettaþráðarfjelagið mikla« (»Store Nordiske«) í Kaupmh. hefir afráðið að taka að sjer að leggja hingað til lands hrað- frjettaþráð á næsta sumri, ef alþingi veitir til þess ákveðinn ársstyrk og ríkisþingið danska meiri hluta þess, sem þá vantar að fyrirtækið geti staðizt, en nokkur styrkur ætlazt til að komi frá öðrum rtkjum, eitthvert lítilræði. Hve mikill ársstyrkurinn frá þinginu er ætlazt til að verði, er eigi fullkunnugt, en mælt að það muni eigi verða ýkja- mikið, frá- leitt meira en meiri hluti þingmanna tjáði sig meðmæltan í hitt eð fyrra, erMr. Johu Mitchell kom með sínar bollaleggingar um það mál. Beztu vonir gera menn sjer um að ríkisþing- ið láti ekki standa á sjer, og hefir fjelagið að líkindum þreifað fyrir sjer um það, og sömu- leiðis líklega tekið undir það utanríkis, þar sem það hefir spurzt fyrir um málið. Fyrnefnt fjelag, er hinn mikli framfara- og framkvæmdarmaður C. F. Tietgen stofnaði fyr- ir nær 30 árum, er stórauðugt, og hefir mik- ið afrekað, lagt hraðfrjettaþræði víðsvegar um heim, einkum austurálfu austanverða (Kína o. s. frv.). Má ganga að því vísu, að þetta mikla nauðsynja- og velferðarmál fyrir land vort fái skjótan og greiðan framgang, úr því að fjelag þetta hefir tekið það að sjer. John Mitchell, Englendingnum, sem opt hefir verið á minnzt, er ni'i alveg frá bægt fyrirtæki þessu. En óvíst er samt, hvortDan- ir hefðu undið svona bráðan bug að því, ef hann hefði eigi komið til sögunnar og þeir síður viljað láta gera sjer þann lcinnroða, að önnur rílci ef til vill gengjust fyrir frjetta- þráðarlagning hingað, hvort heldur fyrir hans tilstuðlan eða annara. Það er mælt, að fjelagið ráðgeri að leggja þráðinn hingað milli landa á 6 vikum. Arið 1898 verður þá mikið merkilegt í sögu landsins: stigið spor, sem mun koma því í siðaðri þjóð samboðið náið samneyti við hinn mennt- aða heim. Frá útiöndum. Friðargerð með Tyrkjum og Grikkjum enn ólokið, en í aðsigi. Sendiherrar stórveld- anna í Miklagarði áttu að annast þá samninga. Búizt við, að Tyrkir fengi að halda leiðar- skörðunum víggirtu í fjöllunum milli Þessalíu og Makedoníu, en byggð engri af landi því, er þeir liöfðu unnið frá Grikkjum. Ekki lík- legt, að Grikkir komist hjá að verða skyldað- ir til að greiða Tyrkjum nokkurn herkostnað, og ráðgert, að stórveldin settu þeim nokkurs- konar fjárhaldsnefnd, er sæi um skilvíslega greiðslu umsaminna skaðabóta eptir því, sem þeir megnuðu frekast. Lið hvorratveggja á Krít, Tyrkja og Grikkja, skyldi heim kvatt, en stórveldin sjá um að varna þar óspektum. Nýtt ráðaneyti í Danmörku sett á laggir 23. f. m., með forustu H. E. Hörrings, er áður stóð fyrir innanríkismálum, en hefir nú tekið fjármálin að sjer, auk formennskunnar. Með honum eru 3 hinir sömu sem áður, þar á meðal Islands-ráðgjafinn, Rump, en alveg 1) = afsala fyrir vangeymslu.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.