Ísafold - 09.06.1897, Page 3

Ísafold - 09.06.1897, Page 3
155 nyir 3: Alfr. Hage landbúnaöarráðherra; H. Y. Sthyr biskup (frá Falstri) fyrir kirkju- og kennslumálum; og C. F. F. E. Tuxen ofursti hermálaráðherra. Ofenginn maöur til að hafa forstöðu utanríkismála, og stýrir þeim Ravn flotamálaráðgjafi fvi’st um sinn. Landskjálftagjafaskiptin. Skiptafundurinri stóð, eius og fyr er getið, dagana 2.—5. þ. m. Fundinn skipuðu sam- skotanefndarmennirnir 5: amtm. J. Havsteen, formaður nefndarinnar; Björn Jónsson ritstjóri, fjehirðir; Jón Helgason docent, skrifari; dr. Björn M. Olsen rektor; og Tryggvi Gunnars- son bankastjóri; — og ennfremur 6 menn aðr- ir nefndinui til ráðaneytis og leiðbeiningar: tveir fulltrúar frá hvorri sýslunefndinni á land- skjálftasvœðinu, þeir Eyjólfur oddviti Guð- mundsson í Hvammi og síra Skúli Skúlason í Odda fyrir austursýsluna, en síra Magnús Helgason á Torfastöðum og Sigurður svslum. Olafsson fyrir hina; loks yfirskoðunarmenn þeir, er nefndin sendi austur, Þórður Guð- mundsson amtsráðsmaður og Jón Sveinsson trjesmiður. Hjer skulu að þessu sinni að eins tilgreind- ar nokkrar helztu ályktanir fundarins, en sjálf skiptagerðin birt síöar, er þar að lútandi marg- brotnum og seinlegum útreikningi verður lokið. Samþykkt var, að landsdrottnar skyldu eiga tilkall til landskjálftaskaðabóta eigi síður en leiguliðar, eptir efnahag, enda margir þeim jafn-bágstaddir. Síðar var ályktað, að nokkr- ir tilteknir ríkir menn skyldu engar skaðabæt- ur fá, hvorki sem landsdrottnar nje leiguliðar. Miklum tíma og fyrirhöfn varði fundurinn til þess að laga og hreinsa eptir megni grund- völlinn fyrir útbvtingu gjafafjárins, skaðamats- skýrslurnar m. m., sem var töluvert ábóta- vant sumstaðar. Aðalhreinsunin var í því fólgin, að ályktað var í einu hljóði, að þessir 6 hreppar skyldu enga hlutdeild fá í landskjálftasamskotunum: Þingvallahreppur, Stokkseyrarhreppur, Land- eyjahreppar báðir og Eyjafjallahreppar. Sömu- leiðis var neitað að taka til greina skaðabóta- málaleitun frá manni í Yestmannaeyjum og 3 í Kjalarnes- og Mosfellshreppum. Skaðabótamatið laut yfirleitt að eins aðbeinu tjóni, en þó hafði í flestum hreppum í Rang- árvallasýslu og nokkrum í hinni verið tekið til greina og metið með öðrum skaða heyfall það, er orðið hafði vegna þess, að menn neydd- ust til að fara að hreinsa rústir þegar eptir slysið, og reyna að liugsa í tíma fyrir skjdum til vetrarins, auk verkfalls þess, sem orsakað- ist af hræðslu og fleiru. Þetta heyfallstjón var ályktað að taka ekki til greina, heldur að eins hafa nokkra hliðsjón á því, að verkfallið í nokkrum sveitum varð 10 dögum fyr en í öðrum. í flestum hreppum Árnessýslu hafði verið tvímetið og var hið síðara matið í vor eða að áliðnum vetri miklum mun hærra, enda þar í fólgið heyfall m. m. Þetta síðara mat var yfir- leitt eklci tekið til greina, lieldur miðað við hið fyrra, haustmatið, sem svo ýmist var hækkað eða lækkað nokkuð í einstökum hreppum, sam- kvæmt tillögum sýslunefnda og yfirskoðunar- manna (sendimanna nefndarinnar) með ráði sýslufulltrúanna. í einum hreppi í Rangár- vallasýslu, Ásahreppi, var matið látið óhaggað, °g tveimur í Árnessýslu, Skeiða og Selvogs, nema hjá örfáum, einstökum mönnum. Til þess að komast hjá að bæta mjög litlar skemmdir, var ályktað að láta þær óbættar, ef þær ekki næmu nema 15—60 kr., eptir mismun- andi efnahag (hjá landsdrottnum 20—75 kr.), og, þó að skaðinn væri meiri, að klippa þá neð- an af sömu upphæðir fyrir jafnaðar sakir. Með þessari hreinsun o. s. frv. tókst að þoka skaðamatinu úr nálægt 260,000 kr. eptir síð- ara matinu niður í hjer um bil 150,000, og hafði nefndiu til umráða upp í það um 130,000 kr., eptir að tekinn hafði verið af óskiptu verka- liðskostnaðurinn i haust, meðgjöf með fáeinum tökubörnum og nokkur annar óhjákvæmilegur kostnaður, en þó haldið eptir nokkrum þús- undum til útbýtingar síðar, ef rjettmætar kröf- ur nýjar kyunu fram að koma, eða þá að öðrum kosti bætt við skiptahlutina. Verður þá jöfn ítala hvers þiggjanda 86—87 aurar af hverri krónu í hinu lagfærða skaðamati, og er ætlazt til, að sú verði hlutarhæð bjargálna manna eða nálægt því, en fátæklinga nokkuð hærri og efnamanna að sama slcapi lægri (5 -—10% lægri). Fáheyrður verðmunur. Fyrir hvert tbl. »Þjóðólfs« eru áskrifendur látnir borga 62/s aura, en Isafoldar minna en 4*/a eyri. Þó er bvert blað af ísafold þriðjungi efnismeira, bæði vegna stærðar á blaðinu og leturdrýginda. Væri ísafold seld jafn-dýrt og »Þjóðólfur«, ætti hún að kosta 9 kr. árgangurinn, en 10 aura hvert tölublað. í stað þess kostar hún að eins 4 kr., eða meira en helmingi minna en hann. Hvert tbl. að eins tæpl. 4þ‘2 e., í stað 10 aura. Villandi og flekandi er auglýsing »Þjóðólfs« um, að hann ætli að koma út frá næstu áramótum í stærra broti en ísafold án verðhækkunar, ef árangurinn á samt að verða færri blöð eða letur svo ódrjúgt, að stækkunin verður lítil sem engin. Og þó að þessu sje hvorugu til að dreifa, er aug- lýsingin samt villandi og flekandi, nema hann bæti við og segi: »í stærra broti en ísafold er «M«. Að öðrum kosti getur svo farið, að kaupendur hans telji sig gahbaða, ef hann verður eptir allt saman í minna broti en ísafold verður þd, þ. e. frá nýári 1898. — Þetta ætti maðurinn að hng- leiða og vara sig á því. »Ekki veldar sá er varir«. Og »sá er vinur er til vamms segir«. liandsgufuskipið Vesta, kapt. Svensson, kom hingað í gærmorgun. Hafði haft 2 sólar- hringa viðstöðu 1 Leith, tekið þar mjög mikið af vörum, um 400 smálestir, og auk þess tafizt nokk- uð vegna þoku. Full-fermi hafði það hingað til lands og um 50 farþega. Þeir Zöllner og Vidalín höfðu sent með því mjög mikið af vörum til pöntunarfjelaganna og hætt við að senda skip frá sjálfum sjer með þær. En afleiðing þess er, að nú getur skipið ekki tekið sjómenn eða kaupafólk til Austfjarða, hefir ekkert skýli handa þeim. Einar Hjörleifsson ritstjóri kom nú með þessari ferð aptur, sunnan frá Korsíku; hefir nú fengið mjög góða heilsubót. Póstmeistari vor væntanlegur, cand. polit. Sigurður Briem, kom nú hingað með Vestu, eptir rúmlega missirisdvöl í Danmörku til þess að kynna sjer póstmeistarastörf. Skagafjarðar-læknishjerað (Sauðárkróks) hefir konungur veitt cand. med. & chir. Sæmundi Bjarnhjeðinssyni. Hann er og hingað kominn. Dr. Finnur Jónsson háskólakennari kom og með Vestu i gær, ásamt konu sinni (danskri) og syni þeirra 10 vetra. Dr. F. J. hefir eigi komið hingað frá þvi hanu útskrifaðist úr skóla 1878. Eigandi Elliðaánna, Sir Payne, er og kom- inn með Vestu, ásamt 2 förunautum. Hann hefir látið reisa sjer dálitið sumarskýli í Elliðaár- hólmum. Frá Ameríku komu með þessari ferð 4 Is, lendingar, 2 karlmenn og 2 konur, önnur þeirra hálfsystir dr. Valtýs Guðmundssonar. Einar Guð- brandsson frá Hvitadal er annar karlmaðurinn. Hann mun vera alkominn og tekur við föðurleifð sinni, Hvitadal. Aðrir farþegar hingað með Vestu voru helzt kaupmenn, hæði hingað og lengra áleiðis umhverfis landið, svo sem H. Th. A. Thomsen, Holger Clausen, Jón Vídalín með frú sinni, Her- luf Bryde, O. Wathne (Seyðisf.) með frú sinni, Olafur Ólafsson frá Keflavík. Enn fremur lækna- skólakand. Skúli Árnason, cand. juris Jón Krahbe Þórarinn B. Þorláksson málari, stúdentarnir Olaf- ur Eyjólfsson, Páll Sæmundsson, Páll Vídalín og Sigurður Eggerz. Fáeinir Englendingar, þeirra á meðal Browning-Lund, trúboðinn aldraði frá Glasgow. Gufuskipið Egill, kapt. Olsen, kom hingað i morgun austan að, og með hjeraðslæknir Guðm. Scheving með fólk sitt, á leið til embættis sins, Strandasýslu m. m. Nú geta sjómenn komizt með honum austur, og eru ekki komnir upp á Vestu. Botnverpingarnir ensku eru nú aptur komnir hingað í flóann, Faxaflóa, á Norðnrsviðið, eptir lijer um bil mánaðar brottvist, eða frá þvi i veðr- inu mikla i npphafi f. mán. Af þvi að friður hefir verið fyrir þeim, hefir nú aflazt vel hjer um flóann siðustu vikurnar. En nú má búast við, að fyrir það taki aptur að mestu, með því að ómögulegt er að vera með lóðir innan nm þá, hvað sem öðru liður. Möðruvallaskóli- Burtfararpróf var þar haldið í miðjum f. mán. skrifaðir: °g þessir 20 út- Eink. Stig. Friðrik Sigurðsson . • • ág. 60 Halldór Stefánsson . . . • • ág. 60 Valdimar Guðmundsson . . I. 56 Indriði Benidiktsson . . . . . » 54 Páll Jónatansson . . » 54 Guðmundur Guðmundsson . . » 54 Jónatan Jósafatsson . . . » 53 Guðni Þorsteinsson . . . » 51 Guðjón Guðmundsson . . . » 50 Þorsteinn Jónsson . . » 50 Bogi Benidiktsson . . » 49 Þorvaldur Baldvinsson . . . II. 47 Sigurjón Gíslason . . » 47 Olgeir Benidiktsson . . . . . » 46 Sigurður Jónsson . . » 45 Jóhann Sigurðsson . . . . . » 44 Hallgrímur Jónsson . . . » 37 Halldór Jóhannsson . . . » 36 Eggert Einarsson . . III. 29 Aðalmundur Guðmundsson . . » 27 Sundmaga kaupir hæsta verði Th Thorsteinssen Liverpool. Saumavjelar. Með »Vesta« komu hinar vönduðu og ódýru saumavjelar, sömu tegund og jeg hefi áð- ur flutt og reinst iiafa vel. H- J. Bartels-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.