Ísafold - 13.06.1897, Blaðsíða 3
159
Þingmálafundir.
"Vestmanna*»yingar (fundur 8. júní, l>oðað-
aður af alþm., dr. Valtý Guðmundssyni, fundar-
stjóri Þorsteinn Jónsson hjeraðslækni), gerðu svo-
látandi ályktanir um stjórnarskipunarmálið:
Eptir nokkrar umræður samþykkti fundurinn i
e. hlj. að skora á alþingi að halda því máli fram
í frumvarpsformi þannig, að menn ljetu sjer fyrst
um sinn nægja, að skipaður yrði sjerstakur is-
lenzkur ráðgjafi, sem ætti setu á alþingi og bæri
ábyrgð allia stjórnarathafna sinna fyrir þinginu,
og að jafnframt yrði komið í veg fyrir auka-
þing að nauðsynjalausu. Savigöngumálið: Ept-
ir þvi sem það mál horfði nú við þóttist fundur-
inn ekki geta komið fram með ákveðna tillögnr i
því, og ályktaði þvi, að fela forsjá þingsins að
ráða fram úr málinu á sem haganlegastan og á-
kjósanlegastun hátt fyrir landshúa. Telegraf-
málið: Eundurinn ljet með öllum þorra atkv.
þá ósk í ljósi, að þingið styddi það mál af fremsta
megni. Lœknaskipunarmálið: Fundurinn sam-
þykkti að skora á alþingi að koma því máli i
hetra og viðunanlegra horf en nú er. Holdsveik-
ismálið: Fundurinn ljet í ljósi, að hann bæri
fullt traust til þingsins, að ráða, þvi máli heppi-
lega til lykta. Fiskiveiðamálið: Fundurinn sam-
jjykkti i e. hlj. að skora á alþingi, að styðja
sjávarútveginn öfluglega og veita meira fje til efl-
ingar honum en að undanförnu. Sveitfesti þurfa-
manna: Um það mál urðu töluverðar umræð-
ur og komst fundurinn að þeirri niðurstöðu, að
stytta bæri sveitfestistímann að mun. — Af 20
fundarmönnum, sem atkvæði greiddu, vildu 12 ekki
hafa hann nema eit.t ár, en 8 voru með fimm
ára sveitfestistima. Vínsölubannið: Fundurinn
var mótfallinn þvi, að hjeruðunum væri veitt sam-
þykktarvald til þess að koma á algerðu vínsölu-
banni, en áleit hins vegar heppilegt, að vínsala
yrði takmörkuð.
Refsað fyrir illan inunnsöfnuð. »Þjóð-
ólfs«-maðurinn varð fyrir því mótlæti i fyrra dag,
að fá refsidóm í undirrjetti fyrir illan munnsöfnuð
gegn ritstjóra Isafoldar í blaði sínu 12. marz þ. á.
Refsingin varð 80 króna sekt eða til vara 24
daga einfalt fangelsi, auk 20 kr. málskostnaðar
og ómerkingar hinna saknæmu ummæla.
En »sjaldan er ein bára stök«. Til þess að
sýnast spjara sig, eða láta almenning halda, að
hann gerði það, tók maðurinn (»Þjóðólfs«) upp á
því óyndis-úrræði, að hefja málssókn í móti gegn
ritstjóra Isafoldar út af formála blaðsins fyrir til-
kynningunni um þessa málshöfðun, þannig orðuð-
um (i 16. bl. Isafoldar, 13. marz þ. á.):
'Þjóðólfs-maðurinn, ljúfmennið hógværa,
prúðmennið góðgjarna, göfugmennið lítilláta, spak-
mennið snjalla og djúphyggna, íturmennið glæsta,
hefir í gær í einni dýrðlegri hugvekju í blaði sínu
falazt eptir jieim greiða af hjartkærum bróður
sínum, ritstjóra Isafoldar, að hann notaði fægitól
hegningarlaganna til þess að »garva« goðum líkt
hörund velnefnds þjóðmennis svo, að af því legði
enn meiri ljóma en áður, otr er vísast, að ekki
verði farið að synja bonum um jafn-ómakslitið,
en honum eigi að síður áriðandi og heilladrjúgt
handarvik«.
Þetta ljet maðurinn sem varðaði við lög, fór
í mál og fekk það dæmt i fyrra dag, undir eins
og hitt, með þeirri nokkurn veginn sjálfsögðu nið-
urstöðu, að ritstjóri Isafoldar var alveg sýkn-
aður.
Honum, »Þjóðólfs«-ábyrgðarmanninum, voru
gerð ýms kostaboð til sátta, fyrst og fremst að
taka það aptur, að hann væri sprúðmenni, ljúf-
menni« o. s. frv., og þar næst, að snúa þá lýsingunni
alveg við, kalla hann durg og eitthvað fleira
þess háttar. En hvorugt vildi hann með nokkuru
móti þýðast; ljet sjer ekkert lynda nema máls-
rekstur og dóm. Fór þó ekki fram á ómerking
orða þeirra, er hann stefndi fyrir (»ljúfmenni«,
»prúðmenni«, »göfugmenni«, »spakmenni« o. s.
frv.); vildi með öðrum orðum láta þau standa,
en pó fá dæmda sekt fyrir þau, geysiháa sekt!
Hjer er þvi staðfest með dómi, að löglegt sje
að kalla »Þjóðólfs«-manninn »göfugmenni«, »spak-
menni«, »prúðmenni« og ýmislegt fleira fagurt.
Er það ekki merkilegt? Hann vildi fá þetta frá-
dæmt sjer, en tókst ekki. — Skyldi hann fara i
mál, ef einliver kallaði hann dánumann? Ja,
hvað annað!
Bindindi.sitiálaþing;. Good-Templara-reglan
hjer á landi hjelt alþingi sitt dagana 5.—7. þ.
mán. hjer í bænum, stórstúknþingið. Það er
haldið annaðhvort ár, eins og hið reglulega al-
þingi. Þingmenn voru 30, kjörnir fulltrúar frá
tí-.-T.-stúkuni viðsvegar um land. Þær eru nú alls
21. Tala fullorðinna meðlima í öllum undirstúk-
um á landinu var í vetur (1. febr.) 1397 (2 árum
áður 1217), og ungtemplarar í unglingastúkum,
540. Það er samtals 1940.
Þingstörfin lutu mest að innanreglumálum. Að
öðru leyti var rætt mest um vínsölubann, og sam-
þykkt nær í einu hljóði áskorun til alþingis um,
að lögleiða áfengisbanns-samþykktir, eins og farið
var fram á á síðasta þingi. Samþykkt var að
gefa út barnablað með myndum, til stuðnings
bindindi, en að öðru leyti fjölbreytilegs efnis.
Formaður fjelagsins til næsta þings, 1899, var
kjörinn Indriði Einarsson revissor, í stað Ólafs
Rósinkranz næstu 6 ár undanfarin. Meðal 6 með-
stjórnenda hans, i framkvæmdarnefnd, er 1 kvenn-
maður, fröken Ólavia Jóhannsdóttir.
Landsgufuskipið Vesta lagði af stað 9.
þ. mán. austur fyrir land og með henni allmargir
farþegar. Farstjóri, konsúll D. Thomsen, fór með
skipinu þessa ferð kringum landið.
Danskt herskip, korvettan Dagmar, kom
hingað í fyrra dag frá Khöfn, með sjóforingjaefni.
Yfirmaður heitir With. Það verður hjer fram til
mánáðamóta og heldur síðan til Norvegs; verður
þar við 900 ára afmælishátið Niðaróss, 18. júlí.
Kvennaskólinn í Reykjavík-
Þeir sem vilja koma ungum, komfirmeruð-
um, siðprúðnm yngismeyjum í Reykjavíkur
kvennaskóla veturinn 1897—98 eru beSnir
aS snúa sjer til undirskrifaSrar forstöSukonu
skólans. Kennslutíminn er—eins og aS und-
anförnu—frá 1. okt. til 14. maí. Nánari
uppl/singar gefur
Thóra Melsteð
Reykjavík 10. júní 1896.
Uppboðsauglýsinf>\
Samkvæmt lögum 16. des. 1885 sbr. lög
mr. 16 16. september 1893 verður, aS undan-
gengnu fjárnámi, Ijósmyndaskúr, sem stendur
á lóSinni nr. 2 í Kirkjustræti og er eign
Agústs ljósmyndara Guðmundssonar, seldur
til lúkningar veSskuld til landsbankans á op-
inberum uppboSum, sem haldin verða kl. 12
á hád. miSvikudagana 16., 23. og 30. þ. m.
tvö hin fyrstu á skrifstofu bæjarfógeta og hiS
síSasta í eSa hjá hinni veSsettu húseign.
Uppboðsskilmálar verSa birtir viS uppboSin
og til sýnis hjer á skrifstofunni degi fyrir
hiS fyrsta uppboS.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 5. júní 1897.
Halldór Daníelsson.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og op.br.
4. janúar 1861 er hjer meS skorað á alla þá,
sem telja til skuldar í dánarbúi Ola Peter
Finsens póstmeistara, er andaSist í Kaup-
mannahöfu 2. marz þ. á,, aS lýsa kröfum
sínum og sanna þær iýrir skiptaráðandanum
í Reykjavík áður en ár er liSið frá síðustu
birtingu þessarar innköllunar.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 1. júuí 1897.
Halldór Daníelsson-
Heimsins vönduðustu og ódýrustu
orgel og fortepíanó
fást með verksmiðjuverði beina leið frá Carnish
& Co., Washington, New Jersey, U. S. A.
Orgel úr hnottrje með 5 oktövum, tvöföldu
hljóði (122) fjöðrum, 10 hljóðbreytingum (re-
gistrum), octavkúplum í dískant og bass, 2
hnjespöðum, með vönduðum orgelstíl og skóla
kostar í umbúðum c. 133 krónur. Orgel úr
hnottrje meS 5 octövum, ferföldu (33/5) hljóS
(221 fjöður), 18 hljóðbreytingum osfrv. á c. 230
krónur. Orgel úr hnottrje með 6 octövum,
ferföldu (3*/2) hljóði (257 fjöSrum) á c. 305
krónur. 011 fullkomnari orgel og fortepíanó
tiltölulega jafn-ódýr og öll með 25 ára ábyrgð.
FlutningskostnaSur á orgelum frá Ameríku
til Kaupmannahafnar c. 30 krónur. Allir
kaupendur eiga að snúa sjer til mín, og hjá
mjer geta þeir fengið verSlista með myndum
og allar nauðsynlegar upplýsingar.
Einkafulltrúi fjelagsins hjer á landi
Uorsteiun Arnljótsson,
Sauðanesi.
Sunnudag'inn 13. þ. m. kl. 10
f. h, fer gufubáturinn »Reykja-
vík« skemmtiferð til Akranes,
ef veður leyfir, og nógu margir
farþegar koma
Reykjavik 12. júní 1897.
Björn Gruðinundssoii.
Andrew Johnson, Knudtzon & Co.,
Huli (England),
Telegramadresse: y>Andrew, Hulla.
Import, Export <fc Commissionsforretning,
anbefaler sig til Forhandling af Klipfisk og
alle andre islandske Produkter.
Prompte og reel Betjening, Afregning & Re-
misse strax efter Salget.
Grundet paa gode Forbindelser blandt dt
störste spauske Klipfiskkjöbere, ser vi os al-
tid istand til at placere hele Lasten til for-
delagtige Priser.
Garanterer en vis Minimumspris.
Nærmere Oplysninger ved Henvendelse til
Firmaet.
Prima Referencer.
Húsgögn (meubler).
Stórt úrval af alls konar stoppuðum(polstrede)
húsgögnum. Húsgögn í sali, borðstofur og
svefnherbergi. Járnrúm með lieydýnum og
fjaðramadressum, kommóður, servantar, sfoar
og chaiselonguer. Nægar birgðir af alls kon-
ar húsgögnum, lágt verS. Allt er selt með
fullkominni ábyrgð.
H- C- Petersen, Nörregade 17,
Kjöbenhavn K.
»3am0iningin«, mánaðarrit til stuðnings
kirkju og kristindómi íslendinga, gefið út af
hinu ev.lút.krkjufjelagi í Yesturheimi og prent-
að í Winnipeg. Ritstjóri Jón Bjarnason. Verð
í Vesturheimi 1 doll. árg., á íslandi nærri
því helmingi lægra: 2 kr. Mjög vandað að
prentun og útgerð allri. Tólfti árg. byrjaSi
í marz 1897. Fæst í bókaverzl. Sigurðar
Kristjánssonar í Reykjavík og hjá ýmsum bók-
sölum víðsvegar um land allt.