Ísafold - 30.06.1897, Blaðsíða 2
178
kveðinn tíma, og sje framkvæmd eim-
skipaútgjórðarlaganna frestað um jafn-
langan tíma, en þau alls eigi úr gildi
numin.
Samþykkt með öllum atkv. móti 2.
Fundurinn óskar einnig, að íslendingum,
sem vilja kynna sjer hag manna í út-
löndunx eða nema eitthvaö stuttan tíma,
gefist kostur á, að fara í öSru farþega-
rúmi til útlanda fyrir 25 kr. fargjald,
en ókeypis til landsins aptur í sama
farþegarúmi, en fæði hafi þeir hjá sjálf-
um sjer. Samþykkt í eiuu hljóði.
c. Fundurinn óskar, að landpóstur verði
látinn ganga úr iiorgarnesi einu sinni í
viku, mánuðina júní, júlí, ágúst og
september við komu gufubáts Faxaflóa
þangað, og fari pósturinn um Amarholt
vestur um I ialasyslu aS Bæ Króksfirði
og til baka aptur. Samþ. í e. hlj.
3. Landbúnaðarmál. Fundurinn skorar á al-
þingi að styðja landbúnaðinn svo sem það
sjer sjer frekast fært með fjárframlögum
og á annan hátt. Sjerstaklega telur fund-
urinn æskilegt:
a. Að stofnað sje búnaðarfjelag fyrir allt
landið.
b. Styrkurinn til búnaðarfjelaga sje aukinn.
c. Komið sje upp lánsstofnun, er veiti
bændum lán til jarðabóta með mjög
vægum kjörum.
d. Akveöinn verði með lögum styttsti á-
búSartími á jörðum, sem eru einstakra
manna eign, en lögleidd arfgeng ábúð á
öðrum jörðum.
e. Stofnaður verði tilraunagarður til að fá
reynslu fyrir því, hverjar útlendar jurtir
og trje sjeu fallnar til ræktunar hjer
á landi og með hvaða aðferð, og sje
við þá stofnun veitt tilsögn í garð-
yrkju.
f. Þingið leggi fram fje til fóðurjurtarann-
sókna og efnarannsókna.
g. Hár tollur verði lagður á smjörlíki.
h. Þingið hlutist til um, að bændur geti
fengið lán í landsbankanum með 4°/0
vöxtum og 28 ára afborgunartíma.
4. Lœknaskipunarmálið. Fundurinn leggur
til að landinu verði skipt í 40 læknishjeruð
á þann hátt, sem frumvarp stjórnarinnar
fer fram á. Læknarnir í Reykjavík, Isa-
firði, Akureyri og Seyðisfirði fái í laun
2000 kr., en aðrir 1500 kr. Eptirlaun
þeirra verði ’/5 af launum þeirra og auk
þess 10 kr. fyrir hvert embættisár. Lækna-
taxtanum vill fundurinn í engu breyta.
Fundurinn álítur æskilegt, að í hverju
sveitalæknisumdæmi leggi landssjóður til
jörð á hentugum stað fyrir læknissetur
gegn eptirgjaldi. Samþ. í e. hlj.
5. Fundurinn skorar á alþingi að stofna al-
mennan landsspítala í lieykjavík og gera
læknaskólann sem fullkomnastan. Samþ.
í einu hljóði.
6. Fundurinn skorar á þingið að stofna sem
fyrst geðveikraspítala í landinu. Samþ.
í einu hljóði.
7. Fundurinn óskar að alþingi veiti Hjálm-
geir Jónssyni dyralækni styrk til aðstunda
dyralækningar í vestur-amtinu vestan
Bröttubrekku, með því skilyröi, að hann
hafi aösetur fyrir sunnan Þorskafjarðar-
heiði. Samþ. í einu hljóði.
8. Fundurinn óskar, að þingið skori á stjórn-
ina, að setja milliþinganefnd til að undir-
búa frumvarp til laga um aðskilnað ríkis I
og kirkju. Samþ. með 32 atkvæðum á
móti 1.
9. Fundurinn vill að þingiö semji einkaleyfis-
lög fyrir Island. Samþ. í e. hlj.
10. Fundurinn vill, að þingið hlvnni sem rnest
og be/.t að alþýðumenntun, sjerstaklega
sjái kennaraefnum fyrir góðri undirbúnings-
menntun, styrki barna- og unglingaskóla
engu síður í sveitum en sjóþorpum. Samþ.
í e. hlj.
11. Fundurinn skorar á alþingi, að veitaskóla-
stofnun Islendinga í Vesturheimi í eitt
skipti fyrir öll verulegan fjárstyrk. Samþ.
með öllum atkv. móti 1.
12. Fundurinn skorar á alþingi, að semja lög,
er veiti hverju lögsagnarumdæmi samþykkt-
arvald til að banna vínsölu innan sinna
takmarka. Samþ. i e. hlj.
13. Fundurinn skorar á alþingi, að veita nægi-
legt fje til þess, að vegagerð á hinum ill-
færa þjóðvegi í Dalasyslu verði tekin til
fullnustu á næsta fjárhagstímabili. Samþ.
í einu hljóði.
14. Fundurinn mælist til þess að alþingi veiti
styrk til brúargjörðar á Bakkaá í Hörðu-
dal. Samþ. í e. hlj.
15. Fundurinn skorar á alþ., aö tolla allskon-
ar »bittera« og kynjalyf. Samþ. í e. hlj.
16. Fundurinn slorar á alþingi, að hækka toll
á áfengum drykkjum. Samþ. með 13 at-
kvæðum móti 5.
17. Fundurinn óskar að þingið takmarki erfða-
rjettinn þannig, að engir sjeu arftækir
nema í beinni upp- og niðurstígandi línu,
en erfðafje það falli til landsjóðs.
Til vara óskar fundurinn, að erfðafjárgjald
af arfi er gengur til útarfa verði fært upp í
10 af hundraði að minnsta kosti.
Reykvíkingar.
Fundur 26. júní. með húsfylli hjer um bil,
en fremur fátt kjósenda. Umræður mestar
um stjórnarskrármálið, — meðal annara tal-
aði dr. Valtýr Guðmnndsson og flutti framan-
skráða ræðu — og var að lokum samþykkt
með 31 samhlj. atkv. svolátandi ályktun:
»Komi fram vissa fyrir því á þinginu. að
stjórnin sje fús til samkomulags um veruleg-
ar umbætur á stjórnarfyrirkomulaginu, skorar
fundurinn á þingið að hafna eigi slíku, enda
þótt allar kröfur vorar híngað til eigi fáist í
einu, en án þess þó, að gefa upp neitt af
rjettarkröfum vorum«.
Um samgöngumál samþ. fundurinn að skora
á þingið að fresta að sinni útgerð landssjóðs
til millilandaferða, en leitast við að ná sem
beztum samningum um þær við eitthvert fje-
lag, en landssjóður kosti að öllu 2 strandferða-
báta (austan um land ‘og vestan, samfara mik-
illi fækkun á viðkomustöðum rnillilandaskip-
anna umhverfis land). Vildi láta veita þann
ársstyrk sem þyrfti til þess að frjettaþráður
fengist lagöur hingað til lands; gæta varúðar
í lœknalauna-hækkun; leggja nægilegt fje til
árlegs kostnaðar við hinn fyrirhugaða holcls-
veikisspítala, — tillaga um, að hann væri eigi
hafður nær Reykjavík en í Laugarnesi, var felld
með 11 : 10 atkv.; þilskipakaupalán veitist
með sem vægustum kjörum og engin föst tak-
mörk, er eigi megi fara fram úr handa einu
skipi; mótfallinn smjörlíkistolli.
Húnvetningar.
Fundur að Þingeyrum 19. júní. Þessi mál
tekin til umræðu og ályktunar:
Stjórnarskrármólið. Felld var með 13 at-
kvæðum móti 4 svohljóðandi tillaga: Fundur-
inn skorar á alþingi, að það komi sjer sam-
an um eitt frumvarp til stjórnarbótalaga fyr-
ir Island, er innihaldi hinar minnstu kröfur
til stjórnarbótar, er gangandi sje að, og sam-
þykki það frumvarp þing af þingi, unz málið
vinnst. Verði ekki þetta samkomulag, telur
fundurinn ráðlegast, að láta málið bíða þetta
kjörtímabil.
Aptur á móti var samþykkt með 22 atkv.
móti 1 svofolld tillaga:
Fundurinn lýsir yfir, að hann óskar eiu-
dregið endurbóta á stjórnarskránni, en telur
þó þýðingarlaust til nokkurs árangurs, að
uæsta þing taki upp stjórnarskrárfiumvarpið
frá síðustu þingum. Ef aptur á móti stjóru-
in svarar tillögu síðasta þings með því aö
bjóða einhverja kosti til verulegra bóta í
þessu máli, þá telur fundurinn rjett að að-
hyllast þau boð, án þess að nokkru sjesleppt
af sjálfstjórnarkröfum landsins.
Þessi viðbót við tillöguna var samþykkt með
13:8 atkv.: »En að öðru leyti felur fundur-
inn þingmónnum sýslunnar að leita þess sam-
komulags í málinu, sem vænlegast væri til að
þoka því áfram«.
Frjettaþráðarlagning til landsins vildifund-
urinn láta styðja sem dyggði; sömuleiðis að
millilandaferðir gufuskipa og strandferðir verði
sem greiðastar og bagfeldastar, landssjóði sem
kostnaðarminnst, með 2 strandferöabátum aust-
an um land og vestan; einhuga með lækkun
eptirlauna, stofnun holdsveikisspítala, móti
hækkun á launum lækna og læknataxtanum,
með fjölgun læknahjeraða (allt að 40); vildi
fá veittan ríflegan styrk til Hólaskóla og
Ytri-Eyjarskóla, sömuleiðis meðmæltan styrk
til matreiðsluskóla í Reykjavík, loks með styrk
til búnaðarfjelaga eins og hann nú er veittur,
en að viðbættum lánum úr landssjóði handa
einstökum mönnum til búnaðarframfara með
vægum kjörum.
Skag'firðingar.
Fundur að Sauðárkrók 17. júní. Urn stjórn-
arskrármálið sarnþ. í einu hlj. áskorun til
þingsins um, að það skori á stjórniua að skipa
milliþinganefnd til að i-æða og koma fram
með tillögur um endurbætur á stjórnarfyrir-
komulagi landsins eigi síðar en svo, að stjórn-
in samkvæmt þeim tillögum geti lagt fyxár
alþingi 1899 frv. til nýrra stjórnarskipunar-
laga fyrir ísland, og skipa nefndina 4—6
mönnum kosnum af alþingi 1897 og jafnmörg-
um dönskum mönnum, er kosnir væru af
l)ana hálfu.
Um gufuskipaferðir vildi fundurinn aðhyll-
ast aðgengil. tilboð frá sameinaða gufuskipa-
fjelaginu 2 árin næstu, ef millilandaferðunum.
verður haganlega fyrir komið og hagfelldar
strandferðir standi í sambandi við þær, og að
ekkert aukagjald leggist á vörur þær. sem
frá xitlöndum koma og til útlanda eiga að
fara til og frá viökomustöðum strandferðaskip-
anna. Þetta sje þó bundið þeim skilyrðum,
að farmeyrir og fargjald sje ekki hærra en
hjá landskipinu og samningur ekki bindandi
engur en til 2 ára. Til vara samþ., að ef
eigi fengist viðunanl. samningur við samein-
aða gufuskipafjelagið, þá skuli landsskipsút-
gerðiuni haldið áfram og jafnframt lagt fje til
2 gufubáta til strandferða austan um land og
vestan frá Reykjavík.
Meira fje vildi fundurinn fá til vegagerðar
í Norðlendingafjórðuni en að undanförnu;
yfirleitt mótfallinn akbrautum; óskaði fast-
lcga styrks til brúargerðar á Vestur-Hjeraðs-
vötn; eindregið með fjárveiting til frjettaþráð-
ar til Inidíins; ícnxul. n íð búnaíarfjelaga-