Ísafold - 24.07.1897, Síða 1

Ísafold - 24.07.1897, Síða 1
Kemurútýmisteinu sinnieða tvisv.í viku. Yerð árg.(90arka minnst) 4 kr., erlendis 5 kr.eða ll/adolí.; borgistí'yrir mið.jan júli (erlendis fyrir fram). ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifieg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgeí'anda fyrir 1. október. Afgreiðslustota blaðsins er i Austurstræti 8. Reykjavík, laugardaginn 24 júlí 1897- XXIV. árg. f Tvisvar í viku kemur ísafold út, miðvikudag'a og laugardaga. Stjórnarskrárbreytingar- frumvarp nefndarinnar Stjórnarskrárbreytingarnefndin hefir lokið starfa sínum, og eigi orðið á eitt sátt. I meiri hlutanum eru Ben. Sveinsson, Guðl. Guðmunds- son, Kl. Jónsson, Pjetur Jónsson, Skúli Thor- oddsen og Sig. Gunnarsson. I minni hlutan- um er Dr. Valtýr Guðmundsson. Frumvarpið, sem hann lagði fj'rir þingiö, hefir hann tekið aptur og nefndin hefir nú á boðstólum nytt frumvarp, sem V. G. gerir ágreiningsatkvœði við. Auk þess gerir og Ben. Sveinsson sjer- staka grein fyrir sinni uiSurstöSu. Hún er að sönnu hin sama og annara nefndarmanna í meiri hlutanum, en ástæðurnar aörar. Munurinn á frumvarpi nefndarinnar og hinu fyrra frumvarpi er sá, er nú skal greina: Nefndin vill fyrst og fremst bæta iun í stjórnarskrána því ákvæði meS berum orðum, aS sjermál lslendinga skuli eigi borin upp í ríkisráöi Dana. I öðru lagi vill nefndin kveða á nákvæmar um stöðu ráðgjafans en gert var í hinu fyrra frumvarpi — aS hann megi eigi hafa önnur stjórnarstörf á hendi, verði að skilja og tala íslenzku og eigi sæti á þingi; sjeu sjúkdóm- ar eða önnur slík forföB því til fyrirstöðu, að hann geti mætt á alþingi, má hann veita öðr- um manni umboö til þess að mæta þar á sína ábyrgð, en að öðrum kosti mæti landshöfðingi á ábyrgð ráðgjafans. Aðstoðarmann á þingi vill nefndin ekki heimila ráðgjafa aS hafa. Þá fer og nefndin fram á það, að neSri deild, í staS alþingis, fái ákæruvaldið gegn ráSgjafanum. Og svo vill nefndin láta 61. gr. stjórnar- skrárinnar standa óbreytta. Ágreiningsatriði minni hlutans (V. G. ) eru þessi: Hann vill ekki sctja inn í stjórnarskrána ákvæöið um aðskilnað sjermála vorra frá rík- isráðinu, ekki fela neðri deild (f stað alþingis) ákæruvaldið, og ekki skylda stjórnina til að kveðja til aukaþings, þegar alþingi er leyst upp samkvæmt 61. gr. stjórnarskrárinnar, og hann vill heimila ráðgjafanum að veita öðrum tnanni umboð til að vera á þingi við hliö sjer. Ekki hafði verið ástæðulaust fyrir þá menn, sern með öllu er ókunnugt um, hve gjarnt sumum þingmönnum vorum er á að vera nokkuö fljótráðir í dómum sínum, þegar um þvðingarmikla nýbreytni er að ræða, að búast við nokkrum öðrurn undirtektum hjá meiri hluta nefndarmannanna, fjórum af þeim sjö, sem nefndina skipa. Þeir voru kosnir í nefnd- ina af mönnum, sem ekki vildu sinna tilboÖi stjórnarinnar minnstu vitund, heldur fella það frá nefnd og 2. umræðu. Frá þeirra hliö hafði því væriS haldið fram á þinginu, með liörðum orðúm og óvingjarnlegum, að ekki væri við slíku tilboði lítandi —- og svo, eptir allau gauraganginn, er ágreiningurinn ekki meiri en nú er raun á orðin, og nefndin vill þiggja stjórnarbótartilboð stjórnarinnar með þeim viðauka einum, aS sjermál vor losni viö ri'kis- ráðið. Slíkt er vafalaust eins dæmi, og ætti að verða fljótfærnustu þingmönnum bend- ing um, að haga orðum sínum og atkvæða- greiðslu með nokkuð meiri varkárni í ókom- inni tíð. Sumar breytingar nefndarinnar frá frv. Dr. V. G. eru til bóta. Því verður ekki neitaö, aS þ'ið er tryggara að kveða skýrt á um stöSu ráðgjafans, banna honum önnur stjórnarstörf og skylda hann til að kunna íslenzku, og eins til þess að mæta á þingi, þegar ekki eru gild forföll til fyrirstöðu, enda eru þau ákvæði í fullu samræmi við tilboð stjórnarinnar, eins og fulltrúi hennar færði þinginu það. Svo eru aðrar breytingar, sem í vorum aug- um eru naumast þess verðar, að um þær sje deilt. Sjálfstjórnarrjettur vor gerir hvorki að falla nje standa með ákvæðunum um, hvort neðri deild eða allt þingið skuli kæra ráðgjaf- ann, og um þingrof og aukaþing þvert ofan í vilja og stuðning stjórnarinnar. Rjettara virðist óneitanlega að það hefði verið af nefud- inni aS vera ekki að gcra slíkt að ágreinings- atriðum, ef henni væri annt um, að samningar tækjust nú við stjórnina. En jafnframt má þá líka segja, að atriðin sjeu ekki svo þýð- ingarmikil, að líklegt sje að samningafús stjórn láti þau verða málinu til falls. En ein breyting nefndarinnar er ómótmæl- anlega þýðingarmikil — ákvæðið um, að sjer- mál vor skuli ekki borin upp í ríkisráðinu. Isafold þarf ekki að þessu sinni að gera grein fyrir því, hvernig hún lítur á það atferli stjórnarinnar, að halda sjermálum vorum þar. Það hefir svo margsinnis verið hjer í blaðinu lýst yfir sömu skoðun, sem nefndin hefir á því atriði — að það sje lögleysa, blátt áfram brot gegn stjórnarskránni. Engu að síður' væri því ekki bót mælandi, ef slikur fleygur kæmist að þessu sinni inn í tilraunirnar til að fá breytingar á stjórnar- 52. blað. skránni. Því að það er öllum mönnum vitan- legt, að þeirri brevtingu getum vjer ekki með nokkru móti fengiö framgengt, eins og nú stendur. Það er óhugsanlegt, að sá fleygur yrði málinu til góðs. En það er óhjákvæmi- legt, að hann verði málinu til tafar og þjóð- inni til kostnaðarauka — ef hann þá ekki verð- ur stjórnarbótarmáli voru til falls um langan, langan tíma. Setjum svo, að frumvarp nefndarinnar verði samþyklct óbreytt af þinginu. Vjer fáum þá aukaþing að*ári, og það aukaþing fær þau svör hjá stjórninni, að ekki sje til neins að fara fram á lausn sjermála vorra úr ríkisráð- inu. Þingið 1899 veröur svo að lúta að til- boði stjórnarinnar, ef það vill ekki láta allt sitja í sama farinu, sem oss dettur ekki í hug að það vilji. Svo verður aukaþing 1900, stjórnarskrárbreyting þar á eptir samþykkt — og vjer ekki einu liænufeti nær því þá en nú að fá mál vor losuð úr ríkisráðinu. 8vona fer nú, ef mönnnm tekst að keyra rikisráðsfleyginn inn í málið, og ef vjer jafn- framt verðum svo heppnir, sem oss er fram- ast unnt að verða. En vjer getum alveg eins orðið svo óheppnir, að fá nýja stjórn áður en þessi tími er liðinn — stjórn, sem er fráhverf allri stjórnarskrárbreyting. Og þá verða þær samningatilraunir, sem nú standa yfir, með öllu árangurslausar, og vjer höfum eptir sem áður ábyrgðarlausan, dauskan ráðgjafa, sem vjer aldrei fáum til viðtals. A þeim úrslitum bæri þá þingið eitt ábyrgð, og þjóðin mundi þakka þau fulltrúum sínum á þann hátt, sem þeir ættu skiliö! Hitt er annað mál, að röksemdafærsla stjórn- arinnar í brjefinu til landshöfðingja gefur ekki að eins þinginu tilefni til mótmæla gegn þeirri kreddu stjórnarinnar, að sjermál vor eigi að berast upp í ríkisráðinu samkvæmt grund- vallarlögum Dana, heldur og gerir þinginu beinlínis að skyldu að hafna þeirri keuningu skýrt og skorinort. Sje það gert í þingsálykt- unartillögu, er það laust við stjórnarskrár- breytinguna og getur engín áhrif á hana haft. En að hinu leytinu hefir það alveg sömu þýö- ingu eins og það stæði í stjórnarskrárbreyt- ingarfrumvarpinu, sýnir jafn-afdráttarlaust vil- ja og skoðun þings og þjóðar — munurinn eingöngu sá, að önnur aðferðin spillir ekki fyr- ir neinu velferðarmáli voru, en hin gerir þeim öllum mun örðugra fyrir og stofnar þeim jafn- vel í hættu um langan aldur. Því að við góða samvinnu þings og stjórnar og ráðgjafaábyrgðina eru öll nauðsynjamál þjóð- arinnar að meira eða minna leyti tengd.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.