Ísafold - 24.07.1897, Qupperneq 2
206
Holdsveikraspítalinn.
Það er nú fullráðið orðið, að lioldsveikra-
spítalinn fyrirhugaði á að standa í Laucjarneti,
á tanganum, ]>ar sem biskupsstofan gamla er
eða rústir hennar. Þar li'zt þeim bezt á sig,
erindrekum gefendanna, þeim Dr. Petrus
Beyer, stórmeistara Oddfellowreglunnar í Dan-
mörku, og förunaut hans, Thurén húsgerðar-
fræðing. Væntanlega lætur bæjarsstjórnin liús-
stæðið fyrir ekki ncitt; það er lítið nema blá-
oddinn af Laugarnesinu. Þeir áskilja, að lagð-
ur sje góður akvegur þangað inn eptir með
sjónum, frá Rauðará, til þess að gera leiðina
sem stytzta og greiðasta bæði til flutninga (að-
drátta) og fyrir lækni og læknaskólamenn, er
stórmikið gagn iiljóta að geta haft af stofnun
þessari.
Það er ætlazt til, að landsstjórnin leggi veg-
inn, eins og líka sjálfsagt er, þar som þetta
er lands-stofnun, enda getur eigi mikið kostað.
Grunn undir húsið á að gera í haust, úr
steinsteypu að mestu. og höggnu grjóti ofan
jarðar, úr Laugarnesstofunni. En húsið sjálft
á að komast upp að sumri, fyrri partinn.
Það verður úr timbri, — stærsta hús hjer á
landi, 82 álna iangt og 27 álna breitt (til
endanna) aðalhúsið, tvíloptað, en 40 álna löng
og 18 álna breið álma út úr því miðju; þar
á að hafa eldhús, þvottahús, borðsal o. fl.
Búizt er við, að þetta muni kosta nál.
90,000 kr. Þar af hafa gefendurnir nú í hönd-
um 80,000 kr., og liafa Oddfellowreglumenn
sjálfir lagt til, með samskotum o. fl.., um
60,000 kr., en 20,000 kr. safnazt utan regl-
unnar, fyrir milligöngu aðalnefndar þeirrar, er
þeir skipuðu í því skyni, og Dr. E. Ehlers
er skrifari í.
Meðal skilmála fyrir spítalagjöfinni til lands-
ins er aðalatriðið það, að stofnuninni sje liald-
ið við og haldið áfram meðan þarf, og að gef-
endurnir (Oddf.) sjeu í ráðum um liaguyting
stofnunarinnar, þegar hennar þarf eigi fram-
ar handa hoidsveikum mönnum.
Við Geysi.
»Fátt er svo illt, að einugi dugi«, má segja
um landskjálftana í fyrra.
Eitt hafa þeir gert til bóta: þeir hafa bætt
Geysi til muna.
Hann var fariun að dofna svo áður, að marg-
ir dagar og jafnvel vikur liðu í milli gosa.
Meira að segja þurfti orðið »að gefa honum
inn« (sápu) til þess að hann gæti hreyft sig.
Nú g/s hann eigi einungis daglega, lieldur
opt á dag, 4—8 sinnum á sólarhring. Stór
og glæsileg gos, og án nokkurrar inntöku.
T. d. núna fyrir viku, 17. þ. m. var útgef.
Jsafoldar staddur þar, við 12. mann, —karla
og konur. Þá hafði hann gosið tvívegis um
morguninn, áður en við komum að honum, frá
Múla og Austurhlíð, en kom síðan með 2 gos
stór sama daginn, kl. 3 og kl. 7, auk 20—
30 smágosa þess í milli.
Áður boðaði hann stórgosin með miklum
dunum og dynkjum niðri í jörðinni; hann
stundi eins og giktveikur karl, hvað lítið sem
liann þurfti að hreyfa sig. Nú hefir hann
kastað ellibelgnum og lætur lítið sem ekkert
til sín heyra á undan gosunum. Og smágos-
in, nokkurra álna há, kemur hann með alveg
á óvart, jafnvel þegar skálin er alveg tóm.
Enfremur hafa landskjálftarnir skapað 10—
12 nfja hveri og hvera-augu þar á söndunum
umhverfis.
Stærstur þeirra, 8 áln. að þvermáli, er sá,
sem brotizt hefir upp um uppvarpið eða sand-
hólinn 17 föðmum upp af Blesa austanhallt,
og gaus allmikið fyrst eptir landskjálftana,
en liggur nú niðri, nema hvað mikið syður í
honum og hverar, og leggur mikinn reyk upp
af. Þar nærri er móbergsbjarg, er Kristján
konungur níundi hjó eðaljet höggvaá fangamark
sitt og ártal, er hann kom hingað (1874).
Fyrir því hugkvæmdist okkur að skíra þenn-
an hver Konungshver, og varði einn laghentur
og ólatur maður í fðrðinni (D. Th. kon-
súll) talsverðum tíma af viðdvöl okkar til þess
að höggva nafnið á stein við barminn á hvern-
um, — smíðatólið var ekki gott.
Þá hefir komið upp dálítið auga í rásinni
niður frá Blesa. Það kom ekki upp í land-
skjálftunum í haust, heldur í vor, skömmu
fyrir sumarmál, og gaus þá til muna, en ekki
nema 1—2 sinnum síðan, að heimamenn segja
á Laug; en syndi oss fjelögum þá kurteisi, 17.
þ. mán., að senda úr sjer mikið myndarlegt
gos, upp úr þurru, er stóð yfir nær ®/4 stund-
ar með fullum krapti, 15—20 álna há stroka,
jafnstríð eða kippalaus allan tímann, nema
linaðist 10 mmúturnar síðustu, fyrst sandi orp-
inn og leðju, en hreiasaðist síðan. Þenna nyja
efnilega fjelaga Blesa gamla skírðum vjer
Stjarna.
Blesi er óbreyttur að útliti, en brennisteins-
vera í honum miklu meiri en áður, og rykur
nú sífellt af honum.
Strokkur er orðinn að heitri laug, fullur
nær á barma, og alveg hætt að sjóða í hou-
um.
Fyrirlestur um Islendinga
eptir B. Palleske stendur í »Oberschlesisches
Tageblatt« í sumar og heitir: »íslendingar
sem yztu útverðir Norðurálfumenningarinnar«.
Erindið er samið af hinum mesta góðvildar-
hug til lands og þjóðar, en þekkingar-óná-
kvæmni kemur fram við og við. Ofurlítið á-
grip er þar af sögu landsins, að nokkru skýrt
frá atvinnuvegunum og svo frá menntunará-
standinu allytarlega og bókmenntunum dálít-
ið — meðal annars prentaðar þýðingar á
kvæðunum: »Jeg bið að heils»« eptir Jónas
Hallgrímsson og »Snæfellsjökull« eptir Stgr.
Thorsteinsson, þyðingarnar eptir M. Lehmann-
Filhés og Baumgartner. Höf. gerir mjög mik-
ið úr alþyðumenntun hjer á landi, og stór-
merkilcgt þykir honum, að jafn-lítil og fátæk
þjóð sem Islendingar skuli geta staðið straum
af jafn-mörgum menntastofnunum og haldið
uppi slíkum bókmenntum sem hjer sje til að
dreifa. Þótt ótrúlegt sje, eigi Islendingar það
skilið, eigi síður en Þjóðverjar, reyndar öllu
fremur, að vera kölluð djúphyggjumanna og
skálda þjóð. En mest af öllu þykir honum
kveða að ljóðagerðinni. Hann lykur máli sínu
á þessa leið: »Með því að þegar hefir verið
þýtt á þýzku töluvert af íslenzkum skáldsög-
um og ljóðum, þá er vonandi að skáldskapur
Islendinga nái allt af betur og betur því sæti
1 bókmenntum veraldarinnar, sem hann á skil-
ið, og að þá komi jafnframt sá tími, að aðr-
ar þjóðir hætti að telja Islendinga skrælingja,
sem drekki lýsi og klæðist skinnum, heldur
komist að raun um, að þeir eru vel menntuð
þjóð, sem í andlegum efnum stendur á háu
stigi og verndað hefir og alið, þrátt fyrir hina
mestu örðugleika, logann heilaga, áhugann
eldlega á því, sem gott er, göfugt og fagurt«.
Um Dr. Grím Thomsen
heitinn hefir íslandsvinurinn Mrs. Disney
Leith skrifað einkar lilýlega grein í skozkt
blað, getur að nokkru æviatriða hans og rit-
starfa og segir rækilega frá heimili hans og
gestrisni. Sú villa hefir slæðzt inn í greinina,
áð Dr. G. Th. hafi verið sendiherra (ambassa-
dor) um tíma; en annars er hún rjettorð og
til sóma, eigi að eins fyrir hið látna skáld og
fræðimann, heldur og fyrir íslenzkar bókmennt-
ir og þjóð vora í lieild sinni.
Ljótur leikur.
Yitringur sá í blaðamannsstjett, sem fer í
meiðyrðamál við blöðin, ef þau hæla honum,
hefir látið einhvern gamansaman og kankvís-
an kunningja sinu koma sjer til þess að mæla
fram með ríkisráðs-fleygnum í stjórnarskrár-
málinu á þann hyggilega hátt, að fullyrða, að
svo framarlega sem stjórnin samþykki ekki
stjórnarskrárbreytingarnar með þeim fleyg í,
þá sjeu ekki nema tveir kostir fyrir hendi:
sá annar, að leggja árar í bát um óákvoðinn
tíma; hiun, að fara aptur að halda frarn land-
stjórafrumvarpinu.
Er það ekki girnilegt, piltar? Nú látið þið
vonandi sannfærast!
Engum manni, ekki einu sinni vitringnum,
íturmenninu o. s. frv., kemur eitt augnablik
til hugar, að stjórnin muni aðhyllast fleyginn
fyrst um sinn. Ef hún gerir það ekki, verð-
um vjer annaðhvort að leggja árar í bát eða
taka aptur til þeirra ráða, sem löng reynsla
hefir sýnt oss, að ekki flytur oss einn þuml-
ung nær takmarkinu. Þess vegna eigum vjer
fyrir hvern mun að halda fleygnum!
Annað eins og þetta kemur ekki frá brjósti
nokkurs viturs manns. Því að vjer trúum
því ekki, að jafnvel vitringurinn færi í mál
við oss, þó að vjer segðum, að þetta sje þvætt-
ingur. Það fer ekki hjá því — þetta er að-
fengin vitleysa, sprottin úr heila einhvers mið-
ur góðgjarns gárunga.
En hver er að gera vitringnum þennan
grikk? Hver er að trufla svona hans vísdóms-
ríku hugleiðingar, þar sem hann annaðhvort
situr í meinleysi á ritstjórastólnum eða spáss-
jerar um göturnar, glampandi af góðmennsku
og þrunginn af mannviti?
Leikurinn er ljótur, gamanið er grátt, hverj-
um sem um er að kenna. Það er á sinn máta
eitis og að hafa fábjána að leiksoppi og aðra
aumingja. Það hefir aldrei þótt nein fremd
í því.
Frá alþingi,
Þingmálatal.
Þatt eru orðin yfir 80 alls, og mun það
vera fullur meðalafli, ekki lengra en liðið er
á vertið, rúmar 3 vikur af þingi.
Það eru 70 frumvörp og 12 þingsályktun-
artillögur.
Af frumvörpum þessum eru 48 þingmanna-
frumv. og 22 stjórnarfrumvörp.
Af frumvörpunum eru ekki enn fallin
fleiri en 2: um breyting á yfirsetukvennalög-
unum, og um hafnsögugjald í Reykjavík
(stj.frv.); og af tillögunum alls ein fallin: utn
endurskoðun jarðabókarinnar.