Ísafold - 16.10.1897, Blaðsíða 1

Ísafold - 16.10.1897, Blaðsíða 1
Kemurútýmisteinu sinnieða tvisv.íviku. Verð árg.(90arka minnst) 4kr., erlendis 5 kr.eða l*/> doil.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir f'ram). ISAFOLD Uppsögn (skritíeg) bundm vitf áramót, ógild nema komin sje til útgef'anda fyrir 1. október Afgreiðslustofa blaðsins er í áustumtrœti 8. XXIV. árg. Reykjavík, laugardaginn 16- okt. 1897- 75. blað. Nyr sauð íjárraarkað u r. Undan hverju er mest kvartaS hjer á iandi um þessar mundir? Vafalaust er það ýjársalan, san mónnum þykir nú örðugust. Eða rjettara sagt, þetta: að geta elcki selt- sauðfje til annara landa. Því miður er lítil von um, að úr þeim vandræðum rætist vel innau skamms. Það er ekki líklegt að innflutningsbanninu enska nje kjöttollinum norska verði af ljett fyrst um sinn. Sayldu menn almennt hafa gert sjer grein fyrir áreiðanlegasta veginum til þess að ráða fram úr þeim vandræðum? Vegurinn er sá, að skapa markað fyrir sauð- fje í landinu sjálfu, og verða svo ekkeit kom- inn upp á útlenda markaðinn. Hann er auð- vit ið ekki svo fljótfarinn, sem vjer mundum óska, bætir ekki úr bráðustu þörfinni. En ófær ætti hann ekki að vera. Það mun láta nærn, að vjer þurtum að flytja út rúm 70,000 fjár árlega — segjum 72,000. Reykjavík — 4000 manns — kaupir um I 12,000 fjár á hverju ári. Eptir því ætti að þurfa 24 þúsundir manna, | sem ekki stunda sanðfjárrækt, til þess að í kaupa allt það fje, sem vjer nú þurfum að flytja út úr landinu. Hvernig eigum vjer að fá þeirri fjölgun framgengt? Auðvitað með því, að efla af öllum mætti — á annan hátt og at ólíku meiru Kappi en að undanförnu — hinn aðalatvinnuveginn, | sjávarútveginn. Stóru þilskipin, sem nú er farið að kaupa, I fæða um 80 manns hvert. Til þess að i efa I atvinnu 24,000 manna í viðbót við það fólk j sem uú hefst við hjer á landi, þarf 300 slík j skip. Með því verði sem nú er á skipunum, j mundu þau kosta rúmar 2 miljónir. Þegar vjer gætum þess, að verð á kaup- ! staðarhúsum hjer á landi nemur nú meir en 3 i miljónnm umfram það, sem það nam fyrir j 18 árum, þart engan að sundla, þó að hann j heyri nefnda aðra eins npphæð eins cg til j þess þarf að koma þilskipaútgerð vorri í það j horf, sem njer er minnzt á. Allir vita, að hjer eru miljónir á miljónir ofan rjett við land, allt í kringum strendur þess. Jafnframt liggja í öðrum löndum í hrúgum miljónirnar, sem menn eru í vand- ræðum með að gera sjer arðberandi. Hvers vegna ætti að veia óvinnandi verk að fa eitt- hvað af því fje, til þess að ná í auðinn, sem umkiingir oss? »En oss vantar mtnn«, mun verða sagt. »Sjávarútvegurinn er stöðugt að draga frá landbúnaðinum, svo að nú horfir til vandræða fyrir landbóndann, og haldi þes-.u áfram, hættir landbóndinn að geta nokkuð.gert heima hjá sjer«. Gott og vel — þá er að útvega sjer menn! Það er nóg til af mönnum í öðrum löndum, sem þiggja atvinnu, hvar sem hún byðst. Otto Wathne hefur svnt það, að það er eng- um sjerstökum örðugleikum bundið að fá Norðmenn til að leita sjer atvinnu hjer, og það væri óhætt að leita fyrir sjer víðar. Allt er undir því komið, að vjer höfum ein- hverja atyinnu á boðstólum. Þá fáum vjer verkamenn, svo framariega sem vjer berum oss eptir þeim. Ef segja mætti, að vjer íslendingar hefðum nokkra stjórn — í sama skilningi og aðrar þjóðir — þá væri þetta mál lengra komið en það er. Vjer höfum einhverjar auðugustu fiskiveiðastöðvar í heimi, og svo er það að eins örlítið brot af þessari örlitlu þjóð, sem hefur atvinnu af þeim! Að öðru leyti lenda þær í höndunum á útlendingum, að svo miklu leyti, sem þær liggja ekki ónotaðar. Og stjórn vor hreyfir ekki hönd nje fót til þess að kippa þessu í lag! Það væri hlægilegt, ef það væri ekki jafn-grátlegt og það er. Með því að auka sjávarútveginn á þann hátt, sem hjer hefur verið bent á, væri ráðið fram úr viðsjárverðustu örðugleikum landbónd- ans -— auk þess sem það flytti ógrynni fjár inn í landið. Og til þess að fá því ftam- gengt, þarf ekki nema nokkurn áhuga og kapp í fáein ár. Það þarf í raun og veru ekki annað en forgönguna. Og hana hefðum vjer, ef vje.r hefðum stjórn, sent við væri unandi. Bókmenntir. Þorsteinn Erlingsson: Þyrn- ar. Nokkur kvæði. Kostn- aðarmaður Oddnr Björns- son. Iíhöfn 1897. 128 bls. Nafnið er einkennilegt; merkingin í því nokkuð óþjál, óeirin. Það á auðvitað að auðkenna efni bókarinnar, vera að nokkru bending um tilgang skáldsins með ljóðum sínum. Lesandanum er ekki ætlað að þurfa að lesa meira en titil- blaðið til þess að fá hugmynd um, að höf- undurinn hugsi sjer að koma við kaunin. Annað mál er það, hvort þessi kvæði stinga nú sjerlega sárt. Oss fyrir vort leyti finnst ekki þau gera það. Til þess ber tvennt. Eitt af kvæðunum »Bókin min«, er um »lífs- bók« höf. Á hana hafa í æsku hans hinir og a(5rir skrifað skoðanir sínar viðvíkandi tilverunni. »En til þess að skafa það allt saman af er æfin a'ð helmingi gengin. Um þetta er ekkert að segja, það er saga ótal margra nmnna. En það lalcasta er, að þegar vjer lesum þessi kvæði, eigum vjer svo örðugt með að verjast þeirri hugsun, að þegar búið var að skafa út gömlu skriptina í lífs- bókinni, hafi aðrir skrifarar setzt við hana og höf. hafi ekki átt neitt meira í henni eptir en áður. Og það getur verið mjög undir álitum komið, hvort nýju skrifararnir hafa verið nokk- uð vitrari hinum gömlu. Með öðrum orðum: lesandinn verður ekki mikið var við sjálfstæðan skilning hjá skáld- inu á þeim hliðum mannlífsins, sem harðastan dóm fá. Tökum það, sem skáldið segir í kristindóms- ins garð. Það er að vísu ekki rjett, að áfellast menn fyrir skoðanir þeirra í trúarefnum, og yfirleitt varúðarvert, að gera sig þar að dómara eða þá að heirnta af bókmenntunum, að þær grundvallist allar á einhverri ákveðinni lífs- skoðun. En að tala á þann hátt, sem höf. »Þyrna« gerir um kristindóminn, sem um jafn-margar aldir hefur fullnægt betur en nokkuð annað hinni æðstu þrá mannsandans rneðal mennta- þjóðanna og verið ríkasta menningaraflið í heiminum, að sjá ekkert í honum annað en heimsku, hræðslu, kúgun og grimmd -— það leyfum vjer oss að halda, að ekki sje sprottið af sjálfstæðri íhugun. Það er sprottið af mjög svo einhliða lestri, sem gerir manninn — ekki óheimskan. Slíkt kemur ekki við kaunin, stingst ekki langt inn. Sjálfstæðir, hugsandi menn yppta öxlum við því. Alveg eins að sínu leyti er það, sem skáldið segir um auðinn, er það befur nærri því eins mikla andstyggð á eins og kristindómnum. Auðnum á ekkert að fylgja nema kúgunin, ofbeldið. Vitaskuld getur þetta fylgt honum og fylgir honum líka opt og einatt. En það þarf ekki sjerlega víðtæka þekking til þess að geta látið sjer skiljast, að honum fylgir næst- um því óendanlega mikið meira — þar á með- al mjög mikið gott. Það er dálítið freistandi að sýna frnnáþað með fleiri dæmum, live veik íhugunin er hjá höf., svo að dómar nans eru undantekningar- lítið sleggjudómar einir; hvernig það er hans mesta mein, að vilja fyrir hvern mun vera spekingur, en vera það ekki, —- vera ekki nema skáld, sem reyndar ætti að vera hverjum manni nóg. Enn það yrði of langt mál. Annað atriðið, sem veldur þv/, að »Þyrnar« verða naumast eins sarir eins og þeim er ætl- að að vera, er það, að höf. hefur sýnilega jafn- an haft fyrir augum sjer lítlent ástand, þegar hann yrkir af mestri gremju. Naumast trúurn vje því t. d., að hann haldi því fram, að vistin hjer á landi sje óþolandi vegna þess, hve náið samband sje hjer milli auðsins og kirkjunnar. Það er livorttvegga, að kvæðin munu flest eða öll ort erlendis, enda bera þau þess ríkan keim. Að því leyti, sem þau eru ádeilukvæði, koma þau oss merkilega lítið við. En það eru fleiri liliðar á »Þyrnum« þar

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.