Ísafold - 20.10.1897, Blaðsíða 3
303
taka skóflu sjer i hönd og leita aö þessum fjár-
sjóð, sem fólginn er hvarvetna í jörð vorri, — öllum
ætti að vera frjálst að leita hans og neyta ávaxta
hans — heldur en að ganga með hendur í vös-
unum til oddvita og neyða hann til að opna
fjársjóð hreppsins og fylla vasana.
Verið getur, að yður þyki það nokkur sjálfs-
afneitun, að nota hverja tómstund til að rækta
hrjóstugan jarðveg, og fara ef til vill á mis við
flest þægindi lifsins að öðru leyti, þegar aðrir
njóta þeirra í fullum mæli. En sú sjálfsafneitun
veitir yður siðar ríkulegan ávöxt. Og það er
skylda yðar gagnvart sjálfum yður, skylduliði yð-
ar, ættjörð og þjóð, að nota kraptaua, nota æfi-
stundina óvissu til arðsamrar iðju, svo þjer, ef
auðið er, verðið eigi öðrum til þyngsla. Vitið
einnig, að allir heiðvirðir menn meta og virða
mikils iðjusemi, kapp og áhuga fátæklingsins að
hjálpa sjer sjálfur. — »Letingjann eigum vjerþar
á móti að aumka og fyrirlíta, og alveg eins, þó
að hann hafi erft auð fjár og geti þess vegna
alið aldur sinn í iðjuleysi« segir Samúel Smiles,
(sjá Sparsemi hls. 39).
Óþreyja >N. A.«
»N/ja Öldin« kveðst ekki hafa orðið þess
vör, að neitt tilboð hafi komið frá stjórninni
í siunar um ráðgjafaábyrgð, spyr ísafold,
hvernig það tilboð hafi verið orðað, og kveðst
bíða »skvrslu blaðsins um þetta« »með ó-
þreyju«.
Spuniingunni er þann veg háttað, að fá
lesandi mannsbörn á landinu mundu þurfa að
spyrja hennar. Það liggur því allnærri að líta
svo á, sem aunaðhvort sje blaðið að gera að
gamni sínu, eða þá að leitast við að fá nafn
sitt auglyst ókeypis í Isafold.
En hvað sem því líður, þá er guðvelkomið
að vjer bendum blaðinu á, hvernig það muni
bezt fá læknað í sjer óþreyjuna. Vjer ráðum
því eindregið til að reyna að ná sjer í alþing-
istíðindin frá í sumar. Það þarf fráleitt meira
en það, sem þegar er út komið af þeim. Lesi
blaðið vandlega t. d. ræðu landshöfðingja í
neðri deild 6. júlí, þá getum vjer ekki hugs-
að oss, að nokkur snertur af óþreyju verði
lengur í því.
Póstskipið Laura kom vestan að í gær-
morgun með marga farþega. Fer í kveld hjeðan
áleiðis til Khafnar.
Lamlsútgerðarskipið (Hjálmar) ókomið
enn; átti að koma 17 þ. mán.
Aðvorun.
Það mun óhætt mega fullyrða, að margar þús-
undir króna hefur almenningur hjer á landi gefið
út fyrir Bramalífselixír og Kínaelixír o. s. frv., og
vita þó allir, sem þekkja þessa elixíra, að þetta
eru engin læknislyf og eru rán-dýr. Hver heilvita
maður þarf ekki annað en lesa skrumið í leiðar-
vísinum, sem þessu sulli fylgir, til þess að sjá
strax og skilja, að allt er miðað til þess, að ginna
fáfróðan almenning, og er sárt að vita til þess, að
fátæk alþýða hjer á landi skuli nú í mörg ár hafa
gjörzt ginningarfífl óráðvandra útlendra skrumara,
þrátt fyrir það þótt brýnt liafi verið fyrir mönn-
um að forsmá þetta skrum og alla þá lygi, sem
borin er á borð.
Eins og sjest i blöðunum, hefur einn af löndum
okkar, stórkaupmaður Jakob Gunnlaugsson í
Khöfn, tekið það starf að sjer, að hafa á hendi
einkaútsölu hjer á landi á því argasta »húinbugii,
sem er engu betra en fyrnefndir elixírar, og er
sannarlega illa gjört af herra Jakobi, að verða
fyrstur manna til að reyna að veiða hjer fáfróða
alþýðu til að kaupa dýrum dómum slíkt, sem hann
nú er að bjóða, nefnil. Voltakross og einhvern
»lífsvekjara«. Hvorttveggja er af öllu r, sem vit
hafa á, viðurkennt húmbug, sem útlendir prangar-
ar hafa á boðstólum; enginn skyldi festa hinn
minnsta trúnað á vottorð þau, sem skrum-
inu fylgja. Jeg vil þvi bjer með vara menn
við því að trúa einu einasta orði i öllu því, sem
sagt er um »Voltakrossinn« og »lífsvekjarann«.
Vjer Islendingar ættum sannarlega að vera búnir
vð fá meira en nóg af Brama- og Kinaelixírnum.
Lofum Jakobi stórkaupmanni sjálfum að eiga
krossinn og lifsvekjarann; verði honum að góðu.
Reykjavik 16. okt. 1897.
Dr. J. Jónassen.
Jeg vil mælast til þess, að öll blöð landsins
taki þessar linur. J. J.
Reikning'ur
yfir tekjur og gjöld sparisjóðsins á Sauðárkróki
fyrir árið 1896 -97.
Tekjur: Kr. a. Kr. a.
Peningar í sjóði frá f. á... 348 92
Borgað af lánum:
a. fasteignarveðslán 1080 00
b. sjálfskuldarábyrgðarlán 1190 00
e. lán gegn annari trygg-
mgu » > 2270 00
Innlög í Sparisjóðinn á árinu 6537 03
vextir af innlögum lagðir
við höfuðstól 695 52 7232 55
Yextir :
a. af lánum 1421 65
Ymislegar tekjur 10 00
Alls kr. 11283 12
Gjöld: Kr. a. Kr. a.
Lánað út á reikningstímabilinu:
a. gegn fasteignarveði.... 1350 00
b. — sjálfskuldarábyrgð. . 4870 00 6220 00
Utborgað af innlögum sam-
lagsmanna 2079 07
þar við bætast dagvextir. . 17 69 2096 76
Kostnaður við sjóðinn:
a. laun 50 00
b. annar kostnaður: nýr
járnskápur o. fl 109 75 159 75
Vextir:
a. af sparisjóðsinnlögum . . 695 52
b. aðrir vextir 43 «3 738 85
Yrmisleg útgjöld 13 72
Afborgun til landsbankans. 1000 00
í sjóði 1054 24
Kr. 11283 12
Jafnaðarreikningur
sparisjóðsins á Sauðárkróki hinn 1. júní 1897.
Aktiva. Kr. a. Kr. a.
1. Skuldabrjef fyrir lánum
a. fasteignarveðskuldabrjef. 5350 00
b. sjálfskuldarábyrgðarbrjef 16190 00
c. skuldabrjef fyrir lánum
gegn annari tryggingu 100 00 21640 00
2. Vextir af Landsbankaláni
greiddir fyrirfram..... 37 55
3. Utistandandi vextir, áfalln-
irviðlok reikningsársins 73 67
4- í sjóði................. 1054 24
Kr. 22805 46
Passiva.
1. Innlög 122 samlagsmanna
alls ........................... 20234 29
2. Skuld til Landsbankans . . . 1000 00
Ilagvextir af endurgreiddu
láni • • • • ........ 6 86 1006 86
3. Til jafnaðar við tölulið 3
í aktiva........................... 73 67
4. Varasjóður.......................... 1490 64
Alls Kr. 22805 46
Sauðárkrók 20. júlí 1897.
Stephán Jónsson
p. t. gjaldkeri.
Nýborin kýr til sölu i góðri nyt. Ritst. visar á.
Jóhannes Einarsson í Eyvík vill selja snemm-
bæra 15 marka kú eða fá fóður fyrir hana og
gefa með.
Óskilalahross vis sífiustu Hrekkurjett:
Móalóttur foli, 2 vetra, mark: sylt v. Gefi
eigandi sig ekki fram við undirskrifaðan inn-
an þriggja vikna frá auglýsingardegi, verður
hann seldur.
Hvalfjarðarstrandarhr. 15. okt. 1897.
J. Sigurðsson (hreppstjóri.)
Oútgengin tryppi Úr annari Arnakróks-
rjett verða seld við uppboð að Miðdal á
þriðjudag 26. þ. m.
Mosfellshr., Álafossi 16. okt. 1897.
Bj'örn Þorláksson.
Undirskrifaður hefir týnt vasaklút með fjöru-
tíu krónum á veginum frá Kotströnd í Ölfusi
til Hellisheiðar. Ráðvandur finnandi er beðinn
að skila þeim til ritstjóra þessa blaðs mót háum
fundarlaunum.
p. t. Reykjavik 18. okt. 1897.
Villi.jálmur Bjarnarson.
Samkvæmt 20. gr. fjallskilareglugjörðar Gull-
bringu- og Kjósarsýslu eru i dag tekin til vöktun-
ar úr Búrfellsgjáarjett, og verða meðhöndluð sam-
kvæmt áminnztri gr., óskilahross þessi:
1. Jörp hryssa, 4 vetra, mark: stýft vinstra.
2. Jarpskjóttur foli veturg. mark : stýft vinstra.
3 Brún hryssa 2 v. mark: stýft hægra.
4. Jörp hryssa 4 v. mark: vaglrifað apt. hægra.
5. Brúnsokkótt hryssa 3 v. mark: sneiðrifað apt.
hægra.
6. Gráblesóttur foli, 2 v., marlc: stýft hægra.
7. Rauð hryssa, 2 v.,mark: vaglrifað fr. hægra.
Garðahreppi 4. október 1897.
Einar Þorgilsson, hreppst.
Uppboðsauglýsing.
Þriðjudaginn 26. þ. m. kl. 11 f. hád. verð-
ur opinbert uppboð haldið í húsi Guðna gull-
smiðs Símonarsonar við Bergstaðastræti hjer
í bænum og þar selt: boi-ð, skápar, stólar,
lampar, skúfhólkar, klukka, eldavjel, hjólbör-
ur, vagn, tunnur, kassar, púff, spýtur o. fl.
Söluskilmálar verða birtir fyrir fram.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 19. okóber 1897.
Halldór Daníelsson.
Uppboðsauglýsing.
Á opinberu uppboði, sem haldið verður í
latínuskólanum miðvikudaginn 27.þ.m., verður
selt rúmstæði úr trje, hálmdynur, hærudýnur og
koddar, fiðursvæflar, rekkuvoðir, teppi, hand-
klseði, þvottaskálar o. f 1.
Uppboðið byrjar kl. 11 f. hád. nefndan
dag og verða söluskilmálar birtir fyrir fram.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 20. okt. 1897.
Halldór Daníelssou.
»Aldan« heldur fund næstk. þriðjudag
kl. 8 e. m. á »Hótel Island«; áríðandi að allir
fjelagsmenn mæti.
Harðfisltur,
Skata,
Matfiskur og Tros
fæst keypt í verzlun
Eyþórs Felixsoiiar.
Tapazt hefir peningabudda á veginum frá
Reykjavik fram í Kaplaskjól, með töluverðum
peningum i. Finnandi er vinsamlega beðinn að
skila í afgreiðslu Isafoldar gegn góðum fund-
arlaunum.-
Týnzt hefir á götum bæjarins eða inni í hús-
um peningabudda með talsverðum pening-
um. Finnandi skili i afgreiðslust. ísafoldar.