Ísafold - 27.04.1898, Qupperneq 3
95
þá er þó enn jarÖlitið víða i sýshmni, þar
eð snjórinn var orðinn fjarskalega mikill.
Með april hefir aptur sniíizt til kulda; í
morgun -j- 12° E. fyrir sólaruppkomu.
Sumstoðar er kvartað um heyley&i, t. d.
á Höfðaströndinni, og nokkrir þar búnir að
koma niður fyrir nokkru.
í gær liríðarveður á austan. ídagbjart,
kaltj og logn
Lofsverður höfðingssbapur.
Síðastl. vor rjeðumst vjer undirrit-
aðir eigendur Mýrakirkju í að byggja
kirkjuna að uýjii, þar eð hin eldri
kirkja gat eigi lengur svarað kröfum
nútímans. En þótt vjer hefðum full-
an v^Ja á, að hin nýja kirkja mætti
verða veglegt og vandað hús, þá hefði
oss veitt það torveldara, cf vjer eigi
hefðum notið lofsverðrar aðstoðar hr,
hvalveiðamanns L. Bergs á Framnesi,
sem stóð fyrir pöntun á efnivið til
kirkjunnar og annaðist flutning á hon-
um frá Noregi, og ljet í tje ýmsa
hjálp við að reisa og mála kirkjuna—
studdi einnig sóknarnienn mikið með
aðflutning efniviðarins, allt án endur-
gjalds. Auk þess gaf hann kirkjunui
500 kr., og áður hafði hann gefið henni
ofn og lagt til eldsneyti í hann.
Ennfremur hefir frú haus gefiðkirkj-
unni prýðilega vandað altarisklæði, og
altarisdúk. |>essa höfðingsskapar vílj-
um vjer eigi láta ógetið.
f Mýrum í Dýrafirði í nóvbr. 1897.
Guðný Guðmundsdóttir. Fr. Bjamason.
Aflabrögð
í>au hafa verið mjög dauf, það Rem
af er liðið þessari vertíð; engu betri
fyrir almenningi en í fyrra —að Isa-
fold er skrifað úr suðurveiðistöðum
síðasta vetrardag, 20. þ- m.— Að vísu
ttiun netaafli vera lítið eitt örari hjá
einstöku mörmum; en fyrir allflestum
er sama eymdin og undanfarin ár.
Fyrir innan Vogastapa allt að Hvassa-
hrauni mun netahlutur hæstur um
150 fiska hjá einum manhi; nokkrit:
menn hafa 80—100 í net, en flestir
eru þar langt fyrir neðan; 30—40fiska
hlutur hjá almenningi og þaðan af
minna.
Síðan með byrjun þessa mánaðar
hefir aflazt á fœri í Garðs- og Leiru-
sjó, en þó n- það mjög óverulegt; all-
optast fullur helmingur af þyrsklingi.
Eærahlutur mun hæstur um 200, en
það eru heldur ekki nema örfáir menn,
sem hafa þá hlutartölu, og lakast er,
að af þessu er tæplega helmingur
þorskur.
Útlitið með aflabrögðin er því rojög
dauflegt hj-r fyrir inuan Garðskaga,
°g verður, að minni hygg]U, engu um
keDnt öðru en því, að fiskurinn hefir
ekki viljað ganga inn í flóann, Dema
að eins ein óveruleg ganga.
Naumast hefir þó fiskur verið geng-
inn hjer fram hjá áður en þorskanet
voru lögð í þotta sinn, _ eins og
shrnir hafa viljað telja mönnum trú
um undanfarnar vertíðir, _ þvf þau
voru lögð í Garðsjóinn fyrst 6. marz,
svo aptur þann 14. sama mán., 0g
varð { hvorugt skiptið vart íþau;enda
er það haft eptir botnverpingum, að
Þeir hafi fyrst orðið varir við fisk hjer
í flóanum 22. marz þetta ár.
Botnverpingar hafa ekki haldið sig
hjer á suðurmiðum fióans að neinum
nmn síðan þessi (apríl) mánuðurbyrj-
uði.
Lagasynjanir.
Tvennum lögum enn frá síðasta
þingi synjað staðfestingar: fjárkláða-
iógunum og þeim um húsmenn og
i^tisanaenn,
^aupför.
, Þ®8si kaupför hafa komið frá því
Slðast, bæði ^ gær; „Orlando« (72, O.
• ^irnonsen) frá Mandal með timb-
^ iausakaupa; »Cecilie« (227, J.
ú'- Schaarup) frá Khöfn með ýmsar
vörur til Bryde.
Holdsveikisspítalinn.
Skipið, sem von var á fyrir löngu
með viðinn í spítalann, kom loks í
fyrra dag, og með því yfirsmiðurinn
hr. F. A. Bald, ásamt sonum hans
tveimur og all-mörgum smiðum. það
er allstórt gufuskip, 312 smálestir, og
heitir Lotcs, akipstj. Petterson. þ>að
er nú að afferma inn við Lauganes.
Yfirmeistari Oddfellowreglunnar í
Danmörkn, dr. Petrus Beyer stórsír,
hefir lögum aamkvæmt skipað 3. mann
1 stjórn spítalans (ásamt þeim amt-
manni og landlækni); hjeraðslækni
Guðmund Björnsson.
ITin ferö Vestu,
straDdferðaskipsins, er lagði af stað
hjeðan vestur um land og norður 4.
þ. m., er skrifað af BlöDduós 15. þ.
m.:
»Vest.a kom hingað í fyrra dag, 13.
Hafði lent í þokum miklum og hitt
fyrir ís, var jafnvel snúin við einu
sinni, en hjelt áfram fyrir fortölur Is-
lendings eins, hákarlaformanns frá
Steingrímsfirði. Hvalveiðaskip, er
mætti Vestu, hafði sagt hafís við
Siglunes og lægi s'pildan þaðan 30
mílur vestur á við og næði 6—8 míl-
ur út frá landi«.
Heimdallur og botnverpingar.
Laugard. 23.þ.m. brá Heimdallur sjer
suður í Hafnasjó, með því að þaðan
höfðu borizt sögur um, að 7—8 botro
vörpuskip fiskuðu þar uppi í land-
steinum. Hann hitti á leiðinni þang-
að úr Hafnarfirði einn botnverping,
»Prince of Wa)es«, fram undan Kálfa-
tjörn, í landhelgi, með hafnsöguveifu
á framsiglu. Honum var skipað að
nema staðar og einn af foringjunum
á Heimdalli sendur út í hann. það
reyndist þá, að hann hafði botnvörp-
ur sínar innanborðs og þurrar, og að
enginn fiskur var í skipinu. Skipstjóri
skýrði frá, að hann kætni beirta leið
frá Hull og hefði ekki reynt neitt fyrir
fisk, síðan bann kom til landsins, kvaðst
vera á leið til Reykjavíkur að fá sjer
kol. Allar líkur þóttu til, að hann
segði satt; var ltonum skipað að hafa
sig burt úr landhelgi og varaður við
að koma þar optar. það reyndist
rjett, að hann var á leið til íteykja-
víkur að fá kol. — Herskipið hjelt
síðan áfram suður fyrir Skaga og hitti
þar 7 botnvörpuskip við veiði. En
bæði skipin sjálf og dufi þeirra reynd-
ast, er mælt var, vera hjer um bil 4
mílufjórðunga und'an landi. Mánu-
daginn næsta, í fyrra dag, rannsak-
aði herskipið aptur þetta sama svæði,
milli Skaga og Reykjaness, og hitti
þar jafnmörg skip og á laugardaginn;
voru tvö þeirra mjög nærri landhelgi,
300 faðma, fyrir utan hana. f>au voru
tekin fyrir og sagt að flytja dufl sín
utar betur.
Póstskipið
»Laura«, kapt. Nielsen, kom í gær-
morgun, og með henni fjöldi farþega,
flest útlendir smiðir og aðrir verka-
menn, danskir og færeyskir, til að
vinna við stórhýsin hjer í sumar.
Einnig nokkrir kaupmenn: Asgeir
Sigurðsson, Eyþór Felixson, W. O.
Breiðfjörð, Jón jþórðarson, H. Andersen
skraddarameistari, Jón Brynjólfsson
skósmíðameistari o. fi. Ennfr. margir
farþegar frá Yestmannaeyjum, þar á
meðal sýslum. Magnús Jónsson.
B. Christiansen kapt. er með skip-
inu sem farþegi; ætlar kringum land
að útvega afgreiðslumann fyrir strand-
bátana.
Nielsen þessi, er nú ræður fyrir
póstskipinu, var áður lengi stýrimaður
á því, — stýrir annars »Romny«.
Hann lagði nú skipinu mjög nærri landi
á höfninni, til mjög mikils hægðarauka
fyrir fermingu á laudi; það kemur sjer
mikið vel.
Hr. Kieid Stub,
Norðmaðurinn, sem lsafold hefir
getið urn að von væri á hingað um
þessar mundir sem erindreka hins
kristilega stúdentafjelags á Norður-
löndum, kom með póstskipinu í gær
frá Leith. Hanu dvelur hjer um 4
vikur.
Jarðarför
sýslumannsfrúarinnar fráYestrn.-eyj-
um, Kirstínar Sylvíu, fór fram hjer í
dag með miklu fjölmenni, — maður
hennar kom með líkið í gær með póst-
skipinu. Hún dó ánnan í páskuim
11. þ. m. (ekki 10.). Barnið hafði
hún alið 5. þ. m., sveinbarn, sem lifir
og fylgdi hingað líki móður sinnar til
fósturs hjá afa þess og ömmu.
Hiddarakrossl
daunebrogsorðunnar hefir konungur
vor sæmt hjeraðslækni þorsteín Jóns-
son í Vestmannaeyjum.
Spítalaskipið frauska,
St. Paul, sem laskaðist hjer í fyrra,
er nú aptur komið, í fyrra dag, frá
Havre. Nýr skipstjóri: Lacroix, en
flest fólk annað hið sama og í fyrra
(læknir, prestur m. fl.). Helgi kaupm.
Helgason gerði víð það til bráðabirgða
hjer í fyrra- sumar og fær lof fyrir í
tímariti hins franska bjargráðafjelags,
er gerir skipið út; það flytur og mynd
af honum.
Ymislegt frá útlöndum.
þ>eir verða 64, vinstrimennirnir í
fólskþinginu danska nú eptir kosning-
arnar i þ. mán., ef vinstrimaður verð-
ur kosinn í Færeyjum, svo sem líkur
eru til (Schroter),
Nú eru að eins 3 hægrimenn eptir
á þingi fyrir öll Khafnarkjördæmin
(13). það eru þeir Ravn flotamála-
ráðherra, Hammerich mannvirkjafræð-
ingur og Wagner herforingi. Hin sæt-
in skipa 6 sósíalistar og 4 vinstri-
menn. Yinstrimennirnir eru: C. Hage
stórkaupmaður, Herman Trier cand.
og bæjarfulltrúaformaður (í Khöfu),
Alfr.Christensen yfirrjettarmálfærslum,
og Philipsen bóksali og bæjarfulltrúi.
Fyrir Friðriksbergskjördæmið annað
var áður þingmaður vinstrimaðurinn
Sigurður Bojesen kommandor, mágur
Hilmars sál. Finsens landshöfðingja, en
fjell nú fyrir hægrimanni, prófessor
Ellinger.
Nærri lá, að J. Scavenius, fyrrum
ráðherra, fjelli í Odense fyrir sósíalista;
munaði að eins 13 atkv. af nær 1000,
er hvor þeirra hlaut.
Christofer Krabbe bæjarfóg., fyrrum
formaður í fólksþingiuu, var endurkosinn
í sínu gamla kjördæmi (Kallundborg
og Sámsey) nær í einu hlj. Sömul.
var Sofus Hogsbro gamli eudurkosinn.
I þremur meiri háttar bæjum á
Jótlandi sigruðust sósíalistar á hægri-
mönnum: í Aalborg, Horsens og Rand-
ers.
Hið sameinaða gufuskipáýjelag í
Khöfn græddi árið sem leið nær 3
miljónir kr. (2,877,733 kr.). Hluthaf-
endum úthlutað 10°/. í vöxtu af hluta
brjefum þeirra. Formaður í stjórn
fjelagsins er kommandor Garde, sá er
hjer var á feíðiuni í fyrra og samdi
við alþingi; Tietgen geheimeetazráð
sagt af sjer vegna ellilasleika.
Ekki voru fnðslit enn oröin með
Spánverjum og Bandamönnum, er
póstskip fór frá Skotlandi, en all-æsi-
lega látið á báðar hliðar. Sumir spá
þó, að ekki muni af þeim verða hjeð-
an, úr því að svona mikið hafi verið
um þau hjalað.
Gladstone enn á lífi 18. þ. m., en
batavon engin.
Flugufregn tóm reyndist það, að
Andrée væri kominn fram.
Fundið nýtt gull-land, í Wyoming,
einu meðal Bandaríkjanna, vestur í
Klettafjöllum.
HörmungarmiSferð
á skepnum
Hestum austanpóstsins
Austanpósturinn, miili Reykjavíkur
og Odda, ísak Ingimundarson, míssti
3 hesta (af 4) í síðustu ferðinni núna
um daginn. Einn drapst í túnfætin-
um á Odda; kafnaði af uppgangi frá
brjóstinu;hafði haft megna heysótt.
Hinir 2 urðu til á Hellisheiði hingað
í leið þriðjudagirin seinastan í vetri.
Annar gafst upp austarlega á heiðinni;
var sprett af honum og skilinn eptir.
Hinn gafst upp nær miðriheiði. Hjelt
kvennmaður, sem póstinum var sam-
ferða, áfram niður að Kolviðarhóli og
fekk þar mannhjálp til að vitja pósts-
ins með hey í poka o. s. frv., því
enga heytuggu hafði póstur með sjer.
Hestinum varð ekki komið lengra;
skiliu eptir hjá honum heytugga.
•Morguninn eptir fór lestamaður aust-
ur yfir heiðina og hitti þá hestinn
dauðan; hann hafði króknað út af um
nóttina. Hinn hestinn, austan til á
heiðinni, hitti hann líka, með örlitlu
lífsmarki og alveg klumsa; gat ekki
nærzt á töðu, er maðurinn hafði með
sjer. Hann skar því hestinn, til þess
aó stytta eymdarstundir hans.
það hefir lengi legið óorð á pósti
þessum fyrir, hve magur hross hans
væru og illa til reika, ólíkt því sem
alkunnugt er um hina póstana 2,
vestan og norðan, þá Arna og Hann-
es, er báðir fara snilldarlega með
skepnur sínar. Nú kastar þó tólfun-
um; og er ótrúlegt, að þetta verði
látið afskiptalaust af hegningarvaldinu.
þeir, sem sjeð hafa hross-skrokkana á
Hellisheiði, segja þar enga holdnóru á,
ekkert annað en beinin, er búið var
að birkja þá. Og hneyksli væri að
láta Isak halda áfram póstferðum
lengur.
TRJE OG RUNNAR fást hjá
EINARI HELGASYNl í VINA-
MINNI.
Með »Laura« komu allslags vefnað-
arvörur, óvenjulega mikið úrval, þar á
meðal SVUNTUTAU úr ull og silki,
ENSKT VAÐMÁL af fieiri tegundum,
EATATAU tvíbreið á 1,20 og þar yfir,
KJOLATAU úr ull alla vega lit, FLAU-
EL í ýmsum litum, sjerlega gott, SMÁ-
SJÖL og stór sjöl, SILKITVINNI,
PIQUE, DAMAST, LASTING í öll-
um litum. LJEREPT, FLÚNNEL,
PR JÓ N A V ÖRURN AR alþektu, B UCH-
WALDSTAUIN, SUMARSKÓR og
miklufleira. — BARNASKÓR, KVENN-
og KARLASKÓR og KLÆÐIÐ GÓÐA
kemur með »Thyra«.
Verðlisti verður sendur ókeypis hverj-
um, er óskar.
Reykjavik 27. april 1898.
Björn Tvristjánsson.
VIÐ VERZLU N ARSTÖRF getur
ungur og efnilegur kvennmaður og vel
að sjer fengið atvinnu. þær sem sinna
vilja þessu boði, gefi sig fram og geri
gréin fyrir sjer 1 lokuðu brjefi; er ut-
an á standi 999 og sje afhent í af-
greiðslu ísafoldar.
Fineste Skandinavisk Export Kaffe Surrogat,
óefað hið hezta og ódýrasta Export-Kaffi,
sem er til. F. HJ0RTH & Co.
Kjöbenhavn K.